Morgunblaðið - 17.10.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241 Fax 5 444 211 Netf.: netsalan@itn.is
Opið mán. - fös. kl. 10:00 - 18:00, lau. 10:00 - 12:00
OVERLAND og LIMITED
2003 ÁRG. ER KOMIN
JEEP GRAND CHEROKEE
NETSALAN
UMHVERFISRÁÐHERRA Nor-
egs, Børge Brende, sagðist í fyrir-
spurnartíma á norska Stórþinginu í
gær standa fast við þá ákvörðun sína
að olían úr Guðrúnu Gísladóttur
KE-15, sem sökk við N-Noreg í sum-
ar, skuli fjarlægð sem fyrst. Ef í ljós
komi að áætlanir eigenda skipsins
séu óframkvæmanlegar skuli norska
ríkið grípa inn í sem fyrst og fjar-
lægja alla olíu úr skipinu, ljóst er að
kostnaður af slíkri framkvæmd
myndi falla á eigendur skipsins.
Það var Hill-Marta Solberg, þing-
maður Verkamannaflokksins, fyrir
Norður-Noreg sem spurði ráð-
herrann til hvaða ráða hann hygðist
grípa til að skipið verði fjarlægt sem
fyrst. Sagði hún að ekkert hafi verið
aðhafst til þessa, en á þriðjudag rann
út frestur sem eigendum skipsins
var gefinn til að fjarlægja olíuna um
borð í skipinu.
Í síðustu viku keypti Íshús Njarð-
víkur skipið og vilja nýir eigendur
lyfta skipinu upp í einu lagi, en hafa
þeir frest til næsta vors til að fjar-
lægja flakið sjálft. Fór Íshús Njarð-
víkur fram á að fresturinn yrði fram-
lengdur til 15. desember þar sem
ætlunin var að fjarlægja allt skipið í
einu lagi, en hafa Mengunarvarnir
norska ríkisins (SFT) hafnað þeirri
kröfu.
SFT telur sömuleiðis að áætlun,
sem Íshús Njarðvíkur lagði fram á
mánudag, um hvernig verði staðið að
björgun skipsins gallaða og segja í
svarbréfi til Íshúss Njarðvíkur að
svör vanti við mikilvægum spurning-
um sem SFT hafi óskað svara við.
Leggur SFT áherslu, í bréfi til eig-
enda skipsins, að fyrirmæli um að
fjarlægja olíuna fyrir 15. október
standi enn þó fresturinn sé útrunn-
inn. Undirstrikað er að það sé talin
betri lausn að fjarlægja allt skipið í
einu, en að taka einungis olíuna. Vill
SFT að utanaðkomandi fagmenn
taki þátt í að skipuleggja hvernig
staðið verði að björgun skipsins til að
aðgerðin hafi eins litla áhættu fyrir
umhverfið í för með sér og mögulegt
er. Er því krafist að ný áætlun verði
send SFT svo fljótt sem auðið er.
Norska ríkið grípi inn í ef áætl-
anir eru óframkvæmanlegar
Umhverfisráðherrann sagði í
svari sínu á Stórþinginu í gær að það
myndi þýða stórvægilegt umhverfis-
slys fyrir sjófugl, fiskeldi, viðkvæm
strandsvæði og útivist ef olía læki úr
flakinu. „Það er mikilvægt, m.a.
vegna veðurfars í Lófóten að skipið
verði fjarlægð svo fljótt sem auðið
er.“
Brende sagði jákvætt að nýir eig-
endur skipsins vilji fjarlægja allt
flakið, en þessi áform þurfi að kynna
betur áður en SFT getur metið hvort
þetta sé framkvæmanlegt innan svo
skamms tíma og hvort aðgerðin upp-
fylli allar umhverfiskröfur. SFT
muni sjá um að vel verði staðið að
bæði skipulagningunni og fram-
kvæmdinni sjálfri.
