Morgunblaðið - 17.10.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ því að neyta forkaupsréttar
síns á helmingi jarðarinnar Efsta-
bæjar vildi Skorradalshreppur
tryggja að tilgangi jarðalaga væri
náð og að nýting landsins yrði í sam-
ræmi við hagsmuni sveitarfélagsins.
Þetta kemur fram í svari K. Huldu
Guðmundsdóttur, skógarbónda á
Fitjum í Skorradal, við ummæla
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðherra í Morgunblaðinu í fyrra-
dag, þar sem hann segir úrskurð um
að fella úr gildi ákvörðun hreppsins
um að neyta forkaupsréttar byggð-
an á lögfræðilegu mati.
Sveitarstjórnin
hafði sterk rök
Hulda segir hjákátlegt af land-
búnaðarráðherra að halda því fram
að það sé þjóðhagslega hagkvæmt
að beita sauðfé í hundraðatali á land
sem sérfræðingar hafa dæmt óbeit-
arhæft, en Efstabæ keyptu bændur
sem hyggjast nota jörðina til sauð-
fjárbeitar. Hulda vakti fyrst athygli
á málinu í grein í blaðinu sl. laug-
ardag, þar sem hún gagnrýndi
ákvörðun ráðherrans.
„Landbúnaðarráðherra viður-
kennir að sveitarstjórnir hafa heim-
ild til að neyta forkaupsréttar, geti
þær fært fram mjög sterk rök fyrir
slíkri ákvörðun og sýnt fram á að til-
gangi jarðalaga verði ekki náð með
öðrum hætti,“ segir Hulda um um-
mæli ráðherrans. „Hann segir rétti-
lega að slíkt sé neyðarúrræði. Þetta
eru einmitt rök Skorradalshrepps
sem ég rakti í grein minni í Morg-
unblaðinu sl. laugardag fyrir því að
sveitarstjórnin sá sig knúna til að
neyta forkaupsréttar síns vegna
sölu á 50% hlut Efstabæjar.“
Hulda segir að með því hafi sveit-
arstjórnin beinlínis verið að tryggja
það að tilgangi jarðalaga væri náð
um það að nýting landsins yrði eðli-
leg og hagkvæm út frá þjóðhagslegu
sjónarmiði og í samræmi við hags-
muni sveitarfélagsins og þess land-
búnaðar sem þar er stundaður, sem
er landgræðsla og skógrækt.
„Það er hreint og beint hjákátlegt
af landbúnaðarráðherra að halda
því fram að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt að beita sauðfé í hundr-
aðatali á land sem færustu sérfræð-
ingar hafa dæmt óbeitarhæft með
öllu og óskiljanlegt af honum að
halda því fram að hreppsnefnd hafi
ekki getað sýnt fram á fullnægjandi
rök fyrir máli sínu.“ Hulda segir að
með slíkum yfirlýsingum sé ráð-
herra í raun og veru að segja að ekk-
ert mark sé takandi á hans eigin
fagstofnunum, þ.e. Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins og Land-
græðslunni, „því það voru álitsgerð-
ir þessara stofnana um nauðsyn á
friðun landsins, sem hreppurinn
byggði röksemdir sínar að mestu
leyti á.“
Ekki annar kostur en að
nýta forkaupsréttinn
Að sögn Huldu reyndi hreppurinn
til þrautar að ná samkomulagi svo
að ekki þyrfti að beita forkaupsrétt-
arákvæðinu, en öllum samningatil-
boðum var hafnað af hálfu fyrirhug-
aðra kaupenda. Að öllu samanlögðu
taldi hreppurinn sig því ekki eiga
annarra kosta völ en að nýta sér rétt
sinn til að ganga inn í fyrirliggjandi
kaupsamning. „Þar með var hrepp-
urinn heldur ekki að skerða eign-
arrétt neins því það höfðu ekki orðið
nein eigna- eða aðilaskipti á réttind-
um. Eignaskipti verða ekki fyrr en
lögformlegum leiðum hefur verið
fullnægt og hluti af því ferli er að
leita samþykkis sveitarstjórnar og
jarðanefndar um ráðstöfun fast-
eignar.“ Hulda segir að í þessu til-
felli hafi hreppsnefndin kosið að af-
stýra fyrirhugaðri ráðstöfun af því
að hún var beinlínis andstæð mark-
miðum og stefnu sveitarfélagsins og
fullkomlega andstæð gæðastýringu
í landbúnaði.
