Morgunblaðið - 25.08.2002, Síða 32
MINNINGAR
32 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður KarlLíndal Bene-
diktsson fæddist á
Siglufirði 11. apríl
1930. Hann lést á
Landakotsspítala 13.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Benedikt Einarsson,
vélsmíðameistari og
framkvæmdastjóri,
f. 14. mars 1906 á
Siglufirði, d. 27.
sept. 1980, og María
Ingunn Guðmunds-
dóttir, f. 31. júlí 1899
á Broddadalsá á
Fellströnd á Ströndum, d. 21. febr-
úar 1974. Systkini Sigurðar eru:
Arnbjörnsdóttir, f. 12. mars 1941.
Sigurður lauk stúdentsprófi frá
MR 1952 og prófi í vélaverkfræði
og flugvélaverkfræði frá TH
Darmstadt 1962. Auk þess sótti
hann fjölda námskeiða, m.a. hjá
Halliburton Energy Institute,
Oklahoma, 1981 og hjá Murcinson
Drillig Scool, New Mexico 1982.
Að loknu námi 1962 hóf Sigurð-
ur störf hjá Vermi hf. 1962 til
1969, og hjá Virki hf. 1969 til 1970,
hjá jarðhitadeild Orkustofnunar
1970 til 1975, hjá Jarðborunum
ríkisins, Orkustofnun 1975 til
1986, hjá Jarðborunum ríkisins hf.
1986 til 1988 og við ráðgjafarstörf
frá 1989.
Helsta áhugamál Sigurðar var
svifflug og varði hann flestum sín-
um tómstundum í það.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Bústaðakirkju á morgun, mánu-
daginn 26. ágúst, og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Guðbjörg Benedikts-
dóttir Malling, f. 20.
júní 1931, maki Knud
Malling, f. 8. febrúar
1933, d. 18.ágúst 2000;
Guðmundur Líndal
Benediktsson, f. 8.
ágúst 1932; Einar Lín-
dal Benediktsson, f. 8.
janúar 1934, maki
Lovísa Aðalsteindótt-
ir, f. 14.október 1939;
Ragnar Líndal Bene-
diktsson, f. 26. janúar
1939, maki Guðrún
Birna Árnadóttir, f.
18. apríl 1942; Guð-
mundur Þór Benediktsson, sam-
feðra, f. 2. janúar 1930, maki Klara
Það var síðustu vikuna í nóvember
árið 1996 að ég varð þess aðnjótandi
að vera tekin inn á Reykjalund til
endurhæfingar eftir veikindi og áfall
sem ég varð fyrir tveimur árum áð-
ur. Þegar ég kom inn á Reykjalund
fékk ég inni á hjartadeildinni þótt
veikindi mín hefðu verið af öðrum
toga. Á þessari deild eins og á öðrum
deildum var sjónvarpsherbergi þar
sem sjúklingar af þessari deild sátu
saman og horfðu á sjónvarpið á
kvöldin. Ég var nú ekki búin að vera
þar nema tvo til þrjá daga þegar hjá
mér settist maður sem kom til þess
að horfa á sjónvarpið eins og við hin.
Hann byrjaði að spjalla við okkur um
heima og geima og virtist mjög fróð-
ur um alla hluti. Svo barst talið að
Sandskeiði, þá fór ég nú sérstaklega
að hlusta og spurði hvort hann
þekkti ákveðinn mann sem væri mik-
ið upp á Sandskeiði og væri svifflug-
maður og hann sagði svo vera og að
hann þekkti hann vel en spurði jafn-
framt hvernig ég þekkti hann. Þá
sagði ég honum að hann væri sonur
minn. Þarna upphófust kynni mín og
Sigurðar Benediktssonar. Hann var
líka á hjartadeildinni þótt veikindi
hans væru af öðrum toga. Eftir þetta
sátum við alltaf saman við sama borð
á matmálstímum og reyndum að
haga því þannig til að við kæmum á
svipuðum tíma í salinn. Þarna var ég
í þessari endurhæfingu í sex vikur en
Sigurður í átta vikur. Þegar við vor-
um bæði komin í bæinn héldum við
sambandinu áfram. Hann bauð mér
út að borða en ég bauð honum heim
til mín í mat. Þannig þróaðist þessi
vinátta okkar. Nú fórum við að
ferðast saman, hann fór með mig
austur á Geitamel þar sem er hægt
að lenda flugvél og Sigurður var bú-
inn að vera þar með félögum sínum
að grjóthreinsa melinn svo hægt
væri að lenda flugvélinni sem þeir
eiga saman félagarnir. Þetta fyrsta
sumar fórum við nokkrar helgar upp
í sumarbústað sem ég á og vorum
þar og reyndum að fara í góða
göngutúra en Sigurður átti bara erf-
itt með að ganga en samt lét hann sig
hafa það. Áfram leið tíminn, nú var
komið haust, þá fórum við eitthvað
að tala um utanlandsferðir. Við
stungum upp á því að fara til Kan-
aríeyja um jólin í fjórar vikur og það
gerðum við. Við fórum um miðjan
desember og komum aftur til baka
um miðjan janúar. Þetta var ógleym-
anlegur tími. Við fórum í allar skoð-
unarferðir sem farnar voru.
Sigurður var óþrjótandi upp-
spretta af fróðleik, það var alveg
sama hvað manni datt í hug að
spyrja Sigurð um, hann hafði alltaf
svör á reiðum höndum, allt vissi
hann. Eftir að við komum heim lét-
um við ekki staðar numið, nú fórum
við að hyggja að því að sækja um og
fara á Heilsuhælið í Hveragerði og
þangað fórum við strax um páskana
og alls fórum við í fimm skipti á
Heilsuhælið í Hveragerði, þar af vor-
um við þar tvisvar um jól og áramót,
en í hin skiptin vorum við þar að
sumri til og var dvölin þar ákaflega
ánægjuleg. Við Sigurður fórum líka
saman í fjögur sumur í dagsferðir
með Íslenska álfélaginu sem voru
ánægjulegar ferðir í alla staði. Árið
1999 um sumarið var okkur Sigurði
boðið í tvær ferðir austur á land.
Fyrri ferðirna fórum við að Smyrla-
björgum þar sem vinafólk mitt býr
og þar vorum við í þrjá daga og son-
ur hjónanna fór með okkur upp á
jökul og í Jöklasel og keyrði okkur
um alla Suðursveitina og sýndi okk-
ur ýmsa merka staði, þar á meðal
Hala í Suðursveit þaðan sem Þór-
bergur Þórðarson var ættaður, en
hann var mikill aðdáandi Þórbergs
og hafði gaman af að lesa sögurnar
hans. Sigurður sagði mér að hann
hefði aldrei farið svona langt keyr-
andi í bíl, hann hefði yfirleitt flogið
yfir landið og þar af leiðandi ekki séð
marga sveitabæi á þessum slóðum úr
nálægð. Seinni ferðina fórum við svo
til vinafólks á Fáskrúðsfirði, þar sem
við dvöldum í fjórar nætur, m.a. við
berjatínslu. Sigurður sleppti reynd-
ar berjatínslunni en húsbóndinn á
bænum fór með hann í bíltúr og
sýndi honum ýmsa staði á meðan ég,
dóttir mín og tengdasonur vorum að
tína öll bláberin úr heiðinni. Þessar
ferðir okkar voru ákaflega ánægju-
legar og Sigurður var reglulega
ánægður með þær.
Það var sérstaklega yndislegt og
gott að hafa Sigurð nærri sér þar
sem hann var hjartahlýr og góður
drengur.
Góður engill guðs oss leiðir
gegnum jarðnesk böl og stríð,
léttir byrðar, angist eyðir,
engill sá er vonin blíð.
(H. Hálfd.)
Elsku vinur, nú er komið að leið-
arlokum. Hafðu þökk fyrir sam-
fylgdina og góðar stundir sem við
áttum saman allan tímann. Guð
geymi þig.
Sigfríður Georgsdóttir.
„Það eru 200.000 ferkílómetrar til
sjávar og sveita og veldu nú,“ var
svarið. Spurningin var hvort salern-
isaðstaða væri til staðar í félags-
heimili svifflugmanna á Sandskeiði.
Þetta var svar í anda Sigga Ben sem
skellti fram svörum sem oft virkuðu
stuðandi á ókunnuga en við sem
þekktum hann höfðum gaman af.
Siggi frændi var heimagangur á
heimili mínu frá því ég man eftir
mér. Þegar hann bar að garði var
hann iðulega settur í hásæti heimilis-
ins og látinn þýða Andrés önd úr
dönsku yfir á íslensku fyrir okkur
systkinin. Við búum enn að þessari
óhefðbundnu dönskukennslu sem ég
held að hafi gefið okkur forskot í
námi á því tungumáli þegar hið ís-
lenska skólakerfi tók við.
Siggi lagði sig fram um að kenna
mér meira en dönsku. Þegar ég var
15 ára fór hann að taka mig með sér
upp á Sandskeið þar sem hann kom
mér í kynni við það sport sem ég hef
stundað æ síðan, svifflug. Hann hafði
góða hæfileika til að kenna okkur
unglingunum svifflug og þótt hann
væri hámenntaður og gæti lagt allt
út í eðlis- og stærðfræðikenningum
þá lagði hann sig ævinlega fram við
að einfalda hlutina og kenna okkur
að tilfinning fyrir flugi væri æðri
allri eðlisfræði og að mat á aðstæð-
um hverju sinni væri eitthvað sem
var mikilvægara en útreikningar á
„induseruðu dragi á vængendum“.
