Morgunblaðið - 17.10.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 31
HELDUR var fáskipað í hlust-
endasæti á fyrstu sunnudagstónleik-
um Kammerhóps Salarins – KaSa –
af sex áformuðum í vetur á sunnu-
daginn var, þó að sjálfsagt hefði mæt-
ingin þótt prýðileg í smærra húsi.
Þrátt fyrir gott viðfangsefni, úrvals
hljómlistarmenn, sérstakan kynni og
skaplega lengd fyrir helgartónleika
er hætt við að laugardags- og sunnu-
dagssíðdegin verði aðsóknardræmari
þegar dimma tekur og dagsbirtan
hækkar að verðgildi. Mist Þorkels-
dóttir átti skv. vetrarskrá að fara
með tónleikaspjall, en hér var John
Speight kominn í hennar stað. Skýr-
ing á breytingunni fylgdi ekki. Mælt-
ist honum allvel miðað við erlendan
upprunann; röddin barst skýrt án
uppmögnunar og einstaka persónu-
leg athugasemd tónskáldsins bætti
kærkomnu kryddi í umfjöllunina um
höfund og viðfangsefni dagsins.
Fyrst léku Áshildur Haraldsdóttir
og Miklós Dalmay „Drei Romanzen“
er Schumann samdi fyrir óbó og pí-
anó 1849, en með vilyrði um að óbó-
röddina mætti leika að vild á klarín-
ett eða jafnvel fiðlu. Það var því lítið
við það að athuga að gefa einnig
flautu tækifæri, nema hvað kannski
var fullstórt upp í sig tekið að dubba
tiltækið „útsetningu“, eins og umrit-
un Áshildar var kölluð í tónleikaskrá.
Rómönsurnar eru sérlega lagrænar
tónsmíðar og náðu yndisfagrar mel-
ódíur þeirra ágætu svifi í syngjandi
mjúkum píanóleik Miklósar og vel
mótuðum flautublæstri Áshildar, þó
að víbratóið væri framan af nokkuð
stórskorið. Minntu þessar litlu perlur
á sögusögnina um að Clara Schu-
mann hafi snemma hvatt bónda sinn
til að hafa einfaldleikann í hávegum,
því henni sárnaði hvað áheyrendur
áttu stundum erfitt með að skilja tón-
list hans – þótt varla vefjist hún fyrir
jafnmörgum í dag.
Seinna verk dagsins var Píanó-
kvartett (þ.e. fyrir píanó, fiðlu, víólu
og selló) í Es-dúr Op. 47 frá 1842, í
sömu tóntegund og hinn mun kunn-
ari píanókvintett Schumanns Op. 44
frá sama ári. Afbragðs kammerverk
eins og þeir tónlistarunnendur máttu
vita sem heyrðu það síðast flutt á
Björtum sumarnóttum í Hveragerði
sl. júní, þá einnig með Miklós við
slaghörpuna en hins vegar aðra
strengjaleikara. Þeir sem léku nú
með píanóinu voru að vísu litlu síðri
og leikur allra nákvæmur og sam-
taka. Samt sem áður lét áhrifamáttur
verksins einhverra hluta vegna á sér
standa í þetta sinn. Hlutfallslega
þurrari og minna hvetjandi hljóm-
burður gerði eflaust sitt. Þó skipti
mestu hvað túlkunin var einkenni-
lega flöt og óspennandi. Maður ætl-
aði varla að þekkja ópusinn aftur, svo
undarlega dauft var yfir þessu óve-
fengjanlega meistaraverki. Það vant-
aði allt drama og alla stórmótun, og á
smæsta skala bar nokkuð á hvimleið-
um eftirreigingum í tónmyndun.
Hvort tveggja er oft vísbending um
takmarkaðan samspilstíma, þótt ekki
sé það einhlítt.
Hugsanlega hefði bætt eitthvað úr
skák að geta „hitað upp“ á stuttu
stykki fyrir sömu áhöfn næst á und-
an. En því var ekki að heilsa. Það var
eiginlega ekki fyrr en í fínalnum –
einskonar rómantískri kammerhlið-
stæðu við lokaþátt „Júpíter“-sinfóníu
Mozarts – að ólympískur sköpunar-
andi verksins hrökk loks í gang. Þá
fyrst tók mannskapurinn við sér og
fór að leika af lífi og sál. Og hefði fyrr
mátt vera.
Því þá var það eiginlega orðið of
seint.
Lafað fram á lokasprett
TÓNLIST
Salurinn
Schumann: Þrjár rómönsur Op. 94; Pí-
anókvartett í Es Op. 47. Meðlimir KaSa-
hópsins: Áshildur Haraldsdóttir flauta,
Miklós Dalmay píanó, Auður Hafsteins-
dóttir fiðla, Þórunn Ósk Marínósdóttir
víóla og Sigurður Bjarki Gunnarsson
selló. Sunnudaginn 13. október kl. 16.
KAMMERTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
RÉTTINDASTOFA Eddu hefur
gert samning við bandarísku útgáfu-
samsteypuna Random House um
réttinn á tveimur skáldsögum Hall-
dórs Laxness, Íslandsklukkunni og
Kristnihaldi undir Jökli. Íslands-
klukkan hefur aldrei komið út á
ensku en Kristnihaldið hefur verið
fáanlegt í enskri þýðingu Magnúsar
Magnússonar í útgáfu Vöku-Helga-
fells um nokkurt skeið. Random
House gaf út undir merkjum Vint-
age-forlagsins Sjálfstætt fólk fyrir
þremur árum, Paradísarheimt fyrr á
þessu ári og Heimsljós er væntan-
legt í verslanir á næstu dögum. Vint-
age sérhæfir sig í útgáfu á vönduð-
um bókum í mjúku bandi.
Vaxandi áhugi erlendra forlaga
„Vaxandi áhugi er á verkum Hall-
dórs Laxness erlendis og er þess
skemmst að minnast að á bókamess-
unni í Frankfurt sem lauk sl. mánu-
dag varð að efna til uppboðs um
spænskan útgáfurétt á verkum
skáldsins þar sem þrír
forleggjarar tókust á.
Þá var rétturinn á
Atómstöðinni seldur til
Random House í Bret-
landi fyrr á þessu ári
og kemur bókin út á
næsta ári undir merkj-
um dótturforlagsins
Harvill Press. Samn-
ingar við útgáfur í fleiri
löndum eru nú á loka-
stigi,“ segir Pétur Már
Ólafsson hjá Eddu.
„Nautn að lesa
Laxness“
Íslandsklukkan kom
fyrst út á árunum 1943–46 og hefur
síðan verið gefin út á yfir tuttugu
tungumálum í um sjötíu útgáfum við
góðar undirtektir. Þegar Íslands-
klukkan kom út í Danmörku fyrir
áratug ritaði gagnrýnandi Inform-
ation meðal annars: „Nú er mikið
rætt um suður-ameríska bylgju inn-
an frásagnarlistarinn-
ar, um gróteskt
raunsæi eða töfra-
raunsæi. Þetta hafa
menn lært af Halldóri
Laxness. … Það er
nautn að lesa Lax-
ness.“ Þá sagði um
sömu bók í Politiken:
„Verk Halldórs Lax-
ness eiga jafnmikið
heima á dönskum bóka-
markaði og Stríð og
friður. Þau verður að
gefa út fyrir hverja
nýja kynslóð lesenda.“
Kristnihald undir
Jökli var fyrst gefið út
árið 1968. Sagan hefur komið út á tíu
tungumálum í meira en tuttugu út-
gáfum. Þegar sagan var endurútgef-
in í kilju fyrir nokkru í Þýskalandi
ritaði gagnrýnandi stórblaðsins Der
Stern um hana: „Leyndardómsfull
furðufuglasaga sem kemur tárunum
til að hlæja.“
Íslandsklukkan og Kristni-
haldið til Bandaríkjanna
Halldór Laxness
Súfistinn, Laugavegi 18 Nú eru að
hefjast kynningar Eddu á útgáfuefni
ársins. Lesið verður úr nýútkomnum
bókum frá Forlaginu, Máli og menn-
ingu, Almenna bókafélaginu og
Vöku-Helgafelli auk þess sem tón-
listarútgáfa Óma verður kynnt í
bland. Fyrsta kynningarkvöldið
verður kl. 20 og hefur yfirskriftina
Heimsbókmenntakvöld. Árni Berg-
mann les upp úr þýðingu sinni á bók-
inni Krýningarhátíðin eftir Boris
Akúnín, Halla Kjartansdóttir les úr
þýðingu sinni á Líflækninum eftir
Per Olov Enquist og Ólöf Eldjárn les
úr þýðingu sinni á skáldsögunni
Myrtusviður eftir Murray Bail. Einn-
ig les Solveig B. Grétarsdóttir úr
þýðingu sinni á bókinni Mamma eftir
Vigdis Hjort og Vilborg Davíðsdóttir
les úr þýðingu sinni á bókinni Felu-
staðurinn eftir Trezza Azzopardi.
Þuríður Sigurðardóttir opnar sýn-
ingu í rými undir stiganum í i8 kl. 17.
Þuríður útskrifaðist vorið 2001 frá
Listaháskóla Íslands. Síðan hefur
hún sýnt verk sín víða um landið.
Þuríður er ein af stofnendum Opna
gallerísins. i8 er opið þriðjudaga til
laugardaga kl. 13–17 og lýkur sýn-
ingunni 23. nóvember.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Kúbanska hefur
að geyma lög eftir
Tómas R. Ein-
arsson bassaleik-
ara. Með honum
leika Eyþór Gunn-
arsson, píanó/
slagverk, Hilmar Jensson, gítar, Pétur
Grétarsson, slagverk, Matthías M.D.
Hemstock, trommur/slagverk, Sam-
úel J. Samúelsson, básúna, og Kjart-
an Hákonarson, trompet.
Lögin eru 10 djasslög innblásin af
kúbverskri tónlist.
Bragi Ólafsson segir í textahefti:
„Tómas hefur kynnt sér rækilega kúb-
anska tónlist. Hann hefur dansað með
hana upp og niður bassann sinn og
velt henni fyrir sér á allan mögulegan
hátt, enda er hann ekki aðeins tón-
skáld og hljóðfæraleikari heldur líka
fræðimaður og þýðandi. Í þessu verk-
efni nýtir hann sér ekki bara tónlist-
argáfu sína, hann leggst djúpt ofan í
ríka músíkhefð Kúbumanna, sem er
sprottin úr afrískri og spænskri tónlist,
hann stúderar hana og gerir að sinni
eigin persónulegu tjáningu.“
Útgefandi er Ómi. Hljóðritun fór fram
í ágúst í Hljóðveri FÍH. Upptökumaður:
Gunnar Smári Helgason. Hljóðblönd-
un: Tómas R. Einarsson/Gunnar
Smári Helgason. Verð: 2.399 kr.
Djass
Hveragerði - S. 483-4700 - Booking@HotelOrk.is
Kaffibrúsakarlarnir
á Hótel Örk föstudagskvöldin
15 og 22 nóvember 2002
Gisting eina nótt þriggja rétta kvöldverður,skemmtun, dansleikur og
morgunverður. 8.900.kr.-
Þriggja rétta veislukvöldverður, skemmtun og dansleikur 5,500.kr.-
Skemmtun og dansleikur 2,500.kr.-
xo
d
u
s.
is
Pantið tímanlega
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.950
Flugsæti til Barcelona, út 27. okt., heim
31. okt. Almennt verð með sköttum.
Verð kr. 4.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Expo, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
2 fyrir 1 til
Barcelona
frá kr. 19.950
27. október
Einstakt tækifæri til Barcelona þann 27. október í 4 daga. Þú bókar 2
flugsæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og getur kynnst þessari fegurstu borg
Spánar á einstökum kjörum. Völ um góð hótel í hjarta Barcelona og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í borginni
allan tímann.