Morgunblaðið - 20.09.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 7
100% RÉTT FULLAR BÚÐIR AF NÝJUM FÖTUMBÍLDSHÖFÐI 510 8020 SMÁRALIND 510 8030 SELFOSS 480 7000 WWW.INTERSPORT.IS
NIKE - ADIDAS - PUMA - O’NEAL - REEBOK - HELLY HANSEN - McKINLEY - NORTHBROOK - CASALL - FIREFLY - PRO TOUCH - RUNNIS - ISITZO
f
a
s
t
la
n
d
-
8
2
9
3
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Mál
og menningu hf. til að greiða Land-
mælingum Íslands rúmar 2,7 millj-
ónir króna fyrir að brjóta höfund-
arrétt á Landmælingum með því að
gefa í leyfisleysi út landakort sem
byggð voru á stafrænum korta-
grunni Landmælinga Íslands. Var
dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá
13. febrúar þar með staðfestur.
Mál og menning keypti þrjár
þekjur í stafrænum kortagrunni
landmælinga og undirritaði söluskil-
mála um bann við birtingu, fjölföld-
un eða dreifingu unnina eða óunnina
gagna án leyfis. Um útgáfu-, afnota-
og höfundarrétt átti að fara eftir
ákvæðum laga nr. 95/1997 um land-
mælingar og kortagerð. Óumdeilt
var að Mál og menning gaf út kort
án þess að fá til þess birtingarleyfi.
Var ágreiningur um hvort slík leyfi
þyrfti fyrir útgáfunum og hvert væri
hæfilegt gjald fyrir þau, þyrfti
þeirra með. Mál og menning hélt því
fram að 10. gr. laga um landmæl-
ingar og kortagerð, sem mælir fyrir
um fjármögnun Landmælinga Ís-
lands, hefði á árinu 2000 ekki gert
ráð fyrir því að gjald væri tekið af
umræddum þekjum og því ætti ekki
að greiða sérstakt gjald fyrir afnot
efnisins.
Ekki óhæfileg gjaldtaka
Hæstiréttur taldi að höfundar-
réttarlög giltu um réttindi ríkisins af
gögnunum og taldi Landmælingar
Íslands hafa haft lagaheimild til að
taka gjald fyrir sölu upplýsinga og
afnot þeirra. Taldi dómurinn enn-
fremur að Mál og menning hefði
ekki sýnt fram á að landmælingar
hefðu ákveðið gjaldið of hátt sam-
kvæmt gjaldskránni eða að gjald-
taka samkvæmt henni væri á annan
hátt óhæfileg.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason, Haraldur Henrysson,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein. Lögmaður Máls og menningar
var Halldór Þ. Birgisson hrl. og lög-
maður Landmælinga Íslands, Erla
S. Árnadóttir hrl.
Landmælingum dæmd-
ar 2,7 milljónir króna
Í GÆRKVÖLDI hófst opinber
heimsókn forsætisráðherra Víet-
nams, Phan Van Kai, hingað til lands
í boði Davíðs Oddssonar, forsætis-
ráðherra. Í för með forsætisráð-
herranum eru þrír ráðherrar úr rík-
isstjórn Víetnams, aðstoðarráð-
herrar, embættismenn og sérstök
viðskiptasendinefnd.
Á dagskrá heimsóknarinnar eru
fundir með forsætisráðherra, sjáv-
arútvegsráðherra og iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og forseta Íslands,
auk heimsókna í Ráðhús Reykjavík-
ur og fyrirtæki. Á laugardag fara
forsætisráðherrann og fylgdarlið í
hefðbundna skoðunarferð um Suð-
urland; til Nesjavalla, Þingvalla, og
að Gullfossi og Geysi. Haldið verður
af landi brott snemma sunnudags-
morguns.
Með þessari heimsókn er endur-
goldin heimsókn Davíðs Oddssonar
til Víetnams í apríl sl. Með í þeirri
för var fjölmenn sendinefnd ís-
lenskra fyrirtækja á vegum Útflutn-
ingsráðs Íslands. Í tengslum við
heimsóknina nú mun verða efnt til
sérstaks hádegisverðarfundar á
föstudag, sem að standa Útflutn-
ingsráð og sjávarútvegsráðuneytið,
þar sem forsætisráðherra Víetnams
mun kynna land sitt sem samstarfs-
land í viðskiptum.
Opinber
heimsókn for-
sætisráðherra
Víetnams
ELLEFU kærur vegna úrskurðar
Skipulagsstofnunar um Norðlinga-
ölduveitu höfðu borist umhverfis-
ráðuneytinu þegar skrifstofutíma
lauk í gær. Frestur til að skila inn
kærum rann formlega út á miðviku-
dag. Kærur sem póstlagðar voru þá
gætu borist ráðuneytinu í dag.
Til viðbótar við þá kærendur sem
nefndir voru í Morgunblaðinu í gær
hafa borist kærur frá Landvarða-
félagi Íslands, Hjörleifi Guttorms-
syni, Hildi Rúnu Hauksdóttur og
Ósk Magnúsdóttur. Aðrir sem kært
hafa eru Náttúruvernd ríkisins,
Landvernd, Náttúruverndarsamtök
Íslands, Umhverfisverndarsamtök
Íslands, Áhugahópur um verndun
Þjórsárvera, Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur og Fuglaverndarfélag Ís-
lands.
Ellefu kærur
vegna Norð-
lingaölduveitu
♦ ♦ ♦