Morgunblaðið - 18.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AUKIN SKULDBINDING
Þar sem meðalævi Íslendinga hef-
ur lengst er áætlað að heildar-
skuldbindingar lífeyrissjóða aukist
um 30 milljarða króna við uppgjör
ársins 2002. Lífslíkur Íslendinga
jukust um rúmlega hálft ár á tíma-
bilinu 1996–2000.
Davíð ræðir við Koizumi
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ræddi við Junichiro Koizumi, for-
sætisráðherra Japans, í Tókýó í gær
og þakkaði honum stuðning Japana í
hvalveiðimálinu. Þeir ræddu einnig
vaxandi viðskipti landanna og
ástand mála í Írak og Norður-
Kóreu.
4,5 milljóna kr. févíti
Kauphöll Íslands hefur ákveðið að
beita Búnaðarbankann févíti að fjár-
hæð 4,5 milljónir króna fyrir að hafa
brotið flöggunarreglur í tengslum
við gerð samnings um meðferð
hlutabréfa í Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. 19. júní í fyrra. Bún-
aðarbankinn mótmælir því að samn-
ingurinn hafi verið flöggunar-
skyldur.
Oddarnir „áhyggjuefni“
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segir að stjórn
George W. Bush forseta hyggist
sanna fyrir lok mánaðarins að Írak-
ar hafi brotið gegn skilmálum
L a u g a r d a g u r
18.
j a n ú a r ˜ 2 0 0 3
2003 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TONY ADAMS: VEÐMÁLIN KOMA Í STAÐINN FYRIR ÁFENGI / B4
ARON Kristjánsson, hefur skrifað undir þriggja
ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Team
Tvis Holstebro, en hann var einnig í viðræðum við
Team Helsinge. Gengur Aron til liðs við félagið í
sumar, en þá rennur núverandi samningur hans við
Hauka út. Aron þekkir vel til í dönskum handknatt-
leik því á árunum 1998–2001 lék hann með úrvals-
deildarliðinu Skjern við góðan orðstír.
Team Tvis Holstebro er á Vestur-Jótlandi og er
sem stendur í 10. sæti af 13 liðum í dönsku úrvals-
deildinni. Liðið er skipað ungum og efnilegum
mönnum og hyggst styrkja sig með reyndari mönn-
um fyrir næstu leiktíð og er samningurinn við Aron
ein staðfesting þess. Á heimasíðu félagsins segir að
það hafi gert Alexanders Petersons, leikmanni
Gróttu/KR, tilboð vegna næstu leiktíðar sem hann
hafi ekki svarað ennþá.
Aron semur
við Holstebro
GYLFI Einarsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, og samherji hans
hjá Lilleström, Þjóðverjinn Uwe
Rösler, lentu
í miklum
slagsmálum á
æfingu liðs-
ins. Peter
Werni, vara-
fyrirliði liðs-
ins, þurfti að
skilja þá fé-
laga í sundur,
en norska
blaðið VG
segir að sleg-
ist hafi verið
af hörku.
Gylfi segir að
slagsmál séu
daglegt
brauð á æf-
ingum og vildi ekki gera mikið úr
atvikinu.
„Ég fór yfir strikið í þetta sinn
en við Rösler höfum lagt þetta
mál til hliðar. Auk þess vilja þjálf-
arar liðsins að það sé kraftur á
æfingum liðsins. Og allir vilja
vinna þegar spilað er á æfingum,“
segir Gylfi við VG.
Gylfi og
Rösler
slógust á
æfingu
Gylfi Einarsson
GRÆNLENDINGAR, sem mæta
Íslendingum í heimsmeist-
arakeppninni í handknattleik í
Portúgal á þriðjudaginn, unnu
síðasta æfingaleik sinn áður en
flautað verður til leiks á HM. Í
fyrrakvöld mættu Grænlendingar
franska liðinu Marseille í
Marseille og unnu með fimm
mörkum, 23:18, eftir að hafa
verið þremur mörkum yfir í
hálfleik, 11:8. Kvöldið áður höfðu
Grænlendingar tapað fyrir Nim-
es, 21:20.
