Morgunblaðið - 18.01.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Höfðabakki - til leigu
mjög hagstæð leiga
Atvinnuhúsnæði
Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.
Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
síma 588 4477 eða 822 8242
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30
Mögulegt er að skipta ofangreindum stærðum í smærri einingar.
Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfuðstöðvar Marels.
Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s. iðnað, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignarfélag.
1. hæð 624 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m
266 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m
780 fm Innkeyrslud./lofth. 7,6 m
2. hæð 1.040 fm - Skrifst. o.fl.
266 fm - Skrifst. o.fl.
STJÓRNIR SR-mjöls og Síldar-
vinnslunnar hafa gert með sér sam-
komulag um að leggja til við hluthafa
félaganna að þau sameinist frá 1. jan-
úar síðastliðnum. Tillaga þess efnis
verður lögð fram á aðalfundi félag-
anna tveggja. Stefnt er að því að
halda aðalfund SR-mjöls hinn 6. mars
og Síldarvinnslunnar 7. mars.
Sameinað félag mun samkvæmt
samkomulaginu fá nafnið Síldar-
vinnslan hf. og verða höfuðstöðvar
þess í Neskaupstað í Fjarðabyggð.
Forstjóri verður Björgólfur Jóhanns-
son, núverandi forstjóri Síldarvinnsl-
unnar. Tilgangur sameiningarinnar
er einkum að auka hagkvæmni í
rekstri og skapa aukinn styrk til að
nýta ný sóknarfæri í framtíðinni.
Í tilkynningu frá félögunum segir
að hér sé verið að sameina tvö öflug
sjávarútvegsfyrirtæki, ekki síst í veið-
um og vinnslu á uppsjávarfiski.
Síldarvinnslan er eitt af stærri og
öflugri sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins með um 260 starfsmenn og
áætlaða veltu upp á 4.500 milljónir
króna á nýliðnu ári.
SR-mjöl er stærsta fyrirtæki á Ís-
landi í framleiðslu fiskimjöls og lýsis
og reyndar stærsti einstaki lýsisfram-
leiðandi í heimi. Félagið starfrækir
fimm fiskimjöls- og lýsisverksmiðjur
og á hluti í fimm sjávarútvegsfyrir-
tækjum sem sérhæfa sig í uppsjáv-
arveiðum. Starfsmenn SR-mjöls eru
120 og áætluð velta á nýliðnu ári um
6.000 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að sölu- og mark-
aðsdeild SR-mjöls verði gerð að sjálf-
stæðu dótturfélagi með nafnið SR-
Mjöl hf. Opnað verður á þann mögu-
leika að aðrir aðilar sem áhuga hafa á
samstarfi í sölu- og markaðsmálum
geti eignast hlut í því félagi með
aukna sókn á erlenda markaði í huga.
SVN fær 60% hlutafjár
Við sameininguna verður hlutafé
Síldarvinnslunnar aukið um nær
527,8 milljónir króna og fá hluthafar
SR-mjöls hlutabréf að nafnverði 0,67
krónur í sameinuðu félagi fyrir hverja
krónu nafnverðs í SR-mjöli. Hlutafé
Síldarvinnslunnar var tæplega 1.172
milljónir króna og verður hlutafé
sameinaðs félags 1.700 milljónir
króna.
Hlutafjáraukningin er byggð á að
skiptihlutfall við sameininguna sé
þannig að hluthafar SR-mjöls fái 40%
hlutafjár í sameinuðu félagi og hlut-
hafar Síldarvinnslunnar 60%. Sú nið-
urstaða er fengin eftir ítarlega athug-
un Deloitte & Touche hf. og KPMG
endurskoðunar hf. á virði félaganna
og byggist á samræmdu mati eigna
og útreikningum á tekjuvirði þeirra
og áætlunum þeirra um rekstur og
fjárstreymi.
Samanlögð velta félag-
anna 10,5 milljarðar
Sameining SR-mjöls og Síldarvinnslunnar lögð fyrir hluthafa í mars
SKIPUM á aðalskipaskrá fækkaði á
síðasta ári um 57, en undanfarin ár
hefur fjölgað í flotanum. Þrátt fyrir
fækkunina er heildarbrúttótonn-
atala skipastólsins 4.756 tonnum
hærri en fyrir ári. Skýringuna er
m.a. að finna í stórum skipum sem
skráð voru á árinu. Þilfarsskip á skrá
eru samtals 1.135 og brúttótonnatala
þeirra er 235.775. Opnir bátar eru
samtals 1.273 og brúttótonnatala
þeirra er 7.473. Á skipaskránni eru
öll íslensk skip, fiskiskip, flutninga-
skip, ferjur, hvalaskoðunarskip og
smábátar.
Siglingastofnun gefur út á ári
hverju skrá yfir íslensk skip og báta
miðað við 1. janúar ár hvert. Í henni
er að finna frekari upplýsingar um
breytingar á skipa- og bátaflotanum
milli ára auk ítarlegra tæknilegra
upplýsinga um hvert skip, eiganda
þess, heimahöfn o.fl. Skráin er vænt-
anleg úr prentun síðar í mánuðinum.
! !
" " " " # $
! " #$%&
' ' ')
')*
'(
' )'(
)*' %!
