Morgunblaðið - 14.01.2003, Side 23

Morgunblaðið - 14.01.2003, Side 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 23 NÝR Kays listi er kominn hjá B. Magnússyni hf. Um er að ræða vor- og sumar- fatnað 2003 fyrir alla fjölskylduna. Í listanum eru jafnframt tilboð og kaupaukar, samkvæmt tilkynn- ingu frá B. Magnússyni. NÝTT Vor- og sum- arlisti Kays Pottagaldrar ehf. hafa gefið út Kryddbókina eft- ir Harald Teits- son. Um er að ræða endurgerð á fyrstu bók Har- aldar frá 1993 sem mun vera löngu uppseld. Í Kryddbókinni eru upplýsingar um kryddjurtir og náttúruleg bragðefni og jafnframt lækningamátt, að því er segir í tilkynningu frá Pottagöldrum. Kryddbókin komin út aftur DENTALÍA ehf. hefur fengið markaðsleyfi hér- lendis fyrir nátt- úrulyfinu phyto- calm-passiflora frá franska fyrir- tækinu Ako- pharma, að því er segir í tilkynn- ingu. „Phytocalm er náttúrulyf og notað við svefnerfiðleikum og spennu og óróa sem tengist álagi.“ Lyf gegn svefn- erfiðleikum J.S. HELGASON hefur byrjað inn- flutning á snyrti- vörum frá Aldo Vandini sem ætlað er að vinna á app- elsínuhúð. Um er að ræða skrúbb og styrkjandi gel sem meðal annars inni- heldur sólhatt, koffín, vatnsnafla og panthenol fyrir húðina. Vörur gegn appelsínuhúð VOR- og sum- arpöntunarlisti Freemans er kominn út. Í listanum er að finna tískuföt fyrir telpur og konur. Einnig er úrval af rúmfatnaði, skóm og fylgihlutum í listanum. „Freemans flutti nýlega í nýtt hús- næði að Hjallahrauni 8 í Hafnarfirði. Þar hefur verið opnuð verslun sem býður helstu vörurnar í listanum. Verslunin er opin frá 10–18,“ segir í tilkynningu frá Freemans. Vor- og sumar- listi Freemans B. MAGNÚSSON hf. kynnir nýja kynslóð fitubrennsluefna frá EAS, það er „BetaLean“og „Simply diet“. „Um er að ræða tvær útgáfur sem stuðla að fitubrennslu ásamt aukinni orku. Vörurnar innihalda koffín, HCA sem dregur úr matarlyst, citr- us aurantium sem stuðlar að aukinni brennslu og naringin sem lengir virkni koffíns í blóði,“ segir í tilkynn- ingu. Fleiri fitu- brennsluefni MÓNA hefur sett á markað nýja vörutegund sem er „Heit“ súkku- laðisósa og „Heit“ karamellusósa með ís. „Sósan er hituð í umbúð- unum í opinni dós í um það bil 2 mínútur á lágum hita í örbylgju- ofni, einnig má hita hana í vatns- baði,“ samkvæmt tilkynningu frá Mónu. „Heit“ íssósa fyrir heimili VERSLUNIN Blómaskart hefur tekið við umboði fyrir Oshadhi-ilm- kjarnaolíur og Custom Craftworks- nuddbekki af Yoga Studio. „Sigur- laug Ingólfsdóttir mun framvegis þjónusta nuddara og almenning en Yoga Studio mun halda áfram með námskeið um ilmkjarnaolíur og ráð- gjöf,“ segir í tilkynningu. Ilmkjarnaolíur í Blómaskarti UPPLÝSINGAR um innihald eru fáanlegar á stórum hluta þeirra brauða sem seld eru í bakaríum landsins. Virðast forráðamenn flestra brauðbúða leggja sig fram um að veita neytendum slíkar upp- lýsingar, segir Hollustuvernd rík- isins sem kannað hefur innihalds- lýsingar á 149 brauðum víðs vegar um land í samvinnu við heilbrigð- iseftirlit. Svo virðist sem bakarí á Hafn- arfjarðar- og Kópavogssvæði ann- ars vegar og Kjósarsvæði hins veg- ar leggi sig síður fram við að veita neytendum upplýsingar um inni- hald ópakkaðra brauða, er meðal þess sem lesa má út úr niðurstöð- um. Áhersla á upplýsingar vegna ofnæmis og óþols „Alvarlegustu brotin áttu sér stað þegar upplýsingar varðandi of- næmi og óþolsvalda voru ekki merktar á skriflegar innihaldslýs- ingar brauða,“ segir í skýrslu um verkefnið, en þar kemur fram að slíkar athugasemdir hafi verið gerðar vegna 16 brauða af 149. „Slíkt verður að líta alvarlegum augum þar sem viðbrögð líkamans við neyslu þessara efna geta verið mjög alvarleg,“ segir enn fremur. Hollustuvernd telur „fullnægj- andi“ að starfsfólk bakarís geti upplýst viðskiptavin um innihald brauðs og að innihaldslýsing sé til í bakaríinu en gerði fjölmargar at- hugasemdir, eða 78, við að skrifleg innihaldslýsing lægi ekki frammi. „Æskilegra væri að hafa upplýs- ingar um innihaldsefni skrifleg á áberandi stað í bakaríinu svo neyt- endur þurfi ekki að treysta á starfsmenn bakaría til þess að veita þessar upplýsingar,“ segir í skýrslu um verkefnið. Niðurstöðurnar koma fram í skýrslu um eftirlitsverkefni Holl- ustuverndar í samstarfi við Heil- brigðiseftirlit sveitarfélaga, þar sem markmiðið var að kanna hvort viðskiptavinir bakaría geti nálgast upplýsingar um innihald ýmissa brauðtegunda. Heimsótt voru 2–10 bakarí á hverju eftirlitssvæði og kannaðar innihaldslýsingar og aðgengi að innihaldslýsingum á fimm brauð- tegundum í hverju bakaríi. Samtals voru kannaðar inni- haldslýsingar á 149 brauðum í 30 bakaríum víðs vegar um land. Eng- ar athugasemdir voru gerðar vegna 52 brauða af 149 (35%) þar eð upp- lýsingar um innihaldsefni í þeim voru aðgengilegar fyrir neytendur. Athugasemdir voru hins vegar gerðar við 97 brauð af 149 (65%). Voru athugasemdir vegna brauð- anna 97 alls 149, allt frá einni at- hugasemd upp í fjórar athuga- semdir á brauð. Flestar athugasemdir, eða 78, voru gerðar við hvort innihaldslýsing á viðkom- andi brauði lægi frammi og ekki þyrfti sérstaklega að biðja um hana. Skylt að upplýsa um innihald Spurt var hvort starfsfólk gæti upplýst kaupanda um innihald ópakkaðs brauðs, hvort innihalds- lýsing fyrir brauðið væri til í bak- aríinu, hvort hún lægi frammi, hvort til væri uppskrift að brauð- inu, hvort innihaldsefni væru í réttri röð, það er eftir magni, og loks hvort allir þekktir ofnæmis- valdar/óþolsvaldar væru skráðir í skriflegri innihaldslýsingu. Hollustuvernd segir að ólíkt því sem gerist með forpakkaða vöru getur verið erfitt fyrir neytendur að átta sig á hvaða innihaldsefni eru notuð í vörur sem seldar eru í bakaríum. Er það skylda bakaría að geta veitt þessar upplýsingar óski neytendur eftir þeim. 35% brauða fengu enga athugasemd Hollustuvernd kannar innihalds- lýsingar ópakk- aðra brauða Morgunblaðið/Golli Lýsingar á innihaldi ópakkaðra brauða eru mikilvægar neytendum. Mjólk, egg, jarðhnetur, möndl- ur, hnetur, hafrar, bygg, rúgur og hveiti. Ofnæmisvaldar LISTIR Í NOREGI er ungur íslenskur leik- ari, Þórir Sæmundsson, að hasla sér völl í leiklistinni eftir að hafa út- skrifast úr Ríkisleiklistarskólanum í Ósló sl. vor. Þórir er 22 ára að aldri og fluttist með foreldrum sínum og bræðrum til Noregs árið 1996. „Ég fór í menntaskóla hér í Noregi og síðan í leiklistarnámið og lauk því í fyrra,“ segir Þórir sem hefur haft nóg verkefni frá því náminu lauk. „Ég fékk strax tilboð um samning við Teatret Vårt í Molde sem er héraðs- leikhúsið í Möre og Römsdal. Þetta er leikhús sem svipar kannski helst til Leikfélags Akureyrar þar sem það sinnir ákveðnu svæði. Við erum með leikhús með einu sviði en stór hluti starfseminnar byggir á leik- ferðum með sýningar um fylkið.“ Áttatíu sýningar fram undan Á fimmtudag er stór dagur hjá Þóri því hann frumsýnir þá ásamt leikkonunni Siven Jörgensen, leik- ritið Norway.today, eftir Þjóðverj- ann Igor Bauersima. „Þetta er frumsýning verksins í Noregi en það hefur samt vakið mikla athygli þar sem það byggist á raunveruleg- um atburði sem gerðist hér í Nor- egi fyrir 4 árum. Þá frömdu norsk- ur piltur og austurrísk stúlka sjálfsmorð með því að stökkva sam- an fram af 600 metra háu þver- hníptu fjalli, Prekestolen á Roga- landi. Þau höfðu kynnst á spjallrás á Netinu og hann bauð henni að koma til Noregs og síðan endaði þetta svona. Leikritið fylgir þessari dapurlegu sögu samt ekki nema að hluta, og endir þess er gleðilegri en raunveruleikinn. Þetta er eitt besta nýja leikrit sem ég hef komist í tæri við og er allt í senn, fyndið og alvar- legt. Þarna er fjallað um sjálfsmorð ungs fólks af alvöru og ábyrgð og ég er viss um að leikritið á eftir að vekja mikla umræðu.“ Þórir segir að þau verði á ferð og flugi með sýninguna næstu 2–3 mánuði og sýni í öllum grunn- og framhaldsskólum í fylkinu. „Það er þegar búið að ákveða 80 sýningar og líklega verða þær fleiri áður en lýkur í apríl.“ Draumur á Jóns- messunótt í Berlín Þegar sýningum á Norway.today lýkur leggur Þórir land undir fót og flytur til Berlínar en þar tekur hann þátt í samevrópskri uppfærslu á Draumi á Jónsmessunótt eftir Shakespeare. „Þetta er mjög spennandi verkefni sem leikhús í Evrópu eru þátttakendur í og bygg- ist á því að ungir leikarar frá ýms- um leikhúsum vinna saman sýningu þar sem hver leikur á sínu tungu- máli. Við verðum síðan á ferðinni vítt og breitt um Evrópu með sýn- inguna næsta árið, og sýnum m.a. í London, París, Vín og Amsterdam. Ég er í rauninni á samningi við- Teatret Vårt meðan á þessu stend- ur, því það er leikhúsið sem kemur að verkefninu og bauð mér síðan að taka þátt fyrir þess hönd.“ Þórir segist fylgjast með íslensku leikhúslífi á Netinu eftir því sem tök eru á. „ Ég hef gaman af að sjá hvað er verið að leika og hverjir eru að leika hvað. Ég þekki reynd- ar mjög fáa í íslensku leikhúsi enda kynnist fólk í leiklistarskóla og myndar tengsl við leikhúsheiminn á þeim tíma. Ég þekki vel til í leik- húsheiminum hér í Noregi og verk- efnin eru fjölbreytt og skemmti- leg,“ segir íslenski leikarinn, Þórir Sæmundsson, sem útilokar ekki að hann eigi eftir að koma heim til Ís- lands í framtíðinni og leika á ís- lensku leiksviði. „Það væri auðvitað mjög gaman.“ Þórir Sæmundsson í hlutverki sínu í Norway.today. Íslenskur leikari á frama- braut í Noregi NÝLEGA voru opnaðar tvær myndlistarsýningar á hárgreiðslu- stofunum Mojo á Vegamótastíg 4 og Scala í Lágmúla 5. Freygerður Dana Kristjánsdóttir sýnir tvö verk á Mojo. Annars vegar er um að ræða ádeiluverk á orðuveitingar og hins vegar verk af íslenskum rollum í hlutverkum mannanna. Í því verki getur áhorfandinn fært „Rollurnar“ á mismunandi hillur sem eru merktar: Hlemmur, Elliheimili, Kirkja, KR-völlurinn, Sjúkrahús, Frystihús, Alþingi, Verkstæði, Astro, Tónlistarhús, Heimilið og Ómerkt hilla. Þetta er fyrsta sýning Freygerð- ar og stendur hún til mánaðamóta. Þá sýnir Anna Guðrún Torfadótt- ir myndlistarmaður verk sín á Scala. Verkin eru unnin með bland- aðri tækni, m.a. tvær myndir af Herðubreið þar sem herðar lista- mannsins axla þetta fjall. Sýningin stendur fram að mán- aðamótum. Myndlistarsýningar á hárgreiðslustofum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.