Morgunblaðið - 25.08.2002, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR gengið er inn í höf-uðstöðvar Skýrr hf. viðÁrmúla fer ekki á millimála að hér er unnið meðmikilvægar upplýsingar.
Blaðamaður er skráður í afgreiðslu
og fær gestakort, sem hann ber á sér
meðan hann dvelur innanhúss. Hús-
næðið hefur þegar verið stækkað
nokkrum sinnum, en Skýrr hefur
haft aðsetur á horni Ármúla og Háa-
leitisbrautar frá árinu 1964. Ný við-
bygging verður tekin í notkun á
næstu dögum í tilefni fimmtugsaf-
mælis fyrirtækisins. Starfsfólki fyr-
irtækisins hefur fjölgað vegna auk-
inna umsvifa, en á hinn bóginn hefur
vélbúnaðurinn orðið mun smærri í
sniðum og tölvurnar núna smásmíði
miðað við fyrstu tölvurnar sem tekn-
ar voru í notkun. Um sex þúsund
manns tengjast tölvukerfunum beint
sem hýst eru í vélasal Skýrr og mun
fleiri í gegnum ýmsar gagnaflutn-
ingstengingar á hverjum degi. Skýrr
er eins og stór upplýsingamiðstöð
þar sem gögn og upplýsingar skjót-
ast á örskotshraða til viðskiptavina.
Skýrr heldur upp á fimmtugsaf-
mæli sitt hinn 28. ágúst. Aðdragandi
að stofnun fyrirtækisins er áhuga-
verður, og ekki víst að almenningur
þekki til þess hvernig þetta stórtæka
fyrirtæki á sviði tölvuvinnslu og upp-
lýsingatækni varð til. Hreinn Jak-
obsson, forstjóri Skýrr, segir stofnun
fyrirtækisins hafa borið að á allsér-
stakan hátt. „Þannig var að Sigurður
Sigurðsson, berklalæknir og síðar
landlæknir, hafði forgöngu um að
umræður áttu sér stað milli Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, Hagstofu
Íslands og Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur vegna hugsanlegra
kaupa á vélasamstæðu til skýrslu-
gerðar. Ástæður þess að Sigurður
kom á málinu voru þær að hann var í
forsvari berklarannsókna á vegum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar hér á landi, og til þeirrar vinnu
þurfti skýrsluvélar með gataspjöld-
um. Hins vegar kom heilsuverndar-
stöðin ekki beinlínis að stofnun fyr-
irtækisins heldur Rafmagnsveitan
fyrir hönd Reykjavíkurbæjar og
Hagstofa Íslands fyrir hönd ríkis-
ins.“
Stofnað til félagsskapar
Í samningi um stofnun Skýrslu-
véla ríkisins og Reykjavíkurbæjar
árið 1952 er svo tekið til orða, að hér
sé stofnað til „félagsskapar til rekstr-
ar á skýrslugerðar- og bókhaldsvél-
um frá International Business Mach-
ines, New York.“ Hér er að
sjálfsögðu átt við IBM, sem í þá daga
framleiddi ýmsar skrifstofu– og
skýrsluvélar, en varð síðar stórtækur
tölvuframleiðandi. „Hagstofan þurfti
stórvirka skýrsluvél við gerð þjóð-
skrárinnar og manntals, Rafmagns-
veitan við útskrift reikninga og ýmsa
útreikninga, og loks berklarannsókn-
in við skráningu sjúkraskráa. Sam-
starfið var öllum mjög til happs, þar
sem erfiðleikum var bundið að fá
þennan dýra búnað keyptan til lands-
ins á tímum haftastefnu.“
„Skýrslugerð ýmiss konar, og síð-
ar tölvuvinnsla, bæði fyrir ríki og
borg, var unnin hjá Skýrr. Samstarf-
ið var mjög farsælt og hagkvæmt
fyrir alla aðila. Það þótti nokkuð sér-
stakt að ríki og sveitarfélag skyldu
fara í samstarf af þessu tagi. Á Norð-
urlöndum þekktust dæmi þess að
sveitarfélög annars vegar og ríkis-
stofnanir hins vegar tækju sig saman
um stofnun slíkra fyrirtækja, en
vegna fámennis hér heima má segja
að ríki og borg höfðu ákveðið að sam-
eina krafta sína. Það er þó mjög
merkilegt að Skýrr er stofnað tölu-
vert áður en flest þessi fyrirtæki á
Norðurlöndunum og sýnir best
frumkvæði þessara manna í upp-
hafi,“ útskýrir Hreinn.
