Morgunblaðið - 05.03.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALVARLEG STAÐA
Staðan á kjötmarkaði er orðin
mjög alvarleg, sagði Ari Teitsson,
formaður Bændasamtakanna, við
setningu Búnaðarþings í gær. Hann
sagði að öll svínabú landsins væru
rekin með halla og eigið fé víða
gengið til þurrðar. Stórfellt tap væri
einnig hjá öllum kjúklingaframleið-
endum.
Farsímaleyfi í útboð
Allt að fjórum bjóðendum verður
úthlutað tíðni til rekstrar þriðju kyn-
slóðar farsímaneta að undangengnu
almennu útboði, skv. frumvarpi sam-
gönguráðherra. Gildistími úthlut-
unarinnar verður 15 ár og gjaldið
190 milljónir kr. fyrir hverja tíðniút-
hlutun.
Sameining úr sögunni
Stjórnir SÍF og SH hafa ákveðið
að hætta viðræðum um sameiningu
félaganna. Ástæðan er ágreiningur
um mat á virði félaganna. Í sameig-
inlegri tilkynningu segir að viðræð-
urnar hafi leitt í ljóst að of mikið beri
í milli hvað varðar mat á virði félag-
anna til að samkomulag náist.
Óbreyttar verndunarreglur
Reglur um verndun hrygning-
arþorsks verða óbreyttar frá síðasta
ári og því verður ekki farið að tillögu
Hafrannsóknastofnunar um helm-
ingslengingu veiðibanns á þorski,
samkvæmt reglugerð sem sjáv-
arútvegsráðuneytið gaf út í gær.
19 fórust í sprengjutilræði
Að minnsta kosti nítján manns
fórust í sprengjutilræði við flugstöð
á sunnanverðum Filippseyjum í
gær. Að sögn yfirvalda særðust 147,
margir alvarlega, og talið að tala lát-
inna kynni að hækka. Enginn hafði í
gær lýst ábyrgð á hendur sér.
Rússar íhuga neitunarvald
Utanríkisráðherra Rússlands
sagði í gær að hann útilokaði ekki að
Rússar myndu beita neitunarvaldi í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til
að koma í veg fyrir samþykkt álykt-
unar er heimilar herför gegn Írak.
Handfrjáls búnaður í bíla
fyrir flestar gerðir GSM síma.
Ísetning á staðnum.
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
ÖRLAGARÍKAR BEYGJUR
KÖRTUBRAUT Í GARÐABÆ
DROTTNUN FERRARI
HONDA ACCORD REYNSLUEKIÐ
BREYTINGAR Á REGLUM
BÍLASÝNINGIN Í GENF
FORMÚLAN BRESTUR Á
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 13/14 Minningar 34/37
Erlent 15/17 Kirkjustarf 37
Höfuðborgin 20 Bréf 40
Akureyri 21 Kirkjustarf 41
Suðurnes 22 Dagbók 42/43
Landið 23 Fólk 48/53
Listir 24/25 Bíó 5o/53
Umræðan 26/33 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Með Morgunblaðinu í dag fylgir tíma-
ritið Lifun. Tímaritinu verður dreift um
allt land.
ÞESSAR yngismeyjar sveifluðu svo sann-
arlega hárinu á árshátíð Réttarholtsskóla í
gærkvöld enda mikið líf og fjör á ballinu. Há-
tíðin hófst í félagsmiðstöðinni Bústöðum áður
en haldið var til hátíðarkvöldverðar í safn-
aðarheimili Bústaðakirkju þar sem ungmenn-
in gæddu sér á hinum ljúffengustu kræs-
ingum.
Sjálfsagt hafa margir borðað á sig gat en
það kom þó ekki í veg fyrir að dansinn væri
stiginn við dynjandi tónlist á árshátíðarballi í
húsnæði Réttarholtsskóla á eftir.
Í dag hefjast svo þemadagar í skólanum þar
sem meginviðfangsefnið verður leikir fyrr og
nú.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dansað við dynjandi tónlist
SAMTÖK verslunar
og þjónustu segja að
ekki væri eftirsjá í
krónupeningnum sem
mynteiningu í verslun
og viðskiptum hér á
landi yrði hann tekinn úr umferð.
Þetta sé niðurstaða sem fengin var
eftir lauslega könnun meðal aðildar-
fyrirtækja samtakanna. Í fréttabréfi
samtakanna kemur fram að Seðla-
bankanum hafi verið sendar þessar
upplýsingar og eflaust komi að því að
krónumyntin verði tekin úr umferð.
Tryggvi Pálsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Seðlabankans,
segir ekki nein áform uppi um að inn-
kalla krónuna sem mynteiningu. Frá
því í september í fyrra hafi 5, 10 og 50
aurar verið innkallaðir, sem bankar
og sparisjóðir taki við til 1. október
nk. en Seðlabankinn til 1. október
2004. Afnám auranna sé hreinsunar-
starf en allt annað gildi um krónuna.
Aðspurður hvað ráði því hvaða
mynteiningar séu í notkun kveður
Tryggvi það vera verðgildi og notkun
myntanna. Útlit sé fyrir að verðmæti
krónunnar haldist þar sem verðbólga
sé í samræmi við markmið Seðla-
bankans. Þetta sé því ekki tímabær
umræða.
67 milljónir króna í notkun
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum eru rúmlega 67 milljónir
krónupeninga í umferð, sem samsvar-
ar því að allir núlifandi Íslendingar
væru með 230 krónupeninga að með-
altali í sínum fórum. Það eru tæp 5%
af heildarverðmæti allrar myntar sem
notuð er hér á landi.
Eftir að aurar hverfa úr notkun
skapast svigrúm til að minnka þá
mynt sem þegar er í umferð. Tryggvi
segir enga ákvörðun hafa verið tekna
um það innan Seðlabankans. Samtök
verslunar og þjónustu telja mikla
hagkvæmni felast í því að gera þyngri
myntir, sem nú eru í notkun, léttari.
Tryggvi segir að Seðlabankinn
hugi stöðugt að peningaútgáfu og taki
eitt skref í einu til að auka öryggi og
tryggja hagkvæmni. Aðspurður hvort
tíu þúsund króna seðill sé á teikni-
borði Seðlabankans segir hann svo
ekki vera.
Notkun seðla og myntar í viðskipt-
um hefur farið minnkandi undanfarin
þrjú ár sem hlutfall af landsfram-
leiðslu. Nú er þetta hlutfall tæpt 1%
en heildarverðmæti allrar myntar og
seðla í umferð í hagkerfinu utan
Seðlabankans er rúmir níu milljarðar
króna. Tryggvi segir notkun seðla og
myntar hafa dregist saman vegna
aukinnar notkunar greiðslukorta,
netbanka, sjálfvirkra millifærslna og
annarra rafrænna greiðslna.
Samtök verslunar og þjónustu skrifa Seðlabankanum bréf
Segja ekki eftirsjá
í krónupeningnum
REGLUR um
verndun hrygn-
ingarþorsks
verða óbreyttar
frá síðasta ári
og því verður
ekki farið að til-
lögu Hafrann-
sóknastofnunar-
innar um
helmingsleng-
ingu veiðibanns
á þorski, samkvæmt reglugerð
sem sjávarútvegsráðuneytið gaf út
í gær. Stofnunin hafði lagt til að
veiðibann yrði lengt um helming á
einstökum svæðum, eða úr 21 degi
í 40 daga.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsókna-
stofnunar, segir
það miður að
ekki skuli vera
tekið tillit til
þess sem stofn-
unin hafi lagt
til. Hann segir
að Hafrann-
sóknastofnun
muni halda sínu
striki enda muni
þorskstofninn aldrei ná sér á strik
aftur nema sóknin verði takmörk-
uð frekar. Ekki náðist í Árna M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra í
gærkvöldi.
Ráðherra ákveður
óbreyttar reglur
Ekki farið að/14
Verndun hrygningarþorsks
HAFSTEINN Karlsson, skóla-
stjóri í Salaskóla, segir að í ljós
hafi komið að enginn fótur hafi
verið fyrir fréttum af því að mað-
ur hafi boðið börnum upp í bíl
hjá sér með sælgæti og ýmsum
gylliboðum í nágrenni skólans,
eins og kom fram í viðvörun sem
stjórnendur skólans sendu til for-
eldra um helgina.
Hann segir að skólinn hafi tal-
ið sig hafa fengið staðfestingu á
því að svo væri þar sem ábend-
ingin hafi komið úr skóla í ná-
grenninu, en annað hafi síðan
komið á daginn. Bréfið hafi fyrst
og fremst verið hugsað sem al-
menn viðvörun til foreldra um að
vera á varðbergi.
Grétar Sæmundsson, yfirmað-
ur í rannsóknardeild lögreglunn-
ar í Kópavogi, segir að lögregl-
unni hafi borist nokkrar ábend-
ingar um að menn hafi gefið sig
að ókunnugum börnum í Kópa-
vogi, sérstaklega eftir að fréttir
bárust af viðvörun stjórnenda í
Salaskóla. Enginn ábending hafi
þó borist úr Salahverfi. Grétar
segir að ekki sé vitað til þess að
brot hafi verið framin, en lög-
regla sé nú að skoða þær ábend-
ingar sem borist hafi, eins og
alltaf sé gert.
Lögregla fékk ábend-
ingar úr Kópavogi
Enginn fótur fyrir viðvörun
til foreldra barna úr Salaskóla
ALLS bárust 130 umsóknir um
nám við leiklistardeild Listahá-
skóla Íslands næsta vetur. Það
er fjölgun um 16% frá því í fyrra
en þá fjölgaði umsóknum um
15% milli ára. Fleiri hafa ekki í
annan tíma sótt um námið.
Inntökupróf í leiklistardeild-
ina verða haldin á næstu vikum
og á grundvelli niðurstöðu
þeirra verður 8–9 umsækjend-
um boðið að hefja nám við deild-
ina. „Við erum bundin þeim tak-
mörkunum að geta einungis
sinnt litlum hópi, einfaldlega
vegna þess að þetta er dýrt nám.
Þarna verður þéttur hópur
starfandi saman í fjögur ár og
alveg ljóst að það verður erfitt
að velja úr umsóknum, sérstak-
lega á síðustu stigunum,“ segir
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands.
130 sækja
um leik-
listarnám
Verður erfitt/25