Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 15 BANDARÍKJAMENN hyggjast handtaka eða fella um 50 íraska frammámenn, sem tengjast Sadd- am Hussein, komi til stríðs í Írak, að sögn bandaríska dag- blaðsins The Wall Street Journal í gær. Á meðal þeirra sem eru á listanum, auk Saddams Huss- eins sjálfs, er náfrændi hans, Ali Hassan Majid, sem er talinn hafa skipulagt gas- árás á Kúrda í Norður-Írak árið 1988. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hyggst steypa stjórn Íraks og koma frá völdum um fimmtíu manns sem eru skyldir eða mægð- ir honum. Á meðal þeirra sem eru efstir á listanum eru tveir synir Saddams, Uday og Qusay, þó ekki þrjár dæt- ur hans, og nokkrir bræðra forset- ans. Falli þeir ekki í átökum verða þeir handteknir. Hugsanlega ákærðir Í hópnum eru nokkrir af helstu embættismönnum landsins, svo sem Taha Yassin Ramadan, vara- forseti Íraks og yfirmaður hersins, og Tariq Aziz aðstoðarforsætisráð- herra. Á meðal skyldmenna Saddams á listanum er yfirmaður írösku leyniþjónustunnar, Barzan Ibra- him Hasan Tikriti, hálfbróðir for- setans og tengdafaðir Udays. Hermt er að Bandaríkjamenn hyggist einnig ná Izzat Ibrahim al Douri, varaformanni Byltingarráðs Íraks, sem talinn er hafa stjórnað hersveitum sem bældu niður upp- reisn sjíta í sunnanverðu landinu árið 1991. Aziz Saleh Numan, sem var skipaður ríkisstjóri Kúveits þegar Írakar hernámu landið árið 1990, er talinn hafa heimilað grimmd- arverk gegn Kúveitum og tekið þátt í því að bæla niður uppreisn Kúrda. Bandaríkjamenn telja einnig að Mohammed Hamza Zubeidi, fyrr- verandi forsætisráðherra, hafi átt stóran þátt í aðgerðunum gegn Kúrdum. Komi til stríðs er hugsanlegt að nokkrir írösku forystumannanna verði saksóttir fyrir stríðsglæpi og Bandaríkjamenn gætu notað slík réttarhöld til að sýna að eitt af meginmarkmiðum þeirra hafi verið að frelsa Íraka, ekki að sigra þá, að sögn The Wall Street Journal. Ætla að fella eða handtaka 50 forystumenn Washington. AFP. George W. Bush FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515 www. gjtravel.is Netfang: outgoing@gjtravel.is ELSTA STARFANDI FERÐASKRIFSTOFA LANDSINS – Almenn farseðlaútgáfa, hópferðir, einstaklingsferðir, viðskiptaferðir, ferðaráðgjöf, hótelbókanir, fagleg persónuleg þjónusta, áratuga reynsla ORÐSPORIÐ SEGIR SÍNA SÖGU Helsinki, Berlín, Prag, Búdapest og Vín Til Prag 28. apríl á góðu verði Nú bjóðum við aftur skemmtilega vorferð til Prag í beinu flugi Flugleiða til Frankfurt og rútuferð þaðan til Prag. Við gistum 6 nætur á 4ra stjörnu hóteli i Prag og eftir viðkomu í þeim fagra bæ Karlovy Vary, eigum við næsturstað í Þýskalandi áður við höldum heim frá Frankfurt. Innifalið: Flug,flugvallaskattar, akstur milli Frankfurt og Prag, gisting í 2ja manna herbergi, morgunverður, skoðunarferð um Prag, íslensk fararstjórn og leiðsögn. Aðrar skoðunarferðir bókast og greiðast hjá fararstjóra. Ferðatími: 28. apríl til 5. maí Verð á mann er aðeins 79.900 krónur. Fararstjóri: Pétur Gauti Valgeirsson Leiðsögn alla ferðina. Beint leiguflug til Prag 1. ágúst Í Prag, höfuðborg Tékklands, búa 1.2 milljónir manna. Borgin, forn og sögufræg var til skamms tíma höfuðborg sambandslýðveldisins Tékkósló- vakíu og áður konungsríkisins Bæheims, sem um aldir var hluti af veldi Habsborgarættarinnar. Andblær liðinna tíma endurspeglast í umgjörð stórborgar Evrópu sem í dag