Morgunblaðið - 20.09.2002, Side 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 33
að sjá. Þórarinn hafði mikla og
sanna góðvild og hjartahlýju til að
bera og það urðu allir betri í návist
hans.
Þegar þau fluttu hingað til
Reykjavíkur bjuggu þau sér fallegt
heimili á Ásvallagötu 15 og síðar á
Dalbraut 20.
Guðmunda lést 4. september
1996. Þórarinn bjó áfram á Dal-
brautinni þar til fyrir nokkru að
hann kom á Hjúkrunarheimilið Eir,
fyrst í hvíldarinnlögn en síðar al-
kominn. Þar varð hann hvers manns
hugljúfi, vildi ekki ónáða neinn að
óþörfu. Þórarinn varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að halda sinni reisn til
hinstu stundar og kvaddi lífið á jafn
hljóðlátan hátt og hann lifði því.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja aðstandendur hans. Blessuð
sé minning Þórarins Stefánssonar.
Svavar og Kristbjörg
Sigurbjörnsdóttir.
Þú kvaddir þegar blómin fóru að fölna
og fölvi haustsins sló á sumarskaut.
Þú hafðir gengið götu þína alla
og gæfu notið hér á lífsins braut.
Þér sendum bænir upp í hærri heima
og hjartans þakkir öll við færum þér.
Við sálu þína biðjum Guð að geyma
þín göfga minning okkur heilög er.
(G.E.V.)
Þessar ljóðlínur finnst okkur eiga
vel við þegar við kveðjum elskuleg-
an bróður og mág. Við eigum svo fal-
legar minningar um þau hjón, Þór-
arin og Guðmundu. Efst í huga
okkar er þakklæti fyrir hlýhug og
vináttu þeirra í okkar garð í gegnum
árin og erum við þakklát fyrir að
hafa fengið að njóta þeirra öll þessi
ár. Blessuð sé minning þeirra.
Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Ernu, Stefáns,
og fjölskyldna þeirra.
Jón og Guðrún, Keflavík.
Í meira en hálfa öld voru Sunn-
lendingar að rífast um jarðnæði,
sem hentaði fyrsta skólasetri ung-
menna í landsfjórðungnum. Rang-
æingar bentu á „kalda“ staði eins og
Stórólfshvol og Árbæ en Árnesingar
nefndu „heit“ svæði eins og Hauka-
dal, Reykholt, Reyki í Ölfusi, Hvera-
heiði í Ytrihrepp og Laugarvatn.
Skálholt og Oddi, gömlu mennta-
setrin á Suðurlandi voru nefnd, ekk-
ert gerðist, rígurinn blómstraði. Í
ráðherratíð Jónasar frá Hriflu skar
hann óhikað á hnútinn, þegar Laug-
arvatnshjónin, Böðvar Magnússon
og Ingunn Eyjólfsdóttir, buðu jörð
sína fala til þessa máls. Jónas kom
strax auga á yfirburðakosti Laug-
arvatns með jarðhita og fágæta
náttúrufegurð. Árið 1928 risu fyrstu
tvær „burstirnar“ upp við dogg og
að ytra útliti var húsið fullgert ári
seinna, burstirnar þá orðnar sex. Á
Laugarvatni varð með tímanum
stærsta skólasetur í sveit á Íslandi.
En til að gera það að veruleika
þurfti hugmyndir og kjark, auk
þeirra sem kynnu að halda á hamri
og sög. Auðvitað komu margir við
sögu, annaðhvort væri nú. Undirrit-
aður leyfir sér þó að halda fram að
mestur slægur hafi verið í störfum
Þórarins Stefánssonar hvað ráðdeild
og framkvæmdagleði varðaði. Hann
var boðinn og búinn, snemma og
seint að leggjast á árarnar, byggja
staðinn upp. Auk þess hollvinur
skólastjóra, húsbóndans. Skólasetr-
ið ber í dag merki þeirra hátt á loft.
