Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 23
GÖNGUHÓPUR kvenna sem var
á heilsubótargöngu í Þjóðgarðin-
um Snæfellsjökli meðfram strönd-
inni úr Skarðsvík að Hellissandi í
miðsvetrarblíðunni síðastliðinn
laugardag gekk fram á nýrekinn
hval rétt utan við Gufuskála. Nán-
ar tiltekið niður af Írskabyrgi.
Þetta er hrefna, um 5 metrar að
lengd, ungt dýr, trúlega á öðru ári.
Það er ekki líklegt að gestir í öðr-
um þjóðgörðum á Íslandi og eins
utan Íslands eigi von á því að
ganga fram á sjórekinn hval við
fætur sér til að skoða.
Í marsmánuði er talið að hrefn-
an haldi sig í suðurhöfum. Hval-
rekinn kom því Gísla Víkingssyni,
hvalasérfræðingi hjá Hafrann-
sóknastofnun, nokkuð á óvart.
Þess má geta að ein konan í
gönguhópnum heitir Hrefna og
auðvitað tók hún fyrst af konunum
eftir nöfnu sinn í fjörunni.
Örstutt gönguleið er frá bíla-
stæðinu við Írskrabrunn að reka-
fjörunni þar sem hvalurinn er og
því auðvelt fyrir fólk að komast
þangað til að sjá hann.
Á myndinni má sjá hrefnuna þar
sem hún liggur í fjörunni neðan
við Írskabyrgi.
Hvalreki í
þjóðgarðinum
Hellissandur
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Arnarfell á Ak-
ureyri hefur hafið framkvæmdir við gerð
sneiðings niður í gilið við Innri-Kárahnjúk.
Sneiðingurinn á að liggja að efri enda hjá-
ganganna tvennra sem Jökulsá á Dal verður
veitt um meðan á gerð Kárahnjúkastíflu stend-
ur.
Að sögn Sigurbergs Konráðssonar hjá Arn-
arfelli verður sneiðingurinn 400 metrar að
lengd með 12% halla. Sneiðingurinn liggur á
bakvið klett sem skagar út í Jöklu og beygja er
á honum niður undir gilbotninum við enda hjá-
ganganna.
Vinnu er lokið við að hreinsa laus jarðlög of-
an af berginu á gilbarminum. Fyrstu bergfyll-
urnar sem sprengdar voru ofan í gilið voru allt
að 27 þúsund rúmmetrar og stífluðu Jökulsá í
gilinu en það tók Jöklu aðeins um klukkustund
að safna svo miklu vatni ofan stíflunnar að hún
færi að renna yfir hana og hreinsa hana að
miklu leyti burtu.
Framkvæmd-
ir eru hafnar
við Innri-
Kárahnjúk
Norður-Hérað
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Það er ekki fyrir lofthrædda menn að vinna hjá verktakafyrir-
tækinu Arnarfelli við gerð sneiðings ofan í gilið.