Morgunblaðið - 03.09.2002, Síða 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 19
FLAGA hf. hefur gert samkomulag
um kaup á bandaríska fyrirtækinu
Medcare Diagnostics og er stefnt að
undirritun endanlegs kaupsamnings
á næstu dögum. Kaupverðið er um
1.400 milljónir króna eða 16 milljónir
bandaríkjadala. Medcare, sem starfar
á sama markaði og Flaga hf., sérhæfir
sig í gerð hugbúnaðar og tækja til
svefnrannsókna. Með kaupunum
verður Flaga hf. stærsta fyrirtækið á
sviði hugbúnaðar og tækja til svefn-
rannsókna í heiminum en Medcare
hefur verið einn helsti keppinautur
fyrirtækisins, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Áætluð velta félagsins eftir kaupin
er um 1.400 milljónir króna fyrir árið
2002 og hagnaður fyrir fjármagnsliði
og skatta (EBIT) er áætlaður um 170
milljónir króna. Ráðgjafi Flögu við
kaupin var Kaupþing banki hf. sem
jafnframt tryggir greiðslu kaupverðs-
ins og hefur umsjón með fjármögnun
kaupanna. Jafnframt hefur Kaupþing
tryggt sér 20% eignarhlut í Flögu og
er seljandi þeirra hlutabréfa Helgi
Kristbjarnarson, stofnandi Flögu.
Um skeið hefur staðið til að Helgi og
fjölskylda minnkuðu eignarhlut sinn í
fyrirtækinu en hann var tæp 30%.
Fjölskyldan heldur því eftir tæpum
10% hlutafjár í Flögu hf.
Að sögn Svanbjörns Thoroddsen,
forstjóra Flögu, mun fjármögnun
kaupanna á Medcare skiptast í
þrennt; langtímalánsfjármögnun,
breytanlegt skuldabréfalán og
skammtímalán sem verður endurfjár-
magnað með hlutafjárútgáfu á næsta
ári.
Sameinað fyrirtæki mun starfa
undir merkjum Medcare og verða
höfuðstöðvarnar í Reykjavík þar sem
fram fer framleiðsla og vöruþróun.
Fyrirtækið mun einnig reka skrif-
stofur í New York-ríki í Bandaríkj-
unum, þar sem m.a. fer fram mark-
aðs- og sölustarf, og í Amsterdam í
Hollandi þar sem fram fer rannsókn-
ar- og þróunarvinna. Starfsmenn
verða um 100 en starfsmenn beggja
fyrirtækja halda áfram störfum fyrir
sameinað fyrirtæki. Svanbjörn Thor-
oddsen verður forstjóri sameinaðs
fyrirtækis en Bill Burzelewski, fram-
kvæmdastjóri Medcare, verður fram-
kvæmdastjóri starfseminnar í Banda-
ríkjunum. Að sögn Svanbjörns hófust
viðræður við Medcare í apríl sl. og
samningar tókust í síðasta mánuði.
Áfram samstarf við ResMed
Búist er við miklum samlegðar-
áhrifum í kjölfar kaupanna en vöru-
framboð félaganna fellur vel saman
auk þess sem Medcare er jafnan
sterkt á þeim
markaðssvæðum
sem Flaga hefur
minna sinnt og öf-
ugt, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Sameinað félag mun sjá að mestu
leyti sjálft um vörudreifingu, en fram
til þessa hefur dreifing á vörum Flögu
verið í höndum sérstakra dreifingar-
aðila. Mun sú tilhögun auka tekju-
myndun ásamt því að auka talsvert á
sjálfstæði félagsins. Markaðshlut-
deild hins nýja félags mun verða um
20% í Bandaríkjunum og verður fyr-
irtækið því í fararbroddi á þessum ört
vaxandi markaði.
Svanbjörn segir að til þessa hafi
ResMed annast sölu og dreifingu fyr-
ir Flögu í Bandaríkjunum. „Sölu- og
dreifikerfi Medcare er hins vegar
mjög sterkt í Bandaríkjunum og við
munum því taka við sölu og dreifingu
sem var hjá ResMed og ráða þá
starfsmenn sem þar voru til starfa hjá
okkur.“ Svanbjörn segir að þar með
sé samstarfinu við ResMed ekki slitið
heldur þvert á móti. „ResMed mun
kynna okkar vörur og við munum
jafnframt koma þeirra vörum á fram-
færi. Það er því formbreyting á sam-
starfinu og það verður áfram mikil-
vægt fyrir bæði fyrirtæki.“ Í apríl sl.
var viðræðum um yfirtöku ResMed á
Flögu slitið en ResMed á áfram 10% í
Flögu og eru ekki
áformaðar breyt-
ingar á því, að
sögn Svanbjörns.
