Morgunblaðið - 18.01.2003, Side 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
19. jan. kl. 14. örfá sæti
26. jan. kl. 14. laus sæti
2. feb. kl. 14. laus sæti
9. feb. kl. 14. laus sæti
Grettissaga
saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt
á Grettissögu
Í kvöld kl 20, örfá sæti
fim 23. jan kl. 19,
ath breyttan sýningartíma
Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is
Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00.
Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni
fyrir sýningu á www.hhh.is
Allra síðustu sýningar
lau 25/1 kl. 21, UPPSELT
lau1/2 kl. 21, Örfá sæti
föst 7./2 kl. 21,
Örfá sæti
lau 8/2 kl. 21,
Nokkur sæti
fim 13.2 kl. 21,
lau 15. 2 kl. 21.
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka
daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19
sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar
4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700
Lau 18/1 kl 21 Örfá sæti laus
Fös 24/1kl 21 Uppselt
Fös 31/1kl 21
Stóra svið
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
4. sýn í kvöld kl 20 græn kort UPPSELT
5. sýn fö 24/1 kl 20 blá kort
Lau 25/1 kl 20, Fö 31/1 kl 20, Lau 1/2 kl 20
Fi 6/2 kl 20, Fö 7/2 kl 20, Lau 8/2 kl 20, Fö 14/2 kl 20,
Lau 15/2 kl 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Su 19/1 kl 20, Su 26/1 kl 20, Fi 30/1 kl 20
Sýningum fer fækkandi
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 19/1 kl 14, Su 26/1 kl 14
Fáar sýningar eftir
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Forsalur
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
GINUSÖGUR-VAGINA MONOLOGER-
PÍKUSÖGUR á færeysku, dönsku og íslensku
Kristbjörg Kjeld, María Ellingsen, Birita Mohr,
Charlotte Böving.
Leiksýning, kaffi, tónleikar: Eyvör Pálsdóttir syngur.
Lau 25/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 19, UPPSELT. Ath. breyttan sýningart.
Fi 23/1 kl 20, Fö 31/1 kl 20, Fi 6/2 kl 20, Fö 14/2 kl 20
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Í kvöld 18/1 kl 21, UPPSELT,
Su 26/1 kl 21
Ath. breyttan sýningartíma
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Lau 25/1 kl 20, Fö 31/1 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
LEIKHÚSMÁL-ÞÝÐINGAR FYRIR LEIKSVIÐ
Frummælendur: Gauti Kristmannsson, lektor
Hallgrímur Helgason, rithöfundur og þýðandi Rómeó
og Júlíu Kjartan Ragnarsson, leikskáld og leikstjóri
Su 19/1 kl 20 ALLIR VELKOMNIR!
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
7. sýn. í dag kl. 16 Uppselt
8. sýn. sun. 19. jan kl. 16 Nokkur sæti laus
9. sýn. lau. 25. jan. kl. 16 Nokkur sæti laus
10. sýn. sun. 26. jan. kl. 16 Nokkur sæti laus
Aðeins 10 sýningar
Miðalsala í Hafnarhúsinu
alla daga kl. 10-17. Sími 590 1200
Hverdagslegt
kraftaverk
eftir Évgení Schwarz
Leikstjóri: Vladimír Bouchler.
Sérlega skemmtileg fjölskyldusýning
sýn. lau. 18. jan. kl. 19 laus sæti
sýn. lau. 8. feb. kl. 19
sýn. sun. 9. feb. kl. 15
sýn. föst. 14. feb. kl. 20
Aðeins þessar sýningar.
Barn fær frítt í fylgd með fullorðnum
Leyndarmál
rósanna
Frumsýning 31. jan. kl. 20
Uppistand um
jafnréttismál
Frumsýning 1. feb. kl. 20
Vörðufélagar Landsbanka íslands
fá 25% afslátt gegn framvísun
gulldebetkorts.
