Morgunblaðið - 20.09.2002, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Yfir 14.000 MANNS
Sýnd kl. 6 og 8.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6. með ísl. tali.
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 5.15, 8, 10.40 og POWERsýning kl. 12. B.i. 14.
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
Yfir 14.000 MANNS
kl. 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4 og 4.30.
Sýnd með íslensku tali.
Ný Tegund Töffara
HK DV
Powersýning
kl. 12.
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
FRUMSÝNING
ENDUR fyrir löngu sáu nokkrir
tónelskir meðlimir í Bifhjóla-
samtökum lýðveldisins sér þann
kost vænstan að setja á stofn hljóm-
sveit til að fá spilagleðinni farveg,
sem síðan var rekin undir hatti sam-
takanna. Fljótlega hóf sveitin, sem
skírð var Sniglabandið (nema
hvað!), þó að brjótast undan þeim
takmörkum og í upphafi tíunda ára-
tugarins var hún orðin ósvikin
gleðisveit, og meira að segja ein sú
vinsælasta af því taginu.
Í dag, og á morgun, ætlar Snigla-
bandið að hefja innreið inn í íslenskt
menningar- og skemmtilíf á nýjan
leik. Þeir Pálmi Sigurhjartarson og
Björgvin Ploder, músíksniglar með
meiru, gera sitt besta til að upplýsa
blaðamann um ástæður þessa.
„Við fórum í frí fyrir fimm árum,“
segir Pálmi. „Þá vorum við búnir að
spila stanslaust í þetta sjö til átta ár.
Nú er gítarleikarinn okkar kominn
til landsins aftur og þess vegna
fannst okkur tilvalið að byrja aftur.
Hvað sem verður meira á svo bara
eftir að koma í ljós.“
Minnisstætt er þegar Sniglaband-
ið hélt úti eigin útvarpsþætti á Rás 2
um skeið, og var hann með allsér-
stæðu sniði. Fólk gat hringt inn og
beðið um óskalag og sveitin reyndi
sitt besta til að spila viðkomandi lög
– á staðnum! Þetta ætla þeir og að
endurtaka í dag á milli kl. 15.00 og
16.00 á Rás 2 sem fyrr.
„Þetta var örugglega það
skemmtilegasta sem við gerðum,“
segir Björgvin. „Þannig vildum við
sjá hljómsveitina, við vildum skapa
okkur sérstöðu. Undir það síðasta
vorum við orðnir ansi færir að elta
hver annan í lögum sem kannski
einn af okkur kunni!“
Um lagaval helgarinnar segir
Björgvin kerknislega að þeir reyni
líklega að taka skástu lögin. Þeir fé-
lagar leggja svo hins vegar stoltir
áherslu á það frelsi sem felst í band-
inu og þegar hafi liðið á feril sveit-
arinnar fór fólk í ríkari mæli að
tengja nafnið við galsa og gleði
fremur en vélhjól.
„Við getum leyft okkur meira
sem tónlistarmenn í þessu bandi,“
segir Pálmi. „Í þessum hópi má
stoppa í miðju lagi; skeyta ólíkum
lögum saman o.s.frv. Við höfum all-
ir starfað í öðrum sveitum þar sem
við komumst ekki upp með slík fífla-
læti. Þannig að það verður gaman
að takast á við þessar aðferðir á nýj-
an leik.“
Endurkoma Sniglabandsins fer
fram á Kaffi Reykjavík í kvöld og
annað kvöld. Munið líka að kveikja á
viðtækinu í dag.
Ein af mörgum útgáfum Sniglabandsins stillir sér upp, einhverntíma á
tíunda áratugnum. Björgvin og Pálmi eru lengst til vinstri.
Sniglabandið snýr aftur
arnart@mbl.isAUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111