Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Einar BjarniBjarnason fædd- ist í Reykjavík 1. október 1958. Hann lést á Landspítala við Hringbraut hinn 23. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans eru Bjarni Einarsson húsgagnasmiður, f. 10. júlí 1925, og Ragnheiður Eyjólfs- dóttir húsmóðir, f. 27. júlí 1925. Einar á einn bróður, Eyjólf, byggingartækni- fræðing, f. 7. ágúst 1955. Hann er kvæntur Ingi- björgu Jónsdóttur hjúkrunar- fræðingi og eiga þau þrjú börn. Eftirlifandi eiginkona Einars Bjarna er Lilja Ingvarsson yfir- iðjuþjálfi á Reykjalundi og eru synir þeirra Bjarni Geir, f. 27. nóvember 1986, og Arnar Már, f. 11. september 1990. Einar Bjarni lærði byggingar- tæknifræði við Tækniháskólann í Grimstad í Noregi á árunum 1980–1984. Hann hóf störf hjá embætti gatnamála- stjóra Reykjavíkur- borgar að námi loknu. Þar sinnti hann ýmsum mála- flokkum, m.a. um- sjón með endurgerð opinna svæða og skóla- og leikskóla- lóða. Honum voru hugleikin öryggis- mál á leiksvæðum barna og tók þátt í gerð Evrópustaðals um þau mál. Frá 1997 var Einar Bjarni deildarstjóri hreinsunardeildar gatnamála- stjóra, en í janúar 2002 varð hreinsunardeild hluti af Umhverf- is- og heilbrigðisstofu Reykjavík- ur. Hann tók virkan þátt í tóm- stundastarfi sona sinna, m.a. með setu í stjórn íþróttafélagsins Leiknis. Einnig var hann í stjórn hverfasamtaka efra Breiðholts. Útför Einars Bjarna verður gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír, deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Að morgni 23. ágúst andaðist elskulegur frændi minn Einar Bjarni aðeins 43 ára eftir stutt og erfið veikindi. Ekki er hægt að lýsa með orðum hvað það tekur mig sárt að setjast niður og skrifa minning- arorð um svo góðan dreng. Andlát hans kom fyrr en reiknað var með. Kvöldið áður var verið að undirbúa heimkomu hans og Lilja og drengirnir kepptust við að gera allt fínt og aðgengilegt fyrir hann miðað við hans ástand. Við Einar erum systrabörn og þar sem ég bjó hjá ömmu okkar og afa var mikill og góður samgangur á milli heimilanna. En eitt er víst að ég hef alltaf verið jafn velkomin hjá fjölskyldunni eins og ég væri ein af þeim. Við höfum svo ótal sinnum setið og rifjað upp æsku-, unglings- og fullorðinsár okkar, rifjað upp gleði-og reynslustundir. Þegar Einar fæddist er Eyjólfur þriggja ára og ég fimm ára. Mér fannst nú ef til vill að nú væri ég ekki í fyrsta sæti hjá Eyjólfi, en við Einar fundum seinna út að ef til vill hefði ég orðið smáafbrýðisöm að eiga ekki systkin. Við Einar rifumst oft sem börn, við hlógum og grétum en alltaf var mikil væntumþykja á milli okkar. Ein sæt saga er til um það þegar ég var lítil og með misl- inga. Ég lá í rúminu með spegil, öll í útbrotum, öskureið og heimtaði að ég fengi „dákana“ mína strax! Ég vildi helst alltaf hafa þá báða hjá mér. Einari og Eyjólfi fannst nú kannski ekki alltaf gaman þegar afi kom keyrandi á föstudögum upp Teigagerðið á vörubílnum og rauði dúkkuvagninn á pallinum. Daman ætlaði nefnilega að vera þar um helgina! Við höfum oft hlegið að þessu í gegnum árin sem og ýmsu öðru. Sérstakt og ómetanlegt samband hefur verið á milli mín og bræðr- anna en Einar kom t.d. alltaf til okkar á aðfangadag og fékk kaffi og hálfmána, og sagði: „Það eru ekki jól nema ég komi hingað.