laðar til sín milljónir ferðamanna árlega, enda ekki að ástæðulausu, því borgin, arfleifð hennar og íbúarnir – bjóða til Farseðlar, ferðaráðgjöf, hótelbókanir, hópferðir, einstaklingsferðir, viðskiptaferðir... Upplýsingar og bókanir – Sími 511 1515 – Takmarkað sætaframboð Öll ofanskráð verð miðast við gengisskráningu 24. febrúar 2003. söguveislu á hverju horni. Nú förum við áttunda árið í röð til Prag í beinu leiguflugi með Flugleiðum. Innifalin er vegleg skoðunarferð um Prag á fyrsta degi ferðarinnar, en auk þess eru aðrar skoðunar- ferði í boði sem greiðast sérstaklega. Innifalið: Flug,flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í 2ja manna herbergi, morgun- verður, skoðunarferð um Prag, íslensk fararstjórn og leiðsögn. Ferðatími: 1. ágúst til 9. ágúst. Verð á mann er aðeins 73.700 krónur. Fararstjórar: Emil Örn Kristjánsson og Pétur Gauti Valgeirsson. Leiðsögn alla ferðina. Búdapest, Vínarborg í maí Kræsingar eru aldrei langt undan í þessari ferð, enda viðkomustaðirnir bæði Búdapest og Vínarborg. Flogið er um Kaupmannahöfn til Vínarborgar þann 21. maí og gist þar eina nótt. Heimflug er frá Búdapest um Kaupmannahöfn þann 28. maí. Veglegar skoðunarferðir um Vínarborg og Búdapest eru innifaldar í verðinu. Innifalið: Flug til Vínarborgar um Kaupmanna- höfn og heim frá Búdapest, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi m. morgunverði, akstur milli Vínarborgar og Búdapest, skoðunarferðir um báðar borgirnar og íslensk fararstjórn og leiðsögn. Flogið verður með Flugleiðum og SAS um Kaupmannahöfn. Ferðatími: 21. maí til 28. maí Verð á mann er aðeins 83.900 krónur. Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson Leiðsögn alla ferðina Beint til Berlínar 2. maí Þriðja árið í röð bjóðum við ferðir til Berlínar. Nú förum við 2. maí í beinu leiguflugi með þýska flugfélaginu Aero Lloyd. Hér gefst ein- stakt tækifæri að upplifa söguna og breytingar á umliðnum áratug sem setja svip á borgina. Hér er vöxturinn mikill og þróunin hröð. Vegleg skoðunarferð um borgina er innifalin í verðinu. Boðnar verða m.a. skoðunarferðir til Dresden og Potsdam sem greiðast sérstaklega. Innifalið: Flug,flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli, gisting í 2ja manna herbergi, morgun- verður, skoðunarferð um Berlín, íslensk fararstjórn og leiðsögn. Ferðatími: 2. maí til 8. maí Verð á mann er aðeins 61.500 krónur. Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson Leiðsögn alla ferðina. Tvær ferðir til Helsinki í apríl Í apríl förum við 2 ferðir í beinu áætlunarflugi Flugleiða til Helsinki, höfðuborgar Finnlands; þann 16. apríl og svo viku síðar, þann 24. apríl. Umfangsmikil skoðunarferð um Helsinki sem og dagsferð til Tallin í Eistlandi eru innifaldar í verðinu. Fararstóri og leiðsögumaður verður Álfhildur Álfþórsdóttir sem búið hefur í Helsinki og þekkir staðhætti. Hún fylgir hópunum alla ferðina. Innifalið: Flug, flugvallaskattar, akstur milli flug- vallar og hótels við komu og brottför, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, skoðunarferð um Helsinki, dagsferð til Tallin, Íslensk fararstjórn og leiðsögn. Fyrri ferðin þann 16/4–21/4 er 6 daga ferð og kostar 66.400 krónur. Síðari ferðin 24/4–28/4 er fimm daga löng og kostar 62.500 krónur. Fararstjóri: Álfhildur Álfþórsdóttir Leiðsögn alla ferðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.