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Sun. 19. jan. kl. 20
Sun. 26. jan. kl. 15 og 20
Lau. 1. feb. kl. 20
Sun. 2. feb. kl. 15 og 20
HREIMUR Örn Heimisson, Birgitta
Haukdal, færeyska söngkonan Eivör
Pálsdóttir, Rúnar Júlíusson og hljóm-
sveitin Botnleðja eru á meðal flytj-
enda í forkeppni Sjónvarpsins fyrir
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva.
Dómnefnd hefur valið 15 lög til
flutnings en alls bárust 204 lög í for-
keppnina, sem fer fram í beinni út-
sendingu í Háskólabíói 15. febrúar.
Leynd hefur hvílt yfir hverjir flytj-
endur og höfundar laganna eru, en
vegna áhuga hefur Sjónvarpið ákveð-
ið að gefa upp nöfn laganna og flytj-
enda. Hins vegar verður ekki sagt
hverjir eru höfundar laganna fyrr en í
kynningarþáttum forkeppninnar,
sem sýndir verða 3. til 7. febrúar.
Úrslitin verða síðan í beinni út-
sendingu Sjónvarpsins og Rásar 2
laugardagskvöldið 15. febrúar í Há-
skólabíói. Gísli Marteinn Baldursson
og Logi Bergmann Eiðsson verða
kynnar. Ætlunin er að almenningur
geti keypt sér miða í Háskólabíói og
verður miðaverði stillt í hóf.
Símakosning á lokakvöldi
Framlag Íslands til Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva 2003
verður valið með símakosningu á
lokakvöldinu. Áhorfendur velja lagið
með því að hringja í símanúmer þess
lags sem þeir telja best.
Forkeppninni verður jafnvel sjón-
varpað beint til Færeyja að sögn Jón-
atans Garðarssonar, formanns dóm-
nefndar, sem kynnti flytjendur á
blaðamannafundi. Þetta ætti ekki að
koma á óvart því að Færeyingar eiga
fulltrúa í keppninni, Eivöru Pálsdótt-
ur. Jónatan sagði jafnframt að svo
virðist sem meiri spenningur ríkti
fyrir keppninni í ár enda tóku Íslend-
ingar ekki þátt í fyrra.
Jónatan hefur áður verið í dóm-
nefnd auk þess að hafa verið farar-
stjóri í síðustu ferð Íslendinga. Hann
segir hugsanlegt að hann verði far-
arstjóri einnig í næstu ferð.
Mikil gróska um allt land
„Vissulega er þetta gaman. Þetta
er mikil vinna og mikið af músík, sem
þarf að fara í gegnum. Fólk er að
senda inn alls staðar af landinu.
Gróskan er mikil. Alls staðar virðast
vera laga- og textahöfundar. Það er
greinilegt að svona keppni er hvati
fyrir lagasmiði, líkt og hún á að vera,“
segir hann.
„Við erum með fimmtán lög, það er
meira en nokkru sinni fyrr. Þá koma
þessi fimmtán lög til með að hljóma í
sjónvarpi og útvarpi. Hugsanlega
kemur eitthvað út á plötum,“ segir
Jónatan en fyrir fleiri en sigurveg-
arinn eiga möguleika. „Úr hverri
keppni koma tvö eða þrjú lög, sem ná
vinsældum þótt þau vinni ekki keppn-
ina. Þau lifa áfram engu að síður.“
Leðjan til Lettlands?
Athygli vekur að rokksveitin Botn-
leðja er á meðal keppenda með lagið
„Eurovísa“. Haraldur Freyr Gísla-
son, Heiðar Örn Kristjánsson og
Ragnar Páll Steinsson, sem skipa
þríeykið, segja að slagorðið þeirra sé
nú: „Leðjan til Lettlands.“
Hugmyndina að því að senda inn
lag í forkeppnina kom þegar fylgst
var með landsleik Íslands og Skota í
knattspyrnu um daginn.
