Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 46
MINNINGAR
46 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Nikólína Bjarna-dóttir fæddist í
Reykjavík 24. júlí
1931. Hún andaðist á
heimili sínu í Hampt-
on í Virginíufylki í
Bandaríkjunum 10.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Bjarni Ólafsson
bókbindari frá Eyr-
arbakka, f. 11. maí
1888, d. 26. október
1981, og Pálína
Þórðardóttir hús-
móðir, frá Há-
varðarkoti í Þykkva-
bæ, f. 5. júní 1903, d. 1. júlí 1966.
Lína var þriðja í röð fimm systk-
ina en þau eru: Guðlaug Stella,
bókbindari, búsett í Oklahóma, f.
8. apríl 1929, Kristín, vann við
bókband í Ísafoldarprentsmiðju,
og Edda, búsett í Reykjavík, f. 19.
júní 1930, Sigríður Þóra, hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík, f. 17.
september 1937, og Ólafur Guðni,
bankamaður í Reykjavík, f. 13.
desember 1943. Lína giftist Ro-
bert Dale Rodgers 31. desember
1953. Þau skildu. Börn þeirra eru:
1) Páll Birgir, verslunarstjóri í
Houston í Texas, f. í Reykjavík
18.3. 1953. Barn
með fyrri eiginkonu
er Terry Zenkel, f.
20.8. 1976. Seinni
eiginkona Nita, f.
3.11. 1960. Börn
þeirra eru Anthony
Páll, f. 17.5. 1990,
Aubrey Nikolína, f.
31.10. 1992, og
Matthew Tyler, f.
17.11. 1995. 2) Helen
Diana, f. í Reykjavík
26.8. 1954. Giftist
John Edward Thom-
son, þau skildu.
Börn þeirra eru
Shannon Dawn, f. 16.9. 1972, og
Amy Leigh, f. 13.1. 1977. 3) Ro-
bert Dale, f. í Bandaríkjunum
24.7. 1956. 4) Debra Susan, f. í
Reykjavík 27.7. 1959. 5) Karl Ró-
bert, f. í Reykjavík 21.10. 1960,
kvæntur K. Gayle, f. 18.10. 1965.
Börn þeirra eru Brandon Karl, f.
9.6. 1992, og Kelly Danielle, f. 2.5.
1997. Öll börnin og barnabörnin
eru búsett í Bandaríkjunum.
Útför Línu var gerð frá kirkju
hennar í Hampton í Virginíu
mánudaginn 14. október síðastlið-
inn. Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði í Reykjavík.
Nikólína Bjarnadóttir eða Lína
eins og hún kaus að kalla sig alla tíð
er látin. Hún lést á heimili sínu í
Hampton, Virginíufylki í Bandaríkj-
unum hinn 10. október síðastliðinn.
Lína hafði ekki verið veik og kom
því fráfall hennar með miklum
þunga á hennar nánustu. Ég votta
þeim öllum mína dýpstu samúð um
leið og ég kveð þennan góða vin
minn og sálufélaga hinstu kveðju
þessa jarðneska lífs. Lína átti miklu
láni að fagna í æsku og á unglings-
árum. Hún átti fyrirmyndar for-
eldra og fallegt heimili, ásamt væn-
um systkinahóp. Faðir hennar var
heiðvirðasti og æðrulausasti maður
sem ég hefi kynnst, maður sem
flestir Íslendingar hefðu mátt taka
sér til fyrirmyndar. Móðir hennar
var af þeim stuttu kynnum er ég
hafði af henni sú glaðasta, um-
hyggjusamasta kona sem hugsast
getur og gaf frá sér meiri hlýju en
ég man í annan stað. Þessi minning
mín um þau hjónin Bjarna Ólafsson,
og Pálínu Þórðardóttur er svo
greypt mér í hug að ef góður Íslend-
ingur er nefndur verður samanburð-
urinn við þau alltaf tiltækur og alltaf
ofaná. Hjá þessum yndislegu hjón-
um ól Lína sinn aldur allt þar til að
hún gifti sig, sinni einu sönnu ást,
Robert Dale Rodgers en þau höfðu
kynnst á Hótel Borg og orðið ást við
fyrst sýn.
Eftir giftinguna og veglega veislu
er Bjarni og Pálína héldu þeim á
Kaffi Höll í Austurstræti, hélt Lína
út í lífið með sínum eiginmanni sem
þá var orðinn atvinnuhermaður.
Þetta var sú tilvera sem Guð hafði
ætlað henni og hún fylgdi eigin-
manni sínum milli herstöðva, og til
allrar hamingju fékk hann í tvígang
fyrirmæli um dvöl á stöð varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli, foreldrum
hennar og öðrum nánum ættingjum
til mikillar gleði. Sigríður Þóra,
systir Línu hefir sagt mér að þessir
tímar hafi verið afar skemmtilegir
bæði fyrir þau hjónin en ekki síður
fyrir ættingjana sem komu oft í
heimsókn og þáðu kræsingar sem
ekki var annars staðar að fá í þessu
landi.
Hjónaband Línu og Roberts var
mjög gott og voru þau hamingjusöm
allt þar til hið hörmulega Víetnam-
stríð skall á og atvinnuhermaðurinn
þurfti að gegna skyldu sinni í tví-
eða þrígang og fara þangað. Það
batt að lokum enda á hjónaband
þeirra. Fáeinum árum eftir skilnað
tókst með þeim vináttusamband
sem hélst æ síðan. Vissi ég að Lína
var þessu mjög fegin, ekki síst
vegna barna þeirra fimm sem nutu
þess að halda íslensk jól með pabba
og mömmu ásamt og barnabörnum.
