Morgunblaðið - 03.09.2002, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
UM 20 manna hópur hestamanna
var á ferð í Þórsmörk um helgina og
fékk hópurinn sinn skerf af vonsku-
veðri sem gekk yfir landið á sunnu-
dag. 92 mm úrkoma mældist sam-
kvæmt sólarhringsmælingu í Básum
frá morgni laugardags til sunnudags
og 80 mm úrkoma frá morgni sunnu-
dags til mánudags. Að sögn eins úr
hópnum muna menn vart aðra eins
rigningu á þessum slóðum. Á mynd-
inni sést hvar hluti af hópi hesta-
manna fer yfir Krossá frá Húsafelli.
Morgunblaðið/RAX
Riðið yfir
Krossá
Í GÆR og sl. föstudag tókust
samningar milli þriggja erlendra
banka, sem standa að sambankaláni
til Norðurljósa samskiptafélags, og
Kaupþings, um að Kaupþing keypti
55% sambankalánsins, og yrði um
leið umsjónaraðili lánsins, en það
var hollenski bankinn NIB áður.
Samningurinn felur í sér ákveðinn
afslátt af upprunalegu lánsupphæð-
inni, en ekki fékkst upp gefið í gær
um hversu mikinn afslátt er að
ræða.
„Kaupþing hefur keypt hlut
þriggja erlendra banka í sam-
bankaláninu sem félagið tók í júlí
1999,“ sagði Sigurður G. Guðjóns-
son, forstjóri Norðurljósa, í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Sigurður segir að erlendu bank-
arnir þrír, hollenski bankinn NIB
(National Investerings Bank), hol-
lenski bankinn Staal Bank og
bandaríski bankinn JP Morgan
Chase hafi átt 55% lánsins, eða um
2,5 milljarða króna, en ósamið sé
við hollenska bankann ABN Amro,
sem eigi um 1,3 milljarða í láninu
og Landsbanka Íslands sem eigi
880 milljónir króna í því.
Sigurður segir að undanfarnar
vikur hafi Jón Ólafsson, stærsti
hluthafi Norðurljósa, staðið í linnu-
lausum samningaviðræðum við
þessa erlendu lánardrottna, og hafi
þeim lyktað með samkomulagi um
að erlendu bankarnir seldu sinn
hlut í sambankaláninu með afslætti.
Sigurjón Sighvatsson, annar stærsti
hluthafinn í Norðurljósum, hafi síð-
an haft forgöngu um að samið yrði
við Kaupþing um að félagið kæmi
inn og keypti þennan hluta í sam-
bankaláninu.
Með staðfestingu JP Morgan
Chase í gær hafi endanlega verið
gengið frá samningum við þessa
þrjá lánardrottna og kaupum Kaup-
þings á þeirra hlut í láninu.
„Ég segi bara að erlendu bank-
arnir veittu ákveðinn afslátt,“ sagði
Sigurður aðspurður, en neitaði að
fara frekar út í þá sálma.
Spurður hvaða þýðingu þetta
hefði fyrir rekstur Norðurljósa
sagði Sigurður að augljóslega hefði
hér skapast grundvöllur til að ljúka
þeirri fjárhagslegu endurskipulagn-
ingu, sem forsvarsmenn félagsins
hefðu barist fyrir undanfarna mán-
uði með misjöfnum árangri. „Kaup-
þing er með þessum samningi orðið
leiðandi aðili í viðræðum um endur-
fjármögnun á félaginu,“ sagði Sig-
urður og kvaðst vera ánægður með
þá niðurstöðu sem nú væri fengin,
þótt vissulega væri hér einungis um
áfanga að ræða.
Sigurður sagði að næstu skref
Kaupþings og Norðurljósa yrðu að
óska eftir samningaviðræðum við
ABN Amro og Landsbankann,
ásamt því að óska eftir viðræðum
við aðra lánardrottna félagsins.
Hann kvaðst telja að slíkar við-
ræður ættu ekki að þurfa að taka
mjög langan tíma, fyrst þessi áfangi
hefði náðst, í mesta lagi nokkrar
vikur.
Eignarhlutur Norðurljósa í Tali
yrði einnig seldur við fyrsta tæki-
færi og sagði Sigurður að félagið
ætlaði sér að fá gott verð fyrir
34,8% eignarhlut sinn í fyrirtækinu.
Kaupþing eignast 55% í
sambankaláni Norðurljósa
Yfirtekur 2,5 milljarða lán frá þrem-
ur erlendum bönkum, með afslætti
GRÍÐARLEG ásókn er nú í
spænskunám hér á landi og hefur
nýnemum í spænsku í skor róm-
anskra og slavneskra mála við Há-
skóla Íslands fjölgað um 100% frá
því 1997. Einnig hefur nemendum
snarfjölgað á námskeiðum hjá End-
urmenntunarstofnun HÍ og fleiri
námssviðum.