„Þessir strákar eru alltaf að
ferðast til útlanda og keppa fyrir Ís-
land. Við erum ekkert sérstakir í fót-
bolta en við getum keppt í tónlist,“ út-
skýra þeir.
„Við rákumst á auglýsinguna. Við
vorum búnir að taka upp plötu og
sendum inn eitt lag í keppnina og hér
erum við,“ segja þeir og vilja minna
fólk á að „kjósa rétt“.
Botnleðja hyggst ekki eins og aðrir
nýta sér fjögurra manna hljómsveit,
sem Sjónvarpið leggur til undir
stjórn Gunnars Þórðarsonar. Auk
hans skipa Botnleðju Haraldur Þor-
steinsson, Sigfús Óttarsson og Þórir
Úlfarsson. Fleiri hljóðfæraleikarar
koma einnig við sögu í mörgum lag-
anna.
Bakraddir skipa síðan þau Hjördís
Elín Lárusdóttir, Kristján Gíslason
og Regína Ósk Óskarsdóttir.
Hreimur Örn Heimisson, söngvari
Lands og sona, syngur tvö lög í for-
keppninni, „Ég á mér lítinn draum“
og „Þú“. „Ég vona að ég geti sungið
bæði lögin jafnvel svo höfundarnir
verði ekki fúlir,“ segir hann.
„Mér líst rosalega vel á þetta. Mér
finnst æðislegt hvað þetta er fjöl-
breyttur hópur,“ segir Birgitta
Haukdal, söngkona hljómsveitarinn-
ar Írafárs, sem syngur lagið, „Segðu
mér allt“. Hún er sérstaklega ánægð
með að úrslitakeppni verði í Háskóla-
bíói og býst við góðri stemningu.
Kynslóðaskipti í gangi
Þrátt fyrir fjölbreytni eru flestir af
yngri kynslóðinni líkt og Hreimur og
Birgitta. Bendir Hreimur á að kyn-
slóðaskipti hafi átt sér stað í keppn-
inni síðustu tvö ár. „Það eru ákveðin
kynslóðaskipti í gangi, sem eru að
klárast núna,“ útskýrir hann.
Egill Eðvarðsson er upptöku- og
útsendingarstjóri keppninnar en
hann hefur gegnt því hlutverki marg-
oft allt frá fyrstu keppninni árið 1986.
„Við Gunnar Þórðarson gerðum til-
lögu að því að stækka keppnina. Við
erum að gera meira úr keppninni en
áður og til dæmis verður meira gert
úr kynningu á höfundum. Keppnin er
stærri í hugsun.“
Egill segir að hugmyndin um að
búa til sérstakan atburð í kringum
keppnina, úrslitakeppni í Háskóla-
bíói, hafi passað við þá hugmynd að
gera meira úr keppninni. „Þetta er ís-
lenskri dægurtónlist til hvatningar.“
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva fer fram í Riga í Lett-
landi 24. maí næstkomandi og verður
fulltrúi Íslands fyrstur á svið ytra.
Hvatning
fyrir íslenska
lagasmiði
Kynningarþættirnir verða á dagskrá
Sjónvarpsins 3. til 7. febrúar.
Úrslitakeppnin verður haldin 15.
febrúar í Háskólabíói og verður í
beinni útsendingu hjá Sjónvarpinu
og Rás 2.
Morgunblaðið/Golli
Leðjan til Lettlands? Heiðar Örn
Kristjánsson, Ragnar Páll Steins-
son og Haraldur Freyr Gíslason
skipa Botnleðju.
Hreimur Örn Heimisson og BirgittaHaukdal eru bæði spennt fyrirkeppninni.
Jónatan Garðarsson og Egill Eð-varðsson hafa báðir komið áður viðsögu hvað varðar framkvæmd keppn-innar, sem er stærri í hugsun í ár.
!
"
#
$ !
% !
!
" #
$
%
&'! & '
%" $
( ( #
($"!#
! )* "
) + $
, !-
&'
* !
+ !
!
Forkeppnin fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva