Morgunblaðið - 08.02.2003, Qupperneq 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 19
AKUREYRI
ENDURVINNSLA á timbri er nú í
fullum gangi á sorphaugunum á
Glerárdal ofan Akureyrar en þar
hefur safnast upp myndarlegt timb-
urfjall. Timbrið er tætt niður og að
sögn Jörundar Þorgeirssonar hjá
fyrirtækinu Tætingi er hugmyndin
að nýta kurlið sem yfirlag á rusla-
haugana þegar þeir eru komnir í
endanlega hæð.
Jörundur sagði að hér væri um
að ræða mjög hagkvæma endur-
vinnslu, þar sem fengist mjög gott
hráefni fyrir nánast ekki neitt.
Hann sagði að kurlið væri mjög
gott sem yfirlag, það grær í því og
vargfuglinn kemst ekki í gegnum
það. Aftur á móti hefur vargfuglinn
getað grafið sig í gegnum möl og
sand.
Jörundur sagði að á ruslahaug-
unum á Glerárdal væri mjög stórt
timburfjall. „Það var talið að hér
væru um 800 tonn af timbri. Í jan-
úar sl. tætti ég um 400 tonn en það
kom ekki stórt skarð í hauginn,
þannig að hér er um mun meira
magn að ræða, sem mun telja vel í
endurvinnslukílóum.“
Jörundur sagðist hafa fengið fyr-
irspurnir frá fleiri aðilum, sem
þyrftu á endurvinnsluþjónustu að
halda. „Það hafa margir mikinn
áhuga á þessu máli enda er tæting á
timbri ódýrasta leiðin til endur-
vinnslu, þar sem hvert kíló nýtist.
Ekkert efni nýtist betur til að hefta
t.d. sandfok og það má setja í dreif-
ara og dreifa á mela,“ sagði Jör-
undur.
Morgunblaðið/Kristján
Jörundur Þorgeirsson mokar timbri í tætarann.
Timbur tætt í kurl á sorphaugum Akureyrar
Ódýrasta leiðin til
endurvinnslu
Ingunn Helga Bjarnadóttir, sér-
fræðingur á þróunarsviði Byggða-
stofnunar, er gestur á laugardags-
fundi hjá Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði á Akureyri í dag, 8.
febrúar. Ingunn segir m.a. frá Norð-
urslóða-áætlun ESB sem Ísland
tekur nú þátt í. Henni er ætlað að
stuðla að samstarfsverkefnum sem
miðast að því að finna lausnir og/eða
stunda rannsóknir á sameiginlegum
viðfangsefnum norðurhéraða hvað
byggða- og atvinnuþróun varðar.
Laugardagsfundir VG hefjast
klukkan 11.
Í DAGKeramik fyrir alla
Námskeið
norðan heiða
KERAMIK fyrir alla, sem starfað
hefur í Reykjavík í rúm tvö ár, býður
Norðlendingum að kynna sér starf-
semina á námskeiði sem haldið verð-
ur á Punktinum á mánudagskvöld,
10. febrúar. Það hefst kl. 19 og kost-
ar 4.500 krónur.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað
þeim sem áhuga hafa á að stofna ker-
amikklúbb í heimabyggð í samstarfi
við Keramik fyrir alla. Farið verður
yfir og kenndar margar vinsælar að-
ferðir við keramikmálningu, hlutir
málaðir og er markmiðið að gera
þátttakendur sjálfbjarga um að
halda áfram að þróa sig í þessari vin-
sælu tómstundaiðju.
Sjálfstæðir keramikklúbbar þurfa
í raun ekkert nema aðgang að
brennsluofni, en Keramik fyrir alla
veitir aðra þjónustu frá upphafi til
enda, hægt er að panta nytja- eða
skrautmuni úr sýnishornalista á
Netinu, litir, penslar og glerungur
fylgja, þá er persónuleg ráðgjöf veitt
í síma. Eftir námskeiðin ættu allir að
geta stofnað slíka klúbba segir í frétt
frá fyrirtækinu.
w
w
w
.t
e
xt
il.
is
STÖK ferð með strætó fyrir full-
orðna mun kosta 220 krónur frá og
með 10. febrúar nk. og græna kortið
mun hækka um 700 krónur eða 42%.
Hækkun á allri gjaldskrá Strætó bs.,
sem þjónustar allt höfuðborgarsvæð-
ið, var samþykkt á fundi fyrirtækis-
ins á dögunum. Síðast hækkaði gjald-
skrá Strætó bs. í júlí árið 2001.
Gagnger breyting á leiðakerfi stræt-
isvagna á höfuðborgarsvæðinu er í
vinnslu.
Rekstrarumfang Strætó bs. á ný-
liðnu ári losaði 2 milljarða króna, en
fargjaldatekjur voru um 40% af
rekstrargjöldunum. Það sem upp á
vantar greiða aðildarsveitarfélögin,
samtals um 1,2 milljarð króna. Með
gjaldskrárhækkuninni nú má gera
ráð fyrir að fargjaldatekjur hækki
um 85 milljónir á árinu.
Heildarendurskoðun
leiðakerfis
„Við þurfum að auka tekjurnar,“
segir Ásgeir Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs., um ástæð-
ur gjaldskrárhækkunarinnar. „Það
er mikill halli á rekstrinum og við er-
um með þessu að reyna að lagfæra
það. Gjaldskrá Strætó hefur ekki
hækkað í ríflega hálft annað ár þann-
ig að okkar mati var einnig tímabært
að endurskoða gjaldskrána með tilliti
til verðlagsþróunar.“
Ásgeir segir að verið sé að vinna að
heildarendurskoðun leiðakerfisins.
Þar er sérstök áhersla lögð á nauð-
syn þess að strætisvagnar fái frekari
forgang í umferðinni.
„Árið 2001 sameinuðust tvö eldri
fyrirtæki og þar með tvö sjálfstæð
leiðakerfi,“ segir Ásgeir. „Okkur var
sett fyrir það verkefni að ráðast í
endurskoðun á leiðakerfinu þar sem
litið væri á höfuðborgarsvæðið sem
eina heild.“
Ásgeir segir að um verði að ræða
„grundvallaruppskurð á öllu leiða-
kerfinu eins og það leggur sig“.
Við endurskoðun kerfisins er
stuðst við viðamikla ferðavenjukönn-
un sem gerð var meðal íbúa höfuð-
borgarsvæðisins. Þá er einnig starf-
andi hjá Strætó bs. vinnuhópur
skipaður reyndum bílstjórum. Einn-
ig hafa verið fengnir til starfsins
sænskir og danskir sérfræðingar, en
þeir síðarnefndu voru einnig ráðgjaf-
ar við gerð svæðisskipulags höfuð-
borgarsvæðisins. Þeirra vinnu mun
ljúka í lok mars og er þá að vænta
kynningar á tillögum að breyttu
leiðakerfi.
„Þetta gæti kallað á miklar fram-
kvæmdir,“ segir Ásgeir og segir t.d.
hugsanlegt að ný skiptistöð, mið-
svæðis á höfuðborgarsvæðinu, verði
nauðsynleg. Í þeim efnum er sérstak-
lega litið til Kringlu-svæðisins, þar
sem útreiknaður þyngdarpunktur
höfuðborgarsvæðisins liggur og jafn-
vel kemur til greina að skiptistöðin
verði neðanjarðar, undir gatnamót-
um Kringlumýrar- og Miklubrautar.
„Von okkar eru sú að við getum
búið til öflugt og skilvirkt leiðakerfi
sem kemur fólki hratt og örugglega á
milli áfangastaða. Það sem við leggj-
um því mikla áherslu á í þessari
vinnu er að skilgreina aukinn for-
gang strætisvagnanna í umferðinni
sem er lykilatriði í almenningssam-
göngum svo fólk sjái sér hag í að nota
þær.“
Gjaldskrárhækkun hjá Strætó bs.
! "
# $ %
&' "
# %
& "
# (
)
*
)*
)
)+
)
(
)
$)
)$
,
,
,
,
*,
,
*,
,
(,
-,
./
0 1'
Unnið að gagngerri
breytingu á leiðakerfinu
Höfuðborgarsvæðið
MENNINGARLÍFIÐ í Hafnarfirði
er fjölskrúðugt en á fimmtudag
skrifaði bærinn undir samninga um
menningarstarfsemi við þrettán fé-
lög og félagasamtök. Samningarnir
eru til þriggja ára og eru að upp-
hæð 14,5 milljónir króna sam-
anlagt. Það er menningar-
málanefnd Hafnarfjarðar sem
hefur staðið að gerð samninganna
við félögin; Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar, Kammersveit Hafn-
arfjarðar, Ljósaklif, Leikfélag
Hafnarfjarðar, Sveinssafn, Karla-
kórinn Þresti, Kvennakór Hafn-
arfjarðar, Söngsveit Hafnarfjarðar,
Kammerkór Hafnarfjarðar, Kór
Öldutúnsskóla, Kór Flensborg-
arskólans, Kór eldri Þrasta og Gafl-
arakórinn.
Samningarnir eiga að tryggja að
nokkru fjárhagslegt öryggi til
handa þessum félögum og fé-
lagasamtökum, segir í frétt frá
Hafnarfjarðarbæ. „Á móti koma
ákvæði sem tryggja bæjarbúum þá
menningarþjónustu sem um ræðir
hjá hverju félagi um sig og þátttöku
þeirra í viðburðum á vegum bæj-
arfélagsins.“
Morgunblaðið/Kristinn
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Hrafnhildur Blomsterberg, stjórnandi
Flensborgarkórsins, skrifa undir samning fyrir hönd bæjarins og kórsins
að viðstöddum menningarfulltrúa bæjarins, Marín Hrafnsdóttur.
Samið um menningu
til þriggja ára
Hafnarfjörður
Vilja loka
Leirdals-
vegi
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Gust-
ur í Kópavogi vill láta loka akvegi
sem hestamenn þurfa að ríða yfir
til að komast út úr hesthúsahverf-
inu Glaðheimum. Félagið segir
veginn ekki á skipulagi, hann sé
illa lýstur en um hann fari mikil
umferð og töluvert sé um hrað-
akstur. Bæjarverkfræðingur
Kópavogs hefur nú fengið málið til
skoðunar.
Í nóvember á síðasta ári lagði
umferðarnefnd Kópavogs til að
lýsing á veginum yrði bætt en
hafnaði tillögu Gusts um að loka
veginum. Þá beindi skipulagsnefnd
því til bæjarráðs að kannaðir yrðu
möguleikar á að auka öryggi
hestamanna á reiðleið yfir veginn
sem kallast Leirdalsvegur.
Í bréfi frá Gusti til bæjaryfir-
valda nú í janúar kemur fram að
þegar hafi slys orðið er ekið var
þar á barn. Umferð hestamanna
aukist nú dag frá degi en til að
komast út úr hverfinu verði að fara
yfir veginn. Stjórn félagsins leggur
því aftur til að veginum verði lokað
ellegar undir hann byggð göng
sem myndi hafa töluverðan kostn-
að fyrir bæinn í för með sér.
Stjórnin lýsir þó eftir öðrum kost-
um í stöðunni séu þeir fyrir hendi.
Kópavogur
Bifvélavirki
Óska eftir að ráða bifvélavirkja á verkstæði á Akureyri.
Þarf að vera lipur í samskiptum,
með góða þjónustulund og helst með starfsreynslu.
Einnig þarf svolitla ensku- og tölvuþekkingu.
Ágæt laun í boði • Uppl. í síma 893 3288