Fyrstu vélar Skýrr voru sem áður
sagði skýrsluvélar sem unnu með
gataspjöldum. Þegar fyrsta tölvan
var væntanleg til landsins árið 1964
var ákveðið að byggja nýjar höfuð-
stöðvar fyrir svo nútímalegt og verð-
mætt tæki. „Fyrst var Skýrr til húsa
í Tjarnargötu 12, í þáverandi
Slökkvistöð og skrifstofu Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Síðan flutti fyr-
irtækið á Skúlagötu 59 árið 1957 og
var þar þangað til að nýja húsið við
Ármúla var vígt árið 1964, þegar
fyrsta tölva fyrirtækisins kom til
landsins og var sett upp í sérstöku
herbergi, sem var rúmir 40 fermetr-
ar,“ segir Hreinn. Þess má geta að
tölvan þætti ekki afkastamikil á nú-
tíma mælikvarða, minni hennar var
4K, en var mikill vinnuhestur miðað
við vélarnar sem hún leysti af hólmi.
Hefur þróað öll stærstu kerfin
Á fimmtíu ára tímabili hefur Skýrr
eðlilega komið nærri uppbyggingu
tölvukerfa ríkis og borgar. „Fyrir-
tækið sá alfarið um forritun og hönn-
un stærstu tölvukerfa ríkis og borg-
ar. Svonefnd landskerfi, sem notuð
eru í opinberri stjórnsýslu um allt
land, eru samtengd og nýta þannig
sömu upplýsingarnar í mörgum kerf-
um. Það hefur vakið athygli erlendra
aðila sem hingað hafa komið hve
samtengd tölvukerfi landsins eru og
hvernig hægt er að samnýta þessar
upplýsingar milli viðkomandi aðila.
Þetta er mikið hagræði og hefur
reynst einstaklega hagkvæmt í
rekstri stjórnsýslunnar hér á landi,“
segir Hreinn.
Þjóðskráin varð til hjá Skýrr í
byrjun 6. áratugarins. „Grunnurinn
að skráningu allra landsmanna var
unninn af Hagstofunni með fyrstu
vélum Skýrr. Líklega er þar um
fyrstu vélvæddu þjóðskrána í heim-
inum að ræða. Nú á dögum er óhugs-
andi að hafa ekki greiðan aðgang að
þjóðskránni og kennitölum lands-
manna. Mörgum þykir kennitalan
misnotuð, en eitt er víst að þjóðskrá-
in er þungamiðjan í öllu skráningar-
kerfi ríkis og sveitarfélaga,“ segir
Hreinn.
Á þessum árum hlóðust verkefni
upp hjá fyrirtækinu og forritarar
höfðu í nægu að snúast við að hanna
forrit fyrir ýmsar stofnanir ríkis og
borgar. „Byggð voru kerfi fyrir
Skattstjóra og Tollstjóra, Ríkisbók-
hald og Tryggingastofnun svo ein-
hverjar stofnanir séu nefndar. Í
þessu lá mikil vinna og mikil eftir-
spurn var eftir fólki sem kunni til
verka. Starf forritara var vandasamt
og það tók mikinn tíma að hanna skil-
virk tölvukerfi. Mikið álag var á
starfsmönnum Skýrr og náði fyrir-
tækið ekki að sinna öllum þeim verk-
efnum sem því buðust. Við því var
brugðist undir lok áttunda áratugar-
ins með endurskipulagningu fyrir-
tækisins og nýju skipuriti,“ útskýrir
Hreinn.
Einkavæðingin
Frá upphafi hafði fyrirtækið verið
í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar
(áður bæjar) og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. „Á þeim tíma var fyr-
irtækið fyrst og fremst þjónustufyr-
irtæki fyrir eigendur sína,“ segir
Hreinn. „Árið 1995 var ákveðið
breyta fyrirtækinu í hlutafélag og
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavík-
urborgar heita þaðan í frá Skýrr hf.
Gamla skammstöfunin var notuð sem
heiti á nýja fyrirtækið, og eflaust
hafa margir gleymt uppruna heitis-
ins nú,“ bætir hann við. Haustið 1996
var ákveðið að selja starfsmönnum
5% eignarhluta og í upphafi árs 1997
var ákveðið að selja meirihluta í fyr-
irtækinu, 51%. Einkavæðingin var
framkvæmd í nokkrum þrepum, og
var lokað útboð haldið 1997. Opin
kerfi hf. buðu hæst og eignuðust
meirihlutann. Afgangur hlutabréf-
anna var seldur á almennum markaði
árið 1998. Það er nú skráð í Kauphöll
Íslands.
