Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 17
Teymi // Borgartúni 30 // 105 Reykjavík // 550 2500 // www.teymi.is
Grunntækni // Gagnagrunnar // Viðfangamiðlarar // Þróunartól
Viðskiptagreind // Samhæft árangursmat // Vöruhús gagna // Gagnanám // OLAP // TBE
Þjónusta // Rekstur gagnagrunna // Úttektir // Samþætting // Öryggismál // Ráðgjöf // Sérsmíði
Þessi útkoma er betri en flestir gætu búist við.
Markmið okkar er einfaldlega að auka arðsemi
viðskiptavina okkar. Oracle lausnir Teymis eru lykill
að hagræði, betra upplýsingaflæði, markvissari
ákvarðanatöku og þar með betri útkomu.
2+2=7
A
B
X
/
S
ÍA
9
02
12
05
ÞÓR Valtýsson tryggði sér meist-
aratitil Skákfélags Akureyrar sl.
sunnudag með sigri á núverandi
meistara, Halldóri B. Halldórssyni, í
hörkuskák. Halldór hafði heldur
betra tafl framan af en Þór varðist
fimlega og beið eftir mistökum Hall-
dórs og nýtti sér þau þegar þau
komu. Þór hefur því 5½ vinning að
loknum 6 skákum og hefur tryggt
sér titilinn þrátt fyrir að einni skák
sé enn ólokið.
Í öðru sæti er Vestmannaeyingur-
inn góðkunni Björn Ívar Karlsson
með 4½ vinning eftir sigur á Svein-
birni Sigurðssyni í flókinni skák. Í
3.–4. sæti eru svo þeir Halldór og
Sigurður Eiríksson með 4 vinninga.
Lokaumferðin fer svo fram í
kvöld. Félagið vill að lokum minna á
að Hausthraðskákmót félagsins fer
fram nk. sunnudag kl. 14.
Þór haust-
meistari
Akureyrarkirkja Þegar tilhlökkun
á meðgöngu breyttist í sorg; er yf-
irskrift fyrirlesturs sem Inga
Dagný Eydal hjúkrunarfræðingur
mun flytja í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Í máli
sínu mun hún fjalla um þær til-
finningar sem bærast innra með
móður og föður þegar kona missir
fóstur eða fæðir andvana barn. Í
bók sinni Sorg í ljósi lífs og dauða
segir sr. Bragi Skúlason sjúkra-
húsprestur m.a.
„Missir á meðgöngu felur (þess
vegna) í sér að harla lítil við-
urkenning fæst á því að þarna hafi
verið um líf að ræða, sem ástæða
sé til að syrgja.“ Þær mæður sem
missa fóstur fá enda allt of oft að
heyra viðhorf eins og: „Þetta var
nú ekki barn. Þú getur alltaf orðið
ófrísk aftur. Þetta hefur engin
áhrif á samband ykkar hjóna.“ En
svo einfalt er það ekki. Missir
fósturs er fyrir marga foreldra
það sama tilfinningalega og missir
barns.“ Því vill Samhygð á Ak-
ureyri hvetja öll þau sem hafa
orðið fyrir þessari reynslu að
koma og hlusta á Ingu Dagnýju.
Kaffi og samtal eftir inngangser-
indið. Allir hjartanlega velkomnir.
Í DAG
SIGURÐUR H. Hjartarson, bifreiða-
stjóri á Akureyri, sigraði í SMS leik
BT og hlaut að launum heimilistölvu
frá Fujitsu Siemens. Sigurður var
að leita sér að að nýrri tölvu og fór
inn á heimasíðu BT, þar sem han sá
auglýsinguna um SMS leikinn og
ákvað að senda eitt skeyti. SMS leik-
ur BT gengur út það að farsímanot-
endur senda SMS skilaboð og fá
svar um leið hvort þeir hafi unnið til
verðlauna eða ekki. Tíunda hvert
SMS inniheldur vinning og auk
heimilistölvunnar má nefna heima-
bíókerfi með innbyggðum DVD spil-
ara frá Panasonic, Xbox leikjavél,
DVD myndir ásamt bíómiða, tölvu-
leiki ásamt bíómiða, tónlistardiska
og reiðinnar býsn af Sprite.
Sigurður tók við heimilistölvunni
í verslun BT á Akureyri en við sama
tækifæri tóku fulltrúar Kvenfélags-
ins Hlífar á Akureyri við 150 þúsund
króna gjöf frá BT og SmartSMS.
Kvenfélagið safnar fé til líknarmála
og styrkir barnadeild FSA, segir í
fréttatilkynningu frá BT.Sigurveg-
arinn í SMS leiknum fékk tölvuna
afhenta í húsnæði BT á Akureyri og
við sama tækifæri tóku konur í
Kvenfélaginu Hlíf við fjárstyrknum.
F.v. Engilbert Hafsteinsson frá
SmartSMS, Guðjón Elmar Guð-
jónsson frá BT, Sigurður Hjartarson
vinningshafi, Sigurður BT mús Mar-
inósson, Þórunn Sigurbjörnsdóttir,
Margrét Baldursdóttir formaður
Kvenfélagsins Hlífar, Rósa And-
ersen og Kristjana N. Jónsdóttir.
SMS-leikur BT
Sigurveg-
arinn á
Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Á FUNDI félagsmálaráðs nýlega
var lagt fram yfirlit um fjárhags-
aðstoð í september sl. Þar kom
fram að veittir voru 78 styrkir að
upphæð rúmar 3,6 milljónir króna
og 8 lán að upphæð um 670 þús-
und krónur. Alls 12 umsóknum
var synjað.
Jakob Björnsson, formaður fé-
lagsmálaráðs, sagði að því miður
væri aukin eftirspurn eftir fjár-
hagsaðstoð í bænum. Hann sagði
að seint í sumar hefðu sviðsstjóra
félagssviðs og deildarstjóra fjöl-
skyldudeildar verið falið að fara
yfir þessi mál og greina þau en að
sú úttekt lægi ekki fyrr. Þó væri
ljóst að þörf eftir fjárhagsaðstoð
væri alltaf að aukast. Jakob sagði
að þetta ástand einskorðaðist ekki
einvörðungu við Akureyri, heldur
væri þróunin svipuð í Reykjavík
og öðrum sveitarfélögum á suð-
vesturhorninu.
Aukin eftirspurn
eftir fjárhagsaðstoð