Morgunblaðið - 25.08.2002, Side 49

Morgunblaðið - 25.08.2002, Side 49
Sparks mikla athygli fyrir stuttskífu sína Make the Cowboy Robots Cry sem kom út á síðasta ári en enn meiri hrifningu vakti Once We Were Trees sem kom út í hitteðfyrra, en hún þyk- ir minna á Byrds, Flying Burrito Brothers og Buffalo Springfield; létt sveitasýra. Make the Cowboy Robots Cry er aftur á móti öllu þyngri, lögin lengri og meiri pælingar í gangi. Sagan hermir að maður að nafni Edgar Graham hafi ruðst upp á svið á tónleikum rokksveitarinnar Mod- est Mouse fyrir fjórum árum og heimtað að fá að syngja með. Í ljós kom að hann var ekki bara æstur aðdáandi sveitarinnar heldur var hann búinn að semja bunka af lögum sem hann vildi koma á framfæri. Liðsmenn Modest Mouse lögðu hon- um lið við að vinna lögin og taka upp og niðurstaðan varð skífan Sharpen Your Teeth sem kom út í vor. Á plöt- unni má glöggt heyra að Graham hefur sitthvað fram að færa; tónlistin er í bland sérdeilis grípandi að hætti Modest Mouse og algjör sýra. Ekki þurfa Modest Mouse-vinir þó að hlusta lengi að þeir kannast við söngvarann og smám saman rennur upp fyrir mönnum að skálkurinn Edgar Graham er Issac Brock, söngvari og gítarleikari Modest Mouse. Á skífunni fær hann til liðs við sig Paul Jenkins úr Black Heart Procession, John Orth úr Holopaw og Tim Rutili og Brian Deck úr þeirri ágætu sveit Califone, en þess má geta að Deck stýrði upptökum á síð- ustu eiginlegu plötu Modest Mouse, The Moon & Antarctica. The Shins átti eina af bestu plötum ársins vestan hafs árið 2001, Oh, In- verted World, sem aldrei hefur feng- ist hér á landi. Framúrskarandi skemmtilegt bandarískt nýrokk sem vísar í ýmsar áttir, sækir innblástur aftur til áttunda áratugarins án þess þó að missa sjónar á nútímanum. Joe Pernice er afskaplega þung- lyndur maður, eða í það minnsta hljóma verk hans svo. Hann er prim- us inter pares í hljómsveitunum fjór- um, Scud Mountain Boys, Chappa- quiddick Skyline, Big Tobacco og Pernice Brothers, en reyndar virðist sú síðastnefnda vera sú eina sem er starfandi sem stendur. Fyrstu plötur Scud Mountain Boys, Pine Box og Dance the Night Away, eru lyk- ilskífur í safni þeirra sem áhuga hafa á lágstemmdu nýsveitarokki, en þær er hægt að fá saman sem The Early Years. Massachusetts með sömu sveit er líka mjög góð. Á Chappa- quiddick Skyline er þunglyndið full mikið, en plötur Pernice Brothers eru ágætar, sú fyrri, Overcome by Happiness, er á Sub Pop. Þegar merkissveitin Galaxie 500 leystist upp fyrir rúmum áratug stofnaði Dean Wareham Luna en Damon Krukowski og Naomi Yang tóku upp samstarf sem Damon & Naomi. Síðan eru plöturnar orðnar fjórar. Sú fjórða heitir Damon & Naomi with Ghost, enda njóta þau á henni liðsinnis sýruhöfðingjanna úr japönsku framúrstefnusveitinni Ghost. Tónlistina vilja sumir kalla slowcore á við Low og víst er hún hægfara og full upp með grípandi laglínum. Ugly Casanova Beachwood Sparks FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 49 Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í sólina í haust á einstökum kjörum, þar sem þú getur lengt sumarið á vinsælustu áfangastöðum Íslendinga við bestu aðstæður. Í september finnur þú frábært veður við Miðjarðarhafið, 25–30 stiga hita og kjöraðstæður til að lengja sumarið. Beint flug á alla áfangastaði Heimsferða þar sem þú nýtur traustrar þjónustu fararstjóra okkar. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Síðustu sætin með Heimsferðum í sólina í haust frá kr. 29.985 Verð frá 29.895 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 5. sept. í viku. Stökktu tilboð. Almennt verð kr. 31.390. Verð frá 39.950 M.v. 2 í stúdíó/íbúð, 5. sept. í viku. Stökktutilboð með sköttum. Almennt verð kr. 41.950. Mallorka Hér getur þú valið um vinsælustu gististaði Heimferða, s.s. Pueblo Palma eða Tres Torres, eða valið stökkið í sólina, og þá færðu að vita 3 dögum fyrir brottför hvar þú gistir. Verð frá 29.895 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 11. sept. í viku. Stökktu tilboð. Almennt verð kr. 31.390. Verð frá 39.950 M.v. 2 í stúdíó/íbúð, 11. sept. í viku. Stökktutilboð með sköttum. Almennt verð kr. 41.950. Benidorm Einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga. Vinsælustu gisti- staðirnir okkar, Vina del Mar og Montecarlo eru í hjarta Benidorm, og ef þú vilt taka sénsinn og kaupa ferð án þess að vita hvar þú gistir, þá færðu enn lægra verð. 5. sept – vika – 11 sæti 5. sept. – 2 vikur – uppselt 12. sept. – 2 vikur – 14 sæti 4. sept. – uppselt 11. sept. – vika – 23 sæti 11. sept. – 2 vikur – uppselt 18. sept. – vika – uppselt 18. sept. – 2 vikur – 19 sæti 2. okt. – 3 vikur – 18 sæti Verð frá 39.895 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 4. sept. í viku. Stökktu tilboð. Almennt verð kr. 41.890. Verð frá 49.950 M.v. 2 í stúdíó/íbúð, 4. sept. í viku. Stökktutilboð með sköttum. Almennt verð kr. 52.450 Costa del Sol Okkar vinsælasti áfangastaður, enda finnur þú hér frábærar aðstæður í fríinu. Veldu um Aguamarina, Timor Sol eða Principito, og tryggðu þér 1, 2 eða 3 vikur í sólinni í haust. Og ef þú vilt stökkva, þá er verðið enn lægra. Nú er allt að verða uppselt 4. sept. – 1 vika – 17 sæti 4. sept. – 2 vikur – uppselt 11. sept. – uppselt 18. sept. – vika – uppselt 18. sept. – 2 vikur – 19 sæti 2. okt. – 3 vikur – 28 sæti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.