Morgunblaðið - 08.02.2003, Qupperneq 22
ÚR VESTURHEIMI
22 LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
EGAR Elísabet Breta-
drottning og George VI
heimsóttu Kanada 1939
framleiddi Seagram
fyrirtækið Crown Royal
þeim til heiðurs og skömmu síðar
var þessi viskítegund sett á al-
mennan markað í Kanada. Sagan
segir að Samuel Bronfman hafi
reynt um 600 blöndur áður en hann
var ánægður. Þessari merkilegu og
sögufrægu framleiðslu er stjórnað
af Roy S. Eyjolfson, sem er af ís-
lenskum ættum en langafar og
langömmur hans fluttu frá Íslandi
til Kanada á 19. öld. Hann fæddist
sjálfur í Árborg, skammt frá Gimli,
en bjó sem barn með foreldrum
sínum, Stefan og Unu Sigurrós
Eyjolfsson, og bræðrum í Ontario-
fylki áður en hann flutti til Gimli.
Roy á ættir að rekja til Norður-
lands og Austfjarða. Þorsteinn Eyj-
ólfsson, langafi hans í móðurætt,
var frá Unaósi í Múlasýslu, en Lilja
Hallsdóttir, kona hans, frá Hjalta-
dal í Skagafirði. Hinn langafi hans í
móðurætt, Sigurður Jónsson, var
frá Njarðvík við Borgarfjörð
eystra, en Hansína Jóhannsdóttir,
kona hans, frá Raufarhöfn. Langafi
hans í föðurætt, Stefán Páll Guð-
mundsson var úr Húnavatnssýslu
og kvæntist konu þaðan, Guðrúnu
Benjamínsdóttur, en þau áttu
Steinunni Stefánsdóttur, móður
Stefans Eyjolfsson. Hinn langafi
hans í föðurætt, Eyjólfur Ein-
arsson, var frá Kolableikseyri í
Mjóafirði, en Þórunn Björnsdóttir,
kona hans, frá Borgarfirði eystra.
Meira en 30 milljónir
lítra á ári
Seagram opnaði verksmiðju í út-
jaðri Gimli í ágúst 1969 og hóf þar
framleiðslu á ýmsum áfengisteg-
undum, en í þessari verksmiðju eru
auk flaggskipsins Crown Royal
framleiddar þekktar viskítegundir
eins og til dæmis Seagram’s VO,
Seagram’s 83 og Seagram’s 5 Star.
„Við framleiðum meira en 30 millj-
ónir lítra af viskíi á ári,“ segir Roy
Eyjolfson, sem hefur starfað í fyr-
irtækinu síðan 1974 og verið fram-
kvæmdastjóri undanfarin fjögur ár
eftir að hafa haft umsjón með
framleiðslunni um árabil. „Við för-
um með um 250 tonn af korni á
dag og notum óhemju mikið af
vatni, en hér er unnið allan sólar-
hringinn.“
Verksmiðjan er á 120 hektara
svæði og þar eru m.a. 46 vöruhús
þar sem geyma má meira en
1.375.000 200 lítra tunnur af viskíi,
en starfsmennirnir eru 72.
Eitt stærsta
fyrirtæki Manitoba
Þessi verksmiðja er mjög mik-
ilvæg fyrir efnahag Manitoba og
færir fylkinu með einum eða öðrum
hætti mikla fjármuni. Meira en
80% af korninu og stór hluti maís-
ins, sem verksmiðjan notar, sam-
tals yfir 80.000 tonn á ári, er fram-
leitt í Manitoba. Fyrirtækið borgar
að sjálfsögðu skatta til fylkisins,
greiðir fyrir rafmagn, hita, vatn og
svo framvegis fyrir utan launa-
greiðslur og fleira. Samtals nema
þessar greiðslur meira en 20 millj-
ónum dollara á ári.
Þurrkað korn er hliðarfram-
leiðsla og selur fyrirtækið um
20.000 tonn af því á ári til nautabúa
og annarra kjötframleiðenda í Kan-
ada og Bandaríkjunum. Kornið er
mjög próteinríkt og sérstaklega
eftirsótt hjá nautgriparæktendum,
að sögn Roys. „Það hefur aldrei
verið gerð könnun á því hvaða fyr-
irtæki eru mikilvægust fyrir efna-
hag fylkisins en við erum örugg-
lega á lista yfir 50 mikilvægustu
fyrirtækin og í hópi 10 helstu fram-
leiðslufyrirtækja Manitoba.“
Þegar búið er að blanda viskíið
eins og það á að vera og geyma það
í ákveðinn tíma er það flutt í lest til
átöppunarstöðva annars staðar í
Kanada. Crown Royal er sett í út-
skornar flöskur og þær í flauels-
poka í Amherstburg í Ontario, en
hinum megin við ána er bandaríska
borgin Detroit. Hinar tegundirnar
eru átappaðar í Ville Lasalle í
Quebec en átöppunin verður flutt
til Valleyfield í Quebec innan tíðar.
Roy segir að ferlið sem slíkt hafi
ekki tekið neinum breytingum á
þessum nær 34 árum sem verk-
smiðjan hefur verið í gangi í Gimli.
„Við gerum ennþá það sem við
gerðum í byrjun en aðferðirnar
hafa breyst með aukinni tækni. Áð-
ur var eftirlitið handvirkt en nú er
allt tölvuvætt. Þegar verksmiðjan
var byggð var hún sú tæknilegasta
sinnar tegundar í heiminum og við
reynum að halda í við tæknina.“
Nýr eigandi
Í desember 2001 keypti Diageo
Seagram Company Ltd. Diageo,
eða samstarfsfyrirtæki þess, sér
meðal annars um framleiðslu,
átöppun og sölu á víntegundum
eins og Johnnie Walker og J&B
viskí, Smirnoff vodka, Bailey’s og
Cuervo líkjör, Tanqueray gini og
Guinnes bjór víða um heim, þar á
meðal í Kanada, Bandaríkjunum,
Brasilíu, Bretlandi, Portúgal, Suð-
ur-Afríku, Indlandi og Ástralíu og
á Írlandi, Ítalíu og Filippseyjum.
Að sögn Roys eru ekki fyrirhug-
aðar neinar breytingar með nýjum
eigendum. „Crown Royal gefur vel
af sér og eigendurnir eru ánægðir.“
Roy S. Eyjolfson, framkvæmdastjóri Diageo í Gimli í Manitoba
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Roy S. Eyjolfson, framkvæmdastjóri Diageo í Gimli, á skrifstofu sinni, en hann er af íslenskum ættum og hefur starfað við verksmiðjuna í 29 ár.
Stjórnar einni stærstu
viskíverksmiðju Ameríku
Konunglega viskíið Crown Royal er mest
selda viskíið í Kanada og þekkt víða um
heim. Framleiðslan fer öll fram á vegum
Diageo Canada Inc. á Íslendingaslóðum í
Gimli í Manitoba í Kanada og er verksmiðj-
an ein af þeim stærstu í þessari framleiðslu
í Norður-Ameríku. Steinþór Guðbjartsson
skoðaði verksmiðjuna, leit í birgðageymsl-
urnar og ræddi við Roy S. Eyjolfson,
framkvæmdastjóra Diageo í Gimli. Viskíverksmiðja og vöruhús Diageo Canada Inc. í Gimli við Winnipegvatn.Efst til vinstri er tanginn þar sem Íslendingar komu fyrst 21. október 1875.
steg@mbl.is
UNDANFARIN ár hefur Þjóð-
ræknisfélag Íslendinga (ÞFÍ) staðið
fyrir námskeiði um landnám Íslend-
inga í Vesturheimi og hefst næsta
námskeið 18. febrúar í Gerðubergi í
Reykjavík, en Jónas Þór sagnfræð-
ingur sér um kennsluna sem fyrr.
Námskeiðið stendur í átta vikur,
18. febrúar til 8. apríl, og snýst að
verulegu leyti um tilraunir íslenskra
vesturfara til að nema lönd í Amer-
íku og stofna nýlendur. „Það var
kallað nýlenda Íslendinga þar sem
þeir settust að í stórum eða smáum
hópum,“ segir Jónas. „Víðast bjuggu
þeir innan um innflytjendur af öðr-
um uppruna en sums staðar reyndu
þeir að mynda alíslenska nýlendu.
Ég byggi námskeiðið þannig upp að
við „ferðumst“ með fyrstu vesturför-
unum til Ameríku og „dveljum“
vestra þar til síðasta nýlendan var
mynduð á Point Roberts tanga við
Kyrrahaf árið 1908. Við fylgjumst
með komu hópanna, heyrum hvaða
áform þeir hafa, hvers vegna þeir
velja viðkomandi staði og loks hvern-
ig til tókst hverju sinni. Ég nota
meðal annars gömul og ný kort,
sendibréf, ljósmyndir, töflur og
greinar úr blöðum og tímaritum til
að varpa ljósi á söguna.“
Á annað hundrað manns hefur
sótt þessi námskeið og síðan hafa
margir þátttakendur tekið þátt í
sumarferð ÞFÍ í júní en þá er flogið
vestur og ýmsar nýlendur Íslend-
inga í Bandaríkunum og Kanada
heimsóttar.
Námskeiðið er á þriðjudagskvöld-
um kl.19:30–21:30. Skráning verður í
Gerðubergi fimmtudaginn 13. febr-
úar frá 17:00 til 19:00 og sunnudag-
inn 16. febrúar kl.13:00 til 16:00.
Nánari upplýsingar veita Jónas Þór
(jtor@mmedia.is, s. 5541680) og
Petrína Bachmann, starfsmaður
ÞFÍ í utanríkisráðuneytinu
(inl@utn.stjr.is, s. 5459967).
Nám-
skeið um
landnám-
ið í Vest-
urheimi
„VIÐ viljum gera allt sem við
getum fyrir gesti okkar og
bjóðum því upp á allt á sama
stað í stærstu verslunarmið-
stöð heims, The West
Edmonton Mall,“ segir Walter
Sopher, einn helsti skipuleggj-
andi 84. ársþings Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga, sem verð-
ur í Edmonton í Kanada 1. til
4. maí í vor.
Íslendingafélagið Norður-
ljós í Edmonton (www.ice-
landicsocietyofedmonton.ab.ca)
sér um Þjóðræknisþingið að
þessu sinni og segir Walter
Sopher að allt kapp sé lagt á
að það verði eins glæsilegt og
fjölmennt og þingið í Minnea-
polis í fyrra, en það sóttu um
350 manns. „Þetta verður
mjög mikilvægt þing því hér
ræðst framtíðin,“ segir hann.
Þinggestir fá gistingu á
FantasyLand Hotel, sem er í
verslunarmiðstöðinni, eða í
næsta nágrenni á West
Edmonton Mall Inn á tilboðs-
verði, sem gildir til 15. mars,
en Walter (sopher@telus-
planet.net) veitir allar nánari
upplýsingar um þingið og ferð
á Íslendingaslóðir í Alberta að
því loknu.
Þjóðræknisþingið í
Edmonton í maí
Allt á
sama stað