Morgunblaðið - 18.01.2003, Blaðsíða 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGASPJÖLD flokkanna í Hollandi þekja vegg í
Haag en hlauparinn virðist ekki áhugasamur. Kosið
verður til þings á miðvikudag, samsteypustjórn hægri-
og miðflokka sem tók við eftir kosningar í maí í fyrra
varð ekki langlíf. Flokki hins látna leiðtoga Pims Fort-
uyns, sem fékk þá mikið fylgi og fékk ráðherra í stjórn-
inni, er spáð algeru hruni og talið að hann fái aðeins
um 2% stuðning. Stjórnmálaskýrendur töldu að flokk-
urinn hefði fengið mikið af samúðaratkvæðum vegna
morðsins á Fortuyn rétt fyrir kosningarnar í fyrra.
Verkamannaflokkurinn, sem beið afhroð í fyrra, fær
nú öflugan stuðning í könnunum.
AP
Flokki Fortuyns spáð hruni
SEXTÍU og sjö prósent Norð-
manna segðu já við aðild að Evr-
ópusambandinu ef kosið væri um
það nú en 33% nei. Er þá miðað við
þá, sem tekið hafa afstöðu. Kemur
þetta fram í skoðanakönnun, sem
gerð var fyrir dagblaðið Aftenpost-
en og norska ríkisútvarpið. Hafa
kannanir aldrei fyrr sýnt jafnmik-
inn stuðning við ESB-aðild og
meirihluti er fyrir henni í öllum
landshlutum.
Svörin í könnuninni voru þau, að
57% sögðu já, 29% nei og 14% höfðu
ekki gert upp hug sinn. Hefur tala
óákveðinna verið á þessu róli í öll-
um könnunum síðasta hálfa árið en
stuðningsmönnum aðildar hefur
stöðugt verið að fjölga og andstæð-
ingunum að fækka að sama skapi.
30% þeirra, sem sögðu nei í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni 1994, segjast
nú munu segja já og hefur þetta
hlutfall hækkað um níu prósentu-
stig frá því í desember. Meðal
þeirra, sem ekki kusu 1994 en hafa
tekið afstöðu, nýtur ESB-aðild
stuðnings 63% en 37% eru á móti.
Mesta breytingin
innan SV
Ef litið er á afstöðu kjósenda ein-
stakra flokka, kemur í ljós, að lang-
mesta breytingin er innan Sósíal-
íska vinstriflokksins. Nú eru 47%
flokksmanna hlynnt aðild en 35% í
desember. Öruggur meirihluti er
fyrir aðild í Hægriflokknum, Verka-
mannaflokknum, Framfaraflokkn-
um og Venstre en andstaðan er í
meirihluta í Miðflokknum, Kristi-
lega þjóðarflokknum og Rauða
kosningabandalaginu.
Könnunin sýnir, að meirihluti er
fyrir aðild í öllum landshlutum.
Mestur er stuðningurinn í Ósló og
Akershus, 77%, en minnstur er
hann í Þrændalögum, 58%, og 60%
á Vesturlandinu og í Norður-Nor-
egi.
Aldrei meiri stuðningur en nú
við ESB-aðild í Noregi
Meirihluti í
öllum lands-
hlutum
ROH Moo-Hyun, sem tekur við for-
setaembætti í Suður-Kóreu í lok
febrúar, segir að Norður-Kóreu-
menn muni láta undan þrýstingi
margra ríkja, þ. á m. Bandaríkjanna,
Rússlands og Kína og hætta við
smíði kjarnorkuvopna.
„Ég tel að vandann sé hægt að
leysa með viðræðum vegna þess að
Norður-Kóreumenn vilja í einlægni
auka samskiptin við umheiminn og
hefja umbætur vegna þess að ríkið á
enga aðra kosti,“ sagði Roh í gær.
Ummæli hans stangast nokkuð á
við það sem varnarmálaráðherra
S-Kóreu, Lee Jun, sagði daginn áð-
ur. Sagði Lee að S-Kóreumenn yrðu
að vera reiðubúnir að berjast ef
samningatilraunir bæru þrátt fyrir
allt ekki árangur. Fulltrúar Rússa
og Kínverja áttu fund í Peking í gær
til að reyna að finna leiðir til að leysa
deiluna um kjarnavopnin.
Vongóður
um lausn
Seoul. AFP.
TALSMAÐUR breska iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytisins hefur upp-
lýst, að farið hafi nær 13 milljónir
ísl. kr. í að rannsaka hvaða afl þarf
til að opna ýmsar pakkningar, ým-
ist úr pappa, plasti eða sellófani.
Alkunna er, að oft er þrautin
þyngri að opna pakkningar, til
dæmis næfurþunna sellófanpoka.
Mörg dæmi eru um, að fatlað fólk
og aldrað hafi lent í miklum vand-
ræðum. Er þá stundum gripið til
skæra eða hnífa og sumir slasa sig.
Vísindamönnum við Nottingham-
háskóla var fengið það verkefni að
kanna hvaða afli þarf að beita við
pakkana og þeir eiga einnig að búa
til ákveðna staðla fyrir hina ýmsu
hópa. Þá er átt við, að styrkleiki
sumra pakkninga verði sérstaklega
miðaður við hina þróttminni.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
breska vonast til, að umbúða-
framleiðendur taki hér eftir tillit til
þeirra, sem eru fatlaðir eða komnir
yfir fimmtugt.