„Ef það kemur í ljós að áætlanir
útgerðarinnar eru óframkvæman-
legar, er mikilvægt að enginn tími
fari til spillis, ríkið grípi inn í til að
láta fjarlægja olíuna um borð og það
verði sett í gang umsvifalaust. Ég
hef því beðið SFT um að byrja nauð-
synlegan undirbúning vegna slíkrar
aðgerðar samhliða því að björgunar-
fyrirtækið gerir nýjar áætlanir. Út-
gerðin hefur nú haft þrjá mánuði til
að fjarlægja skipið, án þess að hafa
aðhafst nokkuð,“ sagði Brende. Mik-
ilvægt væri að í svona tilfellum tæki
útgerðin ábyrgð, fylgdi gefnum fyr-
irmælum og hreinsaði upp eftir sig.
Mál Guðrúnar Gísladóttur rædd á norska Stórþinginu
Vilja að olían verði
fjarlægð sem fyrst
Íslendingar
taka þátt í
Eurovision
að nýju
SJÓNVARPIÐ hefur auglýst
eftir lagi til þátttöku fyrir Ís-
lands hönd í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, Euro-
vision, sem fram fer í Lettlandi
í maí 2003. Ísland hefur öðlast
þátttökurétt að nýju eftir að
hafa lent í síðasta sæti í Kaup-
mannahöfn vorið 2001 og misst
því af keppninni í Eistlandi sl.
vor.
Lagahöfundar hafa nú tæki-
færi til 18. nóvember nk. að
skila inn tónsmíð sem ekki hef-
ur verið flutt opinberlega áður
og má að hámarki vera þrjár
mínútur að lengd. Textinn skal
vera á íslensku vegna flutnings
hér heima, eins og það er orðað
í auglýsingu Sjónvarpsins.
Rúnar Gunnarsson, deildar-
stjóri innlendrar dagskrár-
deildar Sjónvarpsins, sagði við
Morgunblaðið það vera
ánægjulegt að vera þátttakandi
að nýju. Að hans sögn er verið
að skoða þá möguleika að halda
forkeppni hér heima til að velja
framlag Íslands.
Íhuga forkeppni
„Nú komum við vonandi
sterk inn aftur. Við finnum fyrir
miklum áhuga tónlistarfólks og
eigum von á að fá fullt af lögum
sent inn. Okkur langar til að
halda forkeppni. Það fyrir-
komulag hefur gefist mjög vel
og hefur haft mikla þýðingu
fyrir tónlistarbransann,“ sagði
Rúnar og tók sem dæmi að Sví-
ar ætluðu að vera með 30 lög í
forkeppni, sem vekti jafnvel
meiri athygli þar í landi en sjálf
úrslitakeppnin.
Aðspurður hvort sigurlagið
ætti einnig að vera flutt á ís-
lensku í Lettlandi sagðist Rún-
ar reikna með að sama regla
gilti og síðast, þ.e. að listamenn-
irnir réðu sjálfir sínum flutn-
ingi á alþjóðlegum vettvangi.
FLUGLEIÐIR bjóða nú upp fargjöld til Kaup-
mannahafnar fyrir 19.800 krónur með sköttum og
til annarra áfangastaða í Evrópu fyrir 24.920
krónur. Ódýrustu fargjöldin til Kaupmannahafn-
ar lækka því um u.þ.b. 31% þegar skattar eru
reiknaðir með inn í verðið. Áður voru lægstu far-
gjöldin til Kaupmannahafnar 28.900 kr. með
skatti. Kynntir voru þrír meginflokkar fargjalda á
blaðamannafundi í gær.
Sætaframboð er takmarkað á lægstu fargjöld-
unum, sem nefnast Smellir, einungis er hægt að
bóka þau á Netinu og verður að gera það með
þriggja vikna fyrirvara. Ódýrasta fargjaldið til
Bandaríkjanna verður nú 47.820 krónur og er það
einnig svonefndur Smellur. Hámarksdvöl er þrjár
vikur og farþegar verða að lágmarki að dvelja yfir
eina aðfaranótt sunnudags. Enginn barna-
afsláttur er af Smellunum, ekki er um endur-
greiðslu að ræða né möguleika á breytingum.
Þá voru einnig kynnt í gær ný og lægri almenn
fargjöld þar sem unnt er að fljúga til Evrópu fyrir
35.400 krónur og til Bandaríkjanna fyrir 67.940
krónur. Engin bókunarfyrirvari er á þessum far-
gjöldum. Lágmarksdvöl er vika og hámark einn
mánuður.