Mörk grænlenska liðsins í
leiknum við Marseille gerðu: Jak-
ob Larsen 9, Niels Poulsen 4,
Hans Peter Motzfeldt, fyrrver-
andi leikmaður FH, 4, Rasmus
Larsen 3, Carsten Olsen 2, Hans
Knudsen 1.
Grænlend-
ingar unnu
í Marseille
Alls renna 22 millj. af þessumstyrkjum til hópíþrótta sem er
aukning frá því áður hefur verið.
Kemur þar m.a. til aukning á
styrkjum frá Alþingi vegna hóp-
íþrótta. Hæsti styrkurinn rennur til
Handknattleikssambands Íslands,
12,5 millj. króna til undirbúnings
vegna heimsmeistarakeppninnar
sem hefst í Portúgal eftir helgina,
en alls koma 14,2 millj. í hlut HSÍ
þegar styrkir til landsliðs kvenna og
unglingalandsliða eru teknir með í
reikninginn. Þá fær Knattspyrnu-
samband Íslands 5 millj. króna, og
helmingur þess er eyrnamerktur
landsliði kvenna. Körfuknattleiks-
sambandið fær 2,9 millj.
Fimm íþróttamenn halda áfram
að fá svokallaðan A-styrk eins og á
síðasta ári, en hann nemur 1.440.000
á ári. Þetta eru frjálsíþróttamenn-
irnir Jón Arnar Magnússon, Vala
Flosadóttir og Þórey Edda Elísdótt-
ir, júdómaðurinn Vernharð Þorleifs-
son og Örn Arnarson, sundmaður.
Alls fær Frjálsíþróttasamband Ís-
lands styrki upp á rúmar 9 millj.
króna en inni í þeirri upphæð eru
styrkir til Jóns Arnar, Völu og Þór-
eyjar. Þá fær Sundsambandið rúm-
ar 5 millj. og Júdósambandið rétt
rúmar 4 millj. Í þessum tölum eru
styrkir Arnar og Vernharðs.
Ellert segir að ástæða þess að
hægt sér að úthluta hærri styrkjum
nú en nokkru sinni fyrr sé aukinn
styrkur Alþingis vegna hópíþrótta,
góður stuðningur fyrirtækjanna í
Ólympíufjölskyldunni, þ.e. Íslands-
banka, Visa, Sjóvár/Almennra,
Flugleiða og Austurbakka og bætt
staða Afrekssjóðs vegna aukningar
á hagnaði ÍSÍ af lottósölu en Af-
rekssjóður fær 8% af lottóhagnaði
ÍSÍ til ráðstöfunar. Þá komi veru-
legt framlag frá Ólympíusamhjálp
Alþjóðaólympíunefndarinnar einnig
til góða.
Þrátt fyrir meiri úthlutun styrkja
en nokkru sinni fyrr þá dugir það
ekki til þess að koma til móts við all-
ar óskir sérsambandanna, að sögn
Ellerts, því alls hafi þau sótt um
styrki að upphæð 215 millj. að þessu
sinni.
Viðbótarstyrkjum verður úthlut-
að í vor til þeirra sérsambanda sem
senda íþróttamenn á Smáþjóðaleik-
ana á Möltu, en ÍSÍ reiknar með að
greiða á milli 60 og 70% af kostnaði
vegna þátttöku í leikunum. Eins má
búast við viðbótarúthlutun úr sjóð-
unum í haust.
Morgunblaðið/Sverrir
Þórey Edda Elíasdóttir og Vala Flosadóttir ræða saman í stangarstökkskeppninni á Ólympíuleikunum í Sydney. Þær eru í
A-styrktarflokki hjá Afrekssjóði ÍSÍ og þær hafa báðar sett stefnuna á ÓL í Aþenu 2004.