Þó mun skógræktin hér á Laug-
arvatni bera elju hans fegurst vitni,
nýgróður skógarplantna gróðursetti
hann víða og er Bjarna-lundur nær-
tækur minnisvarði, sem lengi mun
standa. Menntasetrið á Laugarvatni
á um ókomna tíð störfum Þórarins
skuld að gjalda.
Þórarinn Stefánsson lærði hús-
gagnasmíði í Reykjavík og ætlaði
sér að sigla og læra listsköpun í út-
löndum. Við þær bollaleggingar
bauðst honum handavinnukennara-
staða á Laugarvatni, einn vetur og
sló til.
Undirritaður var um það að kom-
ast á lappirnar, aðfluttur í Laugar-
dalinn sem reifastrangi, er Þórarinn
Stefánsson kom austur haustið 1931.
Ári seinna átti hann orðið unga og
fallega konu, Guðmundu M. Guð-
mundsdóttur frá Vestmannaeyjum,
er hann kynntist á matreiðslunám-
skeiði á Laugarvatni. Þau fóru ekki í
bráð. Koma þeirra var mikill happa-
fengur ekki aðeins skólanum heldur
sveitarfélaginu öllu. Vinsæll var
Þórarinn sem smíða-, teikni- og fag-
kennari, hann var laginn að fá fólk
með sér og hvetjandi að ýta verkefni
úr vör. Er skemmst frá því að segja
að Þórarinn varð hvers manns hug-
ljúfi og reyndist galvaskur þátttak-
andi í félagsmálum. Var í sveitar-
stjórn árum saman, hlóðust þá á
hann ýmis trúnaðarstörf, s.s. sjúkra-
tryggingar, eftirlit með byggingum
o.fl. sem upp mætti telja. Á þessum
vettvangi kom sér oft vel að vera
mannasættir. Þórarinn var skap-
maður en stillti vel í hóf og lifði í sátt
við Guð og menn alla sína daga.
Upphæfist urgur í mönnum lét hann
að vísu engan eiga hjá sér en hrein-
skilni og drenglyndi einkenndu
skoðanir hans, sem leiddu fljótt til
sátta þótt viðkvæm mál væru. Spila-
maður var Þórarinn, góður í brids
og lomber og tóku þeir karlar hér
heima oft í spil í góðum félagsskap.
Sá snillingur var Þórarinn í hönd-
unum, sem dæmin sanna að telja má
hann hafa orðið þjóðkunnan lista-
mann, ef farið hefði þá braut.
Fallega gripi, mótaða, útskorna,
skildi hann eftir sig og málara-
listinnni sinnti hann líka, einkum á
efri dögum er um fór að hægjast.
Ekki er gott að spá í hvaða listgrein
hann hefði helgað sér, allt lék hon-
um í höndum.
Ekki má gleyma grófari verkum
eins og húsbyggingum, þau tókust
vel sem dæmin sanna hér á Laug-
arvatni.
En um fram allt var Þórarinn
Stefánsson gæfumaður í lífinu.
Hann átti yndislega konu og myndar
húsmóður, sem ól honum tvö heil-
brigð og vel gefin börn og tengda-
börnin skömmuðu ekki upp á hóp-
inn. Öll gengu til mennta og síðar
trúnaðarstarfa og hafa nú lokið sinni
starfsævi með sóma. Guðmunda lést
fyrir 6 árum í Reykjavík, þangað
sem þau fluttu eftir áratuga starf á
Laugarvatni. Hjónaband þeirra var
friðsamt og farsælt. Börnin, Erna
Helga og Stefán Guðmundur, gættu
foreldra sinna af mikilli alúð í ellinni
allt til síðasta andvarps. Afkom-
endahópurinn er vel gert fólk, sem
skarar framúr á mörgum sviðum og
auðfundið að ást þeirra hjóna á af-
komendunum fyllti hjörtu þeirra
hamingju.
Á fyrstu árunum á Laugarvatni
bjuggu fjölskylda mín og Þórarins
undir vestustu „burst“ héraðsskól-
ans. Ég man ekki fyrr eftir mér en
mynd Þórarins væri á næsta leiti,
enda sannaðist gott og hlýtt hjarta-
lag hans með sívakandi athygli á
okkur börnunum. „Heyrðu, gæskur,
má nokkuð bjóða þér rúsínur?“
Það er sannast sagna að þegar
Þórarinn er kvaddur með trega er
Guðmunda óaðskiljanleg í minning-
unni en þakklæti fyrir hin góðu
kynni og vinsemd alla er okkur efst í
huga.
