Morgunblaðið - 17.10.2002, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Glæsilegar skrifstofur,
jarðhæðin í þessu glæsilega
húsi. Framhús ásamt bakhúsi
samtals ca. 800 fm. (Áður
höfuðstöðvar Landsbréfa.)
Sanngjörn leiga fyrir rétta
aðila.
TIL LEIGU
Suðurlandsbraut
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson
s. 588 4477 eða 822 8242.
NEI, ekki er risið parísarhjól í
Grímsey en þegar horft var til
norðurs frá aðalgötunni leit út um
tíma eins og eitt slíkt væri að rísa.
Þetta voru fyrstu bogar að nýrri
vélageymslu við vélaverkstæði Sig-
urðar Bjarnasonar sem bar svona
skemmtilega við sólbjartan norður-
himininn. Þessi geymsla var flutt til
Grímseyjar í ótal pörtum og hýsti
áður áhaldahús Akureyrarbæjar.
Sigurður fékk geymsluna hingað
fyrir vinnuvélar sínar, tæki og tól
sem áður hafa þurft að standa úti
árið um kring. Mun vélageymslan
gjörbreyta aðstöðu Sigurðar sem
hefur um langan tíma séð um flest-
ar bátaviðgerðir og aðrar viðgerðir
í Grímsey. Húsið verður tengt við
vélaverkstæði Sigurðar með 40 fm
tengibyggingu en sjálfur bragginn
er 300 fermetrar. Sigurður hefur
haft tvo menn með sér í vinnu við
uppsetninguna og í bygginga-
framkvæmdunum. Stefnt er að því
að húsið verði tilbúið fyrir veturinn
og hefur veðurblíðan undanfarnar
vikur ekki spillt fyrir.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Við nýju vélageymsluna. Sigurður Bjarnason stendur hér á milli dætra
sinna, Karenar t.v. og Vilborgar, ásamt þeim Garðari Ólasyni, Katli Guð-
mundssyni húsasmið og Vilberg Inga Héðinssyni aðstoðarmanni.
Parísarhjól í Grímsey?
Grímsey
STARFSMENN og velunnarar
gamla bæjarins í Laufási hafa und-
anfarið verið að leggja síðustu hönd
á haustverkin í sveitinni. Næsta
laugardag, hinn 19. október kl. 14-16
verður mikið um dýrðir í bænum því
gestum og gangandi verður boðið að
fylgjast með hefðbundinni matar-
gerð haustsins.
Meðal annars verða verkaðar og
saumaðar vambir, ristlar raktir, lifr-
in marin með hnalli og fleira sem til-
heyrir vinnslu matar í sláturtíð.
Slegið verður upp markaði þar sem
til sölu verða nýjar kartöflur, rófur,
gulrætur og sulta. Einnig verður til
sölu íslenskt handverk og ýmiss
konar krem úr íslenskum jurtum.
Gestir fá að smakka grasamjólk,
brauð með fjallagrösum, rúgbrauð
með kæfu og slátur. Laufáshópurinn
sýnir gamalt íslenskt handbragð við
tóvinnu og með þeim verða eldri
borgarar sem kunna vel til verka í
sveit.
Frá borginni Edmonton í Alberta
í Kanada kemur Doug Rögnvalds-
son og sýnir í Laufási vestur-ís-
lenskan rokk sem faðir hans Jón
Rögnvaldsson, sem fluttist ungur úr
Skagafirði til vesturheims, þróaði og
hannaði vestra. Nú finnast slíkir
rokkar á mörgum íslenskum og kan-
adískum heimilum. Rögnvaldsson
og bræður hans fjórir hafa viðhaldið
hefðinni og nú er Doug kominn heim
til að kynna þetta vestur-íslenska
verklag löndum sínum á Íslandi.
Starfsdagur í Laufási
Hefðbundin matar-
gerð haustsins sýnd
SKÓLANEFND samþykkti á fundi
sínum í vikunni að leggja til að verð á
máltíðum í skólamötuneytunum
verði lækkað úr 300 krónum í 250
krónur fyrir nemendur og úr 250
krónum í 220 krónur fyrir starfs-
menn. Samkvæmt ákvæðum kjara-
samninga starfsmanna greiða þeir
einungis hráefniskostnað. Á fundi
skólanefndar fyrr í mánuðinum var
tekið fyrir erindi frá Stefaníu Sig-
urjónsdóttur þar sem hún vakti at-
hygli á matseðlum og verði á mál-
tíðum í grunnskólum Akureyrar,
sem hún taldi of hátt.
