Morgunblaðið - 03.09.2002, Síða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 7
Í GÆR hækkuðu olíufélögin öll verð á
bensíni um 1,70 krónur á lítra. Frá 1.
mars sl. hefur bensínverð hér á landi
hækkað um rúm 8% en um 7% frá
áramótum. Frá þeim tíma hefur
heimsmarkaðsverð hráolíu hækkað
um 38% en gengi dollars gagnvart ís-
lensku krónunni lækkað um rúm
15%.
Olíufélagið ehf. reið á vaðið með
hækkun sem tilkynnt var síðdegis á
sunnudag og síðan komu Skeljungur
og Olís í kjölfarið um miðjan dag í
gær með sínar verðbreytingar. Í til-
kynningu félaganna er sama skýring
gefin á hækkuninni. Hún er sögð
stafa af hækkun heimsmarkaðsverðs
á eldsneyti og þróun gengis íslensku
krónunnar gagnvart dollar.
Eftir hækkun kostar lítrinn af 95
oktana bensíni með fullri þjónustu hjá
olíufélögunum 98,70 krónur og 103,40
krónur af 98 oktana bensíni hjá Olíu-
félaginu og Olís. Hjá Skeljungi kostar
lítrinn af 99 oktana Shell V-Power
bensíni 107,50 kr. eftir hækkunina.
Lítrinn af díselolíu kostar alls staðar
48,10 krónur miðað við fulla þjónustu
almennu bensínstöðvanna.
Bensínorkan hækkar
ekki um sinn
Á sjálfsafgreiðslustöðvunum var
eldsneytisverðið einnig hækkað um
þessi mánaðamót, að Bensínorkunni
undanskilinni. Gunnar Skaptason hjá
Bensínorkunni ehf. sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gær ekki hafa
ákveðið neinar verðbreytingar en þar
hefur 95 oktana bensín kostað 91,60
kr. á lítra, lítrinn af 98 oktana bensíni
kostað 96,70 kr. og díselolía 41,10
krónur. Mun það verð gilda eitthvað
áfram, að sögn Gunnars.
Á Esso-Express stöðvunum og Ób-
stöðvum Olís hækkaði bensínlítrinn
einnig um 1,70 kr. Eftir hækkun kost-
ar lítrinn þar af 95 okt. bensíni 93,40
krónur og díselolían 42,90 kr. hver
lítri. Esso-Express og Ób-stöðvar
selja ekki 98 okt. bensín. Víða eru al-
mennu bensínstöðvarnar með afslátt,
ýmist vegna framkvæmda eða ef bíl-
eigendur dæla sjálfir.
!"
#
!" #
$% #
&
Bensínlítrinn
hækkaði um
1,70 krónur
FJÓRIR skiptu með sér 1. vinningi í
Lottó sl. laugardag og komu 7,9
milljónir króna í hlut hvers.
Vinningsmiðarnir voru seldir í
Akranesi á Akranesi, H-Seli á Laug-
arvatni, Shellskálanum í Bolungar-
vík og Söluskálanum, Langholtsvegi
70 í Reykjavík.
Níu voru með fjórar tölur réttar
auk bónustölu og komu tæpar 120
þúsund krónur í hlut hvers.
Fjórir skiptu
með sér
lottóvinningi
ÞAÐ gengur kraftaverki næst, að
sögn lögreglu, að karlmaður á sex-
tugsaldri skyldi komast lífs af úr bíl-
veltu austan við Sauðárkrók rétt fyrir
miðnætti aðfaranótt laugardags. Bíll-
inn endastakkst og fór nokkrar veltur
en ökumaðurinn, sem var einn í bíln-
um, fékk að fara heim eftir skoðun á
sjúkrahúsi. Þakkar lögreglan það því
að maðurinn var með bílbeltin spennt
að ekki fór verr. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun við akstur.
Slysið varð á Sauðárkróksbraut um
7–8 kílómetra austan við Sauðárkrók,
skammt frá bænum Keflavík í Hegra-
nesi. Ökumaðurinn missti stjórn á
bílnum stuttu eftir að hann kom inn á
veg með bundnu slitlagi. Segir lög-
regla greinilegt að maðurinn hafi ver-
ið á mikilli ferð. Bíllinn sem er ónýtur
var fjarlægður með kranabíl.
Bílvelta austan við
Sauðárkrók
Kraftaverk að
ökumaður
komst lífs af
♦ ♦ ♦