Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðavika í Kópavogi
Ekki einblínt
á vandamálin
DAGANA 18.–24.október fer framAlþjóðavika í
Kópavogi með viðamikilli
og fjölbreyttri dagskrá.
Er þetta fyrsta uppákoma
sinnar tegundar í þessu
næststærsta bæjarfélagi á
Íslandi og er verndari
hennar myndlistamaður-
inn Baltasar Samper sem
búið hefur í Kópavogi um
langt árabil. Verkefnis-
stjóri er hins vegar Björk
Håkansson sem svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
– Hver voru tildrögin að
þessari alþjóðlegu viku?
„Þau voru, að Kópa-
vogsbær réðst í stefnu-
mótun um málefni útlend-
inga í bæjarfélaginu.
Haustið 2001 var komin út
skýrsla og samstarfshópur var
síðan myndaður til að skoða hana
nánar. Átti hópurinn að fara með
málið lengra, finna hugmyndir að
skynsamlegu og skemmtilegu
framhaldi. Lagt var til að viku-
dagskrá yrði haldin þar sem fjöl-
þjóðablærinn á bæjarfélaginu
nyti sín. Þá var ég ráðinn til að
stýra verkefninu, það er hugsað
sem fimm mánaða verkefni en
þar af eru liðnir fjórir mánuðir.“
– Þannig að þú hefur mátt hafa
hraðar hendur?
„Það hefur verið nóg að gera,
en fyrst á dagskrá var að athuga
hvernig best væri að virkja stofn-
anir, hópa og einstaklinga. Það
var misjafnlega aðgengilegt af
ýmsum ástæðum, en var þó fljótt
að vinda upp á sig og þegar ég
fann hversu góð viðbrögð þessar
hugmyndir fengu þá varð verk-
efnið æ skemmtilegra.“
– Hvers vegna fer Kópavogur
út í svona uppákomu?
„Kópavogur er næststærsta
bæjarfélag landsins og menn vita
að þar búa fjölmargir af ýmsum
þjóðernum. Raunveruleikinn átti
þó eftir að koma okkur á óvart,
því samkvæmt upplýsingum, sem
fengust hjá Hagstofu Íslands fyr-
ir hálfu ári, voru þá um 1.000 íbú-
ar Kópavogs af erlendum upp-
runa frá 57 þjóðlöndum. Fólk frá
jafnólíkum og fjarlægum löndum
og Afganistan, Argentínu, Bosn-
íu, Brasilíu, Búlgaríu, Chile,
Ekvador, Ísrael, Írak, Sambíu og
þannig mætti lengi telja.“
– En hver er tilgangurinn með
svona viku?
„Að minnka bilið á milli Íslend-
inga og útlendinga sem hér búa.
Að auka umræðu þannig að sam-
búðin sé sem eðlilegust fyrir alla
aðila. Á bak við þessa viku er
miklu meira en að benda einfald-
lega á tilvist innflytjenda. Það á
ekki, eins og í margri umræðunni,
að einblína á svokölluð vandamál
innflytjenda þó að á málþingi í
vikunni komi slík málefni einnig
til umræðu. Miklu fremur á að
leiða saman það góða sem hlotist
getur af samkrulli margra þjóð-
erna.
Það er svo margt
sem gleymist í sam-
bandi við sambúð
ólíkra kynstofna og
þjóðerna. Það kennir
mönnum betri umgengni við
náungann, að doka við, hlusta og
meta. Verðmæt þekking sem við
Íslendingar, vegna fámennis, höf-
um e.t.v. ekki notið. Að búa í ná-
býli á þennan hátt veldur því að
menn þurfa að setja sig í stell-
ingar og spekúlera í sínu nánasta
umhverfi og það er þroskandi. Þá
er einnig rétt að bæta hér við að
vikan er ekki sniðin einvörðungu
út frá hlið innflytjenda. Til dæmis
hefur fjöldi Íslendinga á öllum
aldri verið innflytjendur í öðrum
löndum, sest þar á skólabekk og
samlagast öðrum þjóðum. Við
snúum hugmyndunum því við,
tökum á málunum frá þeirri hlið,
t.d. í leik- og grunnskólaverkefn-
um.“
– Hvað geturðu sagt okkur um
dagskrána?
„Þátttakendur eru frá 30 lönd-
um, fólk vinnur í þessu af krafti
og gefur vinnu sína upp til hópa.
Menn geta séð dagskrána á
heimasíðu Kópavogsbæjar,
www.kopavogur.is, og raunar
fengu allir Kópavogsbúar dag-
skrána senda í pósti. En dagskrá-
in er fyrir alla Íslendinga þó svo
að sumir hlutar hennar séu lok-
aðir. Það er þemavinna sem fer
fram í leikskólum, grunnskólum,
félagsmiðstöðvum og tónlistar-
skóla.
