Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 18/8 – 24/8
ERLENT
INNLENT
VÍKINGASKIPIÐ Ís-
lendingur kom til hafnar í
Reykjavík á mánudag með
Lagarfosi frá Shelburn í
Nova Scotia. Að sögn
Gunnars Marels Eggerts-
sonar, skipstjóra Íslend-
ings, er skipið í góðu ásig-
komulagi en hann
ráðgerir að sigla því til
Keflavíkur þar sem skipið
tekur þátt í Ljósanótt 7.
september nk.
SNÆFELLSJÖKULL
hefur þynnst og lækkað
verulega á síðustu sjö ár-
um en ummál hans hefur
þó ekki minnkað ýkja
mikið. Að sögn Odds Sig-
urðssonar, jarðfræðings
hjá Orkustofnun, er viðbú-
ið að jökullinn muni hopa
talsvert á næstu árum.
NÝTT olíufélag, Atl-
antsolía, áformar að hefja
starfsemi hér á landi um
næstu áramót. Að sögn
Símonar Kjærnested,
framkvæmdastjóra Atl-
antsolíu, verður olían
fyrst í stað seld til skipa
og stórnotenda en áform-
að er að kaupa olíuna þar
sem hún er ódýrust
hverju sinni. Í vikunni
voru tilboð opnuð vegna
framkvæmda við stöðv-
arhús og olíutanka í Hafn-
arfirði.
HAGNAÐUR Flugleiða
og tólf dótturfyrirtækja
nam 50 milljónum króna á
fyrri hluta ársins sem er
1.644 milljóna króna betri
afkoma en á sama tímabili
í fyrra. Hagnaður fyrir
skatta nam 122 milljónum
en það er 2.449 milljóna
króna breyting til batn-
aðar.
Þrjár konur létust í
hörðum árekstri
ÞRJÁR konur, á sjötugs-, áttræðis- og
níræðisaldri, létust í hörðum árekstri
fólksbíls og rútubifreiðar á Landvega-
mótum í Rangárvallasýslu á miðviku-
dag. Talið er að slysið hafi orðið með
þeim hætti að fólksbifreiðinni hafi verið
ekið inn á Suðurlandsveg og í veg fyrir
rútuna. Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni urðu 12 slys á gatnamót-
unum á árunum 1991–1999.
Mikil ölvun á
menningarnótt
MIKIL ölvun var á menningarnótt
eftir að hefðbundinni dagskrá lauk og
alls þurftu rúmlega 60 manns að leita
aðhlynningar á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss vegna meiðsla.
Að sögn lögreglu setti slæm umgengni
og slagsmál svip sinn á næturlífið það
sem eftir lifði nætur.
Alls voru 25 manns færðir á lög-
reglustöð og tæplega þriðjungur sett-
ur í fangageymslur en alls voru um 100
verkefni færð til bókar hjá lögreglu.
Forsætisráðherra
á faraldsfæti
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sótti í vikunni fund forsætisráðherra
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj-
anna í Lettlandi þar sem í ljós kom
m.a. að mikil bjartsýni ríkir um að
Eystrasaltsríkjunum verði boðin aðild
að NATO á leiðtogafundi bandalagsins
í Prag í nóvember og hægt verði að
ljúka aðildarviðræðum ríkjanna að
ESB í Kaupmannahöfn í desember.
Í Litháen átti Davíð m.a. fund með
Algirdas Brazauskas, forsætisráð-
herra landsins, og skrifuðu þeir m.a.
undir samning um gagnkvæma vernd
fjárfestinga milli ríkjanna. Þá heim-
sótti Davíð Færeyjar og átti þar fund
með lögmanni Færeyja.
Reynt að aftra
stórslysi í Kína
STJÓRNVÖLD í Kína hafa kallað út
meira en milljón manna til að berjast
við vaxandi flóð, einkum í Dongting-
vatni í Hunan-héraði. Meðal þeirra eru
á annað hundrað þúsunda hermanna.
Reynt var að styrkja varnargarða við
vatnið en bresti þeir mun flóðbylgjan
fara yfir eitt þéttbýlasta svæði í öllu
Kína og færa í kaf heimili 10 milljón
manna. Þegar Wen Jiabao, aðstoðar-
forsætisráðherra Kína, skipaði hern-
um að hjálpa til sagði hann, að þjóðin
hefði „ekki efni á neinum mistökum“.
Hefur Dongting-vatni verið líkt við
„blöðru fulla af vatni“ en vatnið, sem
er 2.800 km², er notað sem miðlunar-
lón fyrir Yangtze-fljótið. Gott veður
var á þessum slóðum fyrir helgi en
vegna úrfellisins að undanförnu er
mikill vöxtur í fljótinu ofar og búist var
við, að flóðið kæmi í Dongting-vatn í
dag, sunnudag. Um 600.000 manns
hafa verið flutt frá næsta nágrenni við
vatnið en vitað er um 16 manns, sem
týnt hafa lífi í vatnavöxtunum þar. Alls
hafa um 900 manns týnt lífi í Kína í
sumar vegna skriðufalla og flóða víðs
vegar í landinu.
Hamas hafnar
samningi
RÁÐHERRA öryggismála í palest-
ínsku heimastjórninni ræddi fyrir
helgi við fulltrúa 13 palestínskra sam-
taka um samkomulagið við Ísraela um
að þeir drægju her sinn frá Gaza og
Betlehem. Var ekki búist við, að mörg
þeirra samþykktu það og Hamas-
hreyfingin hafði þegar vísað því á bug.
Þá hefur hún og önnur hreyfing, Ísl-
amska Jihad, hafnað tilmælum um að
ráðast aðeins á Ísraela á hernumdu
svæðunum. Binyamin Ben Eliezer,
varnarmálaráðherra Ísraels, segir, að
palestínskir ráðamenn séu einlægir í
þessu máli en annað mál sé hvort þeir
geti haldið aftur af öðrum samtökum.
LJÓST þykir, að
skæruliðar í Tsjetsjníu
hafi skotið niður rúss-
neska flutningaþyrlu af
gerðinni Mi-26 en hún
hrapaði síðastliðinn
þriðjudag nærri einu út-
hverfa Grosníborgar.
Með henni fórust 116
menn. Héldu Rússar því
fram í fyrstu, að um slys
hefði verið að ræða en
viðurkenndu síðar, að
þyrlan hefði verið skotin
niður. Hefur yfirmanni
flugmála í rússneska
hernum verið vikið frá en
komið hefur fram, að í
þyrlunni voru 147 menn
þótt hún sé aðeins gerð
fyrir 80.
PERVEZ Musharraf,
forseti Pakistans, hefur
samþykkt breytingar á
stjórnarskrá landsins,
sem auka völd hans veru-
lega, þar á meðal til að
rjúfa þing. Aukast einnig
áhrif hersins á stjórn
landsins og er það að
sögn gert til að draga úr
líkum á valdaráni hans.
Ætlar Musharraf að sitja
áfram í embætti forseta
næstu fimm ár auk þess
að vera yfirmaður herafl-
ans. Var það samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu,
sem andstæðingar hans
segja að hafi verið eitt
svindl frá upphafi.
ÁTJÁN menn fórust
er Twin Otter-flugvél frá
nepalska flugfélaginu
Shangri La hrapaði til
jarðar í Nepal á fimmtu-
dag. 95 menn að auki
hafa farist í landinu síð-
ustu daga í skriðuföllum
og miklu bílslysi.
St.John´s í Kanada
símar: 562 9950 og 587 6000 • Skógarhlíð 10
netfang: info@vesttravel.is • www.vesttravel.is
VESTFJAR‹ALEI‹
46.900
verð
m. sköttum
frá kr.
m. v. 2 í herbergi á H
olid
ay
Inn
Árleg jólaverslunarferð til Kanada verður
farin 21.- 24. nóvember n.k.
Frábært að versla og allar helstu verslanirnar,
góðir veitingastaðir, einstök gestrisni
og írsk pöbbastemning.
Risa jólaskrúðganga og handverksmarkaður
með ekta amerísku jólaskrauti.
Munið afsláttinn fyrir árshátíðarhópana og
að panta tímanlega áður en ferðin selst upp.
Afbragðs hótel, íslensk fararstjórn, skoðunarferðir
og um 3 klst beint flug með
Atlanta.
skemmti- og verslunarferð
INGI Sigurðsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir að allt sé
tilbúið við Hásteinsvöll vegna
Evrópuleiks ÍBV á vellinum í
næstu viku.
Eyjamenn taka á móti sænska
liðinu AIK á fimmtudaginn í
næstu viku en þá fer fram á Há-
steinsvelli í Vestmannaeyjum
seinni leikur liðanna í forkeppni
UEFA-keppninnar í knattspyrnu.
Leikurinn átti upphaflega að fara
fram á Laugardalsvelli í Reykja-
vík þar sem Hásteinsvöllur stenst
ekki kröfur Knattspyrnu-
sambands Evrópu um leikvelli í
Evrópukeppni, en Knattspyrnu-
samband Íslands studdi ósk ÍBV
um að leikurinn færi fram í Eyj-
um og UEFA féllst á það, svo
framarlega sem Eyjamenn kæmu
upp 540 sætum á áhorfendapöll-
unum, sem eru við völlinn frá því
í fyrra, og öryggisgæsla yrði auk-
in.
