Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 35 ✝ Óli AðalsteinnGuðlaugsson fæddist á Bárðar- tjörn í Höfðahverfi hinn 17. júlí 1916. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Emilía Halldórsdóttir og Guðlaugur Jóakims- son. Systkini Óla eru Jenný, f. 1909; Höskuldur, f. 1911, látinn; Svanfríður, f. 1912, látin; Jóakim, f. 1915; Sigurvin, f. 1915, látinn; Torfi, f. 1917; Laufey, f. 1919; og Kristín, f. 1920. Í æsku stundaði Óli búskap og sjómennsku frá Grenivík. Hinn 13. apríl 1941 kvæntist Óli eftirlifandi konu sinni, Sólveigu Jónsdóttur frá Birn- ingsstöðum í Ljósa- vatnsskarði, f. 25. sept. 1917. Dætur Óla og Sólveigar eru Alda, f. 17. okt. 1939, sem Óli gekk í föður- stað, og Anna Sigur- veig, f. 18. ág. 1941, d. 19. nóv. 2002. Óli og Sólveig hófu búskap á Þórð- arstöðum í Fnjóska- dal og vann Óli einn- ig fyrir Skógrækt ríkisins. Árið 1948 fluttust þau hjónin til Akureyrar og hóf þá Óli störf hjá Mjólkursamlagi KEA. Hann vann þar í rúm 40 ár, þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Útför Óla fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku afi minn, nú ertu farinn yfir móðuna miklu. Þú hefðir orðið 87 ára í sumar, það er hár aldur, en þú hafðir ekki þrek til að sigr- ast á lungnabólgunni. Ég byrjaði ævi mína hjá ykkur ömmu í Odd- eyrargötunni, því þar er ég fædd. Frá Akureyri flutti ég fjögurra ára suður í Hafnarfjörð með pabba og mömmu, þá lengdist leiðin frá mér til ykkar ömmu. Í huganum voruð þið ekki fjarri. Margir segja, að sumarið komi með sólskini og yl, ég segi það líka. En sumarið kom ekki aðeins með sól og yl til mín, það færði mig líka til ykkar, afi minn. Á hverju sumri, strax og skólinn var búinn, var hafin ferð norður. Annað hvort flaug ég eða þú náðir í mig suður yfir heiðar á Ford Junior. Alltaf var tilhlökk- unin jafn mikil, þá var dekrað við mig. Ég gleymi því ekki þegar far- ið var í heimsókn í sveitina, þær ferðir voru ófáar hvort heldur sem það var í Skagafjörðinn eða Fnjóskadalinn. Einnig eru ógleym- anlegar nestisferðirnar í Vagla- skóg. Þar nutum við þess að vera í ilminum af gróandanum í heillandi ævintýraheimi fyrir litla afastúlku. Minningin um skyrið hans afa sem var svo oft á borðum hjá ömmu, það var það besta skyr sem til er. Þú vannst í Mjólkursamlagi KEA í yfir fjörutíu ár. Gott fannst mér að heimsækja þig í samlagið þegar það var í gilinu enda stutt fyrir mig að fara. Það var yndislegt að eiga ykkur ömmu að, þegar við Ægir vorum að byrja okkar bú- skap. Við fluttum fljótlega eftir brúðkaupið norður til Akureyrar. Hjá ykkur bjuggum við fyrst á meðan við byggðum húsið okkar. Hjá ykkur fæddist frumburðurinn okkar hann Arnar. Aðstoð ykkar við okkur Ægi fyrir norðan er hreint út sagt alveg ómetanleg og verður seint fullþökkuð. Elsku afi, þú hefur annast ömmu síðustu árin á heimili ykkar að Lindasíðu 4. Um daginn hafðir þú orð á því að það væri svolítið seint að læra að elda þegar maður er orðinn áttatíu ára. Þú gerðir allt fyrir ömmu eftir þinni bestu getu, afi minn, og við erum öll mjög þakklát fyrir það. Þú varðst að sjá á eftir elskulegri dóttur þinni henni Önnu Siggu fyr- ir svo stuttu síðan. Það er okkur huggun að trúa því að hún taki á móti þér. Mikill er missir ömmu en við hugsum um hana fyrir þig. Elsku afi, við Ægir kveðjum þig með þakklæti fyrir allar stundirnar okkar saman, þær varðveitum við í hjörtum okkar, Guð varðveiti þig. Sólveig Stefánsdóttir. Afi Óli er dáinn. Það var eitt- hvað sem ég átti ekki von á að heyra, þó hann hefði fengið lungnabólgu fyrir nokkrum dögum. Ég sem sagði alltaf að hann væri hressari en ég, þó svo að ég væri 60 árum yngri. Ég á margar góðar minningar um afa Óla. Nokkurra sólarhringa gamall var komið með mig til ömmu og afa í Ásveginn á Akur- eyri. Hjá þeim bjó ég fyrsta ári ævi minnar, þar sem vel fór um okkur litlu fjölskylduna í vel út- búnu gestaherbergi. Ég var fyrsta langafabarnið hans afa og alveg frá upphafi lét afi mig finna það að ég væri í uppáhaldi. Þannig varð ég mjög náinn þeim ömmu ungur að aldri og alltaf gat maður treyst því að finna ástúð og hlýju þegar mað- ur hitti þau. Ég var svo heppinn að búa á Akureyri fyrstu ár ævi minn- ar og náði því að kynnast afa mín- um vel. Afi vann alla tíð, eftir að ég kom í heiminn, í skyrinu í Mjólkursam- laginu á Akureyri. Það voru ófáir dagarnir sem ég var í heimsókn hjá þeim afa og ömmu í Ásveginum og um leið og afi kom þreyttur heim úr vinnunni, þá var farið að leika við mig eins og honum var einum lagið. Eftir að ég flutti suður leið aldr- ei langt á milli þess að ég og fjöl- skyldan mín fórum í heimsókn norður til ömmu og afa og má segja að ég hafi hitt afa Óla að minnsta kosti einu sinni á ári þrátt fyrir fjarlægðina. Undanfarinn áratug hafa ferðirnar norður, með íþróttunum, í fríum og vegna vinnu, verið fjölmargar og oftast nokkrar á ári og ég get sagt með gleði í hjarta mínu að aldrei kom ég í bæinn án þess að hitta afa, meira að segja þó ég hafi einungis átt leið í gegnum Akureyri. Þessar heimsóknir gáfu mér mikið og von- andi gaf þetta afa jafn mikið og mér. Ég veit það að ég á ekki eftir að líta Akureyri sömu augum, nú án afa Óla. Elsku afi, eins og ég sagði áðan þá átti ég ekki von á því að þú myndir fara, þó svo að ald- urinn segði 86 ára á ökuskírteininu þínu sem þú varst að leggja núna fyrir einni viku síðan. Ég veit það að ég og mín litla fjölskylda, sem varð einmitt fjölgun í fyrir mánuði síðan þar sem þitt fyrsta langa- langafabarn fæddist, eigum eftir að sakna þín og erum við ævinlega þakklát fyrir þær minningar sem við eigum í hjarta okkar og mun- um við varðveita þær alla ævi. Arnar Ægisson. Óli afi var lífsglaður og kær- leiksríkur afi sem verður sárt saknað. Hann vann í Mjólkursam- lagi KEA í Kaupvangsgilinu á okk- ar æskuárum. Við áttum það til að kíkja í heimsókn, á leið heim úr skóla og fylgjast með honum búa til besta skyr í heimi, skyrið hans afa. Kart- öflugarðarnir hans afa voru afar vinsælir á haustin og þá sérstak- lega stóri garðurinn í Pétursborg. Við systurnar vorum duglegastar við að tína allar litlu kartöflurnar sem okkur þóttu lostæti „með flus- inu“. Þessum og ótal fleiri minn- ingum um afa munum við segja börnum okkar frá í sögunum: „þegar ég var ung ...“ Minningin um afa mun lifa áfram í hjörtum afkomenda sinna. Elsku amma, megi Guð gefa þér styrk í sorg þinni. Elísabet og Íris. Kaffi í Ásvegi, alltaf kökur eða annað góðgæti með. Alltaf svo gott að koma þar, alltaf tekið á móti mér og Gunnari Erni með hlýju og ástúð. Óli afi og amma Dolla. Aldr- ei kölluð annað af okkur. Nú seinni árin höfum við hist sjaldnar eftir að þau fluttu í Lind- arsíðuna og Gunnar Örn varð eldri. Meðan hann var yngri fórum við mjög oft í heimsókn í Ásveginn og það var alveg jafn vel tekið á móti mér og honum. Þau hjón sýndu syni mínum ákaflega mikla vænt- umþykju sem ég fann auðveldlega enda held ég að það hafi alveg náð til mín líka. Það er honum ómet- anlegt að hafa átt þau að í svona mörg ár og ég tel mig lánsama að hafa kynnst þeim og að sjá það að það er margt í syni mínum sem hann hefur fengið frá þeim. Hlýja, rósemi, innileiki, gæði og góðsemi; þetta eru kostir sem ég fann hjá þeim Óla og Dollu. Elsku Dolla, Birgir Óli, Alda og aðrir aðstandendur, ég samhrygg- ist ykkur innilega í sorg ykkar en þegar frá líður eru minningarnar um góðan mann ómetanlegar. Hólmfríður Hermannsdóttir. ÓLI A. GUÐLAUGSSON Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Bróðir okkar, mágur og frændi, KRISTJÁN M. JÓHANNESSON, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.30. Guðleif K. Jóhannesdóttir, Þorsteinn S. Sigvaldason, Magnús Jóhannesson, Guðríður Guðmundsdóttir, börn þeirra og barnabörn. Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, BJÖRK STEINGRÍMSDÓTTIR, Tjarnarlundi 10, Akureyri, sem lést þriðjudaginn 7. janúar, verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.30. Steingrímur Svavarsson, Vordís Björk Valgarðsdóttir, Sigurður Steingrímsson, Ólafur Steingrímsson, Þórdís Ása Þórisdóttir, Sigmar Steingrímsson, Brynja Hergeirsdóttir, Guðmundur Helgi Steingrímsson, Hannesína Scheving og frændsystkini hinnar látnu. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGMUNDAR BALDVINSSONAR, Borgarvegi 36, Njarðvík. Anna Magnúsdóttir, börn, tengdabörn, afa- og langafabörn. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför GUÐMUNDAR MARÍASSONAR, áður til heimilis á Tangagötu 31, Ísafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Sjúkrahúss Ísafjarðar og Hlífar. Hafliði Guðmundsson, Arndís Sigurðardóttir og aðrir aðstandendur. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. KRISTÍN GUÐRÍÐUR ELÍASDÓTTIR ✝ Kristín GuðríðurElíasdóttir fædd- ist í Landsveit 3. ágúst 1925. Hún lést á heimili sínu í Kópa- vogi hinn 1. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Elías Eiríksson og Karen Kristófersdóttir. Kristín átti þrjár dætur, þær eru: Fríða Rannveig, Lúvísa Signý og Kar- en Elísabet. Útför Kristínar var gerð í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þig umvefji blessun og bæn- ir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðj- um, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma. Með þessum fáu orðum langar okkur til þess að kveðja þig og þakka þér fyrir allt sem þú varst okkur. Við trúum því að nú líði þér vel og það hafi verið tekið vel á móti þér í sólarheimunum. Þín Gauti, Edda og Bestla. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein- stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.