Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 17 Fermingin heim í stofu eða í sal Ferðafélagsins Veislusmiðjan ehf., Smiðjuvegi 14, 200 Kópavogi, sími 587 3800, veislusmidjan@veislusmidjan.is, www.veislusmidjan.is DAGFINN Hoybraaten, heil- brigðismálaráðherra Noregs, sagði í gær, að rétt væri að leyf- isbinda alla tóbakssölu til að draga úr sölu á því til unglinga en hún er nú bundin við 18 ára aldur. Telur Hoybraaten, að óttinn við leyfissviptingu verði til þess, að kaupmenn gæti sín betur. Rétt rúmlega 30% Norð- manna reykja og með sköttum af tóbakinu leggja þeir ríkis- sjóði til næstum 80 milljarða ísl. kr. árlega. Er vindlingapakkinn líklega hvergi dýrari en í Nor- egi en þar kostar hann um 650 kr. Námamenn á vonarvöl ÁÆTLUN Rúmeníustjórnar um að draga úr niðurgreiðslum í námagrefti munu valda því, að meira en 70% námamanna missa vinnuna næsta áratuginn. Eru þeir nú alls 68.000, sem þýðir, að 39.000 manns munu fara á atvinnuleysisbætur og 9.000 á eftirlaun. Frá 1997 hafa alls 90.000 námamenn misst vinnuna vegna endurskipulagn- ingar og hagræðingar í rekstr- inum. Er þessi uppstokkun gerð að kröfu Evrópusam- bandsins en Rúmenar gera sér vonir um aðild að því árið 2007. Frá 1990 hefur rúmenska ríkið greitt næstum 400 milljarða ísl. kr. í niðurgreiðslur í námaiðn- aði. Um 60% styðja hernað NÆRRI sex af hverjum 10 Bandaríkjamönnum styðja hugsanlegan hernað í Írak sam- kvæmt skoðanakönnun ABC News-Washington Post. 24% þeirra, sem þó styðja stefnu for- setans, hafa samt miklar efa- semdir um hernaðinn. 37% voru alveg á móti hernaði. Þeir, sem eru á móti eða hafa efasemdir, segja yfirleitt, að Bandaríkin verði að hafa meiri alþjóðlegan stuðning; að ástæða sé til að ótt- ast mannfall; Bandaríkjastjórn fari of geist eða, að af Íraks- stjórn stafi ekki sú hætta, sem réttlæti stríð. Erfðamengið á korti HUGSANLEGT er, að í fram- tíðinni verði allt erfðamengi hvers einstaklings fært inn á svokölluð snjallkort. Kom þetta fram hjá breska vísindamann- inum Sir Paul Nurse, yfirmanni krabbameinsrannsókna í Bret- landi, en hann spáir því, að með árunum verði það æ auðveldara að kortleggja erfðamengið. Kortið væri síðan unnt að nota til að spá um heilsufar einstak- lingsins og grípa þá til ein- hverra ráðstafana strax. Hann varaði þó við því, að hætta væri á, að fólk yrði látið gjalda sinna eigin erfða, til dæmis hjá trygg- ingafélögum og atvinnurekend- um. Sir Paul, sem fékk Nóbels- verðlaunin í læknisfræði 2001, segir, að 1985 hafi það tekið þrjú ár að kortleggja einn arf- bera en nú sé unnt að skrá allt erfðamengið á fáum árum. STUTT Tóbaks- sala verði háð leyfum KHALID Shaikh Mohammed, þriðji æðsti leiðtogi al-Qaeda, var fluttur með flugvél frá Pakistan í gær eftir að hafa verið yfirheyrður þar í þrjá daga. Pak- istanskir embætt- ismenn sögðu að hann hefði verið framseldur bandarískum yfirvöld- um og fluttur í banda- ríska herstöð í Bag- ram í Afganistan, norðan við Kabúl. Embættismenn í Íslamabad sögðu að Mohammed hefði verið að skipuleggja hryðju- verk í Bandaríkjunum og árásir á bandarísk skotmörk í Pakistan. Bandarískir rannsókn- armenn vonast til þess að geta fengið Moham- med til að veita upplýsingar um af- drif Osama bin Ladens, æðsta leið- toga al-Qaeda. Pakistanskir heimildarmenn sögðu að Mohamm- ed hefði orðið tvísaga, fyrst sagt að bin Laden væri á lífi en seinna að hann væri að öllum líkindum látinn þar sem hann hefði ekki náð sambandi við hann í hálft ár. „Hann kvaðst hafa haft samband við bin Laden í gegnum keðju sendiboða sem sendu á milli sín tölvupóst og komu skilaboðunum til bin Ladens án þess að segja honum hvar hann væri niðurkom- inn,“ sagði einn pakistönsku emb- ættismannanna. Flestir vestrænir leyniþjón- ustumenn telja að bin Laden sé á lífi og í felum einhvers staðar við landamæri Pakistans og Afganist- ans. Eftirlýstur í Frakklandi Franskur dómari gaf í gær út handtökutilskipun á hendur Mo- hammed vegna sprengjuárásar á samkunduhús gyðinga í Túnis 21. apríl í fyrra. Tuttugu manns, þeirra á meðal fjórtán Þjóðverjar, létu lífið í