Morgunblaðið - 20.09.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Björgvin og Ólafur Már komust
áfram á Five-Lake/C2
Aðalmarkaskorari enskra
ekki með á St. Andrews/C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Vetrarförðun/B1
Bruggað úr berjum/B2
Dregið til stafs/B4
Farsími sem kennslutæki/B6
Brúðkaupsveislur fyrr og nú/B7
Auðlesið efni/B8
Sérblöð í dag
STÚLKAN sem lögreglan í Reykja-
vík lýsti eftir á miðvikudag er enn
ekki komin fram. Hún heitir Íris
Dögg Héðinsdóttir, 15 ára, en ekkert
er vitað um ferðir hennar síðan laust
fyrir klukkan 16 sl. sunnudag.
Íris Dögg er um 172 sentimetrar á
hæð, með axlarsítt hár og með gler-
augu. Hún var klædd í svartar galla-
buxur með hvítum röndum niðureft-
ir skálmum, grænan mittisjakka og
var með blátt sjal. Þeir sem geta gef-
ið upplýsingar um ferðir Írisar
Daggar eru vinsamlegast beðnir um
að láta lögregluna vita.
Lögreglan lýsir
eftir stúlku
STJÓRN Varðar, fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, sam-
þykkti á fundi sínum í gær að leggja
til á almennum fulltrúaráðsfundi, að
eitt prófkjör fari fram til að velja
frambjóðendur á báða lista flokksins í
Reykjavík í alþingiskosningunum
vorið 2003.
Prófkjörið á að fara fram dagana
22. og 23. nóvember nk. Þátttökurétt
eiga félagar í sjálfstæðisfélögunum í
Reykjavík, sem eru um það bil 14 þús-
und talsins, og þeir sem hafa undirrit-
að inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag á
kjördag. Er þetta sama fyrirkomulag
og í fyrri prófkjörum, en síðast fór
fram prófkjör hjá Sjálfstæðisflokkn-
um fyrir alþingiskosningarnar 1994.
Frestur til að skila framboðum
rennur út föstudaginn 27. nóv. nk.
Prófkjör í
nóvember
Sjálfstæðisflokkur-
inn í Reykjavík
BUSAVÍGSLA fór fram í Mennta-
skólanum í Reykjavík í gær þar sem
nýnemar voru tolleraðir samkvæmt
gamalli hefð í skólanum. Í MR er
dagurinn jafnan nefndur „toll-
eringadagur“ þegar 6. bekkingar
ganga niður Bókhlöðustíg, eftir
Lækjargötu og að gömlu skóla-
byggingunni, íklæddir toga-kuflum
við undirspil úr Carmina Burana.
Að sögn Sigurðar Arnar Hilm-
arssonar, inspector scholae, tókst
dagurinn með ágætum og nýnemar
og þeir sem eldri eru skemmtu sér
konunglega. Að lokinni tolleringu
fengu nýnemar barmmerki og boð-
ið var upp á súkkulaðiköku og
mjólk í félagsaðstöðu nemenda.
Reminantar, 4. og 5. bekkingar,
voru svartklæddir í tilefni dagsins
og aðstoðuðu við busavígsluna. Ný-
nemum var hins vegar skylt að
mæta í gallabuxum og hvítum bol.
Um kvöldið var haldinn dansleikur
á Kaffi Reykjavík þar sem yngri og
eldri nemendur skemmtu sér sam-
an.
Morgunblaðið/Golli
Nýnemar í MR tolleraðir
STEFÁN Hörður
Grímsson skáld lést að
kvöldi 18. september,
83 ára að aldri. Hann
var eitt þekktasta
skáld sinnar kynslóðar
og verk hans oftast
kennd við módern-
isma.
Stefán Hörður
Grímsson fæddist 31.
mars 1919 í Hafnar-
firði en ólst upp á
Álftanesi og undir
Eyjafjöllum. Hann
stundaði nám við
Laugarvatnsskóla
1939–1940 og einnig í ýmsum
tungumálaskólum. Auk ritstarfa
vann Stefán Hörður margs konar
störf um ævina; hann var sjómaður
framan af ævi á fiskiskipum og far-
skipum og vann einnig við land-
búnaðarstörf.
