Morgunblaðið - 17.10.2002, Síða 58
58 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök.
Missið ekki af þessari!
Nicholas Cage hefur aldrei verið betri!
Sýnd kl. 4 með ísl. tali.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
5.30, 8 og 10.30.
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 16.000 manns!
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Sýnd 5.15 og 10.40. B.i. 14.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. .
1/2Kvikmyndir.is
Ertu blindur
- fyrir örygginu?
Slökkvitæki fyrir sjónvörp.
H. Blöndal ehf.
S. 517 2121.
Sýnd 8. B.i. 14. Síðasta sýningSýnd kl. 6 og 8. Síðasta sýning
1/2Kvikmyndir.is
„DREP
FYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 16.000 manns!
Sýnd kl. 5.50 og 10.10. B. i. 16. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
1/2Kvikmyndir.is
ÞÓ að kvöldið í kvöld sé fyrsta op-
inbera tónleikakvöld Airwaves
hófst hátíðin með réttu síðastliðinn
mánudag þegar upplýsingamiðstöð
hátíðarinnar var opnuð á Sólon,
Bankastræti 7. Henni verður
svo slitið á sunnudag og þá
hafa loftbylgjurnar liðið
um í heila viku.
Erlenda gesti hefur ver-
ið að drífa að í vikunni;
fjölmiðlamenn, útgefendur
sem og tónlistaráhugamenn
en tugir íslenskra listamanna
sem erlendra munu troða upp um
bæinn þveran og endilangan næstu
daga.
Hvað er að gerast?
Fjölbreytileikinn er í fyrirrúmi í
kvöld sem og eftirleiðis. Gaukur á
Stöng verður lagður undir hipp
hopp þar sem m.a. Bent og Sjö-
berg og Afkvæmi guðanna koma
fram en báðir aðilar eru með plötu
fyrir jólin. Bandaríski rapparinn
J-Live lýkur svo kvöldinu.
Á Nasa verða m.a. Daysleeper
og Land og synir en einnig banda-
ríska rokksveitin Remy Zero, sem
hefur vakið athygli fyrir síðustu
plötu sína, The Golden Hum. Í
Iðnó verða rafrænir sálartónar en
hin hrynheita sveit frá Noregi,
Xploding Plastik, mun ljúka því
kvöldi. Á Vídalín mun svo síðrokk-
ið ráða ríkjum þar sem Úlpa og
Sofandi leika m.a. Einnig verða
þar kúrekar dauðans, The Funer-
als. Á Spotlight verður Thule út-
gáfan með kvöld og á Astró verður
breakbeat.is gestgjafi. Aðal-
snúðurinn þar verður DJ
Storm frá Metalheadz.
Afmæli Smekkleysu
verður þá haldið á Grand
Rokk og í Hinu húsinu
verður harðkjarnarokk,
með Snafu, I Adapt og
Klink t.d. Á Sirkus leika svo
sveitatónlistarsveitirnar Hudson
Wayne og Örkuml. Dagskráin er
kynnt nánar í meðfylgjandi hlið-
ardálki.
Allt að gerast!
„Já, þetta byrjar í kvöld,“ segir
Þorsteinn Stephensen, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar. „Og þá
fer allt á fullt. Upplýsingaskrifstof-
an er búin að vera opin síðan á
mánudaginn og þangað leitar fólk
og er að spyrja um hinar og þessar
hljómsveitir. Við fáum núna dag-
legar fréttir af því að erlendir
áhrifamenn í tónlistariðnaðinum
séu á leiðinni og vigtin á þeim er
alltaf að aukast. M.a. kemur hing-
að yfirmaður nýliðunardeildar
Electra frá Bandaríkjunum.“
Þorsteinn segir að miðasala
standi enn yfir í verslunum Tals og
hefur hún gengið mjög vel. Selt er
hátíðararmband á 5.500 kr. sem
veitir aðgang að öllum viðburðum,
þ.m.t. á stórtónleikanna í Laug-
ardalshöll á laugardaginn. Aldurs-
takmark á alla viðburði er 18 ár.
„Ég vil þó árétta að þeir sem eru
með armbönd ganga fyrir hvað
varðar inngöngu á staðina,“ segir
Þorsteinn að lokum. „Hægt er að
kaupa aðgang að einstökum við-
burðum en það er þó háð húsrúmi
á hverjum stað.“
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.icelandairwaves.com
Hátíðarhöldin
hefjast
!! "#
$#
#%#& '(%#
) *% "
#
+ #
,'-.&/
0# ,# # //#
, &##/# % 1& 2#3#
,' ,'
! 1- #
,' ,'& ,'2#
0 + 4 5## ,,, '
6 7/
+ &
!"#
##&
$
% 8/ +/// # &
!%
,& 9 * /
0&4 # : :
!
!
,'& !" ,')#
#$%
& ,'0) /&&
'!( ,';&
</
)
*
& #1-
#
Iceland Airwaves, 16.–20. október
Í kvöld hefst hin indæla orrahríð tónleika
sem Airwaves-hátíðin stendur fyrir. Arnar
Eggert Thoroddsen spáir í spiliríið.