árásinni. Tilræðismað- urinn, sem beið einnig bana, er sagður hafa talað við Mohammed í farsíma skömmu fyrir árásina. John Ashcroft, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að Mohammed hefði einnig verið „aðalskipuleggjandi“ hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september. Pakistanskir og bandarískir leyni- þjónustumenn yf- irheyrðu Mohammed í Pakistan. Einn heimildarmannanna sagði að fanginn hefði sagt að al-Qaeda hefði undirbúið árásir á „auðveld skotmörk“ í Pakistan og sagst vita hverjir myrtu bandaríska blaðamanninn Daniel Pearl, sem var afhöfðaður nokkr- um dögum eftir að honum var rænt í pakistönsku borginni Kar- achi í janúar í fyrra. Bandarískir rannsóknarmenn eru að grannskoða tölvur, tölvu- diska og önnur gögn sem fundust í íbúðinni þar sem Mohammed var handtekinn á laugardag. Banda- rískir embættismenn sögðu að meðal annars hefðu fundist síma- númer og að sögn CNN-sjónvarps- ins fundust einnig nöfn hugs- anlegra útsendara al-Qaeda, meðal annars nokkurra sem talið er að búi í Washington og fleiri banda- rískum borgum. Bandaríska alrík- islögreglan, FBI, leggur nú mikið kapp á að hafa hendur í hári þeirra til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Önnur handtaka kom rann- sóknarmönnum á sporið Nokkrum klukkustundum eftir að Mohammed var fluttur frá Pak- istan í gær dreifði bandarísk flug- vél bæklingum yfir afganska landamærabæinn Spin Boldak þar sem lofað var miklum fjárhæðum í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku næstæðsta leiðtoga al-Qaeda, Egyptans Aym- ans al-Zawahris. Bandarískir embættismenn skýrðu frá því í gær að annar af forsprökkum al-Qaeda, Moham- med Omar Abdel-Rahman, hefði verið handtekinn í borginni Quetta fyrir nokkrum vikum. Hann er sonur Omars Abdel-Rahmans, blinds múslímaklerks sem er í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að hafa staðið fyrir sprengjuárásinni á World Trade Center árið 1993 og hvatt til fleiri hryðjuverka. Rahman yngri gengur undir nafninu Asadullah, „Ljón Guðs“, er sagður hafa stjórnað þjálf- unarbúðum al-Qaeda í Afganistan fyrir hryðjuverkin 11. september og talinn hafa tekið þátt í skipu- lagningu hryðjuverka. The New York Times segir að Rahman yngri hafi komið rann- sóknarmönnum á spor Mohamm- eds. Rahman mun hafa sagt þeim að Mohammed hefði búið í íbúð hans í Quetta og þar handtóku rannsóknarmenn annan mann sem vísaði þeim á Mohammed í Rawalpindi þar sem hann var handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum, Pakistana og Sádi- Araba. Að sögn breska blaðsins Sun er maðurinn sem vísaði á Muhammed Egypti og grunaður um að hafa starfað fyrir talibanastjórnina sem steypt var í Afganistan eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Blaðið segir að maðurinn hafi fengið fúlgu fjár og loforð um breskt ríkisfang undir nýju nafni. Mohammed varð tvísaga um afdrif bin Ladens AP Bílar fyrir utan hús í Rawalpindi í Pakistan þar sem Khalid Shaikh Mohammed var handtekinn á laugardag ásamt tveimur öðrum mönnum. Fanginn sagður hafa verið fluttur í bandaríska herstöð í Afganistan Íslamabad, Washington. AFP, AP. Mohammed SÆNSKIR vísindamenn hyggj- ast festa farsíma á alls 25 villta elgi í þeirri von að verða með því nokkurs vísari um matarvenjur þessara stóru jórturdýra. Ekki er þó búizt við því að elg- irnir noti símana til að panta sér pítsur. Hinir sérsmíðuðu farsímar eru þannig úr garði gerðir að sjö sinnum á sólarhring senda þeir sjálfvirkt frá sér SMS-skilaboð til vísindamannanna við Landbúnað- arháskólann í Uppsölum. Í símun- um er einnig GPS-staðsetningar- búnaður og vonast vísinda- mennirnir til að þessi tækni geri þeim kleift að fylgjast með ferðum elgdýranna um víðáttur og skóga Norður-Svíþjóðar næstu fjögur árin. Hvert dýr mun þó ekki bera síma lengur en eitt ár í senn. Sam- kvæmt áætlun vísindamannanna á árlega að safna tækjunum 25 saman, gera við þau og endur- hlaða og festa síðan á önnur 25 dýr. Gizkað er á að elgstofninn í Sví- þjóð sé um 250.000 dýr. Sænskir elgir fá farsíma Stokkhólmi. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.