Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 40
PRÓFKJÖR
40 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GJAFAKVÓTAKERFIÐ í sjáv-
arútvegi er einhver mesta þjóð-
félagsmeinsemd sem um getur.
Ranglæti og forréttindi eru ofin inn
í kerfið sem lagt hefur margar sjáv-
arbyggðir í rúst og skilið aðrar eftir
í sárum, kvótalitlar eftir að „eig-
endum“ veiðiheimildanna þóknaðist
að selja þær í burtu. Eitt símtal og
kvótinn seldur. Brauðið er farið frá
fólkinu, eignir verðlitlar og atvinna
engin. Dæmin blasa við hringinn í
kringum landið, hvort sem litið er
til Suðurnesja eða Vestfjarða, svo
dæmi séu tekin.
Skemmdarverk
stjórnmálamanna
Gjafakvótakerfið sem ríkisstjórn-
arflokkarnir þvinguðu upp á þjóðina
er einhver ömurlegasti vitnisburður
um þau skemmdarverk sem stjórn-
málamenn geta unnið á samfélag-
inu. Gangi þeir erinda fámennis-
valdsins en ekki almannahagsmuna.
Sameiginleg auðlind þjóðarinnar
var færð fáeinum til yfirráða. Fyrir
vikið er nýliðun í greininni útilokuð,
byggðaröskunin af þess völdum
hrikaleg og verksmiðjuskip skrapa
hafsbotninn umhverfis landið til
ómetanlegs skaða. Hörmulegar af-
leiðingar gjafakvótakerfisins verða
seint metnar til fulls og mun vara í
íslensku samfélagi um langa hríð.
Það er eitt af forgangsatriðum
stjórnmálanna eftir kosningar að
koma á réttlæti í sjávarútvegi. Það
á að fyrna gjafakvótann á ákveðnu
tímabili og taka fyrir afnotin sann-
gjarnt gjald sem yrði miklu lægra
en það sem greitt er innbyrðis í
greininni nú. Til að koma á réttlæti
í auðlindanýtingu þarf að koma fá-
keppnisflokkunum frá völdum.
Varðstöðu Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokksins um gjafakvótann
og það ramma óréttlæti sem honum
fylgir verður ekki hnekkt nema þeir
verði kosnir burt úr stjórnarráðinu.
Nú er lag.
Réttlæti í
sjávarútvegi
Eftir Björgvin G.
Sigurðsson
„Fyrir vikið
er nýliðun í
greininni úti-
lokuð,
byggðarösk-
unin af þess völdum
hrikaleg og verksmiðju-
skip skrapa hafsbotn-
inn umhverfis landið til
ómetanlegs skaða.“
Höfundur er þátttakandi í
flokksvali Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi.
TIL tryggingar heilbrigðu lýð-
ræði og réttlátu samfélagi kveður
stjórnarskrá hins unga íslenska lýð-
veldis skýrt á um þrískiptingu valds-
ins í landinu. Löggjafarvald ís-
lenskra alþingismanna á þannig að
vera skýrt aðskilið frá framkvæmda-
valdi íslenskra ráðherra og dóms-
vald þeirra sem með slíka ábyrgð
fara skal jafnframt rækilega að-
greint frá valdi alþingismanna og
ráðherra. Þessu ákvæði stjórnar-
skrárinnar er ætlað að vera sú
trausta undirstaða sem gjörvallt
samfélag okkar hvílir á. En hvað
blasir við?
Tökum dæmi af 4. þingmanni
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, frú
Sólveigu Pétursdóttur. Þessum
mæta lögfræðingi hefur verið falið
löggjafarvald með kjöri til Alþingis.
Með ráðherradómi hefur frú Sól-
veigu jafnframt verið falið fram-
kvæmdavald . Og sem dómsmálaráð-
herra sem velur og skipar
hæstaréttardómara er hún jafn-
framt æðsti maður dómsmála á Ís-
landi.
