Morgunblaðið - 17.10.2002, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Cec
Fighter kemur og fer í
dag, Lómur kemur í
dag. Apostol Andrey,
Freyja, Helgafell, Jo
Elm og Dettifoss fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Örvar kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Heilsum
vetri föstudag 18. okt. kl.
14, hátíðarbingó, ein-
söngur Geir Jón Þór-
isson. Harmonikkuleik-
arar leika fyrir dansi,
góðar kaffiveitngar. All-
ir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 9-12 op-
in handavinnustofa, kl.
9-12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.45-10
helgistund, kl. 10.15 leik-
fimi, kl. 11 boccia, kl. 13-
16.30 opin smíða og
handavinnustofa, kl. 10-
16 pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9-
9.45 leikfimi, kl. 9-12
myndlist, kl. 9-16 handa-
vinna, kl. 13 bókband, kl.
14-15 dans.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagar úr
Akranesfélaginu koma í
heimsókn í Lionshúsið,
Auðbrekku 25-27 laug-
ardag 26. okt. Þátttak-
endur skrái sig sem
fyrst á þátttökulista sem
eru í félagsheimilunum.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarf mánu-
og fimmtudaga. Mánu-
dag kl. 16 leikfimi.
Fimmtudag kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15-16 bókaspjall,
kl. 17-19 æfing kórs eldri
borgara í Damos. Laug-
ardag kl. 10-12 bókband,
línudans kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8-16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9-12
íkonagerð, kl. 10-13,
verslunin opin, kl. 13-16
spilað.
Félagsstarfið, Dalbraut
18-20. Kl. 8-16 opin
handavinnustofan, kl. 9-
12 íkonagerð, kl. 10-13
opin verslunin, kl. 13-16
spilað, kl. 9.30 dans-
kennsla.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Kl. 9, smíðar, út-
skurður, leirmunagerð
og almenn handavinna.
Verslunarferð í Aust-
urver kl. 9.45, boccia kl.
13.30. Á morgun kl. 14
messa. Prestur sr. Ólaf-
ur Jóhannsson, Furu-
gerðiskórinn syngur
undir stjórn Ingunnar
Guðmundsdóttur.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-16.30
glerskurður, kl. 10 leik-
fimi, kl. 15.15 samkvæm-
isdansar. Í tilefni af 10
ára opnunarafmæli fé-
lagsmiðstöðvarinnar
verður afmælisfagnaður
18. október, kvöldverð-
ur, skemmtiatriði og
fluttur annáll stöðv-
arinnar í léttum dúr.
Dansað, hljómsveit
Hjördísar Geirs. Allir
velkomnir. Mál-
verkasýning Gerðar Sig-
fúsdóttur lýkur í næstu
viku.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeið í
skyndihjálp fyrir eldri
borgara í 2 daga, 18. og
21. október, og seinna
námskeiðið 25. og 28.
október. Skráning í s.
820 8571 kl. 14-15 virka
daga.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað í
Hraunseli kl.10, bingó
kl. 13.30 og glerskurður
kl. 13. Dansleikur á
morgun, föstudaginn 18.
október, kl 20.30 Cabrí
tríó leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fimmtudag
brids kl. 13, framsögn kl.
16.15, söngfélag FEB
söngæfing kl. 17, brids-
námskeið kl. 19.30.
Föstudag félagsvist kl.
13.30. Skemmtun í Ás-
garði Glæsibæ föstudag
18. okt. kl. 20 kórsöngur
og hljómsveitin Skjern
Salonorkester leikur
fyrir dansi. Heilsa og
hamingja, Ásgarði
Glæsibæ laugardag 26.
okt. kl. 13. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt að Faxa-
feni 12 s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Fé-
lagið hefur opnað heima-
síðu www.feb.is. Uppl. á
skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi spilasalur opinn,
frá kl. 13.30 vinnustofur
opnar, kl. 13. hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um. Allar uppl. um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30-15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 17.15
kínversk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Í tilefni al-
þjóðaviku í Kópavogi
verður fjölþjóðlegur
dansdagur í Gjábakka
24. okt. og hefst með
dagskrá kl. 14. Sýndir
verða ýmsir dansar. Er-
indi um dansinn í tímans
rás flytur Ingibjörg
Björnsdóttir. Dagskráin
er án endurgjalds, allir
velkomnir, íslenskt
kaffihlaðborð.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13 brids, kl. 13-16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Fjölþjóðlegt málþing um
félagslega stöðu aldraða
í mismunandi sam-
félögum verður haldið í
félagsheimilinu Gull-
smára þriðjudag 22.