Hæstu greiðslur
ÍSÍ frá upphafi
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) úthlutaði í gær 62 millj-
ónum úr Afrekssjóði ÍSÍ, Afrekssviði ÍSÍ vegna Ólympíufjölskyldu ÍSÍ
og Sjóði ungra og efnilegra íþróttamanna vegna þessa árs. „Þetta
eru hæstu greiðslur sem úthlutað hefur verið frá upphafi í einu lagi
úr þessum sjóðum og það er mikið gleðiefni,“ sagði Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, þegar úthlutun styrkjanna var kynnt í gær.
Afreksmannasjóður ÍSÍ úthlutar 62 milljónum króna í styrki til sérsambanda
Styrkir frá ÍSÍ/B3
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Viðskipti 12/14 Minningar 3543
Erlent 16/18 Kirkjustarf 44
Höfuðborgin 19 Messur 44/45
Akureyri 20 Staksteinar 46
Suðurnes 21 Myndasögur 48
Árborg 22 Bréf 48
Landið 23 Dagbók 50/51
Listir 34/35 Leikhús 52
Neytendur 24 Fólk 52/57
Heilsa 24 Bíó 54/57
Menntun 28 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
LEIKSKÓLINN Fífuborg í Grafarvogi á 10 ára afmæli í
dag. Af því tilefni hélt skólinn líflega afmælishátíð í
gær. Börnin buðu foreldrum á leiksýningu og gáfu svo
leikskólanum sínum góðar gjafir. Þau gáfu Fífuborg
endurskinsvesti til að nota í gönguferðum og kubba.
Þau 95 börn sem á leikskólanum eru fengu svo öll
súkkulaðiköku og sungu afmælissönginn hástöfum um
leið og þau veifuðu íslenska fánanum. Leikskólakenn-
ararnir sýndu svo leikrit fyrir börnin og í lokin leystist
veislan upp í mikinn dansleik. Elín Ásgrímsdóttir leik-
skólastjóri var afar ánægð með daginn og sagði hann
hafa heppnast vel í alla staði.
Morgunblaðið/Kristinn
Fífuborg hélt upp á áratugar afmæli
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
FERÐAMÖNNUM er óheimilt að
flytja hrátt kjöt og ógerilsneydda
osta til landsins. Niðursoðið kjöt
telst vera soðið og er því löglegt en
aftur á móti er ekki nægjanlegt að
vara sé t.d. söltuð eða reykt. Þetta
kemur fram í reglum embættis yf-
irdýralæknis um varnir gegn því að
dýrasjúkdómar og sýktar afurðir
berist til landsins en eins og greint
hefur verið frá hóf sýslumaðurinn í
Keflavík að sekta ferðamenn vegna
ólögmæts innflutnings á matvöru.
Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður viðurkennir í samtali við
Morgunblaðið að óþægilegt sé að
framfylgja reglum sem almenning-
ur eigi erfitt með að skilja. Eins
hljóti það að vera grunnforsenda að
fólk geri sér grein fyrir hvenær það
er að brjóta af sér og hvenær ekki.
Almennt gildir sú regla að ferða-
menn megi flytja inn varning að
heildarverðmæti um fimmtíu þús-
und krónur og að verðmæti ein-
stakra vara sé ekki meira en um 22
þúsund krónur. Um kjöt og osta
gildir hins vegar að tollfrjáls inn-
flutningur er bundinn við magn eða
þrjú kíló. Þá má segja að við inn-
flutning á kjöti og osti gildi öfug
sönnunarbyrði, yfirvöldum ber ekki
að sýna fram á að um ólögmætan
innflutning sé að ræða heldur ber
ferðamönnum að sýna fram á með
óyggjandi hætti að varan sé lögleg.
Því munu vera mörg dæmi um að
menn hafi verið stöðvaðir í Leifs-
stöð með vöru sem fæst í verslunum
og hún gerð upptæk þar sem ekki
var greint skýrt frá meðhöndlun á
umbúðum vörunnar.