Fyrsta ljóðabók Stefáns Harðar,
Glugginn snýr í norður, kom út
1946 en verulega athygli vakti önn-
ur bók hans, Svartálfadans, frá
árinu 1951. Hliðin á
sléttunni kom út 1970
og Farvegir 1981. Ár-
ið 1987 kom út Tengsl
sem var tilnefnd til
bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs
tveimur árum síðar,
en fyrir síðustu bók
sína, Yfir heiðan
morgun 1989, hlaut
hann Íslensku bók-
menntaverðlaunin
fyrstur höfunda árið
1990. Heildarsafn
með ljóðum Stefáns
Harðar kom út árið
2000 og verk hans hafa ennfremur
birst á bók í Þýskalandi, Svíþjóð,
Frakklandi og Danmörku.
Stefán Hörður hlaut margvísleg-
ar viðurkenningar fyrir verk sín,
m.a. úr Rithöfundasjóði Íslands og
Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins
og heiðurslaun listamanna frá
1995. Einnig var hann heiðurs-
félagi í Rithöfundasambandi Ís-
lands.
Andlát
STEFÁN HÖRÐUR
GRÍMSSON
RAUÐUR aðmíráll (vanessa atal-
anta) nýtur nú gestrisni vin-
kvennanna Hildar Maríu Þór-
isdóttur og Rannveigar Hildar
Guðmundsdóttur. Sú síðarnefnda
rak augun í fiðrildið þegar þær
voru í fótbolta fyrir utan heimili
þeirra á Seltjarnarnesi í fyrra-
kvöld en svo heppilega vill til að
þær búa hlið við hlið. Síðan þá
hefur aðmírállinn ýmist verið í
krukku eða fengið að flögra um
inni á baðherbergi og hefur það
alveg ágætt, að sögn Hildar.
Á Vísindavef Háskóla Íslands
kemur fram að rauðir aðmírálar
eru flækingar hér á landi og er
líklegast að hann hafi borist
hingað með vindum eða skips-
farmi. Fiðrildin eru farskordýr
og þegar kólna tekur á haustin
fara þau suður á bóginn líkt og
farfuglar gera. Það er þó of mikil
langferð fyrir aðmírálinn á Sel-
tjarnarnesi sem getur ekki held-
ur lifað af veturinn úti í nátt-
úrunni. Á myndinni eru
vinkonurnar með aðmírálinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Rauður
aðmíráll
flögrar
um bað-
herbergið
FÉLAG íslenskra heimilis-
lækna samþykkti á fundi sín-
um í gær að skora á ríkis-
stjórn Íslands að bregðast
þegar í stað við erfiðri stöðu
sem upp væri komin í heilsu-
gæslunni og afnema misrétti í
starfsréttindum sem heimilis-
læknar hafi mátt búa við. Þá
er á það minnt í áskorun fund-
arins að alvarlegt ástand hafi
skapast innan heilsugæslunnar
í kjölfar uppsagna heimilis-
lækna sem valdið hafi óöryggi
meðal almennings. Að mati
fundarins bera stjórnvöld fulla
ábyrgð á því að skjólstæðingar
heilusgæslunnar fá ekki þá
þjónustu sem þeir eiga lög-
bundinn rétt á.
Ekki tekið á kröfum
Þá var á fundinum sam-
þykkt að lýsa fullu trausti á
stjórn FÍH og stefnu hennar í
réttindabaráttu heimilislækna.
Telur fundurinn að nýfram-
komnar tillögur stjórnenda
Heilsugæslunnar í Reykjavík
hafi ekki tekið á grundvallar-
kröfu heimilislækna um sömu
starfsréttindi og aðrir sér-
menntaðir læknar njóta.
Áskorun
send til
ríkis-
stjórnar
Félag íslenskra
heimilislækna
♦ ♦ ♦