“ Einar var með mjög stórt hjarta og var mikill tilfinningamaður, það var eins og hann fyndi á sér ef manni leið illa, þá hringdi hann eða kom og sagði: „Komdu sæl og bless- uð, Betta mín, hvernig hefur þú það?“ Hann var alltaf fljótur til að koma og hjálpa ef eitthvað var. Fjölskyldu sína lagði hann mikla rækt við. Hann á einstaklega góða foreldra sem hafa stutt og styrkt drengina sína og fjölskyldur þeirra í gegnum lífið. Einar var mjög áhugasamur um allt og alla. Hann fylgdist með börn- unum mínum vaxa úr grasi og sýndi þeim alltaf mikinn áhuga. Hann passaði þau stundum þegar hann var unglingur en Ágústa var fyrsta barnið sem hann skipti um bleiu á og gekk mikið á því það var mik- ilvægt að vanda sig! Eftir verkið var hann stoltur og sagðist alvanur! Einar lærði byggingartæknifræði í Noregi og talaði hann oft um hvað sér hefði nú liðið vel þar og ber það merki þess hvað hann var duglegur að bjarga sér í námi og lærði ýmis heimilisstörf. Eins og ég hef áður getið um var Einar einstakur maður, hjartahlýr, tilfinninganæmur, greiðvikinn, ósérhlífinn og ábyrgur. Hann var stoltur og vildi láta lítið fyrir sér hafa. Einar var hamingjusamur maður í einkalífi sínu. Fann draumadísina, hana Lilju sína, sem hann virti og elskaði. Saman hlúðu þau vel hvort að öðru. Einar og Lilja eiga saman tvo elskulega og vel gerða syni, þá Bjarna Geir og Arnar Má, og hafa þau hjónin verið samstiga í að fylgja þeim eftir í þeirra lífi. Einar varð fyrir miklu áfalli með sinn sjúkdóm og fann að þrekið var ekki gott og batinn hægur. Meðal þess sem hann ræddi við mig var hvað lífið væri óréttlátt og hann ætti eftir að gera svo mikið fyrir Lilju og drengina. Lilja sýndi mikinn dugnað og stuðning í veikindum Einars og sá maður hversu vænt þeim þótti hvoru um annað. Lilja mín, ég veit þú heldur áfram eins og ykkur Ein- ari var lagið. Elskulegur frændi er farinn, al- góði Guð miskunna þú þig yfir Lilju og drengina sem eiga um svo sárt að binda. Einnig Ragnheiði og Bjarna, Eyjólf og hans fjölskyldu. Þau eiga allt gott skilið. Við fjölskyldan lítum eftir Lilju og drengjunum og styðjum þau í þeirra miklu sorg. Síðustu kveðju- stund okkar fyrir andlátið héldumst við í hendur og báðum Guð að geyma hvert annað. Elsku Einar, ég er þakklát fyrir allt sem við áttum saman og vona ég að þér líði betur núna og sért nú bú- inn að hitta ömmu, afa og Ellu tengdamóður þína. Ég kveð þig með miklum trega, Einar minn. Þín frænka Elísabet Ólafsdóttir (Betta). Það dró skyndilega fyrir sólina á fallegum degi hér á Spáni þegar mér bárust þær fréttir að elskuleg- ur frændi minn væri dáinn, svo langt um aldur fram. Æskuminningarnar sækja fast á hugann og tengjast svo margar Ein- ari Bjarna frænda mínum. Einar Bjarni var uppáhalds- frændinn minn. Hann var tíu árum eldri en ég og því á unglingsárum þegar ég fer að muna eftir mér. Aldrei fann ég þó fyrir að ungling- urinn nennti ekki að tala við mig eða veita mér athygli, þvert á móti hafði hann alltaf tíma fyrir litlu frænk- urnar. Við frændsystkinin hittumst helst heima hjá ömmu og afa í Eski- hlíðinni eða í boðum hjá foreldrum okkar. Ég man að oft var beðið í spennu eftir því að þeir bræður Ein- ar Bjarni og Eyjólfur kæmu því þá byrjaði stuðið hjá okkur frænkun- um, Hjördísi og mér. Við stríddum frænda okkar agalega. Við stukkum fram úr öllum skotum, földum okk- ur á háaloftinu í Teigagerðinu og brölluðum svo margt sem ég myndi næstum skammast mín fyrir ef ég vissi ekki að frændi minn hefði fyrir löngu fyrirgefið mér. Hann átti það líka til að hefna sín með því að bjóða okkur í herbergið sitt í kjallaranum í Teigagerði, setti þar heyrnartól á eyru okkar og lét okkur syngja Abba-lög hástöfum. Við vissum ekki að lögin hljómuðu bara í eyrum okk- ar og Einar Bjarni hló mikið að bull- inu sem við sungum. Einar sagði stundum að við Hjör- dís skulduðum honum nýjan leður- jakka. Við frænkurnar héngum nefnilega svo í vösunum á flotta leð- urjakkanum sem hann keypti á Spáni að það rifnaði út frá vösunum. Við vissum líka að það leyndist oft Ópal í þeim. Ég man eftir degi sem ég fékk að eyða með stóra frænda mínum en þá var ég bara smákrakki og fékk ekki að vera viðstödd út- skrift Bettu systur minnar úr Hjúkrunarskólanum. Ég var sett í pössun í Teigagerðið og var vægast sagt hundfúl út í alla að fá ekki að vera með á þessum merkisdegi. Einar fór með mig í rúnt á Bronco- inum hans Bjarna, gaf mér ís og brosandi mættum við síðan í veisl- una sem haldin var síðar um daginn. Hin síðari ár hefur sambandið á milli okkar minnkað eins og eðlilegt er. Afi og amma dáin og allir búnir að stofna sínar fjölskyldur. Það breyttti því þó ekki að alltaf var jafn gaman að hitta Einar frænda sem nú var kominn með Lilju sína og synina tvo sér við hlið. Það var ánægjulegt að sjá þau saman og sjá fjölskyldumanninn blómstra. Hvergi held ég að honum hafi liðið betur en í faðmi fjölskyldunnar. Manni finnst það óréttlátt að svo mikið hafi verið tekið frá þeim öll- um, hlutverkið hinum megin má vera göfugt! Ég get ekki látið hjá líða að rifja upp eina sögu um Ein- ar. Fyrir nokkrum árum hringdi hann í mig og bað mig að kaupa fyr- ir sig útigrill í Fríhöfninni. Hann átti greinilega mjög erfitt með að biðja mig um þetta og fannst það hið mesta mál. Mér fannst þetta nú auðsótt en varð samt aðeins að stríða honum. Ég sagði að þetta væri ekkert vandamál en þegar hann kæmi að sækja grillið yrði hann að koma með jarðarberja- shake. Hann hló og lofaði því. Þegar ég svo lenti skipti engum togum að Einar og Lilja voru bæði mætt í Leifsstöð að sækja mig og grillið eins og hann sagði. Úti í bíl beið mín svo stærsta tegund af ljúffengum jarðarberjashake! Eitt af síðustu skiptunum sem ég hitti frænda minn var við brúðkaup okkar Svenna í desember sl. Mér þykir vænt um að hann skyldi vera þar og geta tekið þátt í þessum stóra degi með okkur. Hann skemmti sér líka konunglega með Lilju, í faðmi fjöl- skyldu og vina. Mér þykir líka vænt um að hafa fengið tækifæri til að hitta hann á sjúkrahúsinu undir lok- in. Þótt mig hafi ekki órað fyrir því að þetta væri í síðasta sinn sem ég hitti hann er ég fegin að hafa fengið tækifæri til að kveðja hann með bros á vör og að hafa fengið fallegt bros á móti. Það tekur okkur Svenna sárt að geta ekki verið viðstödd jarðarför- ina. Okkur langar þó að senda Lilju og sonum, Löggu, Bjarna og Eyjólfi okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð blessa allar fallegu minningarnar um frænda minn og megi hann hvíla í friði. Ingunn Kristín. Elsku Einar Bjarni systursonur minn er dáinn langt um aldur fram, aðeins 43 ára. Hann háði hetjulega baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Baráttan var ekki löng en hún var erfið. Þar er svo erfitt að líta til baka og jafnframt ósanngjarnt að hitta hann