Áhöld um að fólk viti að það
sé að brjóta af sér
Aðspurður segist Jóhann R.
Benediktsson ekki leyna því að það
sé óþægilegt að framfylgja reglum
sem almenningur eigi erfitt með að
skilja. Það sé grunnforsenda að fólk
geri sér grein fyrir hvenær það er
að brjóta af sér og hvenær ekki.
Það sé alltaf óheppilegt ef löggæslu-
aðilar séu settir í slíka stöðu. „Það
skilja allir hvers vegna við stöðvum
menn með fíkniefni en almenningur
á að mínu viti rétt á að fá skýrari
upplýsingur um hvers vegna þetta
eftirlit þarf að vera svona strangt.“
Aðspurður segir Jóhann að settar
verði merkingar um reglurnar í
komusal og þá sé vonast til þess að
leyfi fáist til að setja ítarlegar leið-
beiningar í flugvélar og það mál
verði í höfn fyrir lok marsmánaðar,
áður en aðalferðamannatíminn
hefst.
Sektir vegna innflutnings ferðamanna á kjöti og ostum
Reglum ekki framfylgtá sunnudaginn
Dorrit Moussaieff
Dorrit Moussaieff segir frá ætt sinni og uppeldi,
áhugamálum og störfum í viðtali við Kristínu Marju
Baldursdóttur.
Frönsk kvikmyndahátíð
Árni Þórarinsson fjallar um frönsku kvikmyndahátíðina
og ræðir við einn athyglisverðasta og umdeildasta
leikstjóra Frakka um þessar mundir.
Rússneskt veisluborð
13 dögum eftir að jólahaldi Íslendinga lýkur halda
Rússar jól samkvæmt rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni.
Orðið „bistro“ er fengið úr rússnesku og merkir
einfaldlega hratt.
Morgunblaðið/RAX
VETURINN brast á með fullum
þunga á Austfjörðum í gær og olli
truflunum í samgöngum og skóla-
haldi. Tvö snjóflóð og nokkrar spýj-
ur féllu í Vattarnesskriðum, milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar,
en engan sakaði. Einnig féllu spýjur
niður á veginn um Fagradal.
Mokstursmenn Vegagerðarinnar
urðu víða frá að hverfa á fjallvegum
austanlands. Veðrið gekk niður að
mestu í gærkvöldi en samkvæmt spá
um minnkandi úrkomu ætti mokstur
á fjallvegum að hefjast á ný í dag.
Lokað var í gær um Breiðdalsheiði,
Oddsskarð, Vatnsskarð og Fagradal
en Vegagerðinni tókst að opna
Fjarðarheiðina undir kvöld. Stórhríð
var á Mývatns- og Möðrudalsöræf-
um og þæfingsfærð.
Snjóflóð og
þæfingur
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Eskfirðingar fóru ekki varhluta af fannferginu í gær þegar hríðin var nær
lárétt. Minnisvarðinn um fallna sjómenn stóð veðrið af sér.
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um samstarf við eftirlitsmenn sam-
takanna. Talsmaður Bush segir það
„áhyggjuefni og alvarlegt mál“ að
ellefu efnavopnaoddar skyldu hafa
fundist í Írak.
67% Norðmanna vilja í ESB
Um 67% Norðmanna segðu já við
aðild að Evrópusambandinu ef kosið
yrði um það nú, ef marka má nýja
skoðanakönnun. Hafa kannanir
aldrei fyrr sýnt jafnmikinn stuðning
við aðild Noregs að ESB.
Krefst sýknu í sex atriðum
Mál ríkissaksóknara gegn Árna
Johnsen, fyrrverandi alþingismanni,
var flutt fyrir Hæstarétti í gær og
verjandi hans sagði hann eiga sér
miklar málsbætur. Krafðist hann
sýknu í sex ákæruatriðum af 18 sem
Árni var sakfelldur fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur og staðfestingar á
sýknu af níu ákæruatriðum.