HEIMILDAMYNDIN Noi og Pam
og mennirnir þeirra verður forsýnd í
kvöld. Þetta er ný íslensk heim-
ildamynd í leikstjórn Ásthildar Kjart-
ansdóttur um tvær taílenskar konur,
sem búa með íslenskum mönnum
norður í landi. Myndin segir sögu Noi
og Pam en þær eru frá litlu þorpi í
norðurhluta Taílands þar sem flestir
íbúarnir lifa af hrísgrjónarækt og búa
við kröpp kjör.
Noi og Pam, sem eru frænkur,
flytja tvítugar að aldri til Bangkok í
leit að vinnu í von um að geta hjálpað
fjölskyldum sínum eftir upp-
skerubrest í þorpinu. Eftir tíu ára
strit í verksmiðjum á lágum launum
fá þær nóg og ákveða að leita betri
framtíðar í Evrópu. Verður það til
þess að leiðir þeirra og Ísaks og
Sveinbjarnar liggja saman árið 1997.
Myndin fjallar um væntingar Noi
og Pam um lífið og framtíðina og
varpar ljósi á hvernig sambúðin
gengur með Íslendingum, að sögn
Ásthildar. Noi býr með Ísaki og Pam
með Sveinbirni í Öxarfjarðarhéraði í
Norður-Þingeyjarsýslu en Ásthildur
rekur ættir sínar í þennan landshluta.
„Ég er svo forvitin að alltaf þegar
ég hitti útlendinga langar mig til að
kynnast þeim og fer að hugsa um
hvaðan þeir eru,“ segir Ásthildur,
sem rakst á Noi fyrir tilviljun í Ás-
byrgi og hitti síðan Pam í gegnum
hana.
„Ég hafði lengi hugsað um að gera
mynd um asískar konur á Íslandi,“
segir Ásthildur og bætir við að þarna
hafi hún fengið kjörið tækifæri til
þess. Hún segir að í byrjun hafi Noi
og Pam ekki alveg vitað hvað hún
væri að fara að gera en uppúr þessum
kynnum hafi myndin þróast. Í kjöl-
farið heimsótti Ásthildur svo Taíland
með þeim.
Ásthildur vann í þrjú ár að mynd-
inni og er ánægð með útkomuna. Hún
gerði myndina m.a. í þeim tilgangi að
varpa nýju ljósi á líf asískra kvenna á
Íslandi og bendir á að erfitt sé fyrir
marga að aðlagast íslensku þjóð-
félagi. Hún fékk hugmyndina að
myndinni þegar hún kenndi asískum
konum íslensku í Námsflokkunum.
Frænkurnar eru sjálfar fámálar
um myndina enda talar hún sjálf sínu
máli. Myndin er einlæg og gerir
hversdagslífinu góð skil. Ennfremur
er varpað ljósi á mismunandi lífs-
viðhorf Taílendinga og Íslendinga í
henni.
Noi og Pam hafa ekki mikinn tíma
til að heimsækja höfuðborgina í til-
efni sýninganna því nú er sláturtíð en
þær vinna báðar hjá Fjallalambi á
Kópaskeri. Að sögn þeirra vinna 50
manns í Fjallalambi frá 12 löndum og
bera þær yfirmanni sínum góða sög-
una.
Þrátt fyrir að Noi og Pam hafi ekki
einsett sér að breyta ákveðinni ímynd
asískra kvenna á Íslandi er ljóst að
þær hafa gert það að einhverju leyti
með því að hleypa Ásthildi svo nærri
sér. Þær hafa aðlagast lífinu hér vel
og kannski er matseld þeirra ágætis
dæmi um það besta úr báðum heim-
um. „Ég geri íslenskan mat að hætti
Taílendinga og krydda til dæmis
kjötið með taílensku kryddi. Ég verð
reyndar alltaf að fá hrísgrjón og get
ekki lifað af marga daga án þeirra,“
segir Pam og bætir því við að hún
neyðist til að spara chilli-kryddið þeg-
ar eldað er fyrir Íslendinga. Hún seg-
ir jafnframt og brosir að hrísgrjón
séu alls staðar í Taílandi en kind-
urnar ráði ríkjum hér. Glöggt er
gests augað og má gera því skóna að
kindurnar hljóti því að vera nokkurs
konar hrísgrjón Íslendinga og öfugt.
Film-Undur forsýnir Noi og Pam
og mennina þeirra í kvöld í Háskóla-
bíói og eftir það verður myndin tekin
til almennra sýninga.
Íslensk heimildamynd forsýnd í Háskólabíói
Morgunblaðið/Golli
Ásthildur Kjartansdóttir kvikmyndagerðarkona hefur fylgst náið með
þeim Pam og Noi síðustu þrjú árin og verið líkt og fluga á vegg.
Kindur eru hrís-
grjón Íslendinga
ingarun@mbl.is