„Það er því grátbroslegt og sein-
heppið af ráðherranum spaugsama
að grípa til þess svars við spurningu
minni að hann hafi nú beitt sér fyrir
gæðastýringu í sauðfjárrækt, því
gæðastýring byggist m.a. á raun-
hæfri landnýtingu og því að ekki má
beita á rýrt land. Í þessu Efstabæj-
armáli brýtur ráðherrann þó ná-
kvæmlega þetta tvennt. Hann kallar
röksemdir mínar í greininni „út í
hött“ og „ómerkileg högg“. Við-
brögð af þessu tagi koma ráðherra
sjálfum verst því þau koma upp um
ófagleg vinnubrögð. „Þar sem tvö
högg koma saman“ hitta þau ráð-
herrann sjálfan fyrir en ekki þann
málstað landgræðslu og gróður-
verndar sem ég tala fyrir.“
Sveitarstjórn Skorradalshrepps sá sig knúna til að neyta forkaupsréttar
Nýtingaráform andstæð
gæðastýringu í landbúnaði
MARÍA Heimisdóttir varði dokt-
orsritgerð sína við University of
Massachusetts, School of Public
Health and
Health Sciences,
5. apríl sl.
Ritgerðin
fjallar um far-
aldsfræðilegar og
tölfræðilegar að-
ferðir til að mæla
áhrif samverk-
andi sjúkdóma
(comorbid diseas-
es) á klínískar og rekstrarfræðilegar
útkomur meðal sjúklinga á sjúkra-
húsum. Með samverkandi sjúkdóm-
um er átt við sjúkdóma aðra en þá
sem eru meginorsök innlagnar
hverju sinni.
Markmið rannsóknar Maríu var
að kanna réttmæti og notagildi
flokkunarkerfis sem hannað var af
bandarískum vísindamönnum undir
stjórn dr. Anne Elixhauser. Kerfið
flokkar samverkandi sjúkdóma í 30
flokka eða sjúkdómsvísa (comorbid-
ity indicators), sem ætlaðir eru til að
lýsa og bera saman sjúklingahópa
með tilliti til byrði þeirra af samverk-
andi sjúkdómum. Flokkunin var
byggð á stóru gagnasafni um sjúk-
linga á sjúkrahúsum í Kaliforníu
1992. Forspárgildi vísanna með tilliti
til dánartíðni, lengdar sjúkra-
húsvistar og kostnaðar við sjúkra-
húsvist var metið í sama gagnasafni.
Tíðni og dreifing sjúkdómsvísanna
var metin og borin saman við sam-
bærilegar upplýsingar frá Kali-
forníu. Smíðuð voru reiknilíkön til að
kanna áhrif vísanna á dánartíðni,
lengd sjúkrahúsvistar og kostnað við
sjúkrahúsvist.
Í ljós kom að sjúklingahóparnir
tveir voru almennt svipaðir hvað
varðar lýðfræðilega uppbyggingu.
Nokkur munur var á sjúkdómsbyrði,
17,8% sjúklinga í Kaliforníu höfðu
þrjá eða fleiri sjúkdómsvísa en að-
eins 12,4% sjúklinga í Massachus-
etts. Meðalkostnaður við hverja inn-
lögn var hærri í Kaliforníu en í
Massachusetts en meðallegutími
hins vegar talsvert styttri. Hlutfall
bráðainnlagna var verulega hærra í
Massachusetts (49%) en í Kaliforníu
(17%). Sambandið milli fjölda sjúk-
dómsvísa og afdrifa var sams konar í
báðum hópum, það er sjúklingar með
fleiri vísa höfðu hærri dánartíðni og
sjúkrahúsvist þeirra var lengri og
dýrari en þeirra sem færri vísa
höfðu. Áhrif vísanna og forspárgildi
reiknilíkananna, þegar leiðrétt hafði
verið fyrir raskandi þætti, voru sam-
bærileg í sjúklingahópunum tveimur
hvað varðar legulengd og kostnað við
sjúkrahúsvist. Hins vegar voru áhrif
vísanna á dánarlíkur ekki sambæri-
leg milli hópanna tveggja, jafnvel eft-
ir að leiðrétt var fyrir raskandi þætti.
Þannig bentu niðurstöðurnar til
þess að sú flokkun samverkandi
sjúkdóma í 30 sjúkdómsvísa, sem
hönnuð var fyrir sjúklinga í Kali-
forníu, ætti einnig við meðal sjúk-
linga í Massachusetts og mætti nota
til að meta sjúkdómsbyrði af völdum
samverkandi sjúkdóma. Jafnframt
bentu niðurstöður til þess að áhrif
vísanna á sjúkrahúsvist (lengd og
kostnað) væru sambærileg í hóp-
unum tveimur þrátt fyrir verulegan
mun á meðallegulengd og með-
alkostnaði við sjúkrahúsvist. Ekki er
ólíklegt að áhrif þeirra séu svipuð í
öðrum áþekkum sjúklingahópum.
Hins vegar voru áhrif vísanna á dán-
arlíkur ekki sambærileg milli hóp-
anna tveggja.
María lauk prófi frá læknadeild
Háskóla Íslands 1990 og MBA-prófi í
heilbrigðisrekstrarhagfræði frá
School of Business 1997. Hún
starfaði hjá Krabbameinsskrá
Massachusetts-fylkis og á Baystate
Medical Center. Hún hóf störf hjá
Íslenskri erfðagreiningu 1999, þar
sem hún er forstöðumaður á gagna-
grunnssviði. María er gift Ófeigi
Þorgeirssyni lækni og eiga þau tvo
syni.
Doktors-
vörn í lækn-
isfræði
Á SEPTEMBERFUNDI Evrópu-
ráðsþingsins í Strassborg í lok sept-
embermánaðar var Láru Margréti
Ragnarsdóttur, formanni Íslands-
deildar Evrópuráðsþingsins og for-
manni félags-, heilbrigðis- og fjöl-
skyldumálanefndar þingsins, veitt
heiðursviðurkenning af fulltrúum
tékkneska þingsins fyrir ríkan þátt í
að vekja athygli á hinni brýnu þörf
fyrir neyðaraðstoð í kjölfar vatna-
vaxtanna miklu í ágúst sl. er ollu
gríðarmiklum skemmdum, m.a. í
Prag höfuðborg Tékklands.
Á fundum félags-, heilbrigðis- og
fjölskyldumálanefndar Evrópu-
ráðsþingsins í haust hefur Lára
Margrét, formaður nefndarinnar,
lagt mikla áherslu á að aðildarríki
Evrópuráðsins veittu tékknesku
þjóðinni aðstoð vegna náttúru-
hörmunganna í sumar. Í kjölfar
neyðarkalls frá Miroslav Ouzky, for-
manns tékknesku landsdeildarinnar
hjá Evrópuráðsþinginu, hvatti Lára
Margrét aðildarríki Evrópuráðsins
til að gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að standa með bræðraþjóð-
um sínum í þessum erfiðleikum og
þá sér í lagi Tékkum. Í tilmælum fé-
lags,- heilbrigðis- og fjölskyldumála-
nefndar var lögð á það áhersla að
aðildarríki Evrópuráðsins og sveit-
arfélög innan þeirra tækju ákveðin
héruð, bæi og borgir „í fóstur“ og
tryggðu þannig skilvirkni í neyð-
araðstoð. Slíkar aðgerðir myndu
jafnframt sýna fram á samhug með-
al Evrópubúa á neyðartímum.