Þessu gaf hann sérstakt vægi með
létt skrollandi rödd sinni, „meiri
rudder“, án frekari skýringa. Skýr-
ingum sem þessum kynntumst við
sem vorum með honum í liði enn
frekar á Íslandsmóti í svifflugi á
Hellu árið 1980. Þá þurftum við að
sækja Sigga þar sem hann hafði lent
á afar litlu túni og laskað svifflugu
sem félagi hans hafði lánað honum
fyrir mótið. „Strákar, þetta er sterk-
asta vélin í flotanum,“ svo mörg voru
þau orð, vélin var jú ekki ónýt og mat
á aðstæðum þannig að hann og verk-
fræðingaúlpan sluppu, hitt var jú
bara blikk og mátti berja til.
Siggi var vel lesinn í sögu landsins
og naut maður þar góðs af, sérstak-
lega var gaman að fá sögukennslu
frá honum í flugferðum á einshreyf-
ilsvélinni, TF-TOG. Þá þræddi hann
dali og árfarvegi og hélt uppi sögu-
skýringum úr Íslendingasögunum
um hvernig menn hefðu numið og
unnið land, höggvið mann og annan
o.s.frv. Þessu gaf hann öllu vægi með
tilheyrandi beygjum og lágflugi yfir
merka staði og malaði í sífellu í „int-
ercomið“ myndrænar lýsingar á at-
burðarásinni fyrir 1000 árum, mér til
mikillar ánægju.
Siggi var iðinn við að sinna því
áhugamáli sínu að smíða flugvélar,
þó svo að engin þeirra véla sem hann
hóf smíði á næði að fljúga. Ástæðan
var kannski sú að hann hafði of mörg
járn í eldinum hverju sinni, og þá
sveiflaðist hann oft öfganna á milli.
Eitt sinn hafði hann ásett sér að
skerða ekki hár á höfði sínu fyrr en
Vary Easy, sem hann var að smíða,
myndi fljúga. Hann lagði hverja frí-
stund í þetta og hárið óx og óx. Á
hann var að lokum kominn svo góður
lubbi að við strákarnir kölluðum
hann Sókrates, svo mjög fannst okk-
ur hann líkjast myndum af þeim
snillingi. En ekki flaug Vary Easy og
hárið var klippt.
Þegar heilsu Sigga fór að hraka
átti hann mjög erfitt með að sætta
sig við að vera ekki „mobile“ eins og
hann orðaði það. Þó sá maður góða
spretti inn á milli þar sem hann lét
vaða í yfirlýsingum um samferða-
menn sína. Við náðum að fljúga sam-
an síðastliðið sumar þar sem við átt-
um góða stund. Eftir það flug sagði
hann mér að hann væri búinn að
fljúga nóg fyrir lífstíð. Reyndar var
það svo að hann virtist vera búinn að
afgreiða flest fyrir lífstíð, það var
orðið fátt sem vakti áhuga hans.
„Sjáðu til, það sleppur enginn lifandi
frá lífinu,“ var ein af síðustu yfirlýs-
ingum hans, en eftir stendur minn-
ing um raungóðan frænda sem alltaf
var langt í nei-ið hjá.
Benedikt Ragnarsson.
Ég kynntist Sigurði Benedikts-
syni fyrir aldarfjórðungi. Með okkur
tókst góð vinátta og ekki síður milli
hans og barna minna sem kölluðu
hann alltaf Sigga Ben. Þegar börnin
voru lítil gat ég ætíð beðið Sigurð að
gæta þeirra, trygglyndi og góð-
mennska voru einkennandi fyrir
hann.
Sigurður var börnunum allt í senn
frændi, afi og jafnvel sem faðir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
SIGURÐUR
BENEDIKTSSON
!
"#$$ %
$&'($
!
" # $
$
%&%
' $
(
&
'
)
$
$(!
&(' *
& )*!
+& " ,-!! .+ & /" (-0
1 (, ,-!! 2 '!0
'' ,-!0 3( -!!
# # 0"# # # .
!" !
#$ %&
!""#
' ( '
$ )" '
* $ *' + '
,- $ .'/ '
* $ ' 0 '
1 12 $ 1 1 12 3
!
"
!"
!
#$
%# ! $
&'
( ! $
# $# )'*+
!"#
$ % &
!!"
'%( ) )* + ,,
-)
) .
-) /* ) . , 0 '%( )*
) .
. & 0 , )*
) . 1 )*
& . )*
!
"# $%
&'( ' )' *% % +
++,'*+
)*'-'.