Morgunblaðið - 22.11.2002, Qupperneq 67
JÓLAKORT Kvenfélags Langholts-
sóknar er komið út. Myndin á kort-
inu er af steindum glugga á austur-
stafni
kirkj-
unnar.
Gluggann
hannaði
Sigríður
Ásgeirs-
dóttir
glerlista-
kona.
Kortin fást bæði með og án áletr-
unar. Þau eru fjögur saman í pakka
á kr. 500 en einnig er hægt að
kaupa stök kort. Kortin eru til sölu
hjá kirkjuverði. Allur ágóði af söl-
unni rennur í gluggasjóð.
Jólakort Kvenfélags
Langholtssóknar
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2002 67
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10 í umsjá Aðalbjargar Helgadóttur.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyr-
ir börn.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30.
Lofgjörð, barnasaga, prédikun og bibl-
íufræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla
alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10
ára drengi á laugardögum kl. 11. Starf
fyrir 11–12 ára drengi á laugardögum
kl. 12.30.
Garðaprestakall. Harmonikkuball á
föstudagssamveru í Kirkjuhvoli, Garða-
bæ, í dag kl. 14–17. Rúta fer frá Hlein-
um kl. 13.40. Eldri borgarar hvattir til
að mæta.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Ung-
lingasamkoma í kvöld kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Erling Snorrason. Sigrún
Jónsdóttir leikur á fiðlu og Kór Aðvent-
kirkjunnar syngur.
Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður Jóhann Grétarsson.
Biblíurannsókn og bænastund á
fimmtudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Brynjar Ólafsson.
Biblíurannsókn og bænastund á föstu-
dögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Halldór Ólafsson. Biblíurannsókn og
bænastund að Breiðabólstað í Ölfusi á
miðvikudögum kl. 20.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.30.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 17. Ræðu-
maður Eric Guðmundsson og Erling
Snorrason.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
FYRIR nákvæmlega 80 árum hóf
O.J. Olsen að prédika aðventboð-
skapinn í Vestmannaeyjum.
Í kjölfar þess hófst mikil vakning
meðal bæjarbúa og 60 fullorðnir
einstaklingar tóku á móti aðvent-
boðskapnum á árunum 1922–24 og
söfnuður var stofnaður.
Þessara merkisviðburða verður
minnst með sérstakri hátíð-
arsamkomu í Aðventkirkjunni í
Vestmannaeyjum á morgun, laug-
ardaginn 23. nóvember, kl. 17. Eft-
ir samkomuna verður gestum boð-
ið til málsverðar.
Allir eru hjartanlega velkomnir
að heiðra söfnuðinn með nærveru
sinni á þessum merku tímamótum.
Vestmannaeyjasöfnuður.
Föstudagssamvera
með harmonikkuballi
ANNAÐ harmonikkuball vetrarins
fyrir eldriborgara í Garða-
prestakalli verður haldið í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli föstu-
daginn 22. nóvember kl. 14–17.
Það eru Garða- og Bessa-
staðasókn sem standa að þessari
skemmtun í samvinnu við félög
eldri borgara í Garðabæ og á
Álftanesi, en fyrri skemmtunin var
fjölsótt og þótti takast með ágæt-
um.
Fimm harmonikkuleikarar
munu leika fyrir dansi og stjórna
söng, Garðakórinn, kór eldri borg-
ara í Garðabæ, kemur í heimsókn
og syngur, farið verður með gam-
anmál og boðið verður upp á
vöfflukaffi. Aðgangseyrir er 500
kr. Rúta fer frá Hleinum kl. 13.40
og heim að lokinni skemmtun.
Allir eldri borgarar og velunn-
arar heilbrigðra dansmennta og
hollrar skemmtunar eru velkomn-
ir.
Sóknarnefndirnar.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 24. nóvember nk.
kl. 14 verður haldin ensk messa í
Hallgrímskirkju. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Jón Bjarnason. Guðrún
Finnbjarnardóttir leiðir almennan
safnaðarsöng.
Barna- og unglingakór Graf-
arvogskirkju syngur við athöfnina
undir stjórn Oddnýjar J. Þorsteins-
dóttur. Messukaffi að athöfn lok-
inni. Á þessu ári hefur verið boðið
upp á enska messu í Hallgríms-
kirkju síðasta sunnudag hvers
mánaðar.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja).
Sunday 24th of November at 2 pm.
Holy Communion. Christ the King.
The Sunday next before Advent.
Celebrant and Preacher: The Revd
Bjarni Thor Bjarnason. Organist:
Jón Bjarnason. Leading Singer:
Guðrún Finnbjarnardóttir. The
Children’s Choir from Grafarvogs-
kirkja will sing. Conductor: Oddný
J. Thorsteinsdóttir. Refreshments
after the service.
Hátíðarsam-
koma Aðvent-
kirkjunnar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laugarneskirkja
LANDSVIRKJUN hefur látið
gera kort af ferðaleiðum sunnan
Hofsjökuls sem verður á almenn-
um markaði. Kortið er gefið út
bæði á íslensku og ensku og er það
Hið íslenska bókmenntafélag,
Síðumúla 21, sem annast dreifingu
þess. Kortið verður til sölu í bóka-
búðum og á ferðamannastöðum
sunnanlands. Kortið kostar kr.
1.000.
„Ferðakortið er liður í þeirri
stefnu Landsvirkjunar að efla
ferðamennsku og útivist á virkj-
unarsvæðum og stuðla að því með
sveitarstjórnum, stjórnvöldum og
ferðaþjónustunni að byggja upp
innviði ferðamennsku á starfs-
svæðum fyrirtækisins,“ segir í
fréttatilkynningu.
„Fjölmargir aðilar hafa komið
að gerð kortsins og veitt þær upp-
lýsingar sem þar koma fram. Má
þar nefna Áskel Heiðar Ásgeirs-
son kortagerðarmann, Árna Þórð
Jónsson og Benedikt Karl Valde-
marsson textasmiði, Ásborgu Arn-
þórsdóttur ferðamálafulltrúa, Ei-
rík Haraldsson fyrrv.
menntaskólakennara, Engilbert
Olgeirsson og Harald Eiríksson,
rekstraraðila Landmannahellis,
Hauk Jóhannesson, Ferðafélagi
Íslands, Kjartan Magnússon veiði-
vatnanefnd, Pál Gíslason, rekstr-
araðila Kerlingafjöllum, Svein
Tyrfingsson, rekstraraðila í
Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum,
Svein Sæland, oddvita í Bláskóga-
byggð og félaga úr Ferðaklúbbn-
um 4x4 o.fl.“
Kort af leiðum
sunnan
Hofsjökuls
LÝST er eftir vitnum að umferð-
aróhappi sem varð á gatnamótum
Breiðholtsbrautar og Stekkjar-
bakka miðvikudaginn 20. nóvem-
ber sl. klukkan 7:35.
Þar skullu saman hvít Volkswa-
gen Polo-fólksbifreið og grænn
Land Rover Discovery-jeppi. Öku-
menn eru ekki sammála um stöðu
umferðarljósa á gatnamótunum
þegar óhappið varð. Þeir sem upp-
lýsingar geta veitt um mál þetta
eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við lögregluna í Reykja-
vík.
Lýst eftir
vitnum
LEIÐRÉTT
Bóksala í nóvember
Farið var mánaðavillt í bóksölu-
lista sem birtur var í blaðinu í gær.
Bóksalan var vitaskuld mæld dag-
ana 1.–18. nóvember, eins og raun-
ar kom fram í tilvísunarfrétt á bak-
síðu. Beðist er velvirðingar á þessu.