Við hjónin og fjölskylda okkar
sendum samúðarkveðjur, því stund-
in er næm en gleðjumst yfir því að
vinur okkar lifði við fulla reisn til
hinstu stundar. Í Guðs friði.
Ester og Þorkell Bjarnason.
Með Þórarni Stefánssyni er geng-
inn hinn síðasti þeirra kennara Hér-
aðsskólans á Laugarvatni, sem réð-
ust að honum á allra fyrstu árum
hans og unnu við hann til starfsloka
sinna. Þórarinn var kennari við skól-
ann í smíðum og teikningu samfleytt
í fjörutíu ár, 1931 til 71. Um alllangt
skeið kom það ávallt í hans hlut að
leysa skólastjóra af í fjarvistum eða
forföllum og fórst það farsællega úr
hendi. Laugarvatni vann hann ótal
margt ásamt kennslunni; ég nefni
sem dæmi að hann fór með hópi
nemenda til Reykjavíkur veturinn
1931–32 til að rífa og flytja austur
sýningarskála alþingishátíðarinnar
frá 1930, en hann stóð rétt við al-
þingishúsið. Skálinn var reistur að
nýju niðri við Laugarvatn og var
notaður sem íþróttahús í 14 ár og
síðar sem iðjuver skólapilta til
smíða, sem Þórarinn kenndi lengst
af. Í þessu húsi fékk Björn Jakobs-
son aðstöðu fyrir íþróttaskóla sinn,
sem síðar varð Íþróttakennaraskóli
Íslands. Þetta dæmi sýnir eitt með
öðru þátt Þórarins, eins og sam-
kennara hans, í þróun kennslunnar í
Héraðsskólanum á Laugarvatni – og
síðar stofnun annarra skóla sem
hann fæddi af sér, auk Íþróttakenn-
araskólans, bæði Hússtjórnarskól-
ans og Menntaskólans. Þá má einnig
nefna að Þórarinn tók við því starfi
af Guðmundi Ólafssyni, kennara
skólans frá stofnun hans, að útvega
námsbækur handa nemendum og af-
greiða til þeirra á lágmarksverði
auk nauðsynlegustu ritfanga. Í tutt-
ugu ár annaðist hann ásamt fjöl-
skyldu sinni um símaþjónustu fyrir
skólastaðinn í símstöð, sem fyrst var
til húsa í héraðsskólanum og síðar
bústaðnum Hlíð, en hefur nú verið
lögð niður illu heilli. Einnig annaðist
Þórarinn lengi um skógarfriðun og
skógrækt á Laugarvatni, stýrði
gróðursetningu nemenda á hverju
vori af alúð sinni og ljúfmennsku.
Þórarinn var einstaklega vinsæll
kennari og dáður af nemendum sín-
um. Hann hafði óvenju hlýtt og að-
laðandi viðmót sem nemendur
kunnu vel að meta og gerðu honum
ekki viljandi á móti skapi. Nærvera
hans setti þess konar svip á hið dag-
lega líf í skólanum og á skólastaðn-
um öllum, sem létti tilveruna og gott
er að minnast.
Ég hugsa til Þórarins með þakk-
læti fyrir hönd skólastaðarins á
Laugarvatni og sendi börnum hans
og fjölskyldum þeirra innilegar
kveðjur mínar og minna.
Kristinn Kristmundsson.
Í dag er til moldar borinn Þór-
arinn Stefánsson, sem var mér afar
kær vinur.
Fyrstu kynni mín af Þórarni og
konu hans, Guðmundu, hófust á Ísa-
firði 1956 þegar sonur þeirra Stefán
gekk að eiga systur mína, Láru
Kristínu.
Athöfnin fór fram í Ísafjarðar-
kirkju með hátíðarblæ. Á eftir var
slegið upp veislu með glæsibrag. Í
þeirri veislu eftir mikil ræðuhöld og
skálaglamur tókum við tal saman.
