Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 55
DAGBÓK
Sængurgjafir
í miklu úrvali
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Ungbarnaútigallar
nýkomnir
fyrir krakka frá 0-12 ára
Mikið úrval af
sparifötum fyrir stelpur
og stráka
Laugavegi 54, sími 552 5201
Glæsilegir
síðkjólar
Stærðir 38-46
Ný sending
Vandaðar heimilis- og gjafavörur Kringlan 4-12, sími 533 1322.
20% afsláttur í DUKA
Kringlukast
Nýkomið
Kjólar, pils, blússur og buxur
frá Merrytime
Verslun fyrir konur, Mjódd og Laugavegi
sími 557 3380
Úlputilboð
Úrval af úlpum á krakka
15% afsláttur
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert eftirsóttur sögumað-
ur og átt auðvelt með að
orða hugsanir þínar og
klæða meiningar annarra í
skaplegan búning.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vertu á tánum gagnvart
þeim tækifærum sem þér
kunna að opnast. Leitaðu á
önnur mið því það er fullt af
öðrum fiskum í sjónum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú fyllist ánægju yfir þeirri
ást sem umvefur þig dags
daglega. Velgengni í við-
skiptum hefur einnig góð
áhrif.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það reynir svolítið á þig er
menn keppast um athygli
þína. Ef þú leggur þig fram
er ekki langt í að þú náir
takmarki þínu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það þarf að hlúa að góðum
tilfinningum svo þær
blómstri. Þótt hlutirnir líti
vel út, þá er nauðsynlegt að
skyggnast undir yfirborðið
og sjá eðlið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú vilt ekki staðna og
sitja eftir, verður þú að vera
opinn fyrir þeim möguleik-
um sem bjóðast til endur-
menntunar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú bara opnar augun
sérðu fegurðina allt í kring-
um þig. Reyndu að yfirvinna
þessa tilfinningu, eða hug-
leiddu að skipta um um-
hverfi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að verja sem mest-
um tíma með börnum og
líttu um leið til barnsins í
sjálfum þér. Þú átt að taka
sjálfstæða ákvörðun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að hafa hemil á til-
finningum þínum þótt það
kunni að kosta þig nokkur
átök. Þetta er þolinmæðis-
verk.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sýndu aðgát í fjármálum
þínum. Að öðrum kosti
dregst þú bara aftur úr og
missir svo af lestinni á end-
anum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Stattu á rétti þínum þegar
að honum er sótt. Hafðu gát
á öllu, því þannig kemstu
hjá áföllunum. Þú þarft að
sinna mikilvægari málum
núna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur ekkert upp úr því
að viðurkenna ekki valdsvið
yfirmanna þinna. Gleymdu
þó ekki að líta inn á við og
biðja um handleiðslu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Veltu þér ekki upp úr
vandamálunum heldur
skaltu bara leysa þau. Láttu
athugasemdir annarra sem
vind um eyru þjóta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 17.
október, er áttræð Halldóra
Jóna Jónsdóttir, Ánahlíð 8,
Borgarnesi. Halldóra tekur
á móti gestum laugardaginn
19. október í samkomusaln-
um á efstu hæð Borgar-
brautar 65a, Borgarnesi
(blokk á bak við dvalarheim-
ili aldraðra) frá kl. 15.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 17.
október, er fimmtug frú
Þorbjörg Kristín Jónsdótt-
ir, Árbraut 10, Blönduósi.
Þorbjörg er að heiman á af-
mælisdaginn.
LÁTUM sagnir liggja á
milli hluta að öðru leyti en
því að vestur hóf leikinn
með hindrun í laufi. NS
tóku svo við og létu ekki
staðar numið fyrr en í sex
tíglum. Taktu þér sæti í
suður og reyndu að spila
slemmuna til vinnings:
Norður
♠ K976
♥ 762
♦ Á10862
♣9
Suður
♠ ÁG3
♥ ÁD
♦ KDG95
♣K75
Útspil vesturs er lauf-
drottning. Austur tekur
slaginn með ás og skiptir
yfir í smátt hjarta. Fyrsta
spurning: Viltu svína?