Róbert er, af þeim er til þekkja,
sagður drengur góður.
Mestu kynni mín af Línu urðu þá
er hún ákvað að flytja til íslands og
setjast hér að. Þetta var eftir að
börnin voru uppkomin. Þegar hún
kom hafði ég ekki séð hana frá því
1973. Mér þótti hún falleg og tign-
arleg að sjá og ekki síst bar hún með
sér ákveðið hugrekki í fasi og fram-
mgaungu, þrátt fyrir erfiða ákvörð-
un að yfirgefa landið þar sem hún
hafði svo lengi dvalið. Á þessum
tíma náðum við mjög vel saman,
ræddum margt sem ekki verður
rakið hér. En allar voru þessar sam-
ræður okkar jákvæðar og uppbyggj-
andi. Ég veit nú að Lína þurfti að
flytja til Íslands til þess að finna sig,
þreifa landið góða og átta sig á hvað
hún vildi. Hún elskaði Ísland, ræt-
urnar voru hér en sálin fyrir vestan.
Hún ákvað að flytja aftur utan. Eftir
heimkomuna til Hampton tók hún til
við fyrri störf, bjó í námunda við
þrjú barna sinna og barnabarna og
varð bæði glöð og hamingjusöm
móðir og amma allt þar til yfir lauk.
Ég talaði síðast við hana á afmæl-
isdegi hennar 24. júlí og var hún þá
afar ánægð og kát, glettin og létt í
lund. Þannig vil ég muna þessa fal-
legu hógværu konu, vin minn með
réttu.
Einar G. Ólafsson.
LÍNA BJARNA-
DÓTTIR RODGERS
AFMÆLIS- og minningar-
greinum er hægt að skila í
tölvupósti (netfangið er minn-
ing@mbl.is, svar er sent sjálf-
virkt um leið og grein hefur
borist), á disklingi eða í vélrit-
uðu handriti. Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að
fylgja. Nauðsynlegt er að síma-
númer höfundar og/eða send-
anda (vinnusími og heimasími)
fylgi með. Bréfsími fyrir minn-
ingargreinar er 569 1115. Ekki
er tekið við handskrifuðum
greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi. Einn-
ig er hægt að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–
15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri
grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUNNLAUGUR MAGNÚSSON,
Rauðalæk 4,
sem lést sunnudaginn 13. október sl., verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn
18. október kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Félag
aðstandenda alzheimerssjúklinga.
Maggý Valdimarsdóttir,
Vilborg Gunnlaugsdóttir, Gamalíel Sveinsson,
Einar Gunnlaugsson, Hildigunnur Þorsteinsdóttir,
Björg Gunnlaugsdóttir Long, Gary Long,
Sigríður Gunnlaugsdóttir Bak, Brian Bak
og barnabörn.
Konan mín og móðir okkar,
ÞÓRNÝ ELÍN ÁSMUNDSDÓTTIR,
Starrahólum 7,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 9. október verður jarð-
sungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
18. október kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Júlíusson,
Gunnar Júlíus Guðmundsson,
Arnþór Fannar Guðmundsson,
Berglind Björg Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
UNNAR SÍMONAR,
Hringbraut 32,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heima-
hlynningar, krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut og 5L
líknardeildar Landakots fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Í stað þakkarkorta hafa afkomendur Unnar Símonar ákveðið að styrkja
Krabbameinsfélagið í hennar minningu.
Kristján Jóhann Agnarsson, Andrea Guðnadóttir,
Agatha Agnarsdóttir,
Margrét Kolka Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR,
frá Sólbakka, Grindavík,
til heimilis í Víðihlíð,
heimili aldraðra í Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugar-
daginn 19. október kl. 14.00.
Sigurður Garðarsson, Brynhildur Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg Garðarsdóttir,
Jóhanna Garðarsdóttir, Gestur Ragnarsson,
Kristinn Garðarsson, Svava Gunnlaugsdóttir,
Ester Garðarsdóttir, Gísli Ófeigsson,
Eygló Garðarsdóttir, Hafsteinn Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERTA HANNESDÓTTIR,
Fellsmúla 4,
Reykjavík,
sem lést á Grensásdeild Landspítalans fimmtu-
daginn 10. október, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík á morgun, föstudaginn
18. október kl. 13.30.
Edda G. Garðarsdóttir, Jón Waage,
Guðmundur Snorri Garðarsson,
Hannes Garðarsson, Dagný Þorfinnsdóttir,
Guðrún Garðarsdóttir, Jan Ingimundarson,
Erla Gígja Garðarsdóttir, Stefán E. Petersen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn og fósturfaðir,
ÖGMUNDUR FR. HANNESSON,
Stórholti 35,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi þriðjudagsins 15. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnhildur Sigurjónsdóttir,
Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNATAN KRISTLEIFSSON,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 9. októ-
ber sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju á morgun,
föstudaginn 18. október, kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Jónatansdóttir, Björgvin Þórisson,
Kolbrún Jónatansdóttir, Árni Leósson,
Gunnar Jónatansson,
barnabörn og barnabarnabörn.