október kl. 13.15. Fyr-
irlesarar frá Íslandi,
Ghana, Víetnam, Pól-
landi og Mexikó. Söngur
frá Japan. Skráning fyr-
ir mánudag 21. október,
s. 564 5260.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
bútasaumur, kl. 10
boccia, kl.13 handavinna,
13.30 félagsvist.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmudag kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13-16.45
leir, kl. 10-11 ganga, kl.
14-15 jóga. Messa kl.
10.30, prestur sr. Kristín
Pálsdóttir.
Vesturgata 7. Kl. 9.15-
15.30 almenn handa-
vinna, kl. 10-11 boccia,
fyrirbænastund kl.10.30,
umsjón séra Hjálmar
Jónsson dóm-
kirkjuprestur. Þorvald-
ur Halldórsson söngvari
syngur nokkur lög. Allir
velkomnir. Kl.13-16 kór-
æfing og mósaik.
Föstud. 18. okt. kl.13.30
sungið við flygilinn,
kl.14.30-16 dansað.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður,
körfugerð og morg-
unstund, kl. 10 boccia,
kl. 13 handmennt og
spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Kl. 14 í Setr-
inu, samverustund
„vinafundur“, fólk hjálp-
ast að við að vekja upp
gamlar og góðar minn-
ingar. Sr. Tómas og Þór-
dís þjónustufulltrúi sjá
um stundina.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl.
19.30 tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Bænastund kl. 17.
Allar konur velkomnar
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45 spil hefst kl. 13.
Snæfellingar. Munið
árshátíð Félags Snæfell-
inga og Hnappdæla í
Reykjavík, í Breiðfirð-
ingabúð laugardag 19.
október. Góðir gestir að
vestan, koma í heim-
sókn. Heiðursgestir
verða hjónin Elín Sig-
urðardóttir ljósmóðir og
Sigurður Ágústsson úr
Stykkishólmi. Miðasala í
dag í Breiðfirðingabúð
kl. 17-19.
Í dag er fimmtudagur 17. október,
290. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
En halt þú stöðuglega við það, sem
þú hefur numið og hefur fest trú á,
þar eð þú veist af hverjum þú
hefur numið það.
(2.Tím. 3, 14.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 borginmannleg, 8
manna, 9 hitann, 10 ílát,
11 spjald, 13 fífl, 15 sam-
tölu, 18 fatnaðurinn, 21
þegar, 22 húsdýrið, 23
duftið, 24 friðland.
LÓÐRÉTT:
2 leyfi, 3 knáa, 4 bágindi,
5 eljusamur, 6 styrkt, 7
hávaði, 12 fugl, 14 ham-
ingjusöm, 15 árás, 16
hrósar, 17 starfað, 18 ux-
ans, 19 setja í umbúðir, 20
nálægð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 passa, 4 sýpur, 7 kætir, 8 rolan, 9 slý, 11 röng,
13 grói, 14 eldur, 15 hlýr, 17 ásar, 20 bak, 22 leiti, 23 úlf-
úð, 24 renna, 25 armur.
Lóðrétt: 1 púkar, 2 sætin, 3 aurs, 4 strý, 5 púlar, 6 rengi,
10 lydda, 12 ger, 13 grá, 15 hælir, 16 ýtinn, 18 sefum, 19
ræður, 20 bila, 21 kúra.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA finnst alltaf jafn-gaman að skreppa í kaffi hjá
Blóðbankanum og leggja inn hálfan
lítra blóðs. Víkverji var 19 ára þeg-
ar hann gaf blóð í fyrsta skipti, eftir
að hafa verið smalað niður í Blóð-
banka ásamt fjölda skólafélaga
sinna. Allt gekk þetta vel, nema
hvað það leið yfir Víkverja áður en
hann komst að kaffihlaðborðinu.
Hann náði sér þó fljótt og lét þetta
ekki aftra sér frá því að koma þrem-
ur árum seinna til að gefa blóð.
Blóðgjafirnar eru nú orðnar 18 og
telur Víkverji góðar líkur á að hann
komist í hóp „hundraðshöfðingja“
eftir 20 ár, en svo eru þær kempur
nefndar sem hafa gefið blóð 100
sinnum.
x x x
SMALAMENNSKU í mennta-skólum stundar starfsfólk Blóð-
bankans ekki vegna þess að það
kemst ekki í alvöru réttir, heldur er
um að ræða bráðnauðsynlegan þátt
í starfsemi Blóðbankans til að auka
nýliðun í hópi blóðgjafa. Á heima-
síðu Blóðbankans segir að megin-
viðfangsefni blóðbankastarfseminn-
ar sé að fullnægja þörfum
sjúkrahúsanna fyrir blóð og blóð-
hluta. „Nútíma skurðlækningar eru
óframkvæmanlegar nema þær eigi
að bakhjarli blóðbankaþjónustu til
að bæta sjúklingi upp hættulegan
blóðmissi, sem hann verður fyrir við
skurðaðgerðina,“ segir þar.
Á heimasíðunni kemur einnig
fram að 15–16 þúsund blóðgjafir
þurfi árlega til að anna eftirspurn
eftir blóðhlutum. „Það eru 8.000–
9.000 blóðgjafar sem standa undir
þessari blóðgjöf. Blóðgjafahópurinn
er að eldast. Nýliðun, þótt nokkur
sé, er ekki næg og er því unnið af
krafti að öflun nýrra blóðgjafa. Góð-
ur blóðgjafahópur er ein af und-
irstöðum íslenska heilbrigðiskerfis-
ins eins og við þekkjum það í dag,“
segir á blodbankinn.is.
x x x
VÍKVERJI lítur líka á blóðgjöfsem fyrirtaks leið til að fylgj-
ast með heilsufari sínu, enda er ekki
ónýtt fá blóðþrýstingsmælingu fjór-
um sinnum á ári. Svo eru hjúkr-
unarkonurnar svo elskulegar og
hafa opið fram á kvöld tvisvar í
viku. Þá hefur Víkverji stundum
skroppið úr vinnunni síðla dags og
slakað vel á í heimsins þægilegasta
bekk inni í aðalsalnum. Hjúkrunar-
konurnar rabba við Víkverja og á
meðan malar dælan og safnar blóð-
inu. Satt að segja eru það hinar frá-
bæru hjúkrunarkonur sem hafa þau
áhrif að Víkverji getur varla beðið
eftir að fá að koma aftur í heimsókn.
Víkverji var í blóðgjafakeppni við
skólasystur sína á háskólaárum sín-
um og man að hún hafði oftast tvær
eða þrjár gjafir fram yfir hann. Og
þegar Víkverji hóf störf á Morg-
unblaðinu fann hann nýjan og ekki
síðri keppinaut. Alltaf þegar Vík-
verji vonaðist til að keppinauturinn
hefði gleymt síðustu blóðgjöf var
vinurinn auðvitað mættur daginn
eftir með bannsettan plásturinn á
handleggnum, glottandi. Staðan var
síðast 17–13 fyrir hann. En blóð-
bankinn hagnast vonandi á svona
keppnisskapi fólks úti í bæ. Það
væri spurning um að efna til blóð-
gjafakeppni milli heilu fyrirtækj-
anna?
Annars verður Blóðbankinn víst
fimmtugur á næsta ári. Merkisaf-
mæli það og spennandi að sjá
hvernig haldið verður upp á áfang-
ann.
