Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 35 Ein fyrsta stelpan sem ég kynntist þar var Anna. Við vorum litlar stelp- ur þá. Allar götur síðan hef ég átt tryggan vin þar sem Anna var. Anna var afar glæsileg kona, alltaf vel til höfð og lýsti upp umhverfi sitt með sínu glaðlega brosi. Þær eru ófáar samverustundirnar okkar á liðnum áratugum. Göngu- túrarnir til margra ára á fimmtudög- um voru okkur báðum ómetanlegir, við nutum útiverunnar og áttum skemmtilegar samverustundir að loknu röltinu á kaffihúsum eða heim- ilum okkar. Alltaf var Anna að skoða gróðurinn, hvernig samsetningin væri í beðunum, litina, tegundirnar, full áhuga að fá hugmyndir fyrir sælureitinn sinn heima í Starhólm- anum. Garðurinn var hennar unaðs- reitur og þar átti hún ómetanlegar stundir við að hlúa að plöntunum sín- um, sá fyrir sumarblómum í gróð- urhúsinu og ótal verk sem vinna þurfti. Sælureiturinn þeirra hjóna í Starhólmanum, margverðlaunaður, bar þess vitni að alúð var lögð við hann. Hún Anna ræktaði ekki síður garðinn sinn gagnvart fjölskyldunni og vinum. Strákarnir og Harry voru augasteinarnir hennar. Barnabörnin voru löngum stundum í pössun hjá ömmu og atlætið ekki af verri end- anum. Þegar fer að vora eftir nokkra mánuði mun afrakstur sáningar sumarblómanna skila sér, en síðasta verk Önnu, þá fjársjúk, var að sá fyr- ir sumarblómunum. Ég veit að Anna mun vaka yfir blómunum sínum sem og Harry og strákunum. Þegar ég ung stúlka missti for- eldra mína og bróður á skömmum tíma stóð Anna eins og klettur við hlið mér eins og ávallt síðar og aldrei hefur fallið skuggi á þá vináttu og tryggð. Fyrir þá umhyggju, hlýju og væntumþykju get ég seint þakkað. Anna var trúuð kona og hjálpaði trú- in henni í gegnum erfið veikindi síð- ustu mánuði. Ég votta Harry, öldruðum föður, Sigga, Hannesi, Bessa og fjölskyld- um þeirra mína innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu vinkonu minnar Önnu Alfonsdóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Guðrún Hjaltadóttir. Þetta er ekki mín sterka hlið, að skrifa minningargrein, reyndar bara mín önnur, en elsku Anna þú átt það svo inni hjá mér að ég skrifi til þín og miklu meira en það. Þú varst mér alltaf sem önnur móðir. Þegar ég var í Álftamýrarskóla lá leið mín oft til þín eftir skóla og þær voru ófáar helgarnar sem ég fékk að gista hjá ykkur og var farið með mig eins og prinsessu innan um karlaveldið sem fylgdi þér. Og ekki vantaði hjálpsem- ina hjá ykkur Harry. Þegar ég fór að búa var ég varla búin að fá afhentan lykilinn þegar þið Harry voruð mætt með pensla og rúllur til að aðstoða. En það er eitt sem enginn getur stát- að af eins og þú, það er blómaræktin. Strax í janúar byrjaðir þú að und- irbúa blómin sem áttu eftir að skreyta fjölda garða, svo ekki sé minnst á leiðin sem þú hugsaðir svo vel um. En það er einn garður sem bar af, þinn eigin, aldrei fékk ég nóg af því að labba um hann og skoða litadýrðina. En elsku Anna, allir vita hvað var númer eitt hjá þér, það var fjölskyldan, hún var þér allt, sam- band þitt við Harry, strákana þína og barnabörnin var alveg sérstakt og ekki má gleyma pabba þínum. Ekki leið sá dagur að þú hringdir ekki í hann eða kæmir til hans. Elsku Anna, margar sögur ertu búin að segja mér frá því ég var lítil. Þessar sögur ætla ég að geyma vel og hlæja með mínum börnum eins og við höfum gert í gegnum árin. Elsku Harry, missir þinn er mikill en þú átt svo yndislega fjölskyldu sem stendur svo þétt saman að ég veit að þið eigið eftir að standast þessa raun þótt erfið sé. Elsku afi, Harry og yndislega fjöl- skylda, megi Guð vera með ykkur. Agnes Kragh. Ef hægt er að mæla fegurðina í lífi fólks var Anna fögur í gegn. Hlýja og traust voru aðalsmerki hennar og munu lifa með okkur um ókomin ár. Þessi hægláta og vandaða kona kenndi okkur margt, en það er ef til vill sýn hennar á lífið sem situr eftir. Ekkert þótti henni vænna um en lífið og lífskraftinn í sínu fólki. Og fáir ef nokkrir hafa sinnt sínum betur um dagana. Með áþreifanlegum hætti fundum við hvernig við urðum hluti af lífi Önnu á sokkabandsárum okkar fyrir hálfum öðrum áratug. Þá tengdumst við henni ævarandi böndum sem munu ávallt vera sterk og mikilvæg í lífi okkar. Bessi, sonur hennar og Hrönn, systir okkar og mágkona, höfðu kynnt okkur fyrir þessari fal- legu konu sem snart okkur strax með ljúfu viðmóti. Það lýsir Önnu vel að hún leit á okkur sem börnin sín þegar á bját- aði. Ljúft er að minnast þess þegar hún kom eins og hvellur inn á nýtt og ómálað heimili okkar fyrir röskum áratug með pensil og stiga í hendi og fór þar um eins og verkstjóri og vandaður listamaður. Hjálpsemi og alúð var eins og rauður þráður í lífi þessarar einstöku konu ásamt ótrú- legri ósérhlífni. Þá hverfur það aldrei úr minni þegar ómegðin ætlaði okkur um koll að keyra og Anna geystist inn á heimili okkar og skipaði móðurinni til sængur með nýfæddu barni sínu og tók við þeim eldri og erfiðu heimili um nokkurra daga skeið. Þarna birt- ist Anna eins og engill af himnum og þarna varð til sú mynd sem við mun- um geyma í hjarta okkar af þessari miklu móður af guðs náð. Líklega hafa fáir ræktað garðinn sinn jafnvel og Anna Alfonsdóttir. Það var unun að koma heim til henn- ar og Harry Sampsted, elskulegs eiginmanns hennar og skoða heimili þeirra og garðinn allt umhverfis hús- ið í Starhólmanum. Þar sást bersýni- lega að listamenn voru á ferð; natnin og virðingin fyrir umhverfi og nátt- úru var slík að aðkomufólk var ekki öruggt um hnattstöðu sína. Ef til vill er ekkert foreldri jafn- mikilvægt og að sjá börnin sín vaxa vel úr grasi. Anna horfði á eftir strákunum sínum út í lífið. Fáa menn þekkjum við jafnheila og góða. Það eru verðlaun Önnu í lífinu. Að leið- arlokum ætlum við að horfa fram á veginn með þeim, tengdadætrum og börnum – og halda utan um Harry og Alfons sem lifir elskulega dóttur sína. Hvíldu í friði, góða kona. Elín og Sigmundur Ernir. Ég sem í garði gleðinnar sat við lindir ljóða í lyngmónum úti hvar bros þitt skein læt skugga minn hverfa í skóginn hljóða. (Þorsteinn frá Hamri.) Ástvinum Önnu sendum við inni- legar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Hafðu þökk fyrir samfylgdina. Auður Ýr og William (Billy). Með þessum fáu orðum langar okkur að minnast elsku frænku okk- ar, þessarar yndislegu barngóðu konu. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til fjölskyldunnar í Star- hólmanum og sitja við eldhúsborðið og spjalla um daginn og veginn yfir heimatilbúnum kræsingum eða bara kaffi og frans. Við eigum öll góðar æskuminningar um Önnu frænku. Við fengum að hjálpa til við bakst- urinn, kæfugerðina, garðyrkjuna, í gróðurhúsinu, í bílskúrnum. Hvert tækifæri var notað til að komast í Starhólmann, sem var miðpunktur fjölskyldunnar á þessum tíma. Alltaf var hún boðin búin að aðstoða okkur og passa. Öll börn hændust að henni og börnin okkar litu á hana sem ömmu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Megi Guð styrkja okkur öll í þess- ari miklu sorg. Minningin um þessa frábæru, geislandi konu lifir í hjarta okkar allra og mun ylja okkur. Elsku Harrý, Alli Siggi, Hannes, Bessi og fjölskyldur og afi Alfons, Anna lifir í ykkur. Linda Björk, Sölvi Þór, Sigríður og fjölskyldur. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Yndislegi maðurinn minn og pabbi okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, BJÖRN RAGNARSSON, Lindargötu 20, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 23. febrúar, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 6. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Álfheiður H. Árdal, Úlfar Þór Björnsson Árdal, Freyja Björt Björnsdóttir Árdal, Arndís Úlla Björnsdóttir Árdal, Arndís Pálsdóttir, Ragnar Benediktsson, Úlla Þormar Árdal systkini og fjölskyldur. Þakka samúð og hjálpsemi við andlát og útför sonar míns, HARALDAR SIGÞÓRS BERGMANN, Hátúni 10A, Reykjavík. Hann lést 14 febrúar og var jarðsettur 4. mars. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Valgerður Haraldsdóttir. Móðir okkar og tengdamóðir, VALGERÐUR HANNESDÓTTIR frá Torfastöðum II, Grafningi, sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. mars, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 8. mars kl. 13.30. Jarðsett verður að Úlfljótsvatni. Elín Snorradóttir, Sveinn Kristinsson, Björg Snorradóttir, Guðmundur Hjartarson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma, langamma og systir, ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Skólagerði 15, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtu- daginn 6. mars kl. 13.30. Ingi Jónsson, Guðmundur Ingason, Sólfríður Guðmundsdóttir, Jón Ingi Ingason, Kristín Jónsdóttir, Markús Ingason, Oddný Hólmsteinsdóttir, Arnþrúður Guðmundsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Elskulegur sambýlismaður minn, faðir og afi, GUÐMUNDUR KRISTINSSON frá Nýhöfn, lést föstudaginn 28. febrúar. Kveðjustund að lokinni kistulagningu í Fossvogskapellu fimmtudaginn 6. mars kl. 13.00. Jarðsett verður frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 8. mars kl. 14.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Anna Jóna Guðmundsdóttir, Halldór Snær Kristjánsson. Lokað Lokað verður í dag frá kl. 13.00—16.00 vegna jarðarfarar ÖNNU ALFONSDÓTTUR. Bílasmiðurinn hf., Bíldshöfða 16. Ástkær bróðir okkar og frændi, EYJÓLFUR ÓSKAR ÞORSTEINSSON frá Garðakoti, andaðist á Hjallatúni í Vík í Mýrdal fimmtudag- inn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju laugar- daginn 8. mars kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, Guðjón Þorsteinsson, Gróa Þorsteinsdóttir, Jóna Þorsteinsdóttir og frændfólk. Móðir okkar, amma og langamma, ELÍN ELÍASDÓTTIR frá Melstað, Höfðagrund 11, Akranesi, sem lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 28. febrúar sl., verður jarðsungin frá Akranes- kirkju föstudaginn 7. mars nk. kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Sjúkrahús Akra- ness. Georg Einarsson, Aðalbjörg Níelsdóttir, Viðar Einarsson, Ólöf Gunnarsdóttir, Bjarney Steinunn Einarsdóttir, Páll Helgason, Einar Einarsson, Hrafnhildur Pálmadóttir, Dröfn Einarsdóttir, Elías Jóhannesson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.