Einnig samþykkti skólanefnd í
vikunni að foreldrar geti keypt mál-
tíðir fyrir börn sín óháð vikudögum
en þeir verði að kaupa að lágmarki 8
máltíðir í mánuði. Þessi ákvörðun
verður endurskoðuð þegar uppgjör á
rekstri skólamötuneytanna liggur
fyrir um áramót. Fyrir fundi nefnd-
arinnar lá jafnframt uppgjör á
rekstri mötuneytanna í Lundar-
skóla, Oddeyrarskóla og Giljaskóla
fyrir september 2002. Í uppgjörun-
um kemur fram að nýting nemenda í
Oddeyrarskóla er 30%, Lundarskóla
24,5% og Giljaskóla 47%.
Verð á skóla-
máltíðum
lækkar
HÉRAÐSDÓMUR Norður-
lands eystra hefur dæmt tæp-
lega tvítugan pilt í 20 þúsund
króna sekt til ríkissjóðs og
skaðabætur að fjárhæð 2.400
krónur til veitingahússins
Sjallans á Akureyri fyrir grip-
deild.
Pilturinn var ákærður fyrir
að hafa í fyrrasumar tekið úr
eldhúsi Sjallans 750 ml gin-
flösku, hlaupið með hana út og
falið í garði í nágrenni veit-
ingastaðarins.
Ákærði viðurkenndi brot
sitt fyrir dómi og var játning
hans í samræmi við rannsókn-
argögn lögreglu. Pilturinn hef-
ur áður komist í kast við lögin
og með þessu broti rauf hann
skilorð. Með hliðsjón af ungum
aldri og því að nokkuð er um
liðið frá broti ákærða þótti í
dómnum ekki ástæða til að
hrófla við skilorðinu en dæma
hann þess í stað í sekt til rík-
issjóðs og til að greiða skaða-
bætur til Sjallans.
Sektaður
fyrir
að stela
vínflösku
ÍBÚAR í grennd við Grand hótel í
Sigtúni í Reykjavík hafa kært sam-
þykkt deiliskipulags, sem gerir ráð
fyrir byggingu tveggja 13 hæða
turna ofan á hótelið, til Úrskurðar-
nefndar skipulags- og bygginga-
mála. Yfir 100 íbúar skrifuðu undir
áskorun til borgaryfirvalda um að
endurskoða ákvörðun sína.
Að sögn Páls Skaftasonar, tals-
manns íbúa, er einkum þrennt sem
íbúarnir hafa að athuga við sam-
þykkt skipulagsins. Í fyrsta lagi sé
ljóst að skuggavarp verði af turnun-
um, í öðru lagi séu turnarnir í hróp-
legu ósamræmi við byggðina sem
fyrir er á svæðinu og loks hafi kynn-
ing á skipulaginu farið að mestu
fram hjá íbúum.
Allir tilbúnir til að skrifa undir
„Við gengum allt Sigtúnið og
nokkrir fóru yfir á Laugateiginn líka
og það er skemmst frá því að segja
að allir sem náðist í voru viljugir til
að skrifa undir,“ segir Páll. „Með
þessu viljum við leggja áherslu á að
það er almenn óánægja í hverfinu
með þessar byggingar. Þarna er ver-
ið að tala um að byggja eitt hæsta
húsið í Reykjavík á lóð sem þegar er
fullbyggð. Það er ekkert hús í borg-
inni hærra en 13 hæðir, þetta er eins
og Hús verslunarinnar eða húsin á
Vesturbrún.“
Undirskriftunum var skilað á
mánudag til skipulags- og bygginga-
sviðs borgarinnar og til Úrskurðar-
nefndar skipulags- og bygginga-
mála. „Málið hefur verið kært til
Úrskurðarnefndarinnar með bréfi
meðfylgjandi þessum undirskriftum
og eins hvöttum við sem flesta íbúa
til að kæra. Við vitum af nokkrum
sem hafa gert það auk okkar
sjálfra,“ segir Páll.