Ingi segir að ekki sé fyrirhugað
að setja þak yfir pallana. Verið sé
að fara yfir reglur UEFA varð-
andi rekstur, alla umgjörð og
fleira. Komi til stúkubyggingar
verði hún gegnt pöllunum og í því
sambandi hafi veður mikið að
segja. Pallarnir hafi verið settir
upp í fyrra til að uppfylla skilyrði
um aðbúnað vegna leikja í efstu
deild, en stúka fari betur hinum
megin. Pallarnir hafi kostað um
sex milljónir króna en stólarnir
um 1,5 milljónir. Stólana megi
hins vegar færa komi til stúku-
byggingar síðar.
ÍBV og Þór áttu að leika í
Símadeild karla í Eyjum í gær og
þá var bæjarstjórinn væntanlega í
eldlínunni, en hann hefur verið
einn af lykilmönnum Eyjamanna
undanfarin ár. Hann segir að
leikurinn við Þór hafi verið öllu
mikilvægari en við AIK enda liðin
í baráttu um að halda sæti sínu í
deildinni. Hann segist ekki hafa
fundið fyrir neinni breytingu að
leika með liðinu eftir að hann
varð bæjarstjóri, en þeir sem
fjalli um leikina virðist vera upp-
teknari af því.
Allt tilbúið fyrir
Evrópuleik í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri og leikmaður ÍBV, og Sigurjón Birgisson smiður við Hásteinsvöll.
Nýtt símkerfi Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss
Mest hætta
skapast
innanhúss
detti sím-
kerfi niður
HÆTTA sem skapast getur, detti
símkerfi Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss niður, er mest innanhúss,
að sögn Ingólfs Þórissonar, fram-
kvæmdastjóra tækni og eigna hjá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Hinn 3. ágúst síðastliðinn náðist ekki
samband við aðalskiptiborð spítalans
í fjórar klukkustundir, vegna bilunar
í netbúnaði sem olli því að nýtt IP-
símkerfi spítalans datt niður.
Ingólfur segir að þeir sem eru
bráðveikir komi á spítalann í sjúkra-
bíl en meiri hætta stafi af því ef sam-
skipti innanhúss detta niður þar sem
símkerfið sé notað til þess að kalla á
lækna þegar nauðsyn krefur. Hann
segir að áhersla sé lögð á að vera
með aðrar leiðir opnar til samskipta
innanhúss á spítölunum. Gömlu sím-
kerfin séu ennþá virk innanhúss og
þá sé í notkun kalltækjakerfi sem sé
óháð símkerfinu. Hægt sé að kalla úr
tölvum eða með sérstökum neyðar-
hnöppum á þessum deildum. Ingólf-
ur segir að það sé ákveðin öryggis-
ráðstöfun að halda gömlu símkerf-
unum gangandi meðan reynsla
kemst á nýja IP-kerfið.
Að sögn Ingólfs er búið að laga
þann veikleika sem kom upp í net-
kerfinu þegar bilunin varð nú í
ágústbyrjun og því ætti slíkt ekki að
endurtaka sig. „Þetta kerfi er allt
tvöfalt, sem þýðir að bili einn hluti
þess tekur annar við,“ segir Ingólfur.
Kerfið tiltölulega
nýtt hérlendis
Hann segir að kerfi eins og þetta
sé tiltölulega nýtt hérlendis, en notk-
un þess fari vaxandi erlendis, þar á
meðal á sjúkrahúsum í Noregi og
Englandi.
Hann segir að Lína.net hafi sett
símkerfið upp og sjái um rekstur
þess fyrir Landspítala. Sá tími sem
kerfið hafi verið í gangi, að meðaltali,
frá því að það var tekið í notkun um
miðjan júlí síðastliðinn, sé 99,6% en
gerðar séu kröfur um að kerfið sé í
gangi 99,997% tímans að meðaltali. Í
þeim samningum sem gerðir voru við
Línu.net komi fram að viðunandi er
að kerfið sé að meðaltali óvirkt í
mesta lagi 16 mínútur á ári.
„Gömlu símkerfin sem hér voru
biluðu líka, öll mannanna verk geta
bilað en við reynum að koma í veg
fyrir að bilanir valdi tjóni með því að
hafa tvöfalt kerfi í gangi,“ segir Ing-
ólfur.