Morgunblaðið - 17.10.2002, Síða 41
Eitt af markmiðum Samfylkingar
jafnaðarmanna er að stuðla að heil-
brigðara lýðræði í landinu, m.a. með
beinni þátttöku fólks í mikilvægum
ákvarðanatökum og ekki síður með
því að aðskilja með afgerandi hætti
löggjafarvald, framkvæmdavald og
dómsvald eins og lög gera ráð fyrir.
Þar með mundu varaþingmenn taka
sæti þeirra alþingismanna sem velj-
ast til að gegna ráðherraembættum
hverju sinni. Þá þarf að ígrunda
þann möguleika að lykilembættis-
menn á borð við umboðsmann Al-
þingis, ríkisendurskoðanda og
hæstaréttardómara verði kosnir
beinni kosningu, án pólitískra af-
skipta sitjandi valdhafa hverju sinni.
Öll hljótum við að vilja losna undan
oki grasserandi samsæriskenninga
og spillingar í samfélaginu. Lykillinn
liggur hjá valdhöfum.
Höfundur er varaþingmaður
Samfylkingarinnar og tekur þátt í
prófkjöri í Reykjavík
ekki hafa miðað betur áleiðis.
Séra Þórhallur Heimisson flutti
erindi á ársfundi Tryggingastofn-
unar ríkisins um túrbófjölskylduna
með aukakraftinn sem brennur út
einn góðan veðurdag. Hann bendir
líka á samanburð við hin Norð-
urlöndin um hve miklu af þjóð-
arkökunni við verjum til málefna
fjölskyldunnar. Við erum hálfdrætt-
ingar. Og hann segir okkur að
beiðnum um mataraðstoð hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar hafi fjölg-
að um 240 á liðnu ári og fjölgi nú
um 15% á mánuði. Ég hvet fólk til
að kynna sér þau erindi sem flutt
voru á ársfundinum en þau má
finna á vef stofnunarinnar tr.is. Þar
kemur fram umhugsunarverð lýs-
ing á velferðarsamfélaginu okkar
sem sýnir að íslenska fjölskyldan er
hornreka.
Um miðjan síðasta áratug var í
fyrsta sinn samþykkt á Alþingi op-
inber fjölskyldustefna sem var mik-
ilvæg stefnumörkun um að búa bet-
ur að fjölskyldunni í íslensku
samfélagi. Lenging fæðingarorlofs-
ins var brýn fjölskylduaðgerð, að
öðru leyti hefur fátt orðið um efndir
í þágu fjölskyldunnar. Þessu er orð-
ið tímabært að breyta.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
PRÓFKJÖR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 41
EFNAHAGSSTEFNA ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar hefur
fest í sessi háa vexti þrátt fyrir að
meðaltal verðbólgu sé svipað og í
öðrum Evrópulöndum. Skamm-
tímavextir á Íslandi hafa á því kjör-
tímabili sem senn er á enda verið
tvisvar til þrisvar sinnum hærri en
að meðaltali í Evrópusambands-
löndum (sjá mynd).
Almenningur á Íslandi og einkum
húseigendur sem þurft hafa á þjón-
ustu fjármálastofnana að halda
finna áþreifanlega fyrir háum vöxt-
um. Vextirnir hafa auk þess óæski-
leg áhrif á atvinnulíf okkar Íslend-
inga. Stór fyrirtæki ná að bregðast
við háum vöxtum með því sækja
fjármálaþjónustu út fyrir landstein-
ana og bankar dafna að vonum vel.
Háir vextir koma hins vegar verst
niður á ungum, litlum eða meðal-
stórum og fjármagnsfrekum fyrir-
tækjum sem eru að byggja upp
þekkingu og þróa framleiðslu sína.
Vextirnir valda því að dýrt verður
að fjármagna slík fyrirtæki. Hætt-
an er því sú að þessi fyrirtæki, sem
flest hver eiga í alþjóðlegri sam-
keppni, lifi tæpast og ýmist deyi
eða flýi af landi brott.
Því miður eru þetta ekki hag-
fræðilegar vangaveltur heldur stað-
reynd. Sprotafyrirtæki í tölvu-
tækni, sem skiptu tugum og
hundruðum fyrir þremur árum, eru
horfin, – sum til útlanda eins og t.d.
Oz og önnur undir græna torfu. Ein
helsta skýringin er sú að fjármögn-
un þessara fyrirtækja hefur verið
miklu dýrari hér en annars staðar.
Mál þetta er mun alvarlegra en
ætla mætti í fyrstu. Ástæðan er sú
að vaxtarbroddur atvinnulífs á
Vesturlöndum er í litlum og með-
alstórum fyrirtækjum í þekkingar-
greinum. Efnahagsumhverfi hér á
landi er slíkum fyrirtækjum óvin-
veitt.
Ekki er annað að skilja á við-
horfum stjórnvalda, – einkum for-
sætisráðherra, Davíðs Oddssonar,
en að háir vextir séu það verð sem
íslenskt efnahagslíf verði að greiða
fyrir íslensku krónuna og þann
sveigjanleika sem hún gefur. Stöð-
ugleiki og lágir vextir eru sam-
kvæmt áherslum stjórnarherra
víkjandi markmið.
Efnahagsstefna núverandi
stjórnvalda er því stefna sem þjón-
ar fjármálafyrirtækjum og þeim
stórfyrirtækjum sem hafa áratuga
rætur. Hún vinnur gegn litlum og
meðalstórum fyrirtækjum í þekk-
ingar- og þróunarstarfsemi. Efna-
hagsstefnan þjónar fyrirtækjum
liðinnar aldar, – ekki fyrirtækjum
framtíðar.
Þekkingar- og þróunarstarf-
semi ekki vært hér á landi
Eftir Ásgeir
Friðgeirsson
„Vaxtar-
broddur at-
vinnulífs á
Vesturlönd-
um er í
litlum og meðalstórum
fyrirtækjum í þekking-
argreinum.“
Höfundur er ritstjóri og tekur
þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi.
OKKAR METNAÐUR - ÞINN ÁRANGUR
Á besta stað miðsvæðis í borginni
Til sölu eða leigu á Hallveigarstíg 1 glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 2., 3. og 4. hæð með útsýni yfir borgina
Nánari uppl. gefur Karl Jónsson í síma 896 2822, netfang: karl@fasteignathing.is
Alls er um að ræða 1179 fm á þremur hæðum:
• Nýlega tekið í gegn að utan og innan.
• Staðsetning með því besta sem gerist miðsvæðis í Reykjavík.
• Lyfta á öllum hæðum.
• Bílageymsluhús og næg bílastæði umhverfis húsið.
• Hæðunum fylgja 40 bílastæði í bílageymsluhúsi.
• Aðgangur að veislu- og fundarsölum í kjallara.
• Tilbúið til afhendingar.
• 2. hæð: Stærð 438 fm, afgreiðsla, 13 skrifstofur, 2 fundarher-
bergi, ljósritunarherbergi, geymslur, kaffistofa og salerni.
• 3. hæð: Stærð 438 fm, afgreiðsla, 9 skrifstofur, 2 fundarsalir,
ljósritunarherbergi, geymslur, eldhús og salerni ásamt stiga
upp á 4. hæð.
• 4. hæð: Stærð 303 fm, stigapallur, 11 skrifstofur (5 stærri/6
minni), ljósritunarherbergi, geymslur og salerni. Lyfta læsan-
leg. Svalir með útsýni.
• Til greina kemur að selja húsið í heild sinni, samtals 3.300 fm.
• Húsið sjálft er mjög glæsilegt - Hagstæð kjör.