Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 28
TÓMAS Ingi Olrich mennta-
málaráðherra opnar sýningu á veg-
um Listasafns Íslands í Tretyakov-
listasafninu í Moskvu næstkomandi
þriðjudag, 22. október. Sýningin
heitir Andspænis náttúrunni – ís-
lensk myndlist á 20. öld og má þar
sjá 65 verk eftir 21 listamann, frum-
kvöðla í myndlistarsögu þjóð-
arinnar. Að sögn Ólafs Kvaran, for-
stöðumanns Listasafns Íslands, er
hér um viðamikið sýningarverkefni
að ræða sem vonandi mun bera
hróður íslenskrar myndlist víða,
enda er Tretyakov-safnið eitt
stærsta listasafn Rússlands. „Tret-
yakov-safnið í Moskvu er þjóð-
arlistasafn Rússlands og hefur
sterka stöðu innan hins alþjóðlega
listheims. Sýning Listasafns Íslands
í Moskvu er liður í samkomulagi
safnanna um sýningaskipti en í vor
var haldin hér stór sýning á rúss-
neskri aldamótalist frá Tretyakov-
safninu. Samvinna af þessu tagi er
veigamikill þáttur í þeirri al-
þjóðavæðingu sem Listasafn Íslands
hefur staðið að á undanförnum ár-
um, og felst í því að auka samskipti
og samvinnu við erlend söfn og
menningarstofnanir,“ segir Ólafur.
Sýningin Andspænis náttúrunni –
íslensk myndlist á 20. öld spannar
myndlistarmenn allt frá upphafi ný-
liðinnar aldar fram til samtímans.
Listamenn sem eiga verk á sýning-
unni eru: Þórarinn B. Þorláksson,
Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson,
Jóhannes S. Kjarval, Júlíana Sveins-
dóttir, Gunnlaugur Scheving, Jó-
hann Briem, Jón Engilberts, Svavar
Guðnason, Nína Tryggvadóttir,
Kristján Davíðsson, Ásgerður Búa-
dóttir, Erró, Sigurður Guðmunds-
son, Gunnar Örn Gunnarsson, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Guðrún Ein-
arsdóttir, Georg Guðni Hauksson,
Hrafnkell Sigurðsson, Sigurður
Árni Sigurðsson og Ólafur Elíasson.
„Yfirskrift sýningarinnar vísar til
þess meginþema í íslenskri myndlist
sem birtist í túlkun listamannanna á
náttúrunni. Á sýningunni er leitast
við að gefa yfirlit yfir það hvernig
þessi umfjöllun þróast frá hinum
rómantíska ídealisma aldamótanna
til hins óhlutbundna myndmáls um
miðja öldina. Í samtímanum spyrja
menn síðan áleitinna spurninga um
samband menningar og náttúru – og
um skynjun áhorfandans á umhverfi
sínu. Sýningin gefur mjög breitt og
fjölbreytilegt yfirlit yfir þetta meg-
inþema,“ segir Ólafur Kvaran en
hann annast stjórn sýningarinnar.
Í fræðsludagskrá Tretyakov-
safnsins vegna íslensku myndlist-
arsýningarinnar verður þar opnuð
sérstök kynning og sýning helguð
Halldóri Laxness. „Halldór Laxness
er mjög þekktur í Rússlandi og er
tengingin við Laxness ekki síður
hugsuð sem leið til að beina sjónum
fólks að sýningunni. Ennfremur
verða sýndar í safninu nokkrar ís-
lenskar kvikmyndir í samstarfi við
Kvikmyndasjóð Íslands. Þannig
verður eiginlega lítil Íslensk listahá-
tíð í Moskvu þessa daga.“
Pharmaco, aðalstyrktaraðili
Listasafns Íslands, hefur að sögn
Ólafs lagt verkefninu mikilvægan
fjárhagslegan stuðning. „Sendiráð
Íslands í Moskvu hefur veitt marg-
víslega aðstoð við framkvæmdina.
Þá er sérstök ástæða til að nefna þá
ánægjulegu samvinnu sem við höf-
um átt við utanríkisráðuneytið í
tengslum við þetta verkefni, og
finnst mér það sýna hvernig utan-
ríkisþjónustan og íslenskar menn-
ingarstofnanir geta unnið að fram-
gangi slíks menningarviðburðar. Þá
ber að minna á að sýningar sem
haldnar eru í Tretyakov-safninu í
Moskvu vekja mikla athygli, og þá
ekki síður á alþjóðavísu. Það er því
ástæða til að fagna því að samvinna
við safn af þessari stærðargráðu
hafi tekist,“ segir Ólafur að lokum.
Sýningu hefst sem fyrr segir 22.
október næstkomandi og lýkur 1.
desember.
Íslensk list í Moskvu
Júlíana Sveinsdóttir, Undir Skiphellum í Vestmannaeyjum, 1956.
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
250 fm skrifstofur, 5 hæð.
Einstakt tækifæri. Glæsilegar
fullbúnar skrifstofur við
Reykjavíkurhöfn. Frábært
útsýni, allt nýtt. nýtt parket,
eldhús, gardínur, tölvulagnir
og fl. Laust nú fljótlega.
TIL LEIGU
Tryggvagata - 101 Rvík
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson
s. 588 4477 eða 822 8242.
Kauptu eina flík,
hún endist á við þrjár
www.bergis.is
Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is
Nýr lífsstíll