Jafnvel þótt hjartasvín-
ingin heppnist þarf samt
sem áður að svína spaða-
gosa, svo það er freistandi
að stinga upp ás og treysta
á að spaðinn gefi fjóra
slagi. Þú gerir það. Af-
trompar svo mótherjana,
tekur laufkóng og trompar
lauf. Í ljós kemur að vest-
ur hefur byrjað með sjölit
í laufi og engan tígul.
Hann á því sex spil í hálit-
unum.
Nú er komið að spaðan-
um. Þú spilar litlu úr borði
og svínar gosanum. Hann
heldur. Þú tekur spaðaás-
inn og nú kemur drottn-
ingin frá austri. Það er
nefnilega það. Annaðhvort
hefur hann byrjað með Dx
eða er að grugga vatnið
með D10x. Einhverjar
hugmyndir?
Ekkert kostar að klára
trompin. Í það síðasta
henda báðir mótherjar
hjarta. Vestur lét hjartan-
íu í ásinn og henti svo gos-
anum. Þú spilar spaða og
vestur fylgir smátt. Svína
eða toppa?
Norður
♠ K976
♥ 762
♦ Á10862
♣9
Vestur Austur
♠ 10852 ♠ D4
♥ G9 ♥ K108543
♦ – ♦ 743
♣DG108642 ♣Á3
Suður
♠ ÁG3
♥ ÁD
♦ KDG95
♣K75
Þetta er andstyggilegt
spil. Allar svíningar
ganga, en samt er fullkom-
lega rökrétt að tapa
slemmunni. Eftir að hafa
hafnað hjartasvíningunni í
upphafi er freistandi að slá
því föstu að vestur sé með
kónginn, en þá er spaðinn
3-3.
Þegar upp er staðið er
þetta hreinn og klár hitt-
ingur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
Þessar hressu stelpur á Drangsnesi héldu tombólu til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 2.570 kr. Þær
heita Sandra Dögg, Valgerður, Helga Rún og Agnes Sif.
LJÓÐABROT
AUSTURFARARVÍSUR
Hugstóra bið eg heyra,
hressfær jöfur – þessar
þoldi eg vos – hve vísur
– verðung – um för gerðag.
Sendr var eg upp af öndrum
austr – svaf eg fátt í hausti –
til Svíþjóðar – síðan –
svanvangs í för langa.
Kátr var eg oft, þá er úti
örðugt veðr á fjörðum
vísa segl í vosi
vindblásið skóf Strinda.
Hestr óð kafs að kostum.
Kilir hristu men Lista,
út þar er eisa létum
undan skeiðr að sundi.
– – –
Sighvatur Þórðarson
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4.
Rf3 Bg7 5. Db3 dxc4 6. Dxc4
0-0 7. e4 Rc6 8. Be2 Bg4 9.
Be3 Bxf3 10. gxf3 e5 11. d5
Rd4 12. 0-0-0 Rh5 13. Kb1 c6
14. dxc6 bxc6 15. Ra4 Dh4
16. Rc5 Rf4 17. Bxf4 Dxf4
18. h4 h5 19.
Hxd4 exd4 20.
Rd3 Df6 21. Bd1
Hae8 22. a3 Kh7
23. Dc5 He7 24.
Hh3 Hb8 25.
Ba4 Hb6 26. Bc2
De6 27. Rf4
Staðan kom
upp í Meistara-
flokki Mjólkur-
skákmótsins
sem lauk í gær.
Luke Mcshane
(2.547) hafði
svart gegn
Braga Þorfinns-
syni (2.357). 27.
...Hxb2+! 28. Kxb2
d3+ 29. Kc1 Bh6! 30. Bxd3
Bxf4+ og hvítur gafst upp
enda hrókur að fara í hafið.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060