Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 4
STJÓRNENDUR í Vesturbæjar- skóla hafa sagt lúsinni stríð á hendur og hafa þrisvar í vetur brugðið á það ráð að hringja í foreldra, sem ekki hafa kembt hár barna sinna, og beðið þá að sækja börnin. Kristín Andr- ésdóttir, skólastjóri í Vesturbæjar- skóla, segir að þetta þyki nokkuð hörð viðbrögð en skólinn hafi viljað taka þetta vandamál föstum tökum. Lúsin hafi skotið upp kolli í nokkur skipti í vetur, þótt ekki sé um neinn lúsafaraldur að ræða. Kristín segir að í þrjú skipti í vet- ur hafi nemendur verið sendir heim með blöð þar sem foreldrar eru hvattir til að kemba börnum sínum og leita að lús. Á miðanum sé að finna upplýsingar um hvernig eigi að vinna á lúsinni. Börnin eigi svo að koma með miða undirritaðan af for- eldrum um að hárið hafi verið kembt. Komi börnin ekki með undirritaðan miða er hringt í foreldrana, þeir beðnir að sækja börnin og kemba þeim. Segir Kristín að börnin séu síðan velkomin í skólann aftur eftir að leitað hefur verið að lús og niti í hárinu. Verðum að losna við lúsina „Þetta þykja svolítið hörð við- brögð, en einhverja leið verðum við að fara til að losna við lúsina. Þetta er gert til að tryggja að allir haldi vöku sinni,“ segir Kristín. Síðast í gærmorgun áttu börnin að koma kembd í skólann og með miða því til staðfestingar frá foreldrum. „Svör- unin er misjöfn og mætti vera betri á stundum,“ segir Kristín. Hún veit ekki hversu marga ókembda nem- endur þurfti að senda heim úr skól- anum í gær, en alls eru um 300 nem- endur í Vesturbæjarskóla. Ingibjörg Sigurðardóttir, skóla- hjúkrunarfræðingur í Vesturbæjar- skóla, segir að lúsin sé orðin fasta- gestur á Íslandi og láti alltaf á sér kræla af og til. Lúsin komi oft upp eftir frí, en ekki hafi verið um mörg tilfelli að ræða í Vesturbæjarskóla í vetur. „Við höfum alltaf sent blöð með börnunum heim, til að uppræta þetta verða allir að vera samtaka,“ segir Ingibjörg. Lúsastríð í Vesturbæjarskóla Ókembd börn send heim FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ LAMBAFELL á Reykjanesi er þeirrar náttúru að í því er stærðarinnar gjá og má með sanni segja að fellið sé klofið. Lambafellsklofinn er á að giska 20–30 metra djúpur og gengur eftir fellinu miðju. Í því spretta smáburknar og á sumrin leita þúsundir fiðrilda ofan í skjólsæla gjána. Ekki er víst að margir viti af þessum stað en hið sama má segja um mörg furðuverkin á Reykjanesskaganum. Ljósmynd/Ómar Smári Ármannsson Lambafellið er klofið Norð- menn háma í sig kotasælu FRÆNDUR okkar Norðmenn hafa, líkt og Íslendingar, kynnst Atkins-kúrnum svokall- aða sem felst í því að sneiða hjá vörum er innihalda kol- vetni. Hefur eftirspurn eftir kotasælu aukist um 36% það sem af er þessu ári í Noregi og vinna starfsmenn fyrirtækisins sem framleiðir kotasæluna nú myrkranna á milli til að metta svanga Norðmenn í heilsu- átaki. Atkins-kúrinn er í Noregi nefndur við Fedon Lindberg nokkurn, sem hefur sett á markað fjöldann allan af kol- vetnasnauðum mat sem hefur slegið í gegn. Selst vel hér á landi Kristinn Guðnason, inn- kaupastjóri hjá Osta- og smjörsölunni, segir að kota- sæla hafi selst mjög vel síðasta ár og það sem af er þessu ári. Hann hafi þó ekki orðið var við stórfellda söluaukningu, eins og hjá Norðmönnum, frá því Atkins-megrunarkúrinn komst hér í hámæli. Hann segir að salan hafi þó tekið mikinn kipp á síðasta ári og rekur hann þá þróun eink- um til umræðu um heilsu og líkamsrækt í samfélaginu. AUGLÝSING frá útvarpsstöðinni Radíó Reykjavík, sem birtist í DV í gær, er að mati ritstjóra blaðsins, Sigmundar Ernis Rúnarssonar, og formanns Samtaka auglýsenda, Friðriks Eysteinssonar, ósmekkleg. Býst Friðrik við að siðanefnd Sam- bands íslenskra