Fyrirtækið Flaga hf. var stofnað af
dr. Helga Kristbjarnarsyni árið 1994
sem rannsóknarstofa á sviði svefn-
rannsókna. Flaga þróar og framleiðir
tæki og hugbúnað til svefnrannsókna,
aðallega tengt kæfisvefni en vörur fé-
lagsins hafa verið seldar til 48 landa í
sex heimsálfum.
Medcare og Flaga starfa á sama
markaði en Medcare hefur einkum
verið með sterka markaðsstöðu í
Bandaríkjunum. Medcare var stofnað
árið 1987 í Hollandi af hjónunum dr.
Winni Hofmann og Anand Kumar en
þau eru meðal virtustu sérfræðinga
heims á sviði svefnrannsókna. Félagið
hefur vaxið hratt að undanförnu og
skilað góðum hagnaði á síðustu árum.
Seljandi Medcare er bandaríska fyr-
irtækið AirSep Corporation sem er
sérhæft fyrirtæki á sviði súrefnis-
tækja.
Flaga kaupir banda-
rískan keppinaut
Verður stærsta
fyrirtæki á sviði
hugbúnaðar
og tækja til
svefnrannsókna
í heiminum
Embletta, tæki frá Flögu hf.
STJÓRNIR upplýsingatæknifyrir-
tækjanna Skýrr hf. og Teymis hf.
hafa ákveðið að sameina fyrirtækin
og verður samrunaáætlunin lögð
fram á hluthafafundum beggja fé-
laga til endanlegrar afgreiðslu eftir
um það bil mánuð.
Í tilkynningu frá félögunum kem-
ur fram að samkomulag sé um að
útistandandi hlutafé í hvoru félagi
verði metið þannig að hluthafar
Skýrr verði eigendur 75,8% hluta-
fjár í hinu sameinaða félagi og hlut-
hafar í Teymi eigi 24,2% hlutafjár-
ins. Hlutafé í hinu sameinaða félagi
verður aukið um 63.361.022 til að
mæta samrunanum og verður
heildarhlutafé félagsins því
263.361.022 kr.
Hið nýja félag verður skráð á
kennitölu Skýrr sem verður sem
fyrr skráð á aðallista Kauphallar
Íslands.
Frosti Bergsson stjórnarformað-
ur beggja félaga segir að núna sé
unnið að nákvæmri útfærslu sam-
runans sem kynnt verði á hluthafa-
fundum félaganna eftir mánuð. Að
hans sögn verður hið sameinaða fé-
lag fyrst um sinn rekið áfram á báð-
um stöðum, þ.e. bæði í húsakynnum
Teymis og í húsnæði Skýrr.
Opin kerfi eiga rúm
50% í félaginu
Lokagengi hlutabréfa Skýrr hf. í
gær var 5,50 og er virði Skýrr fyrir
sameiningu 1.100 m.kr., virði
Teymis 348 m.kr. og virði samein-
aðs félags 1.448 m.kr.
Opin kerfi eiga 54,5% hlut í
Skýrr og 37,4% hlut í Teymi fyrir
sameiningu. Opin kerfi munu eiga
rúmlega 50% hlut í sameinuðu fé-
lagi.
Aðalstarfsemi Teymis felst í að
innleiða lausnir frá Oracle. Skýrr er
einnig í samstarfi við Oracle og eru
kerfi frá Oracle orðin þungamiðja í
þjónustuframboði Skýrr. Munar
þar mestu um stórt viðskiptakerfi
sem byggir á Oracle sem Skýrr
vinnur nú að því að innleiða fyrir
ríkið, en það var ekki síst vel
heppnuð samvinna fyrirtækjanna
við innleiðingu kerfisins sem ýtti
undir sameininguna.
Teymi var stofnað árið 1995 og
hjá því starfa 65 starfsmenn. Skýrr
er elsta upplýsingatæknifyrirtæki
landsins og heldur í ár upp á 50 ára
afmæli sitt en hjá félaginu starfa nú
170 manns.
Stjórnir Skýrr og Teymis samþykkja sameiningu
Samrunaáætlun lögð fyrir
hluthafafund eftir mánuð