Í þessum orðum felst engin skoð-
un á því hvernig frú Sólveig Péturs-
dóttir, alþingismaður, ráðherra og
æðsti maður dómsmála á Íslandi hef-
ur farið með fjölþætt vald sitt. Hins
vegar er verið að benda á augljóst
brot á íslensku stjórnarskránni.
Þessi brotalöm kallar annaðhvort á
stjórnarskrárbreytingu sem heimila
mundi þá stjórnsýslu sem nú er við-
höfð eða að öðrum kosti verði að-
skilnaður löggjafarvalds, fram-
kvæmdavalds og dómsvalds loks
gerður að veruleika.
Það er þegnum landsins heldur
daufleg hvatning til löghlýðni að
horfa upp á eitt helsta grundvallar-
ákvæði stjórnarskrárinnar hunsað
og þverbrotið, og það af sjálfum
valdhöfunum.
Með alla þræði á einni hendi
Eftir Jakob Frímann
Magnússon
„Öll hljótum
við að vilja
losna undan
oki grasser-
andi sam-
særiskenninga og spill-
ingar.“
FJÖLSKYLDAN er hornsteinn í
íslensku samfélagi. Það er bláköld
staðreynd. Hvort sem fjölskyldan
er skilgreind sem sambúðarfólk,
einstætt foreldri, foreldrar með
börn eða stórfjölskyldan er hún sú
heild sem sem við byggjum á. Ekk-
ert kemur í stað ástríks uppeldis
eða þeirrar umhyggju sem fjöl-
skyldan getur veitt þegar erfiðleik-
ar eða veikindi steðja að. Í ná-
grannalöndum okkar þar sem
jafnaðarmenn hafa lengst af verið
við stjórnvölinn hefur áhersla verið
lögð á að umhverfi fjölskyldunnar
taki mið af veigamiklu hlutverki
hennar. En ekki hér. Stuðningur
við námsmenn er minni. Leigu-
markaður vanþróaðri. Húsnæðis-
kaup erfiðari. Matur dýrari. Barna-
bætur lægri. Veikindadagar vegna
sjúkra barna örfáir. Skortur á
hjúkrunarrýmum og úrræðum fyrir
aldraða. Langir biðlistar fatlaðra
eftir búsetu.
Fjölskyldunni er ætlað að vera
sams konar eining og í bændafjöl-
skyldunni fyrrum. Að þegar veru-
lega bjátar á leysi hún verkefnin að
meira eða minna leyti innan veggja
sinna. Skortur á þjónustu reynist æ
fleiri fjölskyldum ofviða.
Hamingjuárin
Hugljúft er þegar geislandi
æskufólk staðfestir hjúskaparheit
sitt við altarið eða heldur ungbarni
í örmum sér. Allra óskir eru að
unga parinu muni farnast vel. En
oft fara erfið ár og þrotlaus vinna í
hönd. Langur vinnudagur og tak-
markað fjölskyldulíf tærir viljann
til að takast á við amstur hvers-
dagsleikans. Samskiptaleysi og álag
verður oft undanfari upplausnar.
Það er óásættanlegt að okkur skuli
Er fjölskyldan hornsteinn?
Eftir Rannveigu
Guðmundsdóttur
„Þar kemur
fram um-
hugsunar-
verð lýsing á
velferð-
arsamfélaginu okkar
sem sýnir að íslenska
fjölskyldan er horn-
reka.“
Prófkjör
Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði
nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram-
bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir
liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is.
ÍSLENSKT samfélag framtíð-
arinnar mun byggja á atvinnugrein-
um sem krefjast hás
menntunarstigs og
þekkingar í hæsta
gæðaflokki. Þess
vegna er nauðsynlegt
að á Alþingi sitji fólk
sem er kunnugt fleiri
hliðum íslensks at-
vinnulífs en sjávar-
útvegi og landbúnaði. Vægi þeirra
greina í afkomu þjóðarinnar fer óðum
dvínandi.