auglýsingastofa taki málið fyrir á næsta fundi sínum. Á auglýsingunni er mynd af nak- inni konu og á henni stendur: „Strákar! við hjá Radíó Reykjavík viljum bjóða ykkur upp á þessa fal- legu konu á þessum ágæta degi – lifi rokkið“. Samkvæmt upplýsingum tals- manns Radíós Reykjavíkur hefur textinn í auglýsingunni þá meiningu að karlmenn eigi að njóta mynd- arinnar í auglýsingunni, en ekki konunnar sjálfrar. Talsmaður stöðvarinnar sagði að svipuð mynd hefði birst af karlmanni og því væri verið að gefa karlmönnum eitthvað til að njóta þar sem aðalmarkhópur útvarpsstöðvarinnar væri karl- menn. Sigmundur Ernir, ritstjóri DV, sagðist ekki hafa séð auglýsinguna áður en hún birtist í blaðinu í gær. Hann sagði bæði blaðið og auglýs- endur háða siðareglum sem oftast færu saman. „Mér finnst þessi aug- lýsing ósmekkleg. Ég vek athygli á því að það er okkar hlutverk að standa vel á verði og spyrna í ístöðin í þessum efnum vegna þess að klám- væðingin sem fer yfir samfélagið á miklum hraða er óæskileg og rýrir siðferðiskennd okkar. Ég mun taka þetta til skoðunar.“ Sigmundur sagði hugsanlegt að auglýsingin hefði ekki birst ef hann hefði séð hana fyrirfram. „Það er kannski ekki myndin sem er höfuð- atriðið heldur tónninn í textanum. Það er í sjálfu sér ekkert athugavert við bert fólk.“ Friðrik Eysteinsson, formaður Samtaka auglýsenda, sagði mynd- ina í auglýsingunni ekkert hafa með tónlist að gera. „Myndin tengist ekki á nokkurn hátt því sem verið er að auglýsa þannig að þetta er ein- göngu gert til að fá athygli. Þetta er mjög ósmekklegt og þjónar engum tilgangi nema að ganga fram af fólki.“ Telja aug- lýsingu útvarps- stöðvar ósmekklega SAMTÖK verslunar og þjónustu hafa tekið saman ábendingar um misræmi í gjaldtöku hins opinbera af matvælum. Telja samtökin að full ástæða sé til að lagfæra misræmi í aðflutningsgjöldum og virðisauka- skatti á matvöru. Samkvæmt niðurstöðu faghóps SVÞ um matvöruverslun ber kakó, sem mælt er með að blandað sé í heitt vatn eða heita mjólk 14% virð- isaukaskatt. Ef mælt er með að vatn- ið eða mjólkin sé köld þá er virð- isaukaskatturinn 24,5%. Önnur dæmi eru nefnd í þessar samantekt. Innflutt frosið grænmeti í neytendapakkingum ber 30% vöru- gjald. Ef grænmetið er niðursoðið er ekkert vörugjald lagt á vöruna. Þá ber kartöflumús í duftformi 14 krónu kílógjald en sé hún flutt inn í flögum þá eru engin aðflutningsgjöld. Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri SVÞ, segir þetta ekki mikið fjárhagslegt hagsmunamál verslun- arinnar. Þetta sé sanngirnismál gagnvart neytendum. Starfsfólk verslana geti ekki útskýrt þennan mun fyrir viðskiptavinum, sem fylgj- ast vel með vöruverði. Óskuðu samtökin eftir því með bréfi til fjármálaráðuneytisins 21. október 2002 að leitast yrði við að leiðrétta þessi atriði til hagsbóta fyr- ir neytendur. Í svarbréfi ráðuneyt- isins var sagt að farið var yfir erindið með fulltrúum ríkisskattstjóra og tollstjórans í Reykjavík. Fram- kvæmd á þessari flokkun sé ekki alltaf einföld en málið verði tekið til nánari skoðunar. Sigurður segir að nú séu liðnir rúmlega þrír mánuði og ekkert hafi gerst. Því hafi verið ástæða til að vekja athygli á málinu. Stjórnvöld hafi það á sínu valdi að stórlækka matvælaverð á Íslandi með breyt- ingum á verndarákvæðum í þágu landbúnaðarins annars vegar og frí- verslunar með þessar vörur hins vegar. Verslunin vilji þjóna neytend- um sem best og því sé frjáls verslun meginkrafa verslunarinnar til stjórnvalda. Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Jónsson bendir á misræmi sem felst í gjaldtöku af matvælum. Misræmi í gjaldtöku hins opinbera Mun dýrara er að blanda kakói í kalt vatn en heitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.