ekki framar. Einar Bjarni var góður drengur, vel gefinn og vandaði sig við alla hluti. Hann var mjög skipulagður, rasaði aldrei um ráð fram og gerði allt í réttri röð. Einar Bjarni var byggingatæknifræðingur, menntað- ur frá Noregi. Þegar heim kom hóf hann störf hjá Reykjavíkurborg og starfaði þar til dauðadags. Einar Bjarni frændi minn var skemmtilegur og orðheppinn og gaman að hitta hann á góðri stund. Það var einmitt á einni slíkri sem ég hitti hann síðast fyrir utan heim- sókn á sjúkrahús. Dóttursonur minn var að útskrifast stúdent. Fyrsta sem ég sá þegar ég gekk í veislusalinn var Einar Bjarni sem stóð á miðju gólfi ásamt sonum sín- um. Auðvitað fékk ég blíða og fal- lega brosið sem einkenndi hann. Við spjölluðum saman góða stund og er mér þetta spjall dýrmætt í minning- unni. Uppáhald Einars Bjarna voru synir hans tveir. Þeir áttu hug hans og hjarta og fylgdist hann með þeim af einlægum áhuga og veit ég að það verður sárt hjá þeim að missa slíkan föður. Dýrmætasta djásn hans var Lilja eiginkona hans og eins og mamma hans sagði eitt sinn: „Hann Einar Bjarni er svo góður við hana Lilju að hann mundi anda fyrir hana ef hann gæti það.“ Sérstök var umhyggjusemi Lilju við Einar Bjarna í veikindum hans, hún gerði allt sem hún gat og einnig fjölskylda hans. Það eru dimmir dagar hjá þeim núna og foreldrum hans og ættingjum. Við foreldra sína lagði hann mikla rækt og má t.d. nefna að hann hafði símasam- band við mömmu sína daglega, ef ekki var komið við. Fyrir nokkrum árum gekk eldri dóttir mín í gegnum sára lífsreynslu og þá naut hún góðmennsku Einars Bjarna í ríkum mæli. Slík var hjálp- semi hans og umhyggja fyrir henni. Hann leit ávallt á hana sem systur sína enda voru þau samstiga frá blautu barnsbeini. Það er svo margs að minnast, sár- ast var að sjá heilsu þinni hnigna. Með sárum söknuði kveð ég þig, elsku Einar Bjarni. Ég veit að miss- irinn er hvað sárastur hjá Lilju og sonum þínum, foreldrum, Eyjólfi bróður þínum og hans fjölskyldu. Við Óli sendum ykkur hlýjar sam- úðarkveðjur og þökkum fyrir allar góðar minningar um góðan dreng. Elísabet Auður. Þegar ég hitti Einar Bjarna í fyrsta sinn, vorum við Lilja frænka að ganga upp Laugaveginn. Ég var á unglingsárunum og var stolt af að eiga svona góða eldri frænku sem hægt var að fara í bæinn með. Við rákumst á Einar Bjarna og eins og kunningja er háttur tóku þau tal saman. Nokkrum árum seinna voru þau gift. Með okkur hjónum tókst góður og traustur vinskapur. Einar Bjarni var hæglátur maður sem hafði skoð- anir á öllum hlutum en aldrei tran- aði hann þeim fram, þannig að ávallt var gott að rökræða málin við hann. Hann var einstaklega ná- kvæmur, vandvirkur og með mikla skipulagshæfileika. Það eru ófáar minningarnar sem við eigum um samverustundir í sveitinni. Einar Bjarni vildi alltaf fá að hjálpa til og það var orðinn vani að eitthvað væri hannað og smíðað þá daga sem fjölskyldan í Klapp- arberginu var í heimsókn hjá okkur. Honum fannst ekki flókið mál að hanna og smíða sólpall eða hlið inn í garðinn minn, sem klifurjurtir eiga að þekja með árunum. Hlýhugurinn og velvild hans í okkar garð gleym- ist aldrei. Síðastliðið sumar vorum við frænkurnar að mála timbrið í skjól- vegginn. Þá fundum við báðar greinilega fyrir nærveru Ellu ömmu. Þar sem við báðar trúum á líf eftir þetta líf, þá veit ég það, Lilja mín, að þegar við förum að dytta að einhverju á Sperðli næsta sumar, þá verða þar tveir englar að hjálpa okkur. Maður skilur ekki hvað æðri máttarvöldum gengur til þegar þau ákveða að kippa föður tveggja ungra drengja burtu svona skyndi- lega og alltof snemma. Við kveðjum þig, kæri vinur, með söknuði og þakklæti í hjarta fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Elsku Lilja mín, Bjarni Geir og Arnar Már, megi Guð gefa ykkur styrk til að takast á við þennan mikla missi. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farinn ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu hjarta. (M. Jak.) Inga Björk Gunnarsdóttir og Þröstur Ólafsson. Í dag kveðjum við vin okkar og félaga, Einar Bjarna Bjarnason. Einar Bjarni var deildarstjóri hreinsunardeildar Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, sem tók til starfa um síðustu áramót, en hafði áður gegnt sömu stöðu hjá embætti gatnamálastjóra. Einar Bjarni var afskaplega heill maður. Hann sinnti starfi sínu af góðum hæfileikum, áhuga og dugn- aði. Hann horfði fram á við og hafði metnaðarfullar hugmyndir fyrir hönd Reykjavíkurborgar um fram- tíðarverkefni í umhverfismálum. Einar var gæddur þeim hæfileika að hugsa í stóru samhengi án þess að gleyma einstaklingnum. Það var ekki nóg að hafa háar hugmyndir. Þær urðu að vera framkvæmanleg- ar og borgaranum til góða. Einar hélt mjög vel utan um verkefni sinn- ar deildar og vann ötullega að því að skilgreina verkefni hennar í nýju umhverfi, hjá nýrri stofnun með nýju samstarfsfólki. Fyrir Um- hverfis- og heilbrigðisstofu liggja stór verkefni á sviði sorphirðumála sem við þurfum nú að hrinda í fram- kvæmd án Einars. Það verður ögr- andi verkefni og okkur mun án vafa verða hjálp í að tileinka okkur þann hugsunarhátt Einars að skilgreina ekki hluti sem vandamál heldur verkefni sem þarf að takast á við og leysa. Einar var mikið ljúfmenni og kom afskaplega vel fram við fólk – hvort sem þar áttu í hlut viðskipta- vinir, starfsfélagar eða vinir. Hann var því eðlilega vinamargur og verð- ur sárt saknað víða. Þrátt fyrir ein- lægan áhuga á starfi sínu var alltaf ljóst að það var fjölskyldan sem hafði forgang í lífi Einars. Lilja og strákarnir voru það sem lífið snerist um. Auk þess ræddi Einar oft um bróður sinn og foreldra og það var ljóst að þetta var mjög samheldin fjölskylda. Þeirra missir er mikill. Við stofnun Umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkur um síð- ustu áramót sameinuðust starfsein- ingar úr borgarkerfinu með það í huga að auka vægi og ná heildarsýn yfir umhverfismál borgarinnar. Það er töluvert átak fyrir nýja stofnun að taka sín fyrstu skref og í þessu tilfelli þurfti að ganga í gegnum sameiningarferli sem oft getur verið viðkvæmt. Góður árangur er algjör- lega undir því kominn að starfsfólk sé tilbúið þess að takast á við breyttar aðstæðu; vinna með nýju fólki og skilgreina sig og sína vinnu í nýju umhverfi. Í þessum byrjunar- fasa lá Einar ekki á liði sínu og verð ég honum ávallt þakklát fyrir vin- áttu hans og stuðning þessa fyrstu mánuði. Hann nálgaðist sameining- arferli stofunnar af opnum hug og dugnaði. Hann smitaði samstarfs- fólk sitt með jákvæðu hugarfari sínu og margir hlökkuðu sérstak- lega til nánara samstarfs við hann. Þó svo Einari væri eftirsjá í því að EINAR BJARNI BJARNASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.