Ég tók strax eftir því hvað Þórarinn
var varkár og vandaður til orðs og
æðis og traustvekjandi.
Síðar á ævinni lágu leiðir okkar
oft saman, bæði á sorgar- og gleði-
stundum.
Það er ekki ætlun mín að rekja
lífshlaup hans, það gera mér aðrir
færari.
Þórarni var margt til lista lagt og
var mikill fagurkeri. Hann var völ-
undarsmiður og liggja margir fagrir
munir eftir hann, sem prýða bæði
heimili og kirkjur, útskornir hlutir
af sérstakri alúð, smekkvísi og ótrú-
legri vandvirkni. Einnig kunni hann
að halda vel á pensli og fara vel með
liti. Það eru ófáar myndir sem hann
málaði og gaf hann þær yfirleitt frá
sér til vina og kunningja og gleðja
þær augu margra.
Það var unun að sjá hvað hönd
hans var styrk, skjálftalaus og hug-
urinn skýr fram á síðustu stundu.
Þórarinn og Guðmunda bjuggu
lengst af ævi sinni á Laugarvatni,
þar sem hann var handavinnukenn-
ari í 40 ár og í 20 ár var hann sím-
stöðvarstjóri og póstmeistari með
dyggri aðstoð konu sinnar og barna.
Einnig gegndi hann trúnaðarstörf-
um fyrir samfélag sitt og hafði eft-
irlit með viðhaldi húsa á Laugar-
vatni.
Öllum þessum störfum sinnti
hann af kostgæfni og einstakri trú-
mennsku.
Hann var söngvinn maður og fé-
lagslyndur og söng með kórum þar í
sveit.
Það var gaman að setjast niður
með Þórarni í góðu næði og hlusta á
hann segja frá liðinni tíð og ógrynni
kunni hann af vísum sem margar
voru dýrt kveðnar.
Þórarinn og Guðmunda voru sam-
hent hjón og áttu barnaláni að
fagna. Þau eignuðust tvö mannkosta
börn, Ernu og Stefán, sem voru
augasteinar þeirra og hafa þau verið
foreldrum sínum til sóma í hvívetna.
Þau bjuggu þeim gott heimili og at-
læti þar sem ríkti reglusemi og festa
í heimilishaldi og hafa þau systkinin
haldið þeim siðum allar götur síðan.
Ættartréð hefur vaxið og dafnað
eins og sáð var til. Mörg barnabörn
og barnabarnabörn hafa litið
dagsins ljós og höfðu Þórarinn og
Guðmunda yfir miklu að gleðjast og
líf þeirra heldur áfram í niðjum
þeirra.
Þórarinn fór hávaðalaust í gegn-
um þetta líf með háttvísi sinni. Hann
hafði oft langan vinnudag og féll
sjaldan verk úr hendi. Hann afrek-
aði miklu með festu sinni og útsjón-
arsemi, sívakandi yfir velferð barna
sinna og afkomenda og þau hjónin
voru miklir barnavinir. Er sárast
fyrir smæstu börnin að sjá á eftir
langafa og langömmu sem voru
þeim svo góð.
Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa
fengið að kynnast slíkum öðlings- og
heiðursmanni sem bæði sáði og
stráði frá sér mannkærleika og
ræktaði garðinn sinn vel.
Ég gleðst yfir því að hann skyldi
fá að halda virðingu og reisn til síð-
ustu stundar. Langri og viðburða-
ríkri ævi er lokið.
Hann kvaddi þennan heim á
hljóðlausan hátt eins og hans var
von og vísa.
Ég veit að algóður Guð fagnar
komu hans. Að síðustu vil ég votta
börnum og öllum ættingjum hans
mína dýpstu samúð.
Far þú í friði á Guðs vegum.
Amen.
Brynjólfur Samúelsson.
Nú hefur elskulegur frændi minn,
Þórarinn Stefánsson, kvatt þennan
heim, háaldraður en alltaf hress og
elskulegur og þannig verður hans
minnst.
