Morgunblaðið - 17.10.2002, Page 1
243. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. OKTÓBER 2002
FRAKKAR ítrekuðu í gær andstöðu
sína við tilraunir stjórnar George W.
Bush Bandaríkjaforseta til að fá sam-
þykki Sameinuðu þjóðanna við hern-
aðaraðgerðum gegn Írak. Kvaðst
Jacques Chirac, forseti Frakklands,
vera því „algerlega andvígur“, að
Bandaríkjastjórn fengi sjálfkrafa
heimild til valdbeitingar.
Umræður hófust um Íraksmálið í
öryggisráði SÞ í gær og fast var lagt
að Bandaríkjamönnum að hætta við
að leggja fram tillögu um að ráðið
hótaði Írökum valdbeitingu.
Fulltrúar 48 ríkja voru á mælenda-
skrá á opnum fundi öryggisráðsins í
gær og þeir bentu nær allir á að Írak-
ar hafa fallist á að heimila Sameinuðu
þjóðunum að hefja vopnaeftirlit að
nýju í Írak. Ræðumennirnir sögðu að
gefa ætti eftirlitsmönnum samtak-
anna færi á að rannsaka hvort Írakar
réðu yfir gereyðingarvopnum.
Rússar styðja afstöðu Frakka
Frakkar vilja tvær ályktanir um
Írak, aðra um skilmála hugsanlegs
vopnaeftirlits og hina, ef þörf krefur,
um refsiaðgerðir vegna brota á þeim.
Bandaríkjamenn vilja aftur á móti
eina harðorða ályktun, sem fæli þá í
sér heimild til hernaðaraðgerða.
Styðja Bretar Bandaríkjamenn í
því en Rússar ítrekuðu í gær, að þeir
styddu afstöðu Frakka. Fimmta ríkið
með neitunarvald í öryggisráðinu,
Kína, hefur tekið illa í bandarísku til-
löguna en þó án þess að taka af skar-
ið.
Chirac sagði á fundi með arabísk-
um fréttamönnum í París í gær, að
franska stjórnin væri „algerlega and-
víg“ því að gefa Bandaríkjunum
heimild til hernaðar í Írak án frekari
afskipta öryggisráðsins. Sagði hann,
að vissulega væri sú hætta fyrir
hendi, að Írakar réðu yfir gereyðing-
arvopnum, en tilgangurinn væri að
afvopna þá, ekki að steypa stjórninni.
„Ég hef alltaf sagt að stríð sé versta
lausnin. Gera þarf allt sem hægt er til
að forðast það,“ sagði Chirac.
Ljóst er, að Bandaríkjamenn eru
mjög gramir Frökkum vegna afstöðu
þeirra. Var það haft eftir bandarísk-
um embættismönnum í gær, að Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, ætlaði ekki að tala neina
tæpitungu á fundi, sem þá var fyrir-
hugaður með honum og Michele
Alliot-Marie, varnarmálaráðherra
Frakklands. Ætluðu Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Dick Cheney varaforseti og
Condoleezza Rice öryggisráðgjafi
einnig að sitja fundinn.
Stjórnvöld í Írak reyna að nýta sér
þennan ágreining í öryggisráðinu.
Ezzat Ibrahim, varaformaður íraska
byltingarráðsins og sá, sem gengur
næstur Saddam Hussein að völdum,
sagði í gær, að Írakar væru „hreykn-
ir af vináttu Frakka við araba“ og
hvatti þá til að herða á andstöðu sinni
við Bandaríkin.
Umræður um Írak í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
Chirac „algerlega and-
vígur“ tillögu Bush
Bandaríkjamenn
sagðir vera mjög
gramir Frökkum
París. AFP.
UNGFRÚ Alheimur gæti þurft að
vara sig á nýjum keppinaut því ráð-
gert er að efna til samkeppni í
Litháen, Ungfrú Prísund, þar sem
valinn verður fegursti kvenfangi
landsins.
Sjónvarpsmaðurinn Arunas Val-
inkas tilkynnti í vikunni að hann
hefði náð samkomulagi um sam-
keppnina við eina kvennafangelsi
Litháens. Hann kvaðst þegar hafa
samþykkt umsóknir 36 sakakvenna
um þátttöku í samkeppninni.
„Við ætlum að leita að fegurðinni
þar sem fólk kann að halda að hana
sé ekki að finna,“ sagði Valinkas.
„Fangarnir eru, þrátt fyrir allt,
fyrst og fremst konur.“
Í fangelsinu eru um 1.000 fangar,
meðal annars morðingjar. Valinkas
segir að þetta sé fyrsta fegurðar-
samkeppnin meðal fanga í Evrópu
og hún verði sýnd í beinni útsend-
ingu í einkarekinni sjónvarpsstöð,
LNK, um miðjan nóvember.
Virtustu tískuhönnuðir Litháens
eiga að hanna kjóla keppendanna
og þekktir Litháar verða í dóm-
nefndinni. Konurnar sem verða
valdar í þrjú efstu sætin fá alls and-
virði 215.000 króna í verðlaun.
Ungfrú
Prísund
Vilnius. AP.
KONA kveikir á kerti á bíla-
stæði stórverslunar í Falls
Church í Virginíu til minn-
ingar um níunda fórnarlamb
leyniskyttunnar í Wash-
ington-borg og nágrenni.
Linda Franklin, starfskona
FBI, var myrt á bílastæðinu
á mánudagskvöld.
Að sögn The Washington
Post sá að minnsta kosti
einn sjónarvottur karlmann
hleypa af byssu á bílastæð-
inu og flýja síðan í sendibíl.
The New York Times sagði
að morðinginn hefði skotið
af 30 metra færi.
Annar sjónarvottur kvaðst
hafa séð mann með dökk-
leita húð, hugsanlega ætt-
aðan frá Rómönsku-Ameríku
eða Mið-Austurlöndum, flýja
í sendibíl.
Herflugvélum
beitt við leitina
Vonast var til að hægt
yrði að vinna mynd af morð-
ingjanum, byggða á lýs-
ingum sjónarvottanna, en
lögreglan í Virginíu sagði í
gær að það hefði ekki tekist.
Sjónarvottunum bæri ekki
saman og þeir hefðu ekki
verið nógu nálægt morðingj-
anum til að geta lýst honum
nákvæmlega.
Vitni hafa einnig veitt
upplýsingar um bílnúmer, en
þeim ber ekki saman og það
kann að benda til þess að
fjöldamorðinginn skipti oft
um númer.
Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkj-
anna, hefur heimilað að her-
flugvélar, búnar háþróuðum
eftirlitstækjum, verði not-
aðar til að aðstoða lögregl-
una við leitina að fjölda-
morðingjanum. Hundruð
lögreglumanna eru á götum
Washington-svæðisins að
leita að leyniskyttunni.
Reuters
Ónákvæm-
ar lýsingar
á leyni-
skyttunni
MEÐLIMIR hreyfingar róttækra
múslima í Indónesíu hrópa „Guð
er mikill“ á mótmælafundi fyrir
utan höfuðstöðvar indónesísku
lögreglunnar í höfuðborginni
Djakarta í gær.
Á spjaldinu stendur: „Bandarík-
in sprengja Balí, íslam aftur gert
að blóraböggli.“
Grunur leikur á að Jemaah
Islamiyah, öfgahópur múslima
sem talinn er tengjast hryðju-
verkasamtökunum al-Qaeda, hafi
átt þátt í sprengjutilræðunum á
Balí sem kostuðu yfir 180 manns
lífið um síðustu helgi.
Múslimaklerkurinn Abu Bakar
Bashir, sem sagður er andlegur
leiðtogi Jemaah Islamiyah, lýsti
því þó yfir við blaðamenn í gær
að hópurinn væri ekki til í
Indónesíu og al-Qaeda tengdist
tilræðunum á Balí ekki neitt.
Sagði Bashir ásakanirnar „upp-
spuna villutrúarmanna“.
Reuters
Reiðir múslimar
í Indónesíu
Fjórir Indónesar/22
FJÓRIR þingmenn í Úkraínu
ákváðu í gær að ganga úr meirihluta,
sem myndaður var nýlega á þingi
landsins til stuðnings Leoníd
Kútsjma forseta, og styðja ekki for-
setann á meðan þingið rannsakar
meinta líkamsárás á úkraínskan
þingmann og rússneskan kaupsýslu-
mann.
Kútsjma hefur þar með misst
meirihluta sinn á þinginu og til að
endurheimta hann þarf forsetinn að
tryggja sér stuðning eins þing-
manns. Þingmennirnir fjórir sögðust
ætla að bíða eftir niðurstöðu rann-
sóknar þingsins á meintri árás um
helgina á þingmanninn og kaup-
sýslumanninn.
Vopnaðir menn, sem sögðust vera
leynilögreglumenn, voru sagðir hafa
ráðist á mennina tvo, dregið þá út úr
bíl og slegið þá með byssuskeftum.
Lögreglumenn komu síðar á staðinn
og handtóku kaupsýslumanninn,
sem var sagður hafa verið með
hlaðna byssu í fórum sínum.
Kútsjma missir
þingmeirihluta
Kiev. AP.