Morgunblaðið - 18.12.2002, Blaðsíða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 15
M I Ð B O R G A R
GJAFAKORTIÐ
Allur pakkinn
í einni jólagjöf
N
O
N
N
IO
G
M
A
N
N
I|
Y
D
D
A
FISKAFLI landsmanna síðastliðinn
nóvembermánuð var 72.653 tonn
samanborið við 100.072 tonn í nóvem-
bermánuði árið 2001 og er þetta sam-
dráttur um alls 27.420 tonn, að því er
fram kemur í tölum Hagstofu Ís-
lands.
Botnfiskaflinn var 33.175 tonn í síð-
asta mánuði, en var 35.356 tonn í nóv-
embermánuði 2001 sem er tæplega
2.200 tonna samdráttur á milli ára.
Þorskafli dróst nokkuð saman, í nóv-
ember í ár veiddust 16.544 tonn sem
er 4.968 tonnum minni afli en í nóv-
embermánuði 2001 þegar aflinn varð
21.512 tonn. Ýsuafli jókst hinsvegar á
milli ára því alls veiddust 6.533 tonn á
móti 4.414 tonnum í nóvember 2001
og er þetta aukning um 2.119 tonn.
Af flatfiski bárust 2.476 tonn á land
en í nóvembermánuði í fyrra veiddust
2.105 tonn og jókst því flatfiskaflinn
um 372 tonn á milli ára. Af veiði ein-
stakra tegunda má nefna að 1.112
tonn veiddust af grálúðu, aukning um
1.020 tonn frá fyrra ári, og 519 tonn af
skarkola sem er aukning um 272 tonn
frá fyrra ári.
Af kolmunna veiddust tæplega
5.000 tonn sem er samdráttur um
tæplega 21.500 tonn samanborið við
nóvembermánuð 2001. Alls veiddust
28.275 tonn af síld en 31.900 tonn í
nóvembermánuði í fyrra og nemur
samdrátturinn því 3.600 tonnum.
Skel- og krabbadýraafli var 3.667
tonn sem er 608 tonnum minni afli en
í nóvember í fyrra. Rækjuaflinn var
1.578 tonn og dregst saman um 469
tonn, hörpudiskafli var 1.000 tonn í ár
en 1.348 tonn í nóvember í fyrra. Þá
jókst kúfiskafli um 277 tonn á milli
ára og var 1.082 tonn.
Afli ársins eykst til muna
Heildarafli landsmanna á fyrstu
ellefu mánuðum ársins er orðinn
2.028.859 tonn sem er rúmlega
134.000 tonnum meiri afli samanborið
við sama tímabil á árinu 2001. Heild-
arafli botnfisktegunda er orðinn rúm-
lega 418 þúsund tonn og nemur afla-
aukningin tæpum 11 þúsund tonnum.
Uppsjávarafli ársins 2002 er orðinn
1.525.788 tonn, flatfiskaflinn 33.460
tonn og skel- og krabbadýraaflinn
51.091 tonn.
Stefnir þó
í met aflaár
!
"
#
"#$
%
#
&
'
(
! %
##)
&
*
(
+,
+,
+-
+ .
.+,-
-+
- + .
+,
+.,
Fiskafli í nóvember
minnkar milli ára
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r