Árangursrík söfnun
Í athöfn þeirri er tékkneska
landsdeildin hélt til heiðurs Láru
Margréti í Strassborg kom fram í
máli Miroslavs Ouzkys, að eftir
íhlutun félags-, heilbrigðis- og fjöl-
skyldumálanefndar Evrópuráðs-
þingsins fyrr í haust hefði mikið
áunnist. Sagði hann að u.þ.b. 500
milljónir evra hefðu safnast fyrir til-
stilli Evrópuráðsins og að á tím-
anum sem liðið hefði frá flóðunum
hefði skapast mikil samstaða meðal
Evrópuþjóða í að leysa úr brýnustu
erfiðleikum tékknesku þjóðarinnar.
Sagði Ouzky jafnframt að í fram-
haldi af frumkvæði Evrópuráðs-
þingsins hefði Evrópuþingið tekið
málefnið upp með afar góðum ár-
angri.
Lára Margrét Ragnarsdóttir, formaður félags,- heilbrigðis- og fjölskyldumálanefndar Evrópuráðsþingsins, tekur
við heiðursviðurkenningu tékkneska þingsins fyrir hlut sinn í eflingu neyðaraðstoðar vegna flóðanna í Tékklandi.
Með Láru Margréti á myndinni eru tékknesku þingmennirnir Mirolsav Ouzky og Miroslava Nemcova.
Heiðursviðurkenn-
ing fyrir frumkvæði
SIV Friðleifsdóttir hefur skipað
nefnd til að móta tillögur og vera
umhverfisráðherra til ráðgjafar
um stofnun verndarsvæðis eða
þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. Í
fréttatilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu segir að stofnun
verndarsvæðis eða þjóðgarðs á
svæðinu norðan Vatnajökuls sé
margbrotið verkefni sem kalli á
talsverðan undirbúning af hálfu
stjórnvalda og víðtækt samráð við
hagsmunaaðila og aðra þá sem
málið varðar. Nefndinni er falið að
fara yfir og skoða þá möguleika
sem til greina koma með tilliti til
þeirra áætlana um landnýtingu á
svæðinu, þ.e. Kárahnjúkavirkjun-
ar, sem Alþingi hefur fyrir sitt
leyti fallist á.
Í úrskurði umhverfisráðherra
um mat á umhverfisáhrifum
Kárahnjúkavirkjunar í lok síðasta
árs voru framkvæmdinni sett skil-
yrði til að draga úr umhverfis-
áhrifum hennar á helstu útivist-
arsvæði, s.s. við Snæfell.
Nefndinni er ætlað að vinna til-
lögur að umfangi verndarsvæðis
og verndarstigi og skal hún í
störfum sínum hafa samráð við
viðkomandi sveitarfélög, landeig-
endur og landnotendur, þ.m.t.
ferðaþjónustuaðila og umhverfis-
samtök.
Tillögur fyrir 15. mars
Í nefndinni eiga sæti Alþingis-
mennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir,
Magnús Stefánsson, Steingrímur
J. Sigfússon og Össur Skarphéð-
insson, en formaður nefndarinnar
verður Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu-
neytinu. Skal nefndin skila af sér
áfangaskýrslu til umhverfisráð-
herra eigi síðar en 15. mars 2003,
segir í frétt frá ráðuneytinu.
Nefnd um
þjóðgarð norð-
an Vatnajökuls
Upphæðin komin
yfir 30 milljónir
UPPHÆÐ söfnunarinnar Göngum
til góðs er komin yfir 30 milljónir
króna.
Rúmlega 28 milljónir söfnuðust
laugardaginn 5. október sl. Síðan
hafa framlög verið að berast til
Rauða kross Íslands. Nú síðast
barst ein milljón króna frá Íslend-
ingi sem búsettur er í Bandaríkj-
unum. Þá má nefna að hagnaður af
dansleik, sem haldinn var í Búð-
ardal, var gefinn til söfnunarinnar.
Féð sem safnaðist á Íslandi verð-
ur sent til Afríkulanda, þar sem
hungursneyð ríkir. Markmiðið
með söfnuninni á heimsvísu er að
koma matvælum til 750 þúsund
manna á hungurssvæðum í Afríku.
Sameinuðu þjóðirnar hafa varað
þjóðir heims við því að 14,4 millj-
ónir manna eigi á hættu að deyja
úr hungri í heiminum á næstu
mánuðum, ef ekkert verður að
gert.