Þórarinn frændi var þriðji elsti
fimmtán systkina frá Mýrum í
Skriðdal. Við móðurmissi reynir á
samheldni og sú varð raunin í þess-
um stóra systkinahópi.
Mér finnst það sýna glöggt
hversu góður bróðir Þórarinn hefur
reynst, að fimm systkinanna sóttu
nám alla leið til Laugarvatns eftir að
Þórarinn varð kennari þar. Þar tók
Þórarinn á mótum þeim sem sínum
eigin börnum og hefur heimili
Mundu og Þórarins þá jafnan staðið
þeim opið.
Pabbi var einn þeirra og minnist
hann Þórarins með mikilli hlýju.
Þórarinn reyndist honum einstak-
lega vel og hefur sú vinátta sem
myndaðist á þessum árum haldist
óslitin. Pabbi þakkar Þórarni fyrir
allt sem hann gerði fyrir hann á lífs-
leiðinni. Hann var hans besti vinur
og hafa þeir átt margar góðar stund-
ir saman bæði á Laugarvatni og í
eftirminnilegum ferðum sem þeir
fóru með eiginkonum sínum. Það
hefur verið ánægjulegt að sjá hvað
þeir bræður voru samrýndir og allt-
af höfðu þeir nóg umræðuefni. Þeir
ræddu mikið um lífið fyrir austan og
rifjuðu upp ýmis atvik. Það verða
minningarnar um þessar stundir
sem ylja pabba í framtíðinni.
Með ánægjulegustu minningum
æskuára minna eru ferðirnar austur
að Laugarvatni til þeirra Þórarins
og Mundu. Þar dvöldum við næstum
á hverju sumri. Þetta var mjög gest-
kvæmt heimili og jafnan fjölmenni í
mat og kaffi.
Bátsferð með Þórarni út á Laug-
arvatn að vitja neta og borða síðan
nýsoðinn silung í eldhúsinu hjá
Mundu eru góðar minningar.
Gönguferðir með Þórarni um skóg-
arreitinn hans og upp að styttunni af
Jónasi eru einnig minningar sem
gott verður að ylja sér við. Þórarinn
undi sér vel við skógræktina og
finnst mér kvæðið sem hér fylgir
með eiga vel við lífið og við elskuleg-
an frænda minn.
Á meðan vorið vængi sólar breiðir
og vetrarkvíði flýr úr hól og tjörnum,
þá sýnist ungum elskendum og börnum
að allir þeirra vegir séu greiðir
Bjarkir laufgast, litir klæða móa
og lækir brjóta frerans kalda helsi,
skvettast af kæti, fagna nýju frelsi
færandi líf að rótum ungra skóga.
Í grænum lundi gamall reynir bíður
geislanna hlýjú að verma kalda fingur.
Þröstur í greinum saknar einn og syngur:
Sofandi tré, þín ævi burtu líður.
Því enginn geisli, enginn lækjarkliður
þig oftar vekur, forni reyniviður.
(Þórdís Guðnadóttir.)
Síðustu mánuðina bjó Þórarinn á
hjúkrunarheimilinu Eir. Hann var
mjög sáttur við veruna þar og hrós-
aði elskulegu starfsfólki. Þar eign-
aðist hann líka nýja vini því allir löð-
uðust að Þórarni. Hann mætti í
sjúkraleikfimi og föndurtíma og ætl-
aði jafnvel fljótlega að byrja að mála
aftur.
Fyrir hönd pabba og fjölskyld-
unnar allrar vil ég votta Lillý og
Bóbó og fjölskyldum þeirra innilega
samúð. Minning um góðan frænda
lifir.
Sigrún Sveinsdóttir.
+ & & &
75
344 * - >"
&'()
! " #! " 8 +6 ,"
!) ! ," # ' . , !* "
8 ) ! ," 65) !* "
! ! ," 3 0) !!* "
//0,///)
('
&
& &
&
5# 12344 * * "
'0 "
' )
0
' ' (1
(&
' '
! ! +
0 6 ,"
( 1*- 6 !* "
1* 6 ," !(;! "
//0,///0)