Alþingi verður hins vegar ókleift að
móta þetta samfélag framtíðarinnar
nema þar sitji einstaklingar með
skarpa innsýn í þekkingariðnaðinn.
Ásgeir Friðgeirsson hefur starfað í
þekkingariðnaði undanfarin ár og
hefur glögga innsýn í ólíkar greinar
upplýsingatækninnar. Hann er einn-
ig sannarlega í hópi þeirra frum-
kvöðla hér á landi sem mótuðu miðlun
upplýsinga á Netinu.
Þessi ágæti vinur minn hefur nú
gefið kost á sér í forvali Samfylking-
arinnar í suðvesturkjördæminu. Ás-
geir yrði íslenskum þekkingariðnaði
afdráttarlaus og öflugur liðsmaður á
Alþingi.
En öllum má sömuleiðis ljóst vera
að Samfylkingunni skortir mjög
þungavigtarfólk þegar kemur að mót-
un framsækins samfélags og atvinnu-
lífs. Það er mín trú að Ásgeir Frið-
geirsson yrði Samfylkingunni
notadrjúgur í þessum efnum. Ekki
veitir af.
Talsmann ís-
lensks þekking-
ariðnaðar á þing
Stefán Hrafn Hagalín, blaðamaður
og ráðgjafi, skrifar:
UMRÆÐAN
Í TILEFNI greinar Steins Loga
Björnssonar, markaðsstjóra Flug-
leiða, í Morgunblaðinu 15.9. sl. þar
sem hann rekur ástæður þess að
ekki hafi takist að fjölga ferða-
mönnum frá Þýskalandi, þá tel ég
rétt að eftirfarandi komi fram.
Ekki bara Flugleiðir
Steinn Logi útskýrir stöðnun í
Þýskalandi á eftirfarandi hátt:
„Þar sem Flugleiðir eru nú með
innan við 50% markaðshlutdeild á
þýska markaðnum á sumrin var
ákveðið að skera verulega niður
fjárfestingar við markaðssetningu
á Íslandi í Þýskalandi. Þessa stöðn-
un má því rekja til eigingjarnra
ástæðna enda fjárfestir enginn í
erlendum mörkuðum ef Flugleiðir
gera það ekki. Það er bara stað-
reynd.“
Þessi fullyrðing að ekkert annað
flugfélag markaðssetji Ísland nema
Flugleiðir er ekki rétt. Sannleik-
urinn er sá að flugfélagið LTU
auglýsir Ísland fyrir 20 til 25 millj.
króna á hverju ári og gerir það ná-
kvæmlega eins og Flugleiðir og
önnur flugfélög, þ.e. þeir auglýsa í
dagblöðum, tímaritum, útvarpi,
sjónvarpi og með beinni markaðs-
setningu til ferðaskrifstofa. LTU
sýnir 10 mín. þátt um Íslandi um
borð í vélum sínum um allan heim
sem er auglýsing sem nær til meira
en 1 milljónar ferðamanna árlega.
Þeir hafa einnig kostað sjónvarps-
þátt um Ísland sem sýndur var í
Þýskalandi og hafa sent hingað
blaðamenn og hópa ferðaskrif-
stofufólks auk þess að kynna flug
sitt til Íslands á fjölda ferðakaup-
stefna víða um heim. Dreifing LTU
nær til 10.000 söluskrifstofa, sem
er langtum meiri dreifing en hjá
Flugleiðum. Flugfélagið Aero-
Lloyd hefur jafnframt lagt umtals-
verða fjármuni í markaðssetningu
á Íslandi á þýskum markaði.