Yfir 100 íbúar í Sigtúni skrifa undir mótmæli vegna turna
Stækkun Grand hótels
kærð til Úrskurðarnefndar
Tún
ÞAÐ er allt í lagi að tala og syngja
á bókasöfnum og undir sérstökum
kringumstæðum má beinlínis hafa
þar hátt. Þetta er að minnsta kosti
skoðun Önnu Margrétar Sigurð-
ardóttur, deildarstjóra á Bóka-
safni Kópavogs, sem þessa dagana
er önnum kafin við að koma upp
sýningu á munum og bókum frá
öllum heimsins hornum á bóka-
safninu auk þess sem hún vinnur
að því að skipuleggja dagskrá á
safninu næstu vikuna sem meðal
annars felur í sér tónlist og söng.
Sýningin og dagskráin eru í
tengslum við alþjóðaviku sem
hefst í Kópavogi á morgun og
stendur fram á fimmtudag. Mun
bærinn iða af uppákomum tengd-
um útlendingum þessa vikuna sem
verður „borin fram sem veisla
mannlífs og menningar“, eins og
segir í fréttatilkynningu. Sýningin
á bókasafninu verður sett upp í
glerskápum vítt og breitt um safn-
ið og gætir þar ýmissa grasa. „Við
verðum með alls konar bækur og
muni sem við höfum sankað að
okkur frá hinum og þessum góð-
gjörnu aðilum sem voru til í að
lána okkur þá,“ segir Anna Mar-
grét og nefnir hluti frá Japan,
Jórdaníu og Tékklandi meðal ann-
ars.
Lestrar- og skriftarbækur
frá ýmsum löndum
„Síðan munum við stilla út mjög
skemmtilegum lestrar- og skrift-
arbókum sem Marjatta Ísberg hef-
ur safnað frá ýmsum löndum. Það
er mjög gaman að sjá þær því þær
eru oft á tungumálum sem maður
hefur ekki grænan grun um hver
eru en við ætlum nú að skýra
það.“
Auk sýningarinnar verður heil-
mikil dagskrá í safnahúsinu í
tengslum við Alþjóðavikuna og má
þar nefna sýningar á erlendum
kvikmyndum, fyrirlestra og
myndasýningar og sérstaka dag-
skrá á vegum Japansk-íslenska
menningarfélagsins. Þá mun tón-
list hljóma um bókasafnið þessa
daga því kór Snælandsskóla kem-
ur tvisvar og syngur nokkur lög af
erlendum uppruna auk þess sem
nemendur Tónlistarskóla Kópa-
vogs munu láta ljós sitt skína.
En er þetta leyfilegt, á ekki allt-
af að vera þögn á bókasöfnum?
„Nei, það er gamall misskiln-
ingur,“ segir Anna Margrét og
hlær. „Bókasöfn eru orðin svolítið
öðruvísi stofnanir en þau voru áð-
ur fyrr þannig að hér er líf og fjör
alla daga. Fólk má tala og syngja
og undir sérstökum kringum-
stæðum beinlínis hafa hátt.“
Morgunblaðið/Kristinn
Elín Arna Ellertsdóttir bókavörður kemur munum frá Jórdaníu fyrir í einum glerskápnum.
Bókasafnið tekur þátt í Alþjóðaviku sem hefst á morgun
Munir og bækur úr
öllum heimsins hornum
Kópavogur
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að taka tilboði Vatnsfells
ehf. í byggingu Hraunkots, fjögurra
deilda leikskóla í Haukahrauni.
Tilboðið hljóðaði upp á tæpar
126,5 milljónir króna sem er 91% af
kostnaðaráætlun en hún var tæpar
139 milljónir króna. Hæsta tilboðið
var hins vegar upp á tæpar 158 millj-
ónir eða 113,7% af kostnaðaráætlun.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá er áætlað að leikskólinn
verði tekinn í notkun í júlí á næsta
ári.
Leikskólinn Hraunkot
Samið við
Vatnsfell
Hafnarfjörður