Morgunblaðið - 17.10.2002, Side 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞEIR Hörður Eiríksson t.v. og
Ómar Örn Jónsson ásamt hund-
inum Bjarti höfðu rúmar þrjátíu
rjúpur eftir fyrsta daginn. Þeir
fóru til veiða á Reykjaheiði um há-
degisbil og voru komnir aftur til
byggða á sjötta tímanum. Þeir
sögðust hafa heyrt að menn væru
eitthvað að reyta en ekkert meira
en það.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fengu rúmlega þrjátíu rjúpur
Húsavík
NÝHAFIN er hér í
sveitinni landbóta-
skógrækt á tveim
jörðum, nefnilega
Gautlöndum, sem
leggur til 34 ha., og
Litluströnd þar sem
47 ha. eru lagðir til
verkefnisins, sem er
innan ramma Norður-
landsskóga. Alllangan
tíma hefur tekið að
koma þessu á koppinn
en nú á þriðjudaginn
hófst plöntun birki-
plantna í landið sem
valið hefur verið, vest-
an í Nónási á landa-
merkjum jarðanna.
Guðríður Baldvins-
dóttir, svæðisstjóri
Norðurlandsskóga í Þingeyjar-
sýslum, og bændurnir Sigurður og
Jóhann Böðvarssynir á Gautlöndum
og Birgir Steingrímsson á Litlu-
strönd hófust þarna handa við að
koma í jörð fyrstu plöntunum, sem
eru 2.000 afar fallegar birkiplöntur
austan frá Héraðsskógum.
Það heyrir til nýlundu í Mývatns-
sveit að bændur hér gerist skógar-
bændur. Hitt er alkunna og engin
nýlunda að bændur á þessum slóðum
leitist við að bæta landgæði jarða
sinna, fyrir því er löng hefð.
Skógrækt hafin
á tveimur jörðum
Morgunblaðið/BFH
Þeir feðgar Jóhann Böðvarsson og Böðvar Jóns-
son á Gautlöndum planta hér framtíðarskógi.
Mývatnssveit
SVEITARSTJÓRN Hrunamanna-
hrepps hélt Lofti Þorsteinssyni,
bónda og fyrrum oddvita í Hauk-
holtum, kveðjuhóf í Félagsheim-
ilinu á Flúðum föstudagskvöldið 11.
október. Loftur sem varð sextugur
síðastliðið vor gaf ekki kost á sér til
endurkjörs í sveitarstjórn í Hruna-
mannahreppi í síðustu sveitar-
stjórnarkosningun. Hann hafði þá
setið í sveitarstjórn í tuttugu og
fjögur ár, þar af sem oddviti og
sveitarstjóri í tuttugu ár. Þá starf-
aði Loftur mikið fyrir Samband
sunnlenskra sveitarfélaga á þessum
tíma, átti þar sæti í stjórn og mörg-
um nefndum.
Meðal gesta í fjölmennu hófi voru
margir sveitarstjórnarmenn eink-
um af Suðurlandi, einnig formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
og framkvæmdastjóri.
Karlakór Hreppamanna söng
nokkur lög Lofti til heiðurs en að-
alræðumaður kvöldsins var jafn-
aldri Lofts og æskuvinur, Magnús
H. Sigurðsson í Birtingaholti.
Margir tóku til máls, einkum fyrr-
um samstarfsmenn, færðu góðar
gjafir og slógu á létta strengi og
rifjuðu upp margt skondið sem
hafði á dagana drifið í samstarfinu.
Loftur sagði m.a. í ávarpi til
veislugesta, að hann hefði haft
mikla ánægju af starfi sínu að sveit-
arstjórnarmálum og þakkaði fjöl-
mörgum samstarfsmönnum sam-
starfið undanfarna áratugi.
Kveðjuhóf Lofti til heiðurs
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Loftur Þorsteinsson ásamt konu sinni, Hönnu Láru Bjarnadóttur.
Flúðir
LÆKNIR hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja telur að úrskurður
kjaradóms leiði í besta falli til
óbreyttra launa heilsugæslulækna
á svæðinu en hugsanlega lækki
laun þeirra. Uppsagnir allra átta
fastráðinna heilsugæslulækna hjá
stofnuninni taka að óbreyttu gildi
um næstu mánaðamót.
Gunnar Þór Jónsson, heilsu-
gæslulæknir hjá Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja, segir að læknarnir
séu að fara yfir úrskurð kjaradóms
og hafi ekki fjallað um hann sam-
eiginlega. Sjálfur telur hann úti-
lokað að úrskurðurinn leiði til 20%
launahækkunar. Bendir í því sam-
bandi á að aðstæður séu mjög mis-
munandi milli svæða. Læknar á
Suðurnesjum hafi fullan bónus
vegna þess hversu fáir læknar eru
þar miðað við íbúafjölda. Hann falli
út á móti einhverri grunnkaups-
hækkun. Önnur atriði úrskurðarins
leiði heldur ekki jafneinfaldlega til
kjarabóta og talað sé um því annað
hverfi á móti. Á heildina litið sjái
þeir ekki annað en að laun þeirra
standi í stað, í besta falli, eða
lækki.
Annars tekur Gunnar Þór fram
að læknarnir hafi ekki verið að
segja upp störfum sínum vegna
launakjara heldur réttindamála og
þau séu enn óleyst.
Áhyggjur af
þróun mála
Á fundi bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar í fyrrakvöld létu allir ell-
efu bæjarfulltrúarnir bóka áhyggj-
ur sínar af þróun mála í deilu
lækna við heilbrigðisráðuneytið
sem bitni fyrst og fremst á íbúum
Suðurnesja. Bæjarfulltrúarnir
skoruðu á samningsaðila að gera
það sem í þeirra valdi stæði til að
lausn fyndist, lausn sem tryggði
góða þjónustu við íbúana.
Þá hafa Erna Björnsdóttir
hjúkrunarforstjóri og Sigrún
Ólafsdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri hjá Heilbrigðisstofn-
uninni sent Jóni Kristjánssyni heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
bréf þar sem áhyggjum hjúkrunar-
fræðinga við stofnunina er lýst
vegna þess ófremdarástands sem
stefnir í á Suðurnesjum þegar upp-
sagnir heilsugæslulækna taka
gildi. Skora þær á heilbrigðisyfir-
völd að leysa vandann og ná sam-
komulagi svo ekki verði neyðar-
ástand.
Uppsagnir lækna taka að óbreyttu gildi í lok mánaðarins
Telja að laun standi
í stað eða lækki
Suðurnes
FJÖLMENNI var á ráðstefnu um
umhverfisvæna ferðaþjónustu sem
haldin var á Hótel Keflavík í gær.
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum og Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofa Reykjanesbæjar
efndu til ráðstefnunnar en tilgang-
ur hennar var meðal annars að
benda forsvarsmönnum sveitarfé-
laganna á svæðinu á leiðir til að efla
ferðaþjónustu, að því er fram kom í
ávarpi Guðjónínu Sæmundsdóttur
hjá Miðstöð símenntunar.
Umhverfismál skipa sífellt stærri
sess í ferðamálum, sagði Helga
Haraldsdóttir, deildarstjóri í sam-
gönguráðuneytinu, sem ávarpaði
samkomuna í nafni ráðherra. Á ráð-
stefnunni voru flutt sjö erindi um
ferðaþjónustu og umhverfismál.
Meðal annars var sagt frá Stað-
ardagskrá 21 og mismunandi um-
hverfismerkjum.
Umhverfis-
mál mikilvæg
fyrir ferða-
þjónustuna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fundarmenn fylgdust af áhuga með fyrirlestrum um umhverfismál.
Keflavík
STRENGJAMÓT í Reykjanesbæ er
yfirskrift tónlistarmóts nemenda á
strengjahljóðfæri sem Tónlist-
arskóli Reykjanesbæjar stendur
fyrir um helgina ásamt foreldrum
nemenda strengjadeildar. Þátt
taka 160 nemendur frá níu tónlist-
arskólum.
Mótið hefst næstkomandi föstu-
dag og stendur fram á sunnudag.
Myndaðar verða þrjár stórar
strengjasveitir sem æfa um helgina
og halda síðan tónleika á sunnu-
daginn kl. 14 í Íþróttahúsinu við
Sunnubraut. Aðgangur er ókeypis
að tónleikunum og allir eru vel-
komnir.
Hóparnir halda til í Holtaskóla
en æfingar fara fram þar, í Íþrótta-
húsinu við Sunnubraut og í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja. Stjórn-
endur strengjasveitanna verða
Unnur Pálsdóttir, fiðluleikari og
kennari við Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar, Martin Frewer fiðluleik-
ari og Úlfar Ingi Haraldsson,
kontrabassaleikari, tónskáld og
kennari við Listaháskóla Íslands.
Margt fleira verður til gamans
gert á mótinu annað en að æfa og
halda tónleika að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá Tónlistarskól-
anum. Meðal annars verður kvöld-
skemmtun í Íþróttahúsinu,
diskótek í Heiðarskóla og gesta-
tónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
160 manna strengja-
mót um helgina
Reykjanesbær
KERRA, sem í var björgunar-
sjúkrahús, eyðilagðist er hún slitn-
aði í hádeginu aftan úr bíl björg-
unarsveitarinnar Suðurnesja á
Reykjanesbraut við Kúagerði. Var
sveitin á leið á æfingu við Hafra-
vatn austan Reykjavíkur.
Kerran fór yfir á öfugan veg-
arhelming og endasentist út í móa
er hún slitnaði aftan úr björgunar-
bifreiðinni. Mildi þykir að engin
slys urðu því talsverð umferð var
þegar óhappið átti sér stað.
„Kerran sjálf er ónýt og við er-
um að skoða búnaðinn. Þetta var
sjúkrahús á hjólum, tvö tjöld með
greiningarborðum og öllum hjálp-
artækjum sem til þarf á slysstað,“
sagði fulltrúi björgunarsveitarinn-
ar.
Var sveitin þá komin á æfing-
arstað við Hafravatn. „Hér er ætl-
unin að við æfum með Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins og sveit
slysadeildar Landspítalans, við er-
um þátttakendur vegna þess bún-
aðar sem var í kerrunni,“ sagði
björgunarsveitarmaðurinn.
Sjúkrahús
á hjólum
lenti út af
Kúagerði
STJÓRN Sparisjóðsins í Keflavík
hefur ákveðið að fresta ákvörðunum
um að breyta fyrirtækinu í hluta-
félag þar til boðað frumvarp að nýj-
um lögum um fjármálafyrirtæki
hefur verið afgreitt á Alþingi.
Stjórnendur Sparisjóðsins hafa frá
því á síðastliðnum vetri unnið að
breytingu Sparisjóðsins í hlutafélag,
í samræmi við ákvarðanir hluthafa-
funda. Vinnan var komin langt og
stefnt var að því að hægt yrði að
taka endanlega ákvörðun fyrir 1.
október.
Stofnun hlutafélags frestað
Keflavík