Morgunblaðið - 20.09.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 41
Nokia 3310 á 9.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
9.900 kr.
Þú hringir
…með GSM áskrift
hjá Íslandssíma.
Nokia 3510 á 18.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
18.900 kr.
Nokia 3410 á 14.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.100 kr.
14.900 kr.
Hringdu í 800 1111, komdu í verslun
okkar í Kringlunni eða líttu á islandssimi.is.
Með Íslandssíma hringir þú frítt í fjögur
númer innan kerfis og á þjónustusvæði okkar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
S
18
33
3
07
/2
00
2
Helgartilboð
Gola
Nike
Converse
30-40%
afsláttur
af ýmsum tegundum
imaginetheshoes.com
Kringlan 8-12 - sími 533 5150
UM 50.000 manns tóku þátt í afmæl-
isleik á 15 ára afmælishátíð Kringl-
unnar nýverið. Aðalvinningur freist-
aði ekki síst margra, enda var þar
um að ræða ferð fyrir tvo til Flórída
að andvirði 220.000 kr. Þegar dregið
var úr nafnapottinum reyndist vinn-
ingshafi vera Rebekka Þráinsdóttir.
Rebekka Þráinsdóttir vann Flórídaferð fyrir tvo í 15 ára afmælisleik
Kringlunnar og tekur hér við gjafabréfi frá Flugleiðum úr höndum
markaðsstjóra Kringlunnar, Ívars Sigurjónssonar.
Vann ferð fyrir tvo til Flórída
„LATÍNAN markaði djúp spor í
menningu og tungumál hins vest-
ræna heims en sífellt færri gera sér
grein fyrir hversu margslungin áhrif
hennar eru. Á óvenjulegu tungu-
málanámskeiði, Formáli að latínu,
sem hefst hjá Endurmenntun HÍ 23.
september, er leitað svara við ýms-
um spurningum um uppsprettu
þessarar fornfrægu tungu er festist í
sessi sem mál lærðra manna í Evr-
ópu fram yfir endurreisnaröld,“ seg-
ir m.a. í fréttatilkynningu.
Hvað er latína, hvernig er málið
byggt upp og hverjir eru helstu höf-
undar latneskra bókmennta? Nám-
skeiðið nýtist bæði þeim sem vilja
kynna sér tungumálið í fyrsta sinn
og þeim sem vilja rifja upp mennta-
skólalatínuna. Kennari er Kolbrún
Elfa Sigurðardóttir, fornfræðingur
og latínukennari við MR.
Frekari upplýsingar um þetta
námskeið og önnur á tungumálasviði
eru á vefslóðinni www.endurmennt-
un.is.
Latína fyrir
lærða og leika
FJÖLSKYLDAN á fjallið er liður í
gönguverkefni Ungmennafélags Ís-
lands; Göngum um Ísland. Í byrjun
sumars voru settir póstkassar með
gestabókum á fjölmörg fjöll um land
allt, sem tilnefnd höfðu verið í verk-
efnið af sambandsaðilum UMFÍ.
Markmiðið með verkefninu var að
hvetja landsmenn til að fara í göngu-
ferðir um heillandi náttúru landsins
og í fjallgöngu með fjölskyldunni í
tilefni af ári fjallsins og um leið að
skrá nafn sitt í gestabækurnar. Þátt-
taka hefur verið góð en um helgina
21.-22. september verða póstkass-
arnir teknir niður. Nöfn allra göngu-
manna sem tekið hafa þátt í verkefn-
inu verða birt á heimasíðu Ung-
mennafélags Íslands og dregið úr
hópi þátttakenda. Hinir heppnu
hljóta útivistartengd verðlaun.
Gestabækur
teknar niður
Í TILEFNI af kosningum til þýska
þingsins sunndaginn 22. september
bjóða þýska sendiráðið og Þýsk-ís-
lenska verslunarráðið til kosninga-
vöku.
Þar verða nýjustu tölur sendar út
frá þýsku sjónvarpsstöðinni ARD,
svo og viðtöl vil fulltrúa flokkanna og
lokatölur. Kosningavakan hefst hinn
22. september kl. 15.30 í Ráðhúsi
Reykjavíkur og lýkur um kl. 19.
Kosningavaka
vegna kosninga
í Þýskalandi
UNGIR jafnaðarmenn hafa tekið
saman tólf ákvæði stjórnarskrár ís-
lenska lýðveldisins í sérstöku fjöl-
riti. Þar er bæði bent á þau stjórn-
arskrárákvæði sem hafa verið
sveigðeða brotin með nýlegum
dæmum og á nokkur heimildar-
ákvæði stjórnarskrárinnar sem
ekki er beitt í framkvæmd.
„Ungir jafnaðarmenn hafa sent
öllum þingmönnum lýðveldisins
þetta fjölrit í þeirri von að vekja al-
þingismenn til umhugsunar um
æðstu réttarheimild lýðveldisins og
hvernig hún er vanvirt.
Ungir jafnaðarmenn telja að Ís-
lendingar eigi að gera þá lág-
markskröfu að íslensk stjórnvöld
fari eftir stjórnarskránni í hvívetna
og veiti íslenskum almenningi þau
réttindi sem stjórnarskráin mælir
fyrir um. Það er von ungra jafn-
aðarmanna að þetta framtak veki
Íslendinga einnig til umhugsunar
um stjórnarskrárbundin réttindi
sín og beini athyglinni að því
hvernig þau réttindi birtast í með-
ferð stjórnvalda, “ segir í frétta-
tilkynningu.
Hægt að lesa skjalið í heild á
netfanginu: http://nemendur.ru.is/
jonas01/uj.doc, einnig á www.poli-
tik.is.
Fjölrit um
stjórnarskrána