Á FJÖLSÓTTUM fundi
sem haldinn var á vegum
Samtaka eldri sjálfstæðis-
manna í Valhöll 30. maí
2001, fluttir þú ávarp sem
lauk með þeirri yfirlýsingu,
að ríkisstjórnin væri að und-
irbúa að láta fella niður í
áföngum eignaskatt af íbúð-
um aldraðra. Þetta útspil
fékk mjög góðar undirtektir
fundarmanna, en eitthvað
virtist það koma alþingis-
manninum á óvart, sem átti
að tala um hvort eignaskatt-
ur væri réttlætanlegur, og
setti hann út af laginu. Það
hvarflaði að mér að hér væri
skyndi-tálbeitt á staðnum
án kynningar í þingflokki
eða ríkisstjórn. Er leið að
hausti reyndi ég að spyrjast
fyrir í forsætis- og fjármála-
ráðuneytum, en þar hafði
enginn heyrt um málið og
styrkti það grun minn, en
beið þó og vonaði að þú
gerðir þig ekki að ómerk-
ingi, hafði hugmynd um að
svona mál gætu tekið hátt í
ár í meðförum ráðuneyt-
anna. Nýlega spurðist ég
fyrir á skrifstofu FEB um
þessi skattamál og fékk þau
svör, að á fundi dagana áður
með fjármálaráðherra hefði
verið farið fram á þessa nið-
urfellingu ásamt öðrum
málum og fékk hún slæmar
undirtektir. Það er vonandi
ekki með þínu samþykki að
orð þín á fundinum voru
gerð ómerk. Í framhaldi
sakar ekki að geta þess að
með bréfi frá Reykjavíkur-
borg dags. 15.4. 2002 kom
tilkynning um lækkun fast-
eignagjalda á íbúð okkar
hjóna kr. 33.599 eða tæp
60%. Okkur munar um
þetta og er það greinilega
árangur af baráttu FEB.
En hvað höfum við fengið
frá þér og þinni ríkisstjórn?
Var ekki Björn Bjarnason í
sumar eitthvað að bram-
bolta með yfirboð á þessu
sviði í borgarstjórn? Hefði
honum ekki verið nær að
leggja sig fram um ein-
hverjar slíkar umbætur í
ríkisstjórninni? Nú fréttist
að hálf ríkisstjórnin sé að
stofna samráðs- eða sam-
starfshóp með sambandi
eldri borgara. Vonandi
verður það betri samráðs-
hópur en þeir fyrri, þar sem
mottó stjórnarliða virtist í
stíl við forn fleyg orð:
„Heyra mun ég mál þeirra,
en staðráðinn að hafa þau að
engu.“
Þórir Guðmundsson.
Frábær þjónusta
hjá Olís
ÉG vil endilega senda
kveðju til starfsmanna á
OLÍS-bensínstöðinni í
Hamraborg Kópavogi og
þakka fyrir frábæra þjón-
ustu. Þeir eru hressir, liprir
og hafa ótrúlega góða þjón-
ustulund. Þegar ég kem til
þeirra að taka bensín spyrja
þeir alltaf hvort þeir eigi að
athuga olíuna eða rúðuvökv-
ann og ef þannig viðrar að
framrúðan er grútskítug
þvo þeir hana alltaf, enda
hafa þeir undanfarna mán-
uði fengið bikarinn sem
þjónustustöð mánaðarins.
Húrra fyrir ykkur.
Kveðja
Elísabet Jónsdóttir
PM-443.
Tapað/fundið
Rautt peningaveski
tapaðist
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
11. október sl. kl. 22 varð 16
ára stúlka fyrir því óhappi
að tapa peningaveskinu sínu
í strætó, leið 66, sem ekur
innan Kópavogs. Veskið er
rautt og í því var aleiga
hennar.
Þetta er mikill missir og
er skilvís finnandi vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 869 6246.
Svartur bakpoki
tapaðist
AÐFARANÓTT sunnu-
dagsins 13. okt. sl. tapaðist
svartur bakpoki nálægt
Kringlunni. Í pokanum voru
skilríki og kort sem ein-
göngu eigandi hefur not fyr-
ir. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í s. 847 6195.
Dýrahald
Hefur einhver séð
þessa kisu?
HÚN heitir Díana Perla og
hennar er mjög sárt saknað.
Hún er með rauða ól en
ómerkt. Hún týndist
þriðjud. 8. október rétt hjá
Árbænum. Díana Perla er
innikisa og ratar því ekki
heim. Hún gæti verið í
Breiðholti eða Árbæ. Ef þú
heldur að þú hafir séð hana
vinsamlegast láttu vita í s.
567 4020 (Guðrún) eða
696 1825 (Erla).
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Fyrirspurn
til Davíðs Oddssonar
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16