Þá var einnig kynntur nýr fargjaldaflokkur á
Business Class til Evrópu og Bandaríkjanna. Með
því að bóka með vikufyrirvara fæst farið fyrir
lægra verð og t.d. er unnt að fá ferð til Glasgow
fyrir 97.630 krónur. Ef flogið er út að morgni og
heim að kveldi kostar 85.650 krónur til Kaup-
mannahafnar og 84.810 krónur til London.
Forráðamenn félagsins kynntu verðbreyting-
arnar á blaðamannafundi í húsakynnum Flugleiða
í gær. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða,
greindi frá því að í júlí og ágúst hefði farþegum til
og frá Íslandi fjölgað á kostnað þeirra farþega
sem fljúga yfir Atlantshafið með klukkustundar
viðdvöl í Keflavík.
Sigurður greindi frá því að töluverð hagræðing
hefði náðst í rekstri félagsins en hagnaður af
rekstri á fyrri hluta ársins nam um 50 milljónum
króna. Sigurður sagði að nú væru eingöngu not-
aðar Boeing 757-vélar og að þær væru tólf talsins.
Þess vegna hefði rekstrarkostnaður á sæti farið
lækkandi.
Reikna með að farþegum
komi til með að fjölga
Hann segir það stefnu félagsins að auka enn
hlut þeirra farþega sem koma til landsins og fara
frá því. Dregið hefur verið úr sætaframboði til
Bandaríkjanna og því hyggst félagið auka sæta-
framboð frá Íslandi til Evrópu. Þá er verið auka
sætaframboð fyrir Íslendinga og Bandaríkjamenn
sem ferðast milli landanna tveggja. Sigurður segir
að því séu möguleikar á að stækka íslenska mark-
aðinn enn frekar, einkum yfir vetrartímann, þó
svo að nýju fargjöldin gildi allt árið um kring.
Hann segist vonast til að sætanýting aukist yfir
vetrartímann og því sé ekki gert ráð fyrir að verð-
lækkunin hafi áhrif á tekjur félagsins, heldur sé
fyrst og fremst reiknað með að farþegum komi til
með að fjölga. Sigurður segist gera ráð fyrir að
verðbreytingarnar nú muni efla bæði stöðu Flug-
leiða og stöðu íslenskrar ferðaþjónustu.
Hann segir að með því að bjóða lægstu far-
gjöldin eingöngu til sölu á Netinu sé verið að
lækka dreifikostnað. Hann segir að á und-
anförnum mánuðum hafi verið mikil aukning í
sölu um Netið og ljóst sé að það sé framtíðin hvað
sölu flugfargjalda varði.
Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu
og markaðssviðs, sagði að með verðbreytingunum
sé verið að bregðast við ákveðnum breytingum í
heiminum. Þetta sé í takt við aðgerðir annarra
flugfélaga og þeirri þróun sem orðið hefur fyrir
tilstilli Netsins. Með sölu fargjalda á Netinu séu
verið að ná til annarra markhópa en áður.
Reiknað með að selja netfargjöld
fyrir a.m.k. 3 milljarða 2003
Í ár er búist við að fargjöld verði seld fyrir hálf-
an annan milljarð króna á Netinu, að sögn Steins
Loga, sem bætir við að á næsta ári sé reiknað með
að upphæðin verði a.m.k. þrír milljarðar. Verið sé
að aðlaga fargjaldaskipulagið netvæðingunni og
svo að fyrirtækjum.
Steinn Logi fullvissaði viðstadda á kynning-
arfundinum í gær um að það yrði ekki þannig að
ódýrustu fargjöldin yrðu alltaf uppseld. Því þó að
sætaframboð yrði takmarkað á netfargjöldunum
þá yrðu nokkur þúsund slík í boði næstu vikur og
mánuði. „Við erum að láta miklu fleiri sæti til sölu
á íslenska markaðnum og til Íslands, sæti sem áð-
ur voru seld yfir hafið,“ sagði Steinn.
Lægstu fargjöld Flugleiða
lækka um tæpan þriðjung
Morgunblaðið/Sverrir
Létt var yfir forráðamönnum Flugleiða er þeir kynntu nýju fargjöldin í gær. Frá vinstri eru það Þor-
varður Guðlaugsson, svæðisstjóri fyrir Ísland, Sigurður Helgason forstjóri, Helga Árnadóttir, sölu-
stjóri á Íslandi, og Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs.