Morgunblaðið - 17.10.2002, Síða 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 45
Okkur systkinin langar í örfáum
orðum að minnast langömmu okkar,
Kristínar Jóhannsdóttur. Amma
Kristín var afskaplega hrein og bein
kona, hún bar ekki tilfinningar sínar
á torg, en faðmlögin hennar, þegar
við heilsuðumst og kvöddumst,
sýndu það hins vegar hve vænt
henni þótti um okkur – svo ekki sé
talað um ljóðin sem við fengum alltaf
KRISTÍN
JÓHANNSDÓTTIR
✝ Kristín Jóhanns-dóttir fæddist í
Bolungarvík 31.
ágúst 1910. Hún lést
á elliheimilinu
Grund 3. september
síðastliðinn. Kristín
var eitt fimm barna
Jóhanns Hjaltasonar
og Guðnýjar Guð-
jónsdóttur.
Kristín giftist Þor-
geiri Lúðvíkssyni frá
Fáskrúðsfirði, f. 27.
júlí 1900, d. 13. mars
1967. Þau áttu sex
börn. Barnabörnin
eru fjórtán.
Útför Kristínar var gerð í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
frá henni inn í öll kort,
bæði jóla- og afmæl-
iskort.
Hún var fyrirmynd-
arhúsmóðir, alltaf að
þrífa, og þau voru ófá
skiptin sem amma
Hjödda, dóttir hennar,
kom að henni klifrandi
uppi á stólum með
tuskuna á lofti, allt
varð að vera hreint og
fínt. Ekki má heldur
gleyma að minnast á
hve fín hún var til fara
og ilmaði alltaf áber-
andi vel.
Það eru slík minningabrot sem við
gleðjumst yfir nú þegar amma
Kristín er dáin.
Nú er kveðjustundin runnin upp
elsku amma, hvíl þú í friði.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín langömmubörn,
Hjördís Halldóra og
Guðmundur Þórir.
✝ Inga HreindalSigurðardóttir
fæddist í Reykjavík
3. febrúar 1932. Hún
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 5. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Sigurður Kristjáns-
son, f. 14.2. 1897, d.
28.11. 2001, og
Kristjana Bjarna-
dóttir, f. 3.10. 1910.
Systkini Ingu eru:
Bjarni, f. 22.11.
1928, d. 25.10. 1981,
Björg, f. 14.2. 1930,
Sigurður, f. 3.6. 1936, Elsa, f.
16.4. 1941, og Ásgeir, f. 12.6.
1945.
Hinn 31.12. 1954 giftist Inga
Kristjáni N. Mikaelssyni, flug-
manni frá Akureyri, f. 4.6. 1920.
Foreldrar hans voru: Mikael Mar-
teinn Guðmundsson, skipstjóri á
Akureyri, f. í Hrísey 29.10. 1886,
d. 25.3. 1922, og Gunnlaug Krist-
jánsdóttir húsfreyja, f. 18.3. 1894,
d. 7.8. 1957. Börn Ingu og Krist-
jáns eru: 1) Bjarni Róbert, f. 19.2.
1950, í sambúð með
Arndísi Einarsdótt-
ur. Hann á tvö börn,
Andreu og Kristján.
2) Gunnlaug, f. 3.6.
1955, í sambúð með
Gunnari Þ. Árna-
syni. Hún á eitt
barn, Rakel Maríu.
3) Sigrún, f. 15.6.
1963, hún á tvö
börn, Ingu Hrönn og
Viktor Fannar. 4)
Ragnhildur, f. 18.7.
1966, hún á eitt barn
Róbert Mikael.
Inga og Kristján
byrjuðu að búa í Reykjavík, fluttu
síðan til Vancouver í Kanada árið
1956. Síðan til Minneapolis í
Bandaríkjunum og bjuggu þau
þar til ársins 1962, stunduðu þar
ýmis störf, hann við flugið og hún
við sjúkrahúsið. Heim komin
byggðu þau sér hús í Garðabæ og
bjuggu þar meðan heilsan leyfði.
Fluttu svo á Hrafnistu í Hafnar-
firði.
Útför Ingu fór fram í kyrrþey
miðvikudaginn 16. október.
Elsku amma mín. Nú ert þú orð-
in ein af englunum sem þú sendir
alltaf á sængina til okkar. Ég veit
að þér líður miklu betur hjá þeim
og ert laus við þjáningarnar sem
fylgdu sjúkdómnum sem þú barðist
við. Þú varst svo mikil hetja, þú
kvartaðir aldrei né gafst upp. Lífs-
gleðin skein af þér og þú varst allt-
af jákvæð. Það var alltaf svo gott
að koma til ykkar afa í bleika
hosiló. Þú hafðir alltaf svo fínt og
fallegt í kringum þig, herbergið var
fullt af bleikum blómum og blúnd-
um.
Elsku amma mín, þú hefur alltaf
átt stóran hluta af hjartanu mínu.
Þú varst alltaf til staðar fyrir mig
þegar ég var lítil. Allar mínar
æskuminningar á ég hjá þér og afa
í Aspó. Þegar við fluttum úr kjall-
aranum kom ég hverja helgi til að
vera hjá ykkur. Þú tókst alltaf vel á
móti mér og ég fann að ég átti enn
heima hjá þér. Ég man að þú dans-
aðir um heimilið, syngjandi þegar
þú tókst til. Þú varst fyrirmyndin
mín, svo lífsglöð og falleg. Ég lærði
svo margt af þér. Þú kenndir mér
Faðir vorið, kenndir mér að steikja
lummur og stoppa í sokkana hans
afa. Það var svo gaman þegar ég og
Rakel fengum að klæða okkur upp í
alla litríku, silki náttkjólana þína.
Þá urðum við prinsessur.
Elsku amma, ég er svo stolt að
bera nafnið þitt. Ég sakna þín svo
sárt en það huggar mig að þér líður
vel núna. Ég veit líka að nú vakir
þú yfir mér á sænginni minni. Þú
ert engill sem situr á bleiku skýi og
vakir yfir okkur öllum.
Þú ert allar perlur hafsins, allar
stjörnur á himnum og öll bleik
blóm jarðar. Þú ert einstök.
Þín
Inga Hrönn.
Elsku Inga mín, ég þakka þér
fyrir að hafa átt þig fyrir systur.
Þú varst engri lík, alltaf svo jákvæð
og góð við alla.
Alltaf gast þú gert gott úr öllu og
allt svo skemmtilegt. Eins og þegar
þú bjóst til hafragraut handa
barnabörnunum og settir rúsínur
út á, þá hét það diskógrautur og
allir vildu meira.
Þótt ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum, hugsið ekki um
dauðann með harmi eða ótta. Ég er
svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur, þótt látinn
mig haldið. En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug, lyftist sál
mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð
og þakklát fyrir allt sem lífið gefur
og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði
ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Þið Kristján reistuð ykkur hús í
Garðabænum af mikilli elju og
dugnaði.
Þú varst ekki lengi að slá þínum
töfrum yfir það, með fallegum lit-
um og smekkvísi.
Sjálf varst þú eins og rós á heim-
ilinu. Tókst vel á móti öllum, alltaf
vel til höfð og falleg og geislaðir út
frá þér kærleika.
Mig langar að kveðja þig með
bæninni eftir pabba okkar sem við
héldum svo mikið upp á.
Faðir gef mér trygga trú,
og traust á innri sýn.
Svo ég geti byggt mér brú,
sem ber mig heim til þín.
(Sigurður Kristjánsson.)
Þakka þér fyrir allt, elsku Inga
mín.
Elsa systir.
Liðin er æfi
löng og fögur,
kvöldið komið
með hvíld og frið;
Ég kveð þig, elsku hjartans
frænka mín. Ég kynntist þér fyrst í
gegn um mömmu sem skrifaðist á
við þig í Ameríku í 6 löng ár. Þið
Kristján fóruð út með Gullý og Ró-
bert. Ég saknaði ykkar, en mamma
þó mest. Hún skrifaði oft. Fyrir-
mynd sem varð mér gott veganesti
þegar ég flutti til Noregs. Þú
vannst sem aðstoðarhjúkrunar-
kona og varst svo góð og glæsileg.
Þegar þið fluttuð heim 1962 var
það mikill fengur að fá ykkur til
okkar. Við vorum orðin fjögur
systkinin og yngsta systir mín var
skírð í höfuðið á þér. Eftir það
varst þú kölluð Inga stóra. Þið
komuð með gjafir til okkar frá Am-
eríku, Maggi litli bróðir fékk
Tjalla, stóran apa, og hann á hann
enn. Við fjölskyldurnar bjuggum
saman í nokkra mánuði. Alltaf var
jafn yndislegt að hittast eftir það.
Þá voru bakaðar súkkulaðitertur
og börnin nutu þess að fá heim-
sókn. Svo varð ykkar fjölskylda
stærri, Sigga og Ragga fæddust og
þið fluttuð í húsið ykkar í Garð-
arbæ. Eftir að þið fluttuð inn á
Hrafnistu hafa heimsóknirnar
hennar mömmu orðið æ tíðari. Nú
eru það við sem skrifumst á og
Inga frænka hefur átt hug hennar
allan. Það er mér ánægja að fá
fregnir af umhyggjunni sem
frænka mín varð aðnjótandi, í gegn
um langa baráttu við veikindin og
síðan sofna sátt og róleg í faðmi
fjölskyldunnar sinnar og trúnni á
Jesú Krist.
Ó, systir mín, ég krýp við kistu þína,
af hvarmi falla tárin þung og heit,
en vorsins geislar vonarbjartir skína
og vekja fegurst blóm á grafarreit.
(Björg Sigurðardóttir.)
Kristjana Jóhannsdóttir
í Noregi.
INGA HREINDAL
SIGURÐARDÓTTIR
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Okkar ástkæri eiginmaður og faðir,
SIGURGEIR GUÐJÓNSSON
rafvirkjameistari,
Hraunbæ 102 H,
Reykjavík,
lést af slysförum sunnudaginn 13. október sl.
Jarðarför fer fram frá Árbæjarkirkju miðviku-
daginn 23. október kl. 13.30.
Arna Sæmundsdóttir,
Jóhanna Margrét Sigurgeirsdóttir,
Sigurgeir Örn Sigurgeirsson
og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSDÍS ÍSLEIFSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum Hringbraut mánudag-
inn 14. október.
Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mið-
vikudaginn 23. október kl. 13.30.
Theodóra Ragnarsdóttir, Róbert A. Spanó,
Atli Ísleifur Ragnarsson, Ágústa Hermannsdóttir,
Örn Ragnarsson,
Soffía Ragnarsson, Loftur Þorsteinsson,
Hildur Sólveig Ragnarsdóttir, Ólafur Þór Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG PÉTURSDÓTTIR
frá Langholti,
Grænumörk 3,
Selfossi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 9. október.
Jarðsett verður frá Hraungerðiskirkju laugardaginn 19. október
kl. 13.30.
Þorsteinn Hermannsson, Bára Guðmundsdóttir,
Steinunn Hermannsdóttir,
Helga Hermannsdóttir, Óli A. Haraldsson,
Pétur Hermannsson, Bjarney Sigurlaugsdóttir,
Alda Hermannsdóttir, Tryggvi K. Gestsson,
Hermann Hermannsson,
Hreggviður Hermannsson, Hjördís Helgadóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
Maðurinn minn,
KRISTINN GESTSSON
píanóleikari,
Kársnesbraut 11,
Kópavogi,
lést mánudaginn 14. október síðastliðinn.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og
barnabarna,
Ásdís Gísladóttir.
Okkar ástkæra
KOLBRÚN ÓSK ÓLAFSDÓTTIR,
til heimilis á deild 20,
Landspítalnum Kópavogi,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 14. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólafur Kristinsson, Regína Heincke,
Vilhjálmur Magnússon, Ólöf Björnsdóttir,
Guðni Rúnar,
Hanna Ruth.