! " #$%&
') ') ') ' ' '* '(*
'( &
' () *
+ + +-
+ . ,+++
,+.
++.
Færri skip en stærri
STÁLTÆKNI ehf. í Hafnarfirði hef-
ur hannað búnað sem hreinsar fisk-
hausa sem falla til við vinnslu frysti-
skipa og gerir kleift að koma með
hausana í land til þurrkunar. Svein-
björn Ingi Guðmundsson hjá Stál-
tækni ehf. segir að vélin geti skapað
umtalsverð verðmæti sem nú fara til
spillis.
Stáltækni hefur um nokkurt skeið
framleitt búnað fyrir fiskþurrkanir,
bæði pökkunarlínur og vinnslulínur.
„Við þekkjum því vel þau vandamál
sem upp koma í skreiðarþurrkun,“
segir Sveinbjörn. „Eitt stærsta
vandamálið hefur einfaldlega verið
hráefnisskortur og því hafa fram-
leiðendur í vaxandi mæli horft til
sjós, það er að segja um borð í
vinnsluskipin.“
Fiskhausum um borð í frystiskip-
unum er í langflestum tilfellum hent
aftur í hafið, fyrst og fremst vegna
þess að hausarnir eru í raun ónýtir
og óhæfir til vinnslu, að sögn Svein-
bjarnar. „Allur fiskur um borð í
frystitogurunum er hausaður ókútt-
aður og því fylgir lifrin með hausn-
um. Ef hausarnir eru frystir með
lifrinni, eyðileggur lifrin hausana
þegar þeir eru þíddir. Lifrin verður
hreinlega að lýsi og hausarnir þrána
í þurrkuninni.“
Mátti ekki kosta handtak
Stáltækni hóf því, að beiðni Sam-
herja hf. á Akureyri, að hanna vél
sem hreinsar fiskhausa sjálfkrafa
um borð í skipunum. „Krafan var sú
að hreinsunin mátti ekki kosta eitt
einasta handtak, yrði að vera al-
gjörlega sjálfvirk, enda eru haus-
arnir tiltölulega ódýrt hráefni og
ekki talið verjandi að fórna miklum
mannskap í að vinna við að hreinsa
hausana. Vélin vinnur þannig að hún
tekur við hausnum úr hausaranum,
sker hann frá vör og afturúr og flet-
ur hann þannig út. Hausinn er síðan
hreinsaður með bursta og háþrýsti-
þvotti. Vélin getur hreinsað um eitt
tonn af hausum af öllum stærðum á
tíu mínútum og ætti því að geta ann-
að fullri vinnslugetu frystiskip-
anna.“
Tvær vélar frá Stáltækni eru nú
til reynslu í landi, önnur í fiskvinnslu
Samherja í Dalvík og hin hjá fisk-
þurrkuninni Hnotskurn í Þorláks-
höfn en stefnt er að því að koma vél-
inni um borð í vinnsluskip sem fyrst.
Sveinbjörn telur að vélin geti orðið
til þess að bjarga verðmætum sem
nú fara til spillis. „Fiskhausar eru
orðin mikil söluvara og ég geri ráð
fyrir að vinnsluskipunum verði gert
að koma með alla hausa að landi áð-
ur en langt um líður. Þarna fara
mikil verðmæti til spillis og vélin
ætti því að vera gott innlegg í um-
ræðuna um aukið verðmæti sjáv-
arfangs,“ segir Sveinbjörn.
Vélin fletur hausana út og hreinsar þá.Hausahreinsivélin frá Stáltaki.
Stáltækni ehf.
hefur hannað
nýjan búnað til
að auka nýtingu
fiskhausa
Fiskhausar hreinsaðir úti á sjó
SKIP Hraðfrystihússins-Gunnvarar
hf. í Ísafjarðarbæ veiddu samtals
12.668 tonn á síðasta ári og nam verð-
mæti aflans um tveimur milljörðum
króna. Alls öfluðu skip HG 11.717
tonna á árinu 2001 og var verðmæti
aflans þá um 1.772 milljónir króna.
Afli frystitogarans Júlíusar Geir-
mundssonar ÍS var á síðasta ári um
4.600 tonn og nam verðmæti aflans
um 1.134 milljónum króna (fob). Skip-
ið er jafnan meðal þeirra bolfisk-
frystiskipa sem ber mestu verðmæti
að landi á hverju ári og á síðasta nam
aflaverðmæti þess um 1,1 milljarði
króna (cif). Uppistaðan í afla Júlíusar
var þorskur og grálúða.
Ísfisktogarinn Páll Pálsson ÍS
veiddi um 3.827 tonn fyrir um 436
milljónir króna. HG gerir út þrjá
rækjufrystiskip, Andey ÍS veiddi um
1.324 tonn fyrir um 144 milljónir
króna, Stefnir ÍS veiddi um 1.303
tonn fyrir um 143 milljónir króna og
Framnes ÍS veiddi um 1.276 tonn fyr-
ir um 137 milljónir króna. Afli inn-
fjarðarrækjubáta félagsins var um
338 tonn og nam verðmæti afla þeirra
um 26 milljónum króna.
Aflaverð-
mæti Júl-
íusar 1.134
milljónir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111