„Nýir eigendur ákváðu að byggja á
þeim góða og trausta grunni sem
Skýrr hafði byggt á, þjóna áfram rík-
isstofnunum og sveitarfélögum, en
jafnframt að bjóða nýjum viðskipta-
vinum, fyrirtækjum og félögum,
góða þjónustu. Við viljum ekki
gleyma uppruna okkar, þeim aðilum
sem stóðu að stofnun fyrirtækisins á
sínum tíma, en jafnframt viljum við
þróa þjónustuna fyrir nýja viðskipta-
vini,“ segir Hreinn. „Við gerum við-
skiptasamninga við ríki og borg líkt
og önnur fyrirtæki. Við veitum heild-
arþjónustu á sviði tölvumála, sjáum
um rekstur tölvukerfa, veitum víð-
tæka hugbúnaðarþjónustu og miðlun
upplýsinga. Þjónustan hefur breyst
mjög frá því sem var þegar einungis
var unnið við gagnaútreikninga og
forritun. Nú er, auk allrar þjónustu
við tölvubúnaðinn, einnig unnið mik-
ið að aðlögun erlendra hugbúnaðar-
kerfa að íslenskum markaði.“
Ný kerfi leysa gömul af hólmi
Um þessar mundir er unnið að því
að innleiða ný Oracle fjárhags- og
mannauðskerfi fyrir ríkisstofnanir.
Þannig mun erlent kerfi leysa af
hólmi sérsmíðað fjárhags- og launa-
kerfi ríkisins sem smíðað var fyrir
um og yfir 20 árum. „Oracle-verkefn-
ið gengur vel og eru fyrstu hlutar
þess nú þegar í notkun hjá Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi. Við unnum
mikinn sigur fyrir íslenska tungu
þegar við fengum íslenskuna viður-
kennda sem eitt af 30 tungumálum
innan Oracle. Þróunin undanfarin ár
hefur orðið sú að notast er við staðl-
aðar lausnir í stað sérsmíðaðra kerfa
áður. Hins vegar er alltaf þörf á
ákveðinni aðlögun viðkomandi kerfa
að sérþörfum viðkomandi fyrirtækis,
og við það vinna ráðgjafar okkar nú.
Vakið hefur athygli erlendis að öll
stjórnsýsla eins ríkis skuli ákveða að
notast við eitt samhæft upplýsinga-
kerfi.“
Litið fram á veginn
Framtíðarsýn fyrirtækisins bygg-
ist á áframhaldandi samstarfi Skýrr
við fjölda ríkisfyrirtækja og stofn-
ana, við borgarstofnanir, og við fjölda
fyrirtækja og einstaklinga. „Fyrir
nokkrum árum voru aðeins nokkrir
tugir viðskiptavina hjá Skýrr, en nú
eru þeir yfir tvö þúsund,“ bendir
Hreinn á þegar rætt er um stækkun
fyrirtækisins og framtíð þess. „Nú
standa yfir formlegar viðræður milli
Upplýsingatækni í h
Morgunblaðið/Þorkell
Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, í vélasal Skýrr hf., ásamt Óttari Kjartanssyni, sem tók saman sögu fyrirtækisins í 50 ár.
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurbæjar, síðar
Skýrr hf., fagna fimmtugsafmæli sínu hinn 28.
ágúst. Hreinn Jakobsson sagði Morgunblaðinu
glefsur úr sögu fyrirtækisins, af framtíðaráformum
og hlutverki á 21. öldinni.
Sigmund Jóhannsson, skopteiknari Morgunblaðsins, lét fyrstu tölvuna sem
Skýrr keypti árið 1964 ekki framhjá sér fara.
Vélasalur Skýrr við Ármúla árið 1975. Hér má sjá framfarirnar í vélunum, til
dæmis segulbönd til vinstri og tölvuskjái.
Það þótti nokkuð
sérstakt að ríki og
sveitarfélag skyldu
fara í samstarf af
þessu tagi. Á Norð-
urlöndum þekktust
dæmi þess að sveit-
arfélög annars vegar
og ríkisstofnanir
hins vegar tækju sig
saman um stofnun
slíkra fyrirtækja, en
vegna fámennis hér
heima má segja að
ríki og borg höfðu
ákveðið að sameina
krafta sína.