Dr. Margrét Jónsdóttir, lektor í
spænsku við HÍ, segir að ýmsar
ástæður kunni að vera fyrir ört
vaxandi vinsældum spænskunnar.
„Hér er mjög gott lið ungra kenn-
ara sem hafa nýlokið doktorsprófi í
spænsku og njóta þess að kenna
tungumálið,“ segir hún. „En ég
held að ein aðalástæðan sé samt sú,
að langflestir þeirra sem hyggja á
framhaldsnám í Bandaríkjunum
vilja kunna spænsku. Þar eru um
40 milljónir spænskumælandi
manna og það fer t.d. enginn lækn-
ir í framhaldsnám þangað án þess
að geta bjargað sér á spænsku.“
Margrét segir að spænskan sé
einnig orðin mjög mikilvægt við-
skiptatungumál í ljósi mikilla sjáv-
arútvegsviðskipta við Rómönsku-
Ameríku og ekki megi gleyma tíð-
um sólarlandaferðum til Spánar og
áhrifum tónlistar og kvikmynda frá
Rómönsku-Ameríku sem eiga sinn
þátt í vinsældum spænskunnar.
Mikil ásókn í
spænskunám
STJÓRNARFORMAÐUR Baugs,
Jón Ásgeir Jóhannesson, sagði í
gærkvöldi að ólíklegt væri að samn-
ingar næðust við Philip Green, sem
gert hefur yfirtökutilboð í Arcadia,
en samningaviðræðum var haldið
áfram fram á nótt.
Í breskum fjölmiðlum er yfirtöku-
tilboðið og mál því tengd mikið til
umfjöllunar, og þar kemur meðal
annars fram að Green telji fulltrúa
Baugs ekki hafa komið hreint fram
varðandi húsleitina hjá Baugi.
Lögmaður Baugs fékk síðdegis í
gær í hendur yfirlýsingu frá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjór-
ans þess efnis að í rannsókn lögregl-
unnar um meint svik gegn Baugi sé
Baugur brotaþoli. Yfirlýsinguna
hugðist Baugur nota í samningavið-
ræðum sínum í Bretlandi.
Samninga-
viðræður
fram á nótt
Stjórnarformaður/6
Arcadia/18
Baugur og Philip Green
FORSVARSMENN Landssímans og
samgönguráðuneytisins gera ráð fyr-
ir að stofnað verði undirbúningsfélag í
hlutafélagsformi á næstu vikum um
lagningu og rekstur Farice-sæ-
strengsins milli Íslands, Færeyja og
Skotlands. Strengurinn á að verða
tilbúinn um áramótin 2003-2004.
Samkomulag Íslands og Færeyja
byggist á að hlutur Færeyinga verði
20% og Íslendinga 80% í félaginu,
sem gert er ráð fyrir að annast muni
rekstur strengsins frá Íslandi til Ed-
inborgar. Samkomulag hefur náðst
við Skota um hvar strengurinn kemur
að landi í Skotlandi og eru viðræður í
gangi um áframhaldandi lögn
strengsins til byggðar.
Óskar Magnússon, forstjóri Ís-
landssíma, segir fyrirtækið ekki hafa
fengið upplýsingar um hver þátttaka
stjórnvalda verði í verkefninu og mik-
ilvægt sé að fá það á hreint. Hann
leggur einnig áherslu á að ef fjar-
skiptafélögin verði með í stofnun fé-
lagsins verði þau þátttakendur í
stjórn þess þannig að þau verði ekki
háð meirhlutavaldi Landssímans.
Kostnaður vegna verkefnisins er
nú áætlaður 5–6 milljarðar. Stefnt er
að því að fjarskiptafyrirtæki hér á
landi verði þátttakendur í undirbún-
ingsfélaginu og í dag verður haldinn
fundur með forsvarsmönnum þeirra.
Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri,
segir að íslenska ríkið og Landssím-
inn verði stærstu aðilar hins fyrirhug-
aða undirbúningsfélags og er hann
bjartsýnn á þátttöku annarra fjar-
skiptafélaga. Gert sé ráð fyrir stofnun
hlutafélags og síðan verði verkefnið
fjármagnað með lántöku sem verði að
hluta til með ábyrgð ríkisins.
Lagning Farice-sæstrengsins frá Íslandi til Skotlands
Viðræður um stofnun
hlutafélags og fjármögnun
Hlutafélag/27
ÖKUMAÐUR bifhjóls var fluttur
mikið slasaður á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi síðdegis í gær
eftir árekstur bifhjólsins við fólks-
bifreið á Laugarásvegi í Reykja-
vík.
Að sögn lögreglunnar skemmd-
ust ökutækin mikið, en ökumaður
bílsins slapp lítið meiddur. Að sögn
læknis á vakt á slysadeild fór öku-
maður bifhjólsins í aðgerð í gær,
en hann mun ekki vera í lífshættu.
Ökumaður
bifhjóls fluttur á
slysadeild
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