Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! "#"
$ & '
(
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FIMMTUDAGINN 10. okt. var ég
viðstaddur dagskrá á vegum Geð-
hjálpar og fleiri í Ráðhúsi Reykja-
víkurborgar.
Þema samkom-
unnar var börn og
einelti. Hún hófst
á því að ýmsir há-
skólamenntaðir
einstaklingar
héldu fyrirlestra
um þemað. Lauk
henni síðan með
pallborðsumræð-
um. Milli atriða
var leikin tónlist og veit ég ekki til að
flytjendurnir tengist umfjöllunar-
efninu neitt sérstaklega.
Ég hef þörf fyrir að gera athuga-
semdir við fyrirkomulag samkom-
unnar. Allir fyrirlesararnir voru há-
skólagengnir. Varðandi þá sem sátu
við pallborðið við lok samkomunnar
var aðeins einn einstaklingur sem ég
veit ekki hvort hefur háskólagráðu.
Þessi er Sigursteinn Másson. Með
þessu fyrirkomulagi er verið að
senda geðsjúkum og öðrum skilaboð.
Skilaboð um að það þurfi háskóla-
titla til að vera fær um að fjalla um
efni tengd forvörnum og meðferð
geðsjúkdóma.
Sú afstaða að fólk geti ekki búið
yfir sannri þekkingu án þess að hafa
háskólamenntun er heldur einfeldn-
ingsleg. Jafnvel sannri þekkingu á
mörgum sviðum.
Það voru nefndir ýmsir einstak-
lingar við setningu athafnarinnar og
ég klappaði ekki fyrir neinum þeirra
þegar þeir voru nefndir vegna þess
ég vissi ekki til þess að neinn þeirra
hefði gert neitt umtalsvert fyrir for-
varnir gegn geðsjúkdómum. Ég sé
heldur enga ástæðu til þess að heiðra
fólk neitt sérstaklega fyrir að sinna
launuðu starfi.
Ég veit hins vegar núna að ég
hafði ástæðu til að klappa fyrir ein-
um einstaklingi þegar hann var
nefndur. Þessi einstaklingur er Stef-
án Karl Stefánsson leikari. Þetta veit
ég vegna þess að um hans starf var
fjallað í ritstjórnargrein í Morgun-
blaðinu 11. okt. Hans starf er unnið í
sjálfboðaliðavinnu.
Ég klappa ekki fyrir einum né
neinum í kurteisisskyni. Mitt lófatak
er merki um velþóknun af minni
hálfu. Ég seg víst ekki „lof sé þér“
bara til að sýna að ég viti hver al-
menn viðhorf fólks um mannasiði
eru.
HILMAR HARÐARSON,
félagi í Klúbbnum Geysi.
Samkoma í tilefni Alþjóða
geðheilbrigðisdagsins
Frá Hilmari Harðarsyni:
Hilmar Harðarson
ÍSRAELAR hafa gerst útverðir
Bandaríkjanna í austri. Þeir þurfa á
slíkum að halda. Olían þeirra er í veði
og þeir þurfa nauðsynlega að hafa
stuðning og málpípur sínar á staðn-
um sem gæta hagsmuna þeirra – án
þess að Bandaríkin hafi opinberlega
slíka á mála hjá sér. Ísraelar hafa
alltaf verið tilbúnir að taka þessa
stöðu að sér, enda fengið ríkulega
greitt. Fáir vita sjálfsagt hve miklum
fjármunum Bandaríkin hafa dælt í
Ísrael í gegnum árin en Ísraelar hafa
löngum verið tilbúnir að selja sál sína
fyrir aura. Enda hafa þeir nú nóg af
skriðdrekum, byssum og slíkum tól-
um og ekki síst peninga til að halda
uppi áróðri sínum gegn Palestínu.
Þeir ráðast á Palestínu af slíkri heift
að manni fyrirgefst að halda að mark-
miðið sé að útrýma þessari þjóð end-
anlega. Hvers vegna?
Ísraelar segjast vera Guðs útvalda
þjóð og það gefi þeim leyfi til að gera
það sem þeim sýnist. En það er alls
ekki rétt. Blessun og loforðum Guðs
fylgdu reglur og skyldur, en því hafa
Ísraelar alla tíð verið furðu fljótir að
gleyma og óhlýðnast honum aftur og
aftur. Guð hefur fyrirgefið, en gerir
hann það endalaust eða fer botninum
að vera náð (4. Mósebók, 30:2). Mun
hann fljótlega gefast upp og veita
annarri þjóð, sér þóknanlegri náð og
blessun sína?
Það var slæmt útspil hjá Omega
sjónvarpsstöðinni að fá til liðs við sig í
andpalestínskum áróðri sínum Ólaf
Jóhannsson, hann er svo greinilega
vilhallur að ekki er takandi mark á
þeim upplogna og ranga málstað sem
hann heldur fram og mætti vel
skammast sín fyrir ef hann kynni
það.
Ef Omega vill kalla sig alvörusjón-
varpsstöð, munu þeir fá menn með
misjöfn og ólík sjónarmið, til að fræða
fólk af einhverju viti um hvað þetta
stríð gengur út á. En auðvitað er auð-
veldara að fá bara 2–3 já-menn sem
sitja og éta upp hver eftir öðrum það
sem þeim er sagt að segja. Þetta fyr-
irkomulag er á valdi sjónvarpsstjór-
ans sem mætti hafa í huga að ábyrgð
hans að halla ekki réttu máli er mikil.
Auðvelda leiðin er ekki alltaf rétta
leiðin, en er ekki svolítið hugrekki
eftirsóknarvert?
Ísraelar verða nú að takast á við
það að hafa alið upp kynslóðir af Pal-
estínumönnum sem hafa það eitt tak-
mark í lífinu að koma fram hefndum á
Ísraelum, fyrir þjóð sína. Þeir hafa
hatur í hjarta og þó að það sé ef til vill
aldrei rétt er hægt að skilja þeirra
hlið – það hefur verið farið hræðilega
með þessa þjóð og þetta ættu kannski
Ísraelsmenn að skilja öðrum betur.
Svo lengi sem Ísraelar halda áfram
ofsóknum sínum og svo lengi sem þið
Omega-menn haldið áfram að taka
þeirra hlið einungis, svo lengi sem þið
haldið uppi ykkar ofstækisfulla,
óskiljanlega áróðri gegn Palestínu,
svo gjörsamlega gengur fram af
mörgum. Væri gott að þið hefðuð í
hug að það er ekki bara fylgst með
ykkur hérna niðri, heldur líka þarna
uppi.
GUÐRÚN Á. RUNÓLFSDÓTTIR,
Mánabraut 19, Kópavogi.
Palestína – Ísrael –
Omega
Frá Guðrúnu Á. Runólfsdóttur: