Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 56
ÞESSA fallegu mynd tók ljós- myndari Morgunblaðsins í fyrra- dag af Jökulsá á Dal sem í dag- legu tali heimamanna er nefnd Jökla, líkt og lesa má m.a. í Ís- landshandbókinni. Þar kemur fram að áin er lengst allra vatns- falla á Austurlandi og um leið hið mesta, 150 kílómetra löng. Jökulsá, sem á upptök sín í Brú- arjökli, er gruggugust íslenskra jökulvatna og talið er að aurburð- ur hennar sé allt að 120 tonnum á klukkustund að sumarlagi. Hér eru stuðlabergsdrangar í Jökulsá á Dal á móts við Sauðafell og bergrisinn skríður handan árinn- ar. Hann mun þurfa að skríða á um 150 til 170 metra dýpi þegar Hálslón verður fullt ef af virkjun við Kárahnjúka verður. Maðurinn á bjargbrúninni er ekki stór í samanburðinum við hrikalegt og fagurt umhverfið en hann teflir sannarlega á tvær hættur með því að standa þarna með beljandi vatnsstrauminn fyrir neðan sig. Morgunblaðið/RAX Hrikaleg fegurð við Jökulsá á Dal MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. www.namsmannalinan.is NÝ Norræna var sjósett í Lübeck í Þýskalandi í gær og munu áætl- unarsiglingar með henni hefjast næsta sumar, en hún tekur við af eldri Norrænu sem starfrækt hefur verið í tvo áratugi. Á myndinni má sjá ferjuna í Flender skipasmíða- stöðinni þar sem hún var sjósett. Við sjósetningu var hún fullbúin að utan en unnið verður við innri frá- gang þar til í febrúar á næsta ári. Nýja ferjan er stórt og velbúið farþegaskip sem tekur tæplega 1.500 farþega í misstórum klefum, sem allir eru búnir salerni og sturtu. Hún flytur 800 bíla auk ým- iss konar fragtar. Norræna er 164 metrar að lengd, 30 metrar að breidd og 36.000 brúttótonn að stærð. Til samanburðar var gamla ferjan 12.000 brúttótonn, 129 metra löng og 21 metra breið. Hún gat flutt 1.050 farþega og 280 bíla. Smyril Line gerir Norrænu út og siglir hún á milli Seyðisfjarðar á Ís- landi, Þórshafnar í Færeyjum, Leirvíkur á Hjaltlandi, Bergen í Noregi og Hanstholm í Danmörku. Ný Nor- ræna sjósett Ný Norræna var sjósett í Flender í Lübeck í Þýskalandi í gær. Jarðhita- rannsókn- ir í Eyjum ÁKVEÐIÐ hefur verið að hefja skipulagðar jarðhita- rannsóknir í Vestmannaeyjum en í kjölfar sameiningar Bæj- arveitna Vestmannaeyja og Hitaveitu Suðurnesja hf. var gert ráð fyrir að hafin yrði at- hugun á möguleikum þess að finna nýtanlegan jarðhita í Eyjum. „Þegar fyrirtækin runnu saman í eitt var ákveðið að endurskoða allar þær rann- sóknir sem gerðar hafa verið á jarðvarma í Eyjum og freista þess svo að leita frekar ef hag- kvæmt þætti,“ segir Albert Al- bertsson, aðstoðarforstjóri HS. Nægur varmi en finna þarf flutningsgjafann Nú hafa allar gamlar skýrslur verið yfirfarnar og í kjölfarið verið lagðar fram til- lögur um frekari rannsóknir með það að markmiði að stað- setja hugsanlegar rannsóknar- holur. Albert segir að nú verði farið í frekari jarðfræðikort- lagningu á svæðinu og gert sé ráð fyrir að þeirri athugun verði lokið fyrir áramót. REKSTUR járnbrautar milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar er ekki talinn hagkvæmur að mati breska ráðgjafarfyrirtækisins AEA Technology Rail og verktakafyrir- tækisins Ístaks hf. sem skilað hafa Orkuveitu Reykjavíkur og borgar- verkfræðingi umbeðinni skýrslu í öðr- um áfanga hagkvæmniathugunar á framkvæmdinni. Upphafskostnaður er metinn á rúma 33 milljarða króna en talið ljóst að tekjur af járnbrautinni muni „und- ir engum kringumstæðum“ mæta öll- um kostnaði við hana. Munar þar 250 milljónum króna á ári. Þetta er önnur niðurstaða en sömu aðilar komust að í fyrsta áfanga hag- kvæmniathugunar, sem kynnt var með skýrslu í október á síðasta ári. Þar var járnbraut talin standa undir rekstrarkostnaði og heildarkostnaður metinn 24–30 milljarðar króna en skýrsluhöfundar gáfu sér þá aðrar forsendur. „Þótt bjartsýnisspá sé lögð til grundvallar er ljóst að tekjur af járn- brautinni muni undir engum kring- umstæðum mæta öllum kostnaði við hana. Þess vegna virðist ekki rétt að ráðast í járnbrautarlagningu,“ segir m.a. í skýrslunni nú, sem Morgun- blaðið hefur undir höndum. Brautin myndi liggja frá flugstöð Leifs Eiríkssonar og meðfram núver- andi Reykjanesbraut að Straumsvík. Þar sem reiknað er með vexti byggð- ar meðfram Reykjanesbraut hefur járnbrautin verið færð innar í landið. Er þetta meginbreyting á brautarlínu frá fyrsta áfanga hagkvæmniathug- unar. Lagt er til að lestarstöðvar verði í Hvassahrauni (ef flugvöllur verður þar í framtíðinni), Kapellu- hrauni og Smáralind og lestin fari í nokkur jarðgöng að endastöð við Reykjavíkurflugvöll. Þannig myndu göng t.d. liggja úr Fossvogsdal, gegn- um Öskuhlíðina og gangaop yrði við rætur Öskjuhlíðar vestan við Perluna en norðan við Hótel Loftleiðir. Upphafskostnaður er sem fyrr seg- ir talinn vera rúmir 33 milljarðar króna. Stærstu liðirnir eru 11,2 millj- arðar vegna mannvirkja og jarðvinnu, tæpir 7,5 milljarðar í járnbrautar- teina og rúmir 6 milljarðar í sjálfar lestirnar. Skýrsluhöfundar gera ráð fyrir árlegum rekstrarkostnaði upp á 1.458 milljónir króna, þar af tæpum milljarði í viðhald og endurnýjun. Miðað er við tekjur upp á 1.208 millj- ónir króna þannig að árlega vantar 250 milljónir upp á að járnbrautin standi undir sér. Reiknað er með 1,4 milljónum farþega á ári. Skýrslan var kynnt á fundi stjórnar Orkuveitunnar á föstudag og þar kom fram, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, að kostnaður við athugunina er kominn í um 16 milljónir króna. Ný skýrsla fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og borgarverkfræðing Lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur ekki hagkvæm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.