Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. TVÆR merkar ævisögur brezkar lýsa ólíkum örlögum. Önnur er um brezka stjórnmálamanninn Sir Thomas Moore, eftir Peter Ackro- yd sem hingað kom haustið 1980, ef ég man rétt og skrifaði athyglis- verða grein, Out of the Wilderness, um reynslu sína í þessari ferð, en hún var birt í The Spectator; hin fjallar um merkasta stjórnmála- mann síðustu aldar, Sir Winston S. Churchill, manninn sem bauð hit- lersskrímslinu birginn, bjargaði okkur undan ofbeldinu og morð- óðum hundingjum og varaði okkur við stalínismanum í Fultons-ræð- unni, þar sem járntjald var fyrst nefnt. Ævisaga hans er eftir Roy Jenkins, og þykir afbragð. Þetta eru miklar ævisögur og skrifaðar eftir heimildum, en ekki þeim forskriftum sem leiða að fyr- irfram ákveðnum niðurstöðum, eins og oft vill verða. Samt eru þetta hetjusögur eins og Ólafs saga helga og önnur stórvirki í ævisagnagerð. Moore varð fórnarlamb eigin sann- færingar, en Churchill sigraði á for- sendum eigin hugsjóna. En báðir voru þeir stórmenni andans um staði og hirðir, eins og skáldið sagði um væringja. Churchill flutti ungur athyglis- verða ræðu um fégræðgi í upphafi 20. aldar, eða skömmu áður en hann söðlaði um í pólitík og gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn. Síðar rataði þessi glataði sonur þó heim aftur til síns endurhæfða íhalds. Í ræðunni segir Churchill m.a.: Nú hugsar enginn um neitt nema peninga. Ekkert er neins virði nema bankareikningurinn. Gæði, menntun, borgaralegur sómi og op- inberar dyggðir virðast gjaldfalla með hverju ári sem líður, en auður metinn því meir. Í Lundúnum er at- kvæðamikill hópur manna sem pré- dikar guðspjall Mammons, tals- menn 10% boðorðanna og upphefja hvern dag með hinni innblásnu bæn, Ó guð, helga þú oss vort kap- ítal! Er ekki sitthvað í þessum orðum sem hljómar heldur kunnuglega? Eða hvaða átrúnaðargoð á íslenzk samtíð um þessar mundir? Mundi ekki gamli Mammon standa eins og hvert annað skurð- goð ið næsta því hofi sem nú er hvað oftast litið til? Og samt vitum við að í þessu skurðgoði er ekkert nema nagdýr sömu gerðar og sagt er frá í konungasögum Snorra (sjá cxiii kap. Ólafs sögu helga). Þarna er peningaguðið dýrkað af sömu ástríðu og Churchill varaði við í fyrr nefndri ræðu sinni. Og ekki síður af þeim sem kenna sig við svonefnda félagshyggju en þeim sem leita að sínum bónus annars staðar. Eða hvað? Á sínum tíma óskaði einn helzti forystumaður Sambands ísl. sam- vinnufélaga eftir samtali við rit- stjóra Morgunblaðsins og fór framá að blaðið amaðist ekki við því, þótt Sambandið hefði 30% af smásölu- verzlun á höfuðborgarsvæðinu. Rit- stjórarnir höfnuðu því og töldu óeðlilegt að eitt fyrirtæki fengi slíka yfirburðastöðu, – og það í skjóli sinna pólitísku tengsla. Úr nokkurri fjarlægð frá mark- aðstorgi samtímans skilst mér nú að neytendur sætti sig ágætlega við að slíkir auðhringar hafi allt að 60% viðskiptahlutdeild á þessu svæði því að verðlag á nauðsynjavörum sem er margfalt á við verðlag í ná- grannalöndum sé skömminni til skárra en það sem áður tíðkaðist! Þetta er svo kölluð samkeppni og markaðsstefna. Og fólk heldur ekki vatni af hrifningu yfir þessari nýju hörmangaraverzlun, þótt gagnrýnd hafi verið á Alþingi, bæði af for- manni Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar. Og svo á víst að fjárfesta ofsa- gróðann í erlendum fyrirtækjum í stað þess að kaupþinga með þessa auðsóttu peninga hér heima, styrkja íslenzkt samfélag og stuðla að atvinnuuppbyggingu, enda eru þetta hvort eð er peningar frá fólk- inu í landinu; þeim sem fá aldrei nokkra krónu í kaupauka, ekki einu sinni teppi og verða því að hírast í kulda og trekki; þeim sem eru ekki í tízku og eru aldrei séðir né heyrð- ir, en reyna, oft af vanefnum, að rækta garðinn okkar; láglaunafólki. Það hefur margt breytzt hér heima frá því ég var að skrifa sam- töl við sjómenn og aðra þá sem hafa haldið í okkur lífinu. Það þótti gott og blessað þá, en hver hefur áhuga á slíku efni nú um stundir? Þetta fólk hefur ekkert með sér nema vinnulúnar hendur. Það hefur ekki einu sinni leikið aukahlutverk í neinni bíómynd. Það hefur ekkert til síns ágætis annað en halda líftór- unni í okkur hinum; og minna okk- ur á blákaldan raunveruleikann, en ekki þennan poppaða sýndarveru- leika sem nú á hvað helzt uppá pall- borðið. Það hefur einnig margt breytzt í umhverfi þeirra Moores og Churc- hills; t.a.m. er Íhaldsflokkurinn hruninn og Verkamannaflokkurinn orðinn hin eina sanna tólg brezku millistéttarinnar, hann hefur sem sagt eignað sér það bezta sem íhaldið átti og losað sig við arfagóss gamalla marxista. En markaðs- hyggju kapítalismans þó haldið til streitu. Íhaldið á ekki einu sinni almenni- legan foringja, hvað þá annað! Kapítalið er allsráðandi, það er í tízku. Og við þykjumst á heimsvísu í milljarðavímunni. Og nýkapítalist- ar segjast vera sósíalistar, ef því er að skipta, enda merkir það ekkert lengur. Og þá má ekki gleyma því að það hlýtur að vera kapítal, mikið kapít- al, á bak við hvern einasta frétta- miðil, ekki endilega til að afrugla atkvæðin í kosningabaráttunni, heldur þvert á móti, ef svo ber und- ir. Kapítalið er svo sem ágætt, en þeir vissu í Rómaborg hinni fornu að peningar lykta. Og það virðist ekki hafa breytzt. MATTHÍAS JOHANNESSEN, Reynimel 25a, Reykjavík. Mýsnar og skurðgoðið Frá Matthíasi Johannessen:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.