Pakka-
skammir
kannaðar
London. AFP.
♦ ♦ ♦
ÓTTAST er, að bananinn verði
horfinn af borðum neytenda eftir
áratug ef ekki tekst að koma fram
með ný afbrigði, sem standast sjúk-
dóma og sníkjudýr betur en þau,
sem nú eru í ræktun.
Dr. Emile Frison, yfirmaður al-
þjóðlegrar stofnunar um banana og
bananaræktun, segir, að þessi
ávöxtur, sem er daglegt brauð á
borðum fólks um allan heim og
mikilvægur þáttur í mataræði
margra fátækra þjóða, sé að verða
undir í baráttunni við sjúkdóma og
sníkjudýr. Var skýrt frá þessu á
fréttavef BBC.
Vandamálið er það, að bananinn,
sem við kaupum úti í búð, Cavend-
ish-afbrigðið, er frælaust og ófrjótt
fyrirbrigði, sem getur hæglega far-
ið sömu leið og fyrirrennari þess
fyrir hálfri öld, það er að segja
þurrkast út. Segir Frison í grein í
vísindatímaritinu New Scientist, að
erfðafræðilegur fjölbreytileiki af-
brigðisins sé lítill sem enginn og
þess vegna sé það svo berskjaldað
fyrir sjúkdómum og sníkjudýrum.
Eru helstu ógnvaldarnir þessir:
Panama-sýkin, sveppasýking,
sem þurrkaði út Gros Michel-
bananaafbrigðið á sjötta áratug
síðustu aldar.
Svarta Sigatoka, önnur sveppa-
sýking, sem er að verða óviðráð-
anleg um allan heim.
Sníkjudýr, sem herja í auknum
mæli á bananaekrurnar í Mið-
Ameríku, Afríku og Asíu.
Í grein New Scientist er ástand-
inu líkt við kartöflusýkina, sem olli
hungursneyði á Írlandi eftir 1840.
Frison segir, að sveppalyfin
verði æ gagnsminni og alveg sér-
staklega gagnvart Svörtu Sigatoka.
„Í hvert sinn sem komið er með
nýtt sveppalyf, myndar sveppurinn
ónæmi gegn því á skömmum tíma.
Eitt er alveg víst: Sigatoka mun
ekki tapa þessum slag.“
Frison og vísindamenn víða að
vinna nú að því að skrásetja erfða-
mengi bananans og er búist við að
það taki fimm ár. Beina þeir eink-
um sjónum sínum að villtum banön-
um, sem eru að sjálfsögðu frjóir og
fullir af hörðum fræjum, en þeir
eru ónæmir fyrir mörgum sveppa-
sýkingum, þar á meðal Sigatoku.
Vísindamennirnir segjast hins veg-
ar ekki hafa fengið neinn stuðning
frá stóru bananaframleiðendunum,
sem óttast, að fólk muni fúlsa við
erfðabreyttum banönum.
Er bananinn
að syngja
sitt síðasta?
Vegna erfðafræðilegrar fábreytni
er ræktaða afbrigðið að verða undir
í baráttu við sjúkdóma og sníkjudýr
Reuters
Í Afríku borða menn 50 sinnum meira af banönum en í Bretlandi enda er
ávöxturinn ein mikilvægasta fæðan þar í álfu. Hér er ungur, kongóskur
drengur að fara með klasa af óþroskuðum banönum á markaðinn.
FYRSTU ræktuðu og ætu ban-
anarnir komu fram í Suðaustur-
Asíu, líklega í Malasíu, fyrir þús-
undum ára en talið er að bananinn
sé fyrsti ávöxturinn sem menn
fóru að rækta. Frá Malasíu barst
síðan bananaplantan til nágranna-
landanna, meðal annars til Ind-
lands þar sem Alexander mikli
kynntist ávextinum árið 327 fyrir
Kristsburð.
Portúgalar hófu mikla ban-
anarækt á Kanaríeyjum á 15. öld
og plantan barst síðan með Spán-
verjum til Ameríku eða Karíba-
hafseyjanna um 1500. Í Bandaríkj-
unum var ávöxturinn fyrst kynnt-
ur á mikilli sýningu í Fíladelfíu
1876 þegar 100 ára afmælis sjálf-
stæðisyfirlýsingarinnar var
minnst.
Bananinn hefur fengið mörg
nöfn í gegnum tíðina en á öldum
áður var hann miklu smærri en nú.
Hann minnti þá á fingur og það er
einmitt merking orðsins banan á
arabísku.
Mörg afbrigði af banönum hafa
komið fram og átt sér mislanga líf-
daga, meðal annars eitt, sem
bragðaðist einna helst eins og epli.
Bananinn er nú ein af undirstöðum
mataræðis hálfs milljarðs manna í
Afríku og Asíu og í fyrrnefndu álf-
unni er banananeysla á mann 50
sinnum meiri en í Bretlandi.
Mörg þúsund ára saga
Morgunblaðið/Jim Smart
Bananar eru yfirleitt hafðir á
áberandi stað í vestrænum versl-
unum enda mikið keypt af þeim.