Það sem verður opið almenn-
ingi er t.d. Heimsþorpið sem
verður opið í Vetrargarði Smára-
lindar milli klukkan 11 og 18 á
laugardaginn. Þar verða fjölþjóð-
legar menningarkynningar,
fræðsla, uppákomur og skemmt-
un af margvíslegum toga, söngur,
dans o.fl.
Á sunnudaginn klukkan 13 til
17 er bókasafnið með tónlistar-
uppákomur og frá mánudegi til
fimmtudags í næstu viku eru
bókasafnið, Náttúrufræðistofa og
tónlistarskólinn með kynningar á
heimsbókmenntum og heimstón-
list, kvikmyndir frá
ýmsum löndum í sal
bókasafnsins.
Af ýmsum öðrum
skemmtilegum uppá-
komum vildi ég nefna
málþing miðvikudaginn 23. októ-
ber í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs. Yfirskriftin er „Hvað
er málið“ og er sú yfirskrift skoð-
uð frá ýmsum hliðum, t.d. eru er-
indi þar sem taka á erfiðleikum
mállauss innflytjanda, táknmáli
rímnaskálds, tungumáli elskenda,
tónlist sem tungumáli, muninum
á hinum ýmsu óskyldu tungum
o.fl.“
Björk Håkansson
Björk Håkansson er Reykvík-
ingur af sænsku bergi brotin.
Hún lauk BA-prófi í fjölmiðla-
fræðum frá Háskólanum í Ála-
borg í Danmörku og MA-námi í
milliríkjasamskiptum frá West-
minster-háskólanum í Lundún-
um. Hefur dvalið lengst af er-
lendis um árabil og starfaði
síðast við fjárfestingadeild Ís-
landsbanka í Lundúnum þar til
hún kom heim til Íslands í júlí og
var fyrir fjórum mánuðum ráðin
verkefnisstjóri Kópavogsbæjar
við Alþjóðaviku í Kópavogi.
Þátttakendur
eru frá 30
löndum
Þá er nú Alþingi komið á kaf́ í samkeppnina á matvörumarkaðinum.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
í nýju áliti komist að þeirri nið-
urstöðu að dómsmálaráðuneytinu
og Fangelsismálastofnun hafi verið
óheimilt að synja fanga að afplána
77 daga vararefsingu fésektar með
samfélagsþjónustu. Fangelsismála-
stofnun hafði heimilað manninum
að afplána refsinguna með sam-
félagsþónustu en sú heimild var
afturkölluð er hann var tvisvar
handtekinn fyrir ölvun á almanna-
færi á jafnmörgum dögum.
Maðurinn kvartaði til umboðs-
manns í mars sl. vegna úrskurðar
dómsmálaráðuneytisins frá því í
maí árið 2001 þar sem staðfest var
sú ákvörðun Fangelsismálastofn-
unar að afturkalla ákvörðun stofn-
unarinnar um að veita manninum
kost á því að gegna samfélagsþjón-
ustu. Þá var í úrskurði ráðuneyt-
isins einnig staðfest sú ákvörðun
Fangelsismálastofnunar að gera
manninum að hefja þá þegar af-
plánun vararefsingar í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg, en þetta
var í apríl 2001.
Er það niðurstaða umboðsmanns
að úrskurður ráðuneytisins hafi
ekki verið í samræmi við lög. Þá
hafi Fangelsismálastofnun ekki
haft lagaheimild til að gera mann-
inum að hefja afplánun vararefs-
ingar tafarlaust að lokinni hand-
töku fyrir ölvun á almannafæri.
Slík háttsemi geti ein og sér ekki
talist refsiverð ef vafi leiki á því að
hinn ölvaði hafi valdið óspektum,
hættu eða hneyksli með hátterni
sínu. Að mati umboðsmanns gáfu
skýrslur lögreglunnar ekki nægt
tilefni til þess fyrir Fangelsismála-
stofnun að afturkalla ákvörðun
sína.
Skylt var að taka kröfuna
til meðferðar
Umboðsmaður telur að ráðu-
neytinu hafi verið skylt að taka
kröfu lögmanns mannsins, um að
fresta réttaráhrifum ákvörðunar
Fangelsismálastofnunar, til efnis-
legrar meðferðar eins fljótt og því
varð við komið. Beinir umboðsmað-
ur Alþingis því til ráðuneytisins að
það taki mál mannsins til endur-
skoðunar í samræmi við sjónarmið
í álitinu, komi fram beiðni þess frá
honum, og leiti þá leiða til að rétta
hlut hans.
Niðurstaða Umboðsmanns Alþingis
Fangi mátti gegna
samfélagsþjónustu
Tvisvar handtekinn fyrir ölvun á almannafæri