Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í Myndasafni Morgunblaðsins á er hægt að kaupa
myndir til einka- eða birtinganota.
Það er einfalt að kaupa myndir úr safninu og panta útprentun
á KODAK ljósmyndapappír frá
Hefur birst mynd af þér
og þínum í Morgunblaðinu?
myndasafn•morgunblaðsins
myndasafn•morgunblaðsins
30% afsláttur til 20. október!
Í tilefni opnunarinnar er 30% afsláttur af verði
mynda til einkanota ef keypt er í gegnum Netið.
Mynd í tölvutæku formi á aðeins 860 kr.
og útprentuð mynd í stærðinni 15x21 sm
á aðeins 1.090 kr. með afslætti.
EGYPSKUR seglbrettakappi nýtir
byrinn fyrir framan Bibliotheca
Alexandria, bókasafnið í Alexandr-
íu í Egyptalandi, sem var opnað
formlega í gær, eftir ýmsar tafir.
Mikill fjöldi fyrirmenna, mennta-
manna og stjórnmálamanna hvað-
anæva úr heiminum flykktist til
Alexandríu til að vera við hátíð-
lega opnun safnsins.
Er vonast til að það verði verð-
ugur arftaki hins fræga bókasafns
í Alexandríu, sem stofnað var um
295 fyrir Krist af þáverandi
Egyptalandskonungi, Ptolemy I,
en brann til kaldra kola fyrir 1.600
árum. „Það mikla safn var einstætt
afrek í sögu mannsandans og
ímyndunaraflsins og mun aldrei
falla í gleymsku,“ sagði Ismail
Serageddin, framkvæmdastjóri
nýja safnsins.
Byggingin var hönnuð af norskri
arkitektastofu, Snøhetta, og var
kostnaðurinn við bygginguna sem
svarar um 20 milljörðum króna.
Lögun byggingarinnar, sem er úr
gleri og steinsteypu, minnir á
sóldisk – tákn þekkingar – sem
snýr að Miðjarðarhafinu.
AP
Bókasafnið í Alexandríu opnað
TALSMAÐUR Páfagarðs hefur for-
dæmt „fyrirlitlegar aðgerðir“ sem
hann segir miðast að því að koma
óorði á kaþólsku kirkjuna í Rúss-
landi. Vaxandi spenna hefur verið í
samskiptum Páfagarðs og stjórn-
valda í Moskvu eftir að yfirmaður
kaþólsku kirkjunnar í Rússlandi
kvartaði yfir því við mannréttinda-
hreyfingar í síðasta mánuði að hafin
hefði verið „umfangsmikil herferð
gegn kaþólsku kirkjunni“.
Í yfirlýsingu frá talsmanni Páfa-
garðs á mánudag skírskotaði hann til
þess að íbúð, sem fransiskus-munkar
höfðu leigt rússneskum hjónum, var
breytt í vændishús og rússneskir
fjölmiðlar birtu fréttir af málinu með
myndum af fólki í munka- og nunnu-
klæðum og „ósiðlegum stellingum“.
Talsmaðurinn sagði að fréttirnar
byggðust á blekkingum og markmið-
ið væri augljóslega að „skaða orð-
spor kaþólska samfélagsins“. „Við
trúðum því ekki að þeir myndu lúta
svo lágt,“ sagði Nikolaj Dubinin,
talsmaður fransiskus-reglunnar í
Moskvu.
Alexíj patríarki sakar páfa
um „útþenslustefnu“
Samskipti Rússlands og Páfa-
garðs versnuðu eftir að Jóhannes
Páll páfi heimsótti fyrrverandi lýð-
veldi Sovétríkjanna og Páfagarður
ákvað að koma á fót biskupsdæmum
í Rússlandi. Rússar hafa sakað Páfa-
garð um að hafa troðið sér inn á
svæði rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar og yfirmaður hennar, Alexíj II
patríarki, sakaði kaþólsku kirkjuna
um „útþenslustefnu“.
Páfagarður hefur einnig mótmælt
þeirri ákvörðun rússneskra yfir-
valda að vísa fimm erlendum kaþ-
ólskum prestum úr landi. Þá hefur
Tadeusz Kondrusiewicz, erkibiskup
kaþólsku kirkjunnar í Rússlandi,
kvartað yfir banni við smíði nýrra
kirkna og skemmdarverkum á kaþ-
ólskum kirkjum.
Um 600.000 Rússar eru kaþólskr-
ar trúar. Spennan hefur komið í veg
fyrir að páfi hafi getað heimsótt
Rússland og hefur það valdið honum
miklum vonbrigðum.
Rússland
Kvarta
yfir her-
ferð gegn
kaþólsku
kirkjunni
Páfagarði. AP.
STJÓRNARNEFND NATO-þings-
ins, sem skipuð er fulltrúum þjóð-
þinga hinna nítján aðildarríkja Atl-
antshafsbandalagsins (NATO),
samþykkti einróma á sérlegum fundi
sínum í Brussel á dögunum yfirlýs-
ingu þar sem m.a. er mælst til þess
að á leiðtogafundi bandalagsins í
Prag í næsta mánuði bjóði NATO
þeim sjö ríkjum Mið- og Austur-Evr-
ópu, sem fremst standa í aðlögunar-
ferli bandalagsins, formlega aðild.
Í yfirlýsingunni segir að næsta
lota stækkunar bandalagsins verði
hreyfiafl til umbreytingar NATO á
nýrri öld og að aðild nýrra ríkja í
Mið- og Austur-Evrópu – þ.e. Eist-
lands, Lettlands, Litháens, Slóvakíu,
Slóveníu, Búlgaríu og Rúmeníu –
muni efla bandalagið, auka öryggi og
stöðugleika í Evrópu.
Þá kemur og fram í yfirlýsingunni
að NATO beri að halda dyrum sínum
opnum fyrir öðrum Evrópuríkjum
sem óska aðildar.
Stjórnarnefndin telur ennfremur
að NATO sé einstakur vettvangur til
samstarfs á sviði hinna fjölmörgu fé-
lagslegu, efnahagslegu, pólitísku og
hernaðarlegu þátta er lúta að alþjóð-
legri baráttu gegn hryðjuverkastarf-
semi – hinni nýju ógn sem svo mjög
mun móta starfsemi bandalagsins til
framtíðar.
NATO-
þingmenn
hlynntir
stækkun
EINN stjórnarandstöðuflokkanna
í Rúmeníu hefur farið fram á það
við forseta landsins, að hann und-
irriti ekki umdeild lög, sem ætlað
er að verja rúmenska tungu.
Samkvæmt þeim má ekki setja
upp skilti með erlendri áletrun
eða erlendum orðum nema annað
fylgi á rúmensku.
Frjálslyndi fokkurinn telur, að
lögin séu andlýðræðisleg og með
þeim sé verið að taka aftur nokk-
uð af því frelsi, sem fékkst með
byltingunni 1989.
Að auki sé það beinlínis kjána-
legt að banna tökuorð, sem séu
fyrir löngu komin inn í rúm-
enskuna og rúmenskar orðabæk-
ur. Viðurlög við brotum á vænt-
anlegum lögum eru sekt, sem
svarar til allt að 130.000 ís-
lenskra króna.
Mörgum þykir fáránlega langt
gengið með lögunum en sam-
kvæmt þeim eiga þýðingar að
vera nákvæmar og bókstaflegar.
Þegar Rúmenar fá sér pylsu
með öllu biðja þeir oftast um „hot
dog“ upp á ensku en á auglýs-
ingaskilti ætti það þá að vera
„caine fierbinte“ upp á rúmensku
eða „heitur hundur“. Höfundur
laganna segist raunar hallast að
því, að þýðingin á pylsu með öllu
ætti að vera „einhvers konar
pylsa í einhvers konar brauði“.
Breiðfylking mótmælenda
fordæmir lagasetninguna
Blaðamenn, málfræðingar,
hljómlistarfólk, söngvarar og
ungt fólk í viðskiptum og fleiri
greinum hafa fordæmt laga-
frumvarpið en eftir byltinguna
hefur tökuorðum, aðallega ensk-
um, fjölgað mikið í málinu.
Hart deilt um
„heitan hund“
Búkarest. AP.
SAMSTEYPUSTJÓRNIN í Hollandi féll í
gær, tæpum þremur mánuðum eftir að
hún var mynduð, eftir að tveir ráðherrar
sögðu af sér vegna harðvítugrar valdabar-
áttu í flokki Pims Fortuyns sem var myrt-
ur nokkrum dögum fyrir þingkosningarn-
ar í maí. Búist er við að boðað verði til
þingkosninga í desember.
„Ég gerði allt sem ég gat til að leysa
deiluna en mér tókst það ekki,“ sagði Jan
Peter Balkenende forsætisráðherra á
þinginu þegar hann tilkynnti afsögn
stjórnarinnar.
Talsmaður hollenska utanríkisráðuneyt-
isins sagði að bráðabirgðastjórn gæti tek-
ið ákvarðanir varðandi stækkun Evrópu-
sambandsins áður en efnt yrði til
þingkosninga í Hollandi. Orðrómur hafði
verið á kreiki um að fall stjórnarinnar kynni að
verða til þess að Evrópusambandið þyrfti að
fresta því að bjóða tíu ríkjum að ganga í sam-
bandið. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráð-
herra Danmerkur sem gegnir formennsku í ráð-
herraráði ESB þetta misserið, sagði í Brussel í
gær að stjórnarkreppan í Hollandi ætti
ekki að verða til þess að tefja fyrir stækk-
unaráformum sambandsins.
Stjórnin féll eftir að Eduard Bomhoff að-
stoðarforsætisráðherra og Herman
Heinsbroek sögðu af sér í gær. Þeir eru
báðir í flokknum Listi Pims Fortuyns,
LPF, og hafa barist ákaft um leiðtogastöð-
una í flokknum síðustu vikurnar.
LPF varð næst stærsti flokkurinn á hol-
lenska þinginu í kosningunum í maí og
myndaði stjórn með Kristilega demókrata-
flokknum og frjálslynda flokknum VVD.
Fylgi LPF hrynur
Valdabaráttan og hneykslismál tveggja
þingmanna LPF, sem neyddust til að segja
af sér, hafa orðið til þess að fylgi flokksins
hefur hrunið. Flokkurinn er nú með 26 þingsæti
en nýlegar skoðanakannanir benda til þess þess
að hann fengi aðeins fjögur ef kosið væri nú.
Ríkisstjórn Hollands fallin
Jan Peter Balkenende, fráfarandi forsætisráðherra Hollands,
niðurlútur á þingi í Haag í gær.
Haag. AFP.
Reuters