Eigingirni Flugleiða
Er ekki eigingirni af Flugleiðum
að reyna ekki að fá fleiri Þjóðverja
til landsins á sumrin og skera veru-
lega niður fjármuni til markaðs-
setningar í Þýskalandi vegna þess
að markaðshlutdeild þeirra er ekki
nema 50% á sama tíma og Steinn
Logi segir: „Frá sjónarhóli ís-
lenskrar ferðaþjónustu er þýski
markaðurinn sérstaklega mikil-
vægur á sumrin vegna þess að
hann dreifist um allt land, enda eru
margir ferðaþjónustuaðilar úti á
landi sem treysta mjög mikið á
Þjóðverjana.“
Flugvélar Flugleiða frá Frank-
furt eru fullbókaðar og oft verður
að beina farþegum t.d. í gegnum
Kaupmannahöfn. Er ekki hagur
Flugleiða að gera enn betur á
Þýskalandsmarkaði með meira
framboði og halda úti viðlíka mark-
aðssókn og verið hefur? Sam-
kvæmt ársskýrslu Flugleiða 2001
skilaði sumarið hagnaði upp á 3
milljarða króna og tapið yfir vetr-
armánuðina var 4 milljarðar. Þrátt
fyrir samkeppni yfir sumarmánuð-
ina, þá var afkoma góð vegna þess
að vélarnar voru fullar, ekki síst
frá Þýskalandi. Rekstrarvanda
Flugleiða árið 2001 var því ekki
hægt að rekja til mikillar sam-
keppni, heldur þeirrar stefnu að
fljúga á lágum verðum yfir hafið
enda seldi félagið flugmiða til USA
oftast nær ódýrar en til Íslands í
sömu vél.
Skortur á flugsætum
Það hefur verið stöðnun í Þýska-
landi vegna skorts á flugsætum á
sumrin. Það var einnig skaði þegar
Flugleiðir hættu flugi til Lúxem-
borgar því mikið af þýskum ferða-
mönnum fóru þar um. Því miður
voru LTU og Aero-Lloyd ekki
nógu fljótir að auka framboð til Ís-
lands þó að sú staða sé gjörbreytt í
dag. Flugleiðir hafa nú líka breytt
stefnu sinni og leggja meiri áherslu
á að flytja farþega til landsins í
stað þess fljúga þeim yfir hafið.
Það má því búast við fjölgun ferða-
manna frá Þýskalandi á næsta ári
með auknu framboði, líka hjá Flug-
leiðum. Þessi stöðnun sem Flug-
leiðir hafa valdið er því væntanlega
á enda og er það vel fyrir íslenska
ferðaþjónustu.
Aukið framboð á næsta ári
LTU hóf flug til Íslands 1995
með eitt flug á viku, en í sumar
flaug LTU 62 sinnum til Íslands,
allt að 5 flug á viku frá júní til sept-
ember. Flugverð LTU til Íslands
er lágt, sem stuðlar síðan að meiri
eyðslu ferðamanna á áfangastað.
Félagið er vinsælasta flugfélag
Þýskalands fyrir frí- og skemmti-
ferðir, en margir Þjóðverjar fljúga
eingöngu með þýskum flugfélögum
– þess vegna nær markaðssetning
LTU til mun stærri markhóps en
hjá Flugleiðum.
LTU farþegar eru verðmætir
ferðamenn sem dreifast um allt
land og nota öll stig ferðaþjónustu.
Félagið mun enn lengja flugtíma-
bilið næsta ár og Aero-Lloyd gerir
enn betur og mun fljúga frá 1. maí
til 25. september frá Berlín. Það er
fagnaðarefni fyrir ferðaþjónustu-
aðila á Íslandi.
Þýskaland – mikil-
vægasti markað-
urinn vanræktur?
Eftir Anton
Antonsson
Höfundur er forstjóri
Terra Nova-Sólar.
Er ekki eig-
ingirni af
Flugleiðum
að skera
niður fjár-
muni til markaðs-
setningar í Þýskalandi
vegna þess að mark-
aðshlutdeild þeirra er
ekki nema 50% á
sumrin?
ATVINNA mbl.is