Morgunblaðið - 18.01.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.01.2003, Blaðsíða 56
ROBERT Townsend erlíklega ekki kunn-uglegt andlit en enguað síður fer hér einn áhrifamesti þeldökki leikari og listamaður síðustu áratuga. Ástæða ókunnugleikans liggur í því að Townsend er iðulega á bak við tjöldin, hvar hann er mikilvirkur mjög. Hann er af- kastamikill handritshöfundur, framleiðandi og leikstjóri, auk þess sem hann leikur líka. Og eins og svo margir sinna líka hóf hann ferilinn með uppistands- sprelli, svið sem hann ætlar að snúa aftur á hér á landi, eftir nokkurt hlé. En auk þess liggur mikilvægi Townsend sem listamanns í glúr- inni meðvitund hans um stöðu svartra í Bandaríkjunum, hvort sem það eru listamenn eða al- mennir þjóðfélagsþegnar. Leynt og ljóst hefur hann unnið að því að halda uppi umræðu um þessi mál og þannig fjallaði fyrsta mynd hans sem sló í gegn, gam- anmyndin Hollywood Shuffle (’87), um harðræði það sem svartir leikarar þurfa að glíma við í henni Hollywood. Townsend hefur einkanlega komið að spaugsömum verk- efnum og því athyglisvert að fyrst bar á honum í dramamynd- inni A Soldier’s Story árið 1984. Hann sló svo óforvarandis í gegn með fyrstu mynd sinni, Holly- wood Shuffle, þar sem hann var allt í öllu; lék, skrifaði, leikstýrði og framleiddi. Þá leikstýrði hann vinsælli uppistandsmynd Eddie Murphy, Raw (’87) og hefur leik- stýrt fólki eins og Halle Berry, James Earl Jones Bill Cosby, Louis Gossett Jr., Whoopie Goldberg og Sinbad. Á tíunda áratugnum lagði Town- send einkum fyrir sig sjónvarps- vinnu, lagði grunninn að tveimur skemmtiþáttum, Townsend and His Partners in Crime og Townsend Television. Þá skóp hann hinn vinsæla grínþátt The Parent’ Hood árið 1995. Þess má geta að hér er um al- heimsfrumsýningu að ræða en í kjölfarið fer Townsend til Banda- ríkjanna til frekara skemmt- anahalds. Richard Pryor mikilvægur Jæja, bara á leiðinni til Ís- lands? „Jú, laukrétt. Ég verð með nýtt uppistand sem ég hef nýlok- ið við og fjallar það um líf mitt og hvernig ég hef upplifað skemmtanabransann. Ég fer út í uppeldisár mín í vafasömum hverfum Chicago-borgar og hvernig leið mín lá svo til Holly- wood á endanum. Ég hef verið að vinna með Chris Tucker að undanförnu og skrifa með honum handrit að myndinni Mr. Presi- dent, sem fjallar um fyrsta svarta forsetann í Bandaríkj- unum. Við héngum svolítið sam- an á uppistandsstöðum og þá fór ég allt í einu að sakna þess að koma fram á sviði, en ég hef að- allega fengist við leikstjórn síð- ustu árin. Ég er því nokkuð spenntur, enn fremur sem ég hef aldrei komið til Íslands áður.“ Mörgum hrýs hugur við þá til- hugsun að standa frammi fyrir fólki, hvað þá að þurfa að hitta í mark með bröndurum trekk í trekk. Hvernig fara menn eig- inlega að þessu? „Jaa ... að mínu viti búa allir yfir einhverjum hæfileikum og mér finnst eins og ég sé fæddur grínari. Vissulega getur það ver- ið skelfilegt að standa uppi á sviði og heyra saumnál detta eft- ir einhvern brandarann og því er það mikilvægt að „lesa“ áhorf- endurna vel. Brandari miðaður að hláturtaugum karla á líkast til eftir að ganga illa ef áhorfendur eru mestmegnis konur. Þá þora karlarnir ekki að hlæja! Tíma- setning skiptir þannig máli, sem og að tala um hluti sem allir geta tengt sig við.“ Þetta form, uppistand, hvað er það í þínum huga? Er þetta list eða bara hrein afþreying? „Svo ég einblíni á sýninguna mína, þá er það einhvers konar blanda af söngleik, eftirhermu og spjalli. Þetta er einhvers konar eins manns Broadway-sýning.“ Hverjir eru helstu áhrifa- HINN FJÖLHÆFI ROBERT TOWNSEND SKEMMTIR HÉR Á LANDI Í FEBRÚAR Leikarinn, leikstjórinn, handritshöfundur- inn og grínistinn Robert Townsend verður með uppistand í Háskólabíói í febrúar. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Townsend um lífsins gagn og nauðsynjar. Robert Townsend. „Orðið „erfitt“ er ekki til í mínum orðaforða.“ „Ég lifi í draumi“ ’ Ég hefverið að vinna með Chris Tucker að undan- förnu og skrifa með honum handrit að mynd- inni Mr. President, sem fjallar um fyrsta svarta forsetann í Bandaríkjunum. ‘ Chris Tucker 56 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I / / Robert DeNiro, BillyCrystal og Lisa Kudrow (Friends) eru mætt aftur í frábæru framhaldi af hinni geysivinsælu gamanmynd AnalyzeThis. Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Forsýning kl. 6, 8 og 10. ÁLFABAKKIÁLFABAKKI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI / KEFLAVÍK / / / / /Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 7, 9, 10 og 11. / Sýnd kl. 8 og 10. / / / ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 14. DV Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential þar sem rapparinn EMINEM fer á kostum í sínu fyrsta hlutverki.  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal. Yfir 57.000 áhorfendur Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 12. H.K. DV GH. Vikan SK RadíóX SV. MBL GH. Kvimyndir.com Sýnd kl. 6.10.Sýnd kl. 8 og 10.15. HL MBL Kvikmyndir.is Kl. 2 La Répetition - Æfingin Kl. 4 Une Hirondelle a Fait Le Printem - Stúlkan frá París Kl. 6 Sex is Comedy Kl. 8 Tanguy - Hótel Mamma Kl. 10 Sex is Comedy Sýnd